Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 25. J1
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SlMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpV/www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plðtugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Friðinum fylgt eftir
í Bosníu hefur verið að birta allra síðustu mánuði, þótt
þar sé harður hávetur. Aðgerðir Vesturlanda hafa kom-
ið á friði í landinu og lagt drög að uppbyggingarstarfi.
Stríðinu er lokið í bili, enda virðist Bandaríkjamönnum
hafa tekizt að halda haustaki á Serbíuforseta.
Slobodan Milosevits hefur raunar hagað sér í nokkra
mánuði á þann veg, að það líkist því helzt, að hann sé að
reyna að bjarga sálu sinni eftir óvenjulega ógeðfelldan
feril. Hann gerir nánast allt, sem honum er sagt að gera
til að stöðva stríðsæðið, sem hann hóf sjálfur.
í því skyni hefur hann fórnað tveimur helztu Qölda-
morðingjum sinum, Radovan Karadzic, forseta Bosníu-
Serba, og Ratko Mladic, yfirbrjálæðingi hers Bosníu-
Serba. Þeir hafa nú hægt um sig, enda vofir yfir þeim
handtaka og málaferli vegna hrikalegra stríðsglæpa.
Framganga Atlantshafsbandalagsins í Bosníu er núna
allt önnur og betri en hún var, þegar Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna þóttist halda um stjórnvölinn. Hermenn
bandalagsins láta ekki vaða yfir sig og yfirmenn þeirra
þekkja reynsluna af kerfisbundnum lygum Serba.
Á allra síðustu vikum hefur Bandaríkjastjóm enn
fremur gefið eftir fyrir stríðsglæþadómstólnum í Haag og
lofað að láta af hendi upptökur af hlerunum, sem veita
upplýsingar um skipulagið á stríðsglæpum Serba og
Bosníu-Serba og aðild manna að skipulaginu.
Hingað til hafa vestrænir embættismenn, einkum
brezkir, franskir og bandarískir, reynt að leggja stein í
götu stríðsglæpadómstólsins með því að koma í veg fyr-
ir, að hann fái fjármagn til starfa, og einnig með því að
liggja á upplýsingum, sem hann þarf á að halda.
Þvergirðingsháttur vestrænna embættismanna stafar
einkum af ótta þeirra við, að uppljóstranir stríðsglæpa-
dómstólsins muni verða þungar í skauti ýmsum valda-
miklum viðsemjendum þeirra af hálfu Serba og Bosníu-
Serba og ravrnar einnig Króata, þótt í minna mæli sé.
En Bandaríkjastjóm komst að þeirri niðurstöðu, að
það stríði gegn hagsmunum Bandaríkjanna vegna sið-
ferðisstöðu þeirra í heiminum, ef hún taki þátt í þessu
samsæri vestrænna embættismanna. Það yrði þyngra í
skauti en skaðlegu áhrifin á sambúðina við Serba.
Þetta hefur meðal annars þau áhrif, að senn tekur her-
lið Atlantshafsbandalagsins völdin á þeim svæðum, þar
sem vitað er, að Serbar og Bosníu-Serbar hafa falið lík
tugþúsunda fanga, sem þeir myrtu í stríðinu. Það þarf að
gerast, áður en sönnunargögnum verður spillt.
Þetta mun líklega einnig hafa þau áhrif, að herliðið
fari að handtaka þá, sem ákærðir hafa verið fyrir stríðs-
glæpi og verða á vegi þeirra í Bosníu. Fréttamenn hafa
tekið eftir, að franskir og brezkir foringjar láta sem ekk-
ert sé, þótt slíkir sitji við næsta kaffihúsaborð.
Það verður að koma lögum yfir þessa snarbiluðu
glæpamenn, svo að Vesturlönd nái að halda reisn sinni
og senda þau skilaboð til gráu svæðanna í heiminum, að
grundvallarlögmál vestræns samfélags séu enn í fullu
gildi, þrátt fýrir fyrra klúður Sameinuðu þjóðanna.
Enn er of fljótt að spá, hvort Vesturlöndum tekst að
komast með sæmd frá Bosníumálinu. Þróun síðustu
vikna bendir til, að svo geti orðið. Þar ræður úrslitum,
að Bandaríkin hafa lagt lóð sitt á vogarskálina. Á næstu
vikum mun svo koma í ljós, hvort árangur næst.
Eftir allar hremmingarnar, sem Vesturlönd hafa sætt
í Bosníu vegna heimsku og heigulsháttar fyrri umboðs-
manna sinna, er nauðsynlegt að fylgja friðinum eftir.
Jónas Kristjánsson
„Ekki er annað að sjá í fljótu bragði en forseti Alþingis og forsætisráðherra, jafnvel með aðstoð fle
gætu sinnt þeim skyldum sem í dag hvíla á forseta lslands.“
flf
ii m
ii n
Hli
IIII
IIII
II li'
IIII
II il
IIII
ssn
2811
IIII
IIII
Hvernig forsetc
Rutherford B. Hayes var forseti
Bandaríkjanna árin 1877 til 1881.
Hans er sjaldan getið í sögubókum
enda var hann ekki einn af þess-
um stjórnmálamönnum sem telja
sig þess umkomna „að láta gott af
sér leiða“, „láta til sín taka“,
„skilja eitthvað eftir sig“ eða hvaö
það kallast nú þegar stjórnmála-
menn taka fé af almenningi og
eyða því að hætti hússins, hvort
sem það er Hvíta húsið, Alþingis-
húsið eða Bessastaðir. Hins vegar
dró Hayes hersveitir frá Suður-
ríkjunum og batt þar með enda á
hernám norðanmanna eftir Borg-
arastríðið.
Góðverk á kostnað annarra
Nú er kunnara en frá þurfi að
segja að forseti íslands hefur allt
aðra og rýrari stöðu en forseti
Bandarikjanna. Engu að síður er
forseti íslands í góðri stöðu til að
hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, hefur sennilega nýtt sér
þessa stöðu umfram forvera sína í
embætti. Þannig hefur hún hvað
eftir annað beint umræðunni í
ákveðinn farveg. Bæði með athöfn-
um sínum og í ávörpum og viðtöl-
um. Áhugi forsetans á skógrækt
og skólamálum hefur ekki farið
fram hjá neinum og áminningar
hans til þjóðarinnar og Alþingis
um að vel verði að sinna þessum
málum hafa verið heldur 'hvim-
leiðar. Ekki vegna þess að þetta
séu slæm mál heldur vegna þess
að með þessu hefur forsetinn ýtt
undir enn frekari skattheimtu til
að standa undir kostnaði við þessi
áhugamál sín. Forsetinn hefur
með öðrum orðum reynt að láta
gott af sér leiða á kostnað annarra.
í fyrsta lagi er það rangt þar sem
gera á góðverkið á kostnað ann-
arra en hafa beðið um góðverkið
Kjallarinn
Getum við án
forseta verið?
I Sviss er enginn for
er að sjá að Svisslen
hlotið af því tjón. Ráðh
ast á um að taka á mói
gestum, halda hóf fyrir
erlendra ríkja og sækj;
ana í Kína heim. Ekki ■
sjá í fljótu bragði en
þingis og försætisráðhf
með aðstoð fleiri ráðl
sinnt þeim skyldum
hvOa á forseta íslan
hljóta sumar skyldur c
setans í dag að orka t
án efa má fækka þeim.
því að koma til álita a
_., _... verði lagt niöur. Spui
GlÚmur Jón Björnsson það er ekkert sérstal
formaður Heimdallar embættisverkum Vigc
11 bogadóttur.
„Besti forsetinn og sennilega sá eini si
allir gætu sætt sig við er enginn forse
þ.e. að embættið verði lagt niður.“
og í öðru lagi hefur forsetinn ekki
betri skilning á þörfum einstak-
linga en aðrir stjórnmálamenn.
Forsetinn hefur því ekki tekið
mark á þeim oröum Harris lávarð-
ar af High-Cross í ræðu sem hann
flutti hér á landi fyrir rúmum ára-
tug að menn ættu að veita því at-
hygli hve mikil almenn ánægja er
með val neytenda á markaði og al-
menn óánægja með gerðir stjórn-
málamanna. Enda geta menn hætt
að kaupa ákveðna vöru um leið og
þeir sætta sig ekki við hana og
keypt aðra í staðinn. Stjómmála-
mennina getur maður hins vegar
ekki skipt um nema á nokkurra
ára fresti og þá er alls ekki víst að
maður fái þann sem maður viU.
Besti forsetinn er
enginn forseti
Besti forsetinn og sc
eini sem allir gætu sæf
enginn forseti, þ.e. ac
verði lagt niður. Næstb
inn er maður á borð i
ford B. Hayes sem geri
fyrir að stjórnmálam
ekki hvers manns vai
minna sem eftir þá
betra. Flestir sem leggji
fyrir sig eru góðar mar
þeir gera sér ekki allir
að stjórnmálamenn ski]
góða og slæma stjórr
heldur eru þeir misslæi
Glúmur Jón
Skoðanir annarra
Doði í Dagsbrún
„Ný stjórn og trúnaðarráð í Dagsbrún hafa aðeins
stuðning fjórða hvers félagsmanns. Þetta eru athygl-
isverðustu niðurstöður almennra kosninga í forn-
frægasta verkalýðsfélagi landsins. Þrátt fyrir snarpa
kosningabaráttu og mikla umfjöllun í fjölmiðlum sá
innan við helmingur Dagsbrúnarmanna ástæðu til
að mæta á kjörstað, og af þeim greiddu aðeins 54%
A-lista stjómar atkvæði sitt. B- listinn hlaut 46%,
mun meira en búist var við. Úrslitin í Dagsbrún
hljóta að vekja menn á þeim bæ til umhugsunar,
sem og forystu verkalýðssamtakanna í heild.“
Úr forystugrein Alþýðublaðsins 23. janúar.
Endurnýjanleg auðlind
„Menn ættu að fara að læra það að fiskurinn í
sjónum er endurnýjanleg auðlind sem auðvelt er að
eyðileggja með græðgi og óforsjálni. Hver stofninn af
öðrum er ofveiddur og þegar kvóti er takmarkaður á
einni tegund er hann aukinn á annarri og er árang-
urinn sá að sífellt fleiri fisktegundir koma:
hættu vegna ofveiði. Allir hljóta að voi
þorskgengd sem menn verða nú varir við s
ur vottur þess aö friðunaraðgerðir og stjóri
farin aö bera árangur, enda eru miklar III
svo sé.“
Úr forystugrein Tímans 21
Vald alþingis
„Bankarnir eru í eigu ríkisins og heyra þ
skipulega undir viðskiptaráðuneytið. I raui
hefur viðskiptaráðherra lítið yfir bönki
segja þar sem yfir þá er kosin stjórn af alj
sjónarmiði stjómskipunar ríkisins þá er þc
legt fyrirkomulag; löggjafarvaldið er að kjc
sem í raun fer með mál sem tilheyra fram
valdinu í landinu. Viðskiptaráðherra ber í 1
ábyrgð á rekstri ríkisbankanna gagnvarl
það gera bankaráðin. Afleiðingin er sú að ei
neina ábyrgö á milljarða tapi og óstjóm.“
Birgir Hermannsson í Alþýðubl. 23