Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Síða 14
14
Iþróttir
Knattspyrna:
Asprilla fengi
3 milljónir í
laun á viku
Ef Faustino Asprilla skrifar
undir þriggja ára samning við
Newcastle eins og allt bendir til
í dag fengi hann þrjár milljónir
króna í vikulaun. Kaupverðið á
honum yrði í kringum 600 millj-
ónir sem er met í leikmanna-
kaupum hjá Newcastle. „Mig
langar að leika fyrir Newcastle
og ef af samningum verður mun
ég byrja að leika í febrúar eftir
aö hafa kvatt stuðningsmenn
Parma,” sagði Aspriila í samtali
við ítalska blaðið Gazzette della
Sport í gær.
Warhurst orðaður
við Wednesday
Paul Warhurst hjá Blackburn
er orðaður við Sheffield Wednes-
day þessa dagana. Hann var seld-
ur til Blackbum frá Wednesady
á sínum tíma fyrir 290 milljónir
en hefur lækkað í verði sam-
kvæmt fréttum frá Englandi.
Hann fór í síðustu viku fram á
sölu frá Blackbum.
Klinsmann ekki
meira með í vetur?
Bayem Miinchen varð fyrir
áfalli í gær þegar Jurgen Klins-
mann meiddist í æfingaleik gegn
ítalska liðinu Cagliari en þar
hefur þýska liðið verið í æfinga-
búðum.
Þýskir fjölmiðlar telja senni-
legt að hann þurfi að fara í upp-
skurð og ef það verður niður-
staðan verður hann frá keppni
það sem eftir er tímabilsins.
Einnig er sett spumingarmerki
við þátttöku hans með þýska
landsliðinu í Evrópukeppninni i
sumar.
Evans sýnir enn
áhuga á Staunton
Aston Villa er reiðubúið að
lækka verðið á Steve Staunton
en Liverpool hefur sýnt honum
áhuga upp á síðkastið. Alan
Evans, stjóri Liverpool, ætlar að
fylgjast með honum með varaliði
Villa í dag. Útsendarar fleiri liða
munu einnig gera það en Midd-
lesborough og Blackbum hafa
sömuleiðis sýnt Staunton áhuga.
Aston Villa hefur fram að þessu
viljaö fá 500 milljónir fyrir kapp-
ann.
Jackson vill
fara frá Everton
Eftir að Everton keypti Sviss-
lendinginn Marc Hottiger sér
Matt Jackson daga sína talda á
Goodison Park og hefur farið
fram á það að verða settur á
sölulista. Vitaö er að Sheffield
Wednesday og Chelsea hafa um
hríð verið að fylgjast meö
Jackson.
Fram náöi HK
Fram komst að hlið HK á
toppi 2. deildar karla í hand-
knattleik í gærkvöldi með því að
vinna Breiðablik, 21-25. ÍH vann
Ármann, 19-31, og Fylkir sigraði
Fjölni, 19-26.
—SK
Öruggt hjá ítölum
ítalir unnu 3-0 sigur á Wales í
vináttulandsleik í knattspymú í
gær. Del Piero, Casiraghi og
Ravanelli skoruðu mörkin.
Frakkar unnu sigur á Portú-
gölum, 3-2. Djorkaeff skoraði tvö
mörk fyrir Frakka.
Á Englandi vann Birming-
ham sigur á Norwich, 2-1, í
deildarbikarnum.
-GH
Valur 16 13 2 1 437-359 28
KA 15 14 0 1 431-377 28
Stjarnan 16 9 2 5 417-391 20
Haukar 15 8 3 4 392-364 19
FH 16 7 3 6 430-400 17
Afturelding 14 7 1 6 342-333 15
ÍR 16 6 1 9 353-378 13
Grótta 14 5 2 7 329-338 12
Selfoss 15 6 0 9 359405 12
Víkingur 14 4 0 10 312-334 8
ÍBV 13 3 1 9 308-343 7
KR 16 0 1 15 379-487 1
Hálfdán Þórðarson lék ágætlega fyrir FH í gærkvöldi er FH-ingar tóku lærisveina Valdimars Grímssonar í
Selfossliðinu í kennslustund í Kaplakrika. Sigurinn var FH-ingum kærkominn eftir tvo ósigra í röð í deildinni.
Hálfdán skoraði 4 mörk í gærkvöldi gegn Selfossi. DV-mynd Brynjar Gauti
Bikarúrslitaleikur kvenna í körfuknattleik á laugardag:
„Verðum að mæta til leiks
með réttu hugarfari og
þá vinnum við bikarinn“
DV, Suðurnesjum:
Bikarúrslitaleikur
kvenna í körfuknattleik
fer fram í íþróttahúsinu í
Garðinum á laugardaginn
og hefst klukkan 16. Þá
eigast við bikarmeistarar
Keflvíkinga og Njarðvík-
ingar. Gríðarlegur áhugi
er fyrir leiknum á Suður-
nesjum og hafa
körfuknattleiksdeildir fé-
laganna lagt metnað sinn
í að gera umgjörð leiksins
sem glæsilegasta.
Eigum að vera
sterkari
„Það lítur þannig út á
pappírunum að við eigum
að vera sterkari. Við lát-
um það samt ekkert hafa
áhrif á okkur. Þetta er úr-
slitaleikur og það skiptir
engu máli hvemig staða
liða er í deildinni. Styrk-
ur þeirra felst í góðum út-
lendingi og þá eru þær
mjög sterkar undir körf-
unni og eru baráttugláð-
ar. Við verðum að láta
skynsemina og styrk okk-
ar ráða ferðinni og ef það
tekst líst mér vel á leik-
inn,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Kefl-
víkinga sem hefur leitt lið
sitt til úrslita í fimm
skipti og alltaf unnið.
Ætlum okkur titilinn
„Þetta verður mjög
erfitt fyrir okkur. Kefl-
víkingar hafa gríðarlega
reynslu, þær hafa góða
hæð og eru hittnar. Það
er alveg öruggt að þær
koma til með að pressa
okkur stift en við þurfum
að vinna i því að finna
einhvern mótleik. Við
ætlum okkur titilinn og
ég vona að Njarðvíkingar
fjölmenni á leikinn og
styðji við bakið á okkur.
Við erum með ungt lið en
stelpurnar hafa spilað
marga úrslitaleiki í yngri
flokkunum," sagði Jón
Einarsson, þjálfari Njarð-
víkinga.
Getur alit gerst
„Þetta verður gífurlega
erfitt en við erum að
mæta sterkasta liði lands-
ins. En það getur allt
gerst í bikarúrslitaleik.
Við þurfum að passa þær
þær ekki komast í stuð,“
sagði Harpa Magnúsdótt-
ir, fyrirliði Njarðvíkinga.
Mæta með réttu
hugarfari
„Við verðum að mæta í
þennan leik með réttu
hugarfari og láta hlutina
ganga upp. Þær hafa góð-
an Kana og það er kraftur
í þeim sem er þeirra
helsti styrkur. Til að
vinna leikinn verðum við
að spila okkar leik og ef
það tekst vinnum við titil-
inn,“ sagði Anna M.
Sveinsdóttir, fyrirliði
Keflvíkinga, sem spilar
sinn 10. úrslitaleik í röð
og hefur hún sjö sinnum
orðið bikarmeistari með
Björgu, Önnu Míj^ij a jg,,, íkinga.
Veronicu mjög vel og láta -ÆMK
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
27
DV DV
„Rauðhærði risinn"
vaknaði til lífsins
- Héðinn Gilsson skoraði 10 mörk fyrir FH. Valdi með 12 fyrir Selfoss. Toppliðin unnu
„Þetta var lélegur handboltaleikur
og þá einkum og sér i lagi vamarleik-
urinn. Leikurinn var aldrei spenn-
andi. Það var mikið um hlaup en lít-
ið um kaup. FH-ingar hafa ekki sýnt
mikið í vetur en kannski er þessi
leikur upphafið að einhverju betra
hjá þeim,“ sagði Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfari, sem fylgdist með
leik FH og Selfoss í Krikanum í gær
þar sem FH-ingar unnu stórsigur,
35-26.
Það er hægt að taka undir orð
landsliðsþjálfarans hvað varðar gæði
leiksins en hann leysist upp í hrein-
an skotbolta í síðari hálíleik og fátt
var um varnir og þá aðallega hjá Sel-
fyssingum.
„Gaman að sjá til Héðins"
Einn var sá maður sem kryddaöi
leikinn og það allverulega. Það var
enginn annar en rauðhærði risinn,
Héðinn Gilsson, og má segja að hann
hafi nú vaknað til lífsins. Héðinn
skoraði 10 mörk í leiknum, hvert
öðru glæsilegra, með þrumuskotum.
Hann var hreint óstöðvandi í fyrri
hálfleik, skoraði 8 mörk úr jafnmörg-
um skottilraunum og bjó til ófá
mörkin fyrir félaga sína.
„Það var virkilega gaman að sjá til
Héðins og ánægjuefni fyrir landsliðið
sem þarf á honum að halda. Hann er
greinilega að komast í landsliðsform
og það er vel hugsanlegt að ég taki
hann inn í hópinn bráðlega," sagði
landsliðsþjálfarinn við DV.
Eftir brösótt gengi að undanfómu
náðu FH-ingar að reka af sér slyðru-
orðið og spila sinn besta leik í langan
tima. Áður er minnst á frammistöðu
Héðins .og einnig áttu Sigurður
Sveinsson og Guðjón Ámason góðan
leik.
Selfyssingar, sem einnig fengu
skell í fyrri leik liðanna á Selfossi,
léku afleitan vamarleik og mjög ein-
hæfan sóknarleik þar sem Valdimar
Grímsson hefði mátt hugsa meira um
að spila upp á samherja sína en hann
var langatkvæðamestur sinna
manna.
„Hugurinn á Selfossi"
„Það var gott að fá tvö stig út úr
þessum leik en það var líka það eina
góða við hann. Við vorum liklega
með hugann við bikarleikinn gegn
Selfossi," sagði Patrekur Jóhannes-
son eftir öruggan sigur KA á ÍR,
26-22.
„Ég er sáttur við okkar leik. Það
komu tveir slæmir kaflar hjá okkur
og KA-menn nýttu sér það vel,“ sagði
Magnús Már Þórðarson, línumaður
ÍR-inga eftir leikinn.
Duranona var bestur hjá KA en hjá
ÍR voru homamennirnir Njörður
Ámason og Jóhann Ásgeirsson best-
ir.
Stórsigur Valsmanna
Valsmenn unnu enn einn stórsig-
urinn i Nissan-deildinni í gærkvöldi.
Að þessu sinni urðu KR-ingar fyrir
barðinu á þeim í Laugardalshöll og
sextán marka sigur þeirra, 19-35, var
sist of stór.
-GH/-KG/-ÞG
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
„Þetta var skotið
sem ég þurfti"
- glæsileg sigurkarfa frá Mills í San Antonio
Terry Mills tryggði Detroit óvæntan
útisigur á San Antonio í nótt, 84-85,
þegar hann skoraði ævintýralega 3ja
stiga körfu rúmum tveimur sekúndum
fyrir leikslok.
Mills hafði ekki hitt vel í leiknum en
brást ekki þegar mest lá við. „Þetta var
skotið sem ég þurfti, tækifæri til að
gleyma því sem á undan var gengið í
leiknum,“ sagði Mills.
San Antonio tapaði þarna í fjórða
skipti í fimm leikjum. „Við höfum ekki
spilað vel að undanfornu og þurfum
tíma til að slípa leik okkar á ný,“ sagði
miðherjinn David Robinson, sem var
utan vallar í 18 mínútur vegna villu-
vandræða.
Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
Boston-LA Lakers.............107-124
Radja 28 - Campbell 26.
New Jersey-Houston.............89-98
- Olajuwon 36.
Philadelphia-Cleveland.........88-91
- Mills 22.
Miami-New York ................79-88
Mouming 25 - Ewing 37.
Charlotte-Washington.........127-113
Rice 28, Curry 21, Johnson 19 - Howard 21.
Chicago-Vancouver.............104-84
Pippen 30, Jordan 12 - Reeves 23.
Milwaukee-Indiana .............89-97
Robinson 25 - Miller 27, Jackson 17.
Minnesota-Phoenix..............91-101
- Barkley 22.
San Antonio-Detroit..............84-85
Johnson 19, Robinson 17, Eiliott 17 - Hill 21,
Milis 13.
Golden State-Utah...............89-100
- Malone 25.
Seattle-Denver ..................86-79
Perkins 18, Kemp 16 -
Seattle best fyrir vestan
Með sigrinum á Denver verður
Seattle með besta árangurinn i vestur-
deildinni að loknum fyrri hluta móts-
ins. Þar með er ljóst að þjálfari liðsins,
George Karl, stýrir liði vesturdeildar-
innar í Stjörnuleiknum 11. febrúar.
Michael Jordan hitti illa gegn
Vancouver og skoraði aðeins 12 stig en
Chicago vann samt áuðveldan sigur.
Liðið hefur unnið 26 heimaleiki í röð og
bætti í nótt félagsmet frá árinu 1991.
Patrick Ewing átti stórleik með New
York í Miami og skoraði 37 stig. New
York vann þar sætan sigur á fyrrum
þjálfara sínum, Pat Riley.
Lakers fór létt með Boston í leik
gömlu stórveldanna og hefur unnið
fimm leiki af síðustu sex.
-VS
Harpa Magnúsdóttir, fyrirliði Njarðvikinga, og Anna María Sveinsdóttir, fyrirliði
Keflvíkinga. Önnur þeirra hampar bikarnum glæsilega eftir úrslitaleikinn í
bikarkeppninni á laugardag. DV-mynd ÆMK
FH-Selfoss
(16-11) 35-26
1-0, 3-1, 6-6, 11-8 (16-11), 17-11,
21-12, 28-18, 32-25, 35-26.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 10, Guð-
jón Ámason 6, Sigurður Sveinsson
6/1, Hálfdán Þórðarson 4, Hans Guð-
mundsson 4/3, Gunnar Beinteinsson
3, Guðmundur Pedersen 2.
Varin skot: Magnús Ámason 10/1,
Jökull Þórðarson 5/1.
Mörk Selfoss: Valdimar 13/5, Ein-
ar G. Sigurðsson 3, Björgvin Rúnars-
son 3, Sigurjón Bjamason 3, Erlingur
Richardsson 2, Hjörtur L. Pétursson 2.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson
15, Gísli F. Bjamason 1.
Brottvisanir: FH 10 mín., Selfoss
14 mín.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og
Guðjón L. Sigurðsson.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Héðinn Gilsson,
FH.
KR-Valur
| (9-19) 19-35 |
2-3, 8-15 (9-19), 9-23, 15-31, 19-35.
Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 6,
Ágúst Jóhannsson 4/2, Sigurpáll Ámi
Aðalsteinsson 3/2, Einar B. Árnason 2,
Jóhann Þorláksson 1, Eiríkur Þorláks-
son 1, Gylfi Gylfason 1, Haraldur Þor-
varðarson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 9,
Sigurjón Þráinsson 3.
Mörk Vals: Dagur Sigurösson 7,
Ólafur Stefánsson 7, Davíð Ólafsson 4,
Andri Jóhannsson 3, Valgarð Thorodd-
sen 3, Sigfús Sigurðsson 3, Ingi Rafn
Jónsson 2, Júlíus Gunnarsson 2, Ari
Allansson 1, Einar Jónsson 1, Eyþór
Guðjónsson 1, Örvar Rúdólfsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 12/1, Örvar Rúdólfsson 8/1.
Dómarar: Egill Már og Öm Mark-
ússynir. Áhorfendur: Um 80.
Maður leiksins: Dagur Sigurðs-
son, Val.
KA-ÍR 1
(11-9) 26-22
1-3, 4-4, 8-8 (11-9), 14-10, 16-10,
19-15, 21-19, 23-19, 26-22.
Mörk KA: Julian Duranona 6,
Patrekur Jóhannesson 6/3, Leó öm
Þorleifsson 3, Erlingur Kristjánsson 3,
Björgvin Björgvinsson 3, Helgi Þór
Arason 3, Jóhann G. Jóhannsson 2.
Varin skot: Guömundur Arnar
Jónsson 12/1, Björn Bjömsson 2.
Mörk ÍR: Njörður Árnason 6, Jó-
hann Örn Ásgeirsson 5/2, Einar Ein-
arsson 3, Daði Hafþórsson 3, Magnús
Már Þóröarson 3, Ragnar Þór Óskars-
son 2.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
10.
Brottvisanir: KA 6 mín., ÍR 6 min.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og
Gunnar Viðarsson, ágætir.
Áhorfendur: 628.
Maður leiksins: Julian Duran-
ona, KA.
Eigið fe Akurnesinga
er tæpar 35 milljónir
- tekjur Knattspyrnufélags Akraness 47,6 milljónir 1995
DV, Akranesi: •
Tekjur Knattspymufélags Akraness á síðasta ári
voru 47,6 milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi
félagsins í gærkvöldi. í ársreikningi félagsins kom
fram að útgjöld á síðasta ári námu 46,7 milljónir og
hagnaður án fjármagnsliða var um 980 þúsund. Eign-
ir félagsins eru metnar á tæpar 52 milljónir. Skuldir
nema tæpum 17 milljónum og eigið fé er um 35 millj-
ónir. Hagnaður Skagamanna af þátttöku í Evrópu-
keppninni 1995 var 19,5 milljónir og 7 milljónir af öðr-
um mótum. Gunnar Sigurðsson var endurkjörinn for-
maður félagsins.
-DÓ
Bikar
Bikarferill Keflavíkurstúlkna er
einkar glæsilegur. Síðustu 10 árin
hafa þær leikiö níu sinnum til úr-
slita. Anna María Sveinsdóttir og
Björg Hafsteinsdóttir hafa leikið
aúa úrslitaleikina.
Njarðvík yngra
Meðaldur Njarðvíkurliðsins er
18,1 ár en hjá Keflavík 22,1 ár. Bæði
lið hafa handaríska leikmenn innan
sinna raða. Hjá Njarðvík er Suzzette
Sargeant sem er 26 ára gömul og hjá
Keflavík er hin 22 ára gamla Veron-
ica Cook.
Heiðursgestir
Heiðursgestir á leiknum verða
þrír.. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sem mun afhenda
m o 1 a r
bikarinn, Þorsteinn Erlingsson sem
var kjörinn maður ársins á Suður-
nesjum í fyrra og Eiríkur Alexand-
ersson, útibústjóri íslandsbanka.
Keflavík og KR
Keflavík og KR hafa oftast sigrað
í bikarkeppninni eða alls sex sinn-
um. ÍS hefur unnið fimm sinnum,
Haukar tvisvar og Þór og Grindavík
einu sinni.
Leiðin í úrslit
Njarðvíkurstúlkur lögðu íslands-
meistara Breiðabliks í 8 liða úrslit-
unum í hörkuleik og undanúrslitun-
um lögðu þær ÍR að velli. Keflavík
lagði Grindavik að velli í 8 liða úr-
slitunum og því næst unrju, þa^r
stórsigur á ÍS.
Ingi Rafn Jónsson.
Ingi Rafn brotinn?
Valsmaðurinn Ingi Rafn Jóns-
son meiddist illa í leik Vals og
KR í Nissandeildinni í gær-
kvöldi. Talið er aö hann sé hand-
arbrotinn.
Þá var KR-ingurinn Einar B.
Árnason fluttur meiddur á
sjúkrahús.
.. -SK/-ÞG
íþróttir
Knattspyma:
ísland er í
53. sætinu
ísland er í 53. sæti af 182 þjóð-
um á nýjasta styrkleikalista Al-
þjóða knattspyrnusambandsins,
FIFA, sem gefinn var út i gær.
ísland var í 50. sæti í desember,
en hefur ekki spilað síðan. Hins
vegar eru stórmót í gangi í Afr-
íku og Ameríku og þjóðir þaðan
hafa hækkað talsvert á listanum
fyrir vikið.
Brasilía er á toppnum að
vanda en eina breytingin á efstu
sætunum er sú að Mexíkó er
komið upp í 8. sæti, en Frakkar
hrapa úr því sæti niður í það 13.
Tíu efstu þjóðimar eru eftir-
taldar:
1. Brasilía...............69,61
2. Þýskaland..............61,58
3. Ítalía ................60,87
4. Spánn..................59,38
5. Rússland...............58,59
6. Holland ...............57,86
7. Argentína..............57,06
8. Mexíkó.................55,97
9. Noregur................55,43
10. Danmörk................55,07
Staða þjóðanna í riðli íslands í
HM:
11. Rúmenía...............54,80
27. írland................46,74
47. Litháen...............38,81
53. ísland................37,74
91. Makedónía ............21,57
156. Liechtenstein .........5,75
Leiknir sendir
lið á ný
Leiknismenn á Fáskrúðsfirði
hafa ákveðið að senda lið í 4.
deildina I knattspyrnu á ný.
Undanfarin ár hafa Leiknir, Súl-
an á Stöðvarfirði og Hrafnkefl úr
Breiðdal sent sameiginlegt lið,
KBS, í 4. deildina. Sama gildir
um 2. deildar lið kvenna, sem
hefur leikið undir merkjum KBS
en flyst nú yfir til Leiknis.
„Það er mikill hugur i okkur,
við erum að taka í notkun nýtt
og stórt æfingasvæði, og erum að
svipast um eftir öflugum leik-
manni sem þjálfara fyrir sumar-
ið,“ sagði Steinn Jónasson hjá
knattspymudeild Leiknis í
spjalli við DV.
Fjör í Eyjunt
Liö ÍBV og Víkings skildu jöfn
í mjög spennandi og
skemmtilegum leik í Eyjum.
Lokatölur urðu 24-24.
Valsstúlkur sigruðu KR að
Hliðarenda 24-19. Á Akureyri
unnu Fylkisstúlkur enn einn
sigurinn í deildinni er þær
sigruðu ÍBA með 28 mörkum
gegn 20.
Staðan
1. deild kvenna
Stjarnan 13 11 2 0 333-216 24
Haukar 13 9 1 3 316-231 19
Fram 12 9 1 2 302-225 19
ÍBV 13 7 2 4 307-265 16
Víkingur 14 6 2 6 336-271 14
Fylkir 13 7 0 6 289-295 14
KR 13 5 0 8 299-302 10
Valur 14 5 0 9 296-328 10
FH 13 4 0 9 224-297 8
ÍBA 16 0 0 16 237-509 0
í kvöld
Handbolti - 1. deild kvenna:
Fram-Haukar..............18.30
Borgakeppni Evrópu:
Afturelding-Drammen......20.00
Körfubolti - 1. deild karla:
ÍS-Leiknir R.............20.00
Snæfell-Stjaman..........20.00
t r ,;i *I i* i't vU i ~ ■ i I- ■■■■■ ■'■
JL