Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Qupperneq 20
32
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Fréttir
Ný heilsugæslustöð á Eskifirði:
Kostnaður innan áætlunar og
met hvað fermetra varðar
DV, Eskifirði:
Ný og glæsileg 660 m2 H2 heilsu-
gæsíustöð var formlega tekin i notk-
un á Eskifirði nýlega. Byggingin er
timburhús á tveimur hæðum og
stendur við Strandgötu 31.
í ræðu Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra við athöfnina
lýsti hún yfir sérstakri ánægju með
hve vel Byggðarholti sf. á Eskifirði,
byggingarverktaka, hefði tekist með
framkvæmdina og að verkið, sem
boðið var út í einu lagi, væri eitt ör-
fárra þar sem rauntölur reyndust
lægri en kostnaðaráætlun.
Heildarkostnaður á fermetra var
106 þús. krónur og er það lægsti
kostnaður á fermetra sem vitað er
um við byggingu heilsugæslu-
stöðva. Fyrsta skóflustunga var
tekin haust- ið 1992 og hefur síðan
Verið unnið í samræmi við fjárveit-
ingar hverju sinni. Síðan afhenti
Ingibjörg Stefáni Óskarssyni, stjóm-
arformanni stöðvarinnar, lyklavöld-
in.
Nokkrar þakkarræður voru flutt-
ar, m.a. af Auðbergi Jónssyni yflr-
lækni, sem lék við hvem sinn fing-
ur enda loksins kominn í almenni-
Heilbrigðisráðherra ásamt læknunum Auðbergi Jónssyni og Birni Gunnlaugssyni, Sigurborgu Einarsdóttur hjúkrunarfræðingi, svo og starfsfólki og Hrafni
Pálssyni, starfsmanni ráðuneytisins. DV-mynd ETh
Broddi Bjarnason í ræðustól. Ráðherrarnir Halldór og Finnur til vinstri.
DV-mynd Sigrún
Akranes:
Abyrgðir lækka en
vanskil aukast
DV, Akranesi:
Abyrgðir Atvinnuþróunarsjóðs
Akraneskaupstaðar vora um ára-
mótin tæplega 100 millj. króna og
höfðu lækkað um 1,3 millj. kr. frá
fyrra ári, að sögn Brynju Þorbjöms-
dóttur atvinnumálafulltrúa.
Um áramótin vom gjaldfallin eða
í vanskilum gjöld að upphæð 17
millj. króna. Vanskil hafa aukist
um níu milljónir frá fyrra ári. At-
vinnnumálanefhdin hefúr ályktað
að atvinnuþróunarsjóði kaupstaðar-
ins verði markaður tekjustofh sem
ætlaður verði til nýsköpunar í at-
vinnulífi bæjarins. Sjóðurinn hefur
fengið greiðslur frá bænrnn.
Brynja sagði að margt væri hægt
að styrkja og efla og bæjarfélagið
hefur á undanfömum árum lagt
mikla peninga í uppbyggingu á at-
vinnutækifæmm þannig að ekki
hefur staðið á þeim að styðja við
bakið á góðum málefhum.
-DÓ
Gabriel höggdeyfar
fyrir fólksbíla, jeppa og vörubíla
GSvarahlutir
HAMARSHÖFÐA1,567 67 44
legt húsnæði og reiðubúinn að
sinna heilbrigðisþjónustu sem nú-
tímaþjóðfélag gerir kröfu til. Sigur-
borg Einarsdóttir, sem lengstan
starfsaldur hefur, gaf stöðinni veg-
lega bókagjöf og vonast hún til að
það verði vísir að bókasafni sem
nýtist starfsfólki vel. " -ETH
Egilsstaðir:
Blasið i luðra til bættra lífskjara
DV, Egilsstöðum:
„í ljósi búsetuþróunar síðustu ára
viljum við nú spyma við fótum og
kynna ráðamönnum möguleika
fjórðungsins til atvinnusköpunar,“
sagði Broddi Bjamason, formaður
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi, við DV.
Sambandið stóð nýlega fyrir
fúndi á Egilsstöðum með þingmönn-
um kjördæmisins, iðnaðarráðherra
og forsvarsmönnum fjölmargra
stofhana eins og Byggðastofnunar.
„Þegar fólki fækkar hér eystra og
það jafnvel í sveitarfélögum með
stöndugum atvinnurekstri á sama
tíma og stöðnun er á höfuðborgar-
svæðinu, hvað gerist þá þegar at-
vinnulífið þar tekur kipp með fyrir-
sjáanlegri stóriðju? Við hljótum að
leggja enn meiri áherslu á að kanna
og kynna möguleika okkar. Þeir em
margir,“ sagði Broddi enn fremur.
í framsöguræðu nefndi Broddi
nokkra kosti fjórðungsins, svo sem
nálægð við síldar- og loðnumið, ná-
lægð við Evrópumarkað, möguleika
á stóraukinni ferðaþjónustu og
margt fleira. Um árangur fundarins
sagði hann að orð væm til alls fýrst
og heimamenn myndu fylgja þessu
máli vel eftir.
-SB
siiiÉta
m
QKAFTAHLlO 24 - SlMI 60 77 00
AlUaf skrefi á undan
Hringdu í síma 904 1750
og taktu þátt í tölvuleik í
'-/Í-rrriTa o-ír'^ M J TJf/ hrivl'l'SJlf
on BJ 30 blekspraufruprentari frá Nýherja
námskeiö og Internet tenging frá
—"'.vuskóla Heykjavíkur
.T. frölvum: Gabriel Knighfr II,
FIFA Soccer 96 og Capifralisfr
O Internet frenging frá Islandia
3 'JíW fcaÍiJM>o
verö 39,90 mrnutan
ISL@NDIA
internetmi&lun
I
I