Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
11
DV
Fréttir
Reykjavíkurfundur Reagans og Gorbatsjovs:
Kostaði 63 milliónir
- stórveldin voru aldrei rukkuð - afmælisfundur í haust
Beinn kostnaður íslenska ríkisins
vegna Reykjavíkurfundarins haust-
ið 1986, fundar foseta Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna, nam tæpum
63 milljónum króna. Stærstur hluti
upphæðarinnar, um 50 milljónir
króna, kom inn í bókhald ársins
1986 en tæpar níu milljónir greidd-
ust árið 1987, 250 þúsund árið 1988
og tæpar fjórar milljónir árið 1989.
Þetta kom fram í samtali DV við
ríkisbókara nýlega.
Stærsti liðurinn í reikningunum
er löggæslukostnaður en hann nam
um 28 milljónum króna en búast má
við að hann hafi í raun verið
nokkru hærri. Benda má á að fyrir
fundinn var ákveðið að flýta ýmsum
framkvæmdum á kostnað ríkisins í
borginni og er kostnaður vegna þess
og annar óbeinn kostnaður ekki til-
greindur sérstaklega.
Fyrir fundinn var rætt um að er-
lendu ríkin, Bandaríkin og Sovét-
ríkin þáverandi, myndu bera hluta
af kostnaðinum en slík endur-
greiðsla er ekki inni í ofangreindum
tölum. Samkvæmt upplýsingum DV
voru aldrei neinir reikningar send-
ir til þessara ríkja.
Beinn kostnaður Reykjavíkur-
borgar vegna Reykjavíkurfundarins
var hverfandi. Samkvæmt upplýs-
ingum borgarbókara fékk borgar-
sjóður endurgreiddar rúmar 13
milljónir úr rikissjóði sem beinan
kostnað vegna fundarins en greiddi
sjálf tæpar tvær milljónir vegna
blaðamannafundar og fleira.
Ýmis óbeinn kostnaður vegna
fundarins, til dæmis flýtingar fram-
kvæmda, kom á borgina en ekki er
tekið fram í reikningum hversu hár
hann var.
Eins og fram hefur komið í DV er
stefnt að fundi hérlendis i haust til
þess að minnast þess að tíu ár eru
liðin frá leiðtogafundinum.
-GHS
Atvinnuástandið í desember 1995:
Atvinnuleysið
minnkaði milii ára
- en jókst töluvert frá nóvember
Atvinnuleysi í desember sl. mældist
4,9%. Það er nokkuð minna atvinnu-
leysi en í sama mánuði 1994 þegar
5,7% áætlaðs mannafla var án vinnu.
Atvinnuleysisdagar í nýliðnum desem-
ber jafngilda því að 6.250 manns hafi
að meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá. Frá því í nóvember jókst at-
vinnuleysið um 0,5 prósentustig.
Skráðir atvinnuleysisdagar í des-
ember voru ríflega 135 þúsund á
landinu öllu, þar af um 65 þúsund
hjá körlum og tæplega 71 þúsund
hjá konum. Síðasta virka dag mán-
aðarins voru 7.983 manns á atvinnu-
leysisskrá á landinu öllu en það er
1.633 fleiri en í lok nóvember. Á ár-
inu 1995 voru um 6.538 manns að
meðaltali atvinnulausir eða 5% en
árið 1994 voru um 6.209 manns án
vinnu eða 4,8% af vinnumarkaði.
Undanfarin 10 ár hefur atvinnu-
leysið aukist um tæp 42% að meðal-
tali frá nóvember til desember.
Hlutfallsleg fjölgun atvinnulausra
hefur alfarið verið minni milli þess-
ara mánaða síðan 1980. Meðal skýr-
inga nú eru ný ákvæði um fastráðn-
ingarsamninga fiskvinnslufólks frá
því í febrúar sem gera það að verk-
um að mun færri koma nú inn á at-
vinnuleysisskrá í tímabundinni
fiskvinnslustöðvun um áramótin.
Atvinnuleysi
- des '94 tii des '95 -
des. jan. feb. mar. apr. maí Júni júlí ág. sept. okt. nóv. des.
DV
Atvinnuleysi jókst alls staðar á nema á höfuðborgarsvæðinu.
landinu í desember miðað við nóv-
ember en hlutfallslega minnst á höf-
uðborgarsvæðinu. Miðað við des-
ember 1994 er atvinnuleysið hins
vegar minna í öllum landshlutum
Búist er við að atvinnuleysi auk-
ist talsvert í þessum mánuði víðast
hvar á landinu og geti orðið á bilinu
5,5 til 6%.
-bjb
KAFFI REYKJAVIK
Blótum þorra
á Kafíi Reykjavík
Glæsilegt þorrahlaðborð
á Kaffi Reykjavík, föstudag
og laugardag.
Þú getur borðað að eigin vild
fyrir aðeins 1.800 kr.
og ískaldur fylgir með.
Eyjólfur Kristjánsson stjórnar
fjöldasöng og skemmtir gestum og
hljómsveitin Hunang heldur uppi
þorrafjöri til kl. 3.00 bæði kvöldin.
Borðhald hefst kl. 19.00.
Borðapantanir í síma 562-5540.
Misstu ekki af meiriháttar þorrafjöri.
Verð aðeins 1.800 kiv
R.ESTAURANT / BAR
STADURINN ÞAR SEM STUÐIÐ ER
Höfn:
Staða bæjar-
sjóðs hefur
batnað verulega
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
DV; Höfn:
Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur
samþykkt ijárhagsáætlun bæjar-
sjóðs árið 1996 og voru allir níu bæj-
arfulltrúarnir samþykkir henni.
Tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar
250,7 milljónir króna. Rekstrargjöld
eru áætluð 181,6 milljónir og rekstr-
arafgangur 69,1 milljón króna.
Til frámkvæmda og fjárfestinga,
að frádreginni eignasölu, er áætlað
að verja 47,8 milljónum. Heildarút-
gjöld, rekstur og fjárfestingar, verða
því 229,4 milljónir. Eftirstöðvum,
21,1 millljón, er ætlað að bæta pen-
ingalega stöðu með því að greiða
niður skuldir. Áætluð staða í árslok
- skuldir umfram eignir -1996 verð-
ur rúmlega 80 milljónir eða 32% af
tekjum. í árslok 1994 var þetta hlut-
fall 58% og hefur því batnað veru-
lega.
Þetta er í samræmi við sam-
þykkta þriggja ára áætlun bæjar-
sjóðs og þá stefnu sem öll bæjar-
stjómin er sammála um; að lækka
skuldir.
Viðamesti málaflokkurinn er
skólamál. Rekstur skólanna kostar
42,8 milljónir og þar að auki er áætl-
að að verja 28,7 milljónum í fram-
kvæmdir við þá. Alls verður því
varið 71,5 milljónum í skólamálin
sem eru 28,5% af tekjum. Miklu er
varið í skólamál vegna umfangs-
mikilla skipulagsbreytinga á grunn-
skólahaldi.
Samkvæmt bráðabirgðaniður-
stöðu kemur rekstur bæjarfélagsins
vel út 1995 miðað við áætlanir.
Greiðsluafgangur verður væntan-
lega rúmum 10 millj. króna meiri en
áætlað var í fjárhagsáætlun 1995.
-JI
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
1984-l.fl. 1988-1.fl.A 6 ár 1991-1.fl.D 5 ár 01.02.96-01.08.96 01.02.96-01.02.97 01.02.96 kr. 73.587,30 kr. 31.480,40 kr. 15.616,80
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 25. janúar 1996
SEÐLABANKIÍSLANDS
_____ • ••• •• • •: