Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Page 28
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
JHafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þð í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Síldarviðræðurnar:
Þungar
- viðræður
- segir Þorsteinn Pálsson
„Það hefur ekkert sérstakt gerst
enn í þessum viðræðum. Ég bjóst
alltaf við því að þær yrðu þungar og
þetta eru þungar viðræður," sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra um viðræður íslendinga,
Rússa, Norðmanna og Færeyinga
um skiptingu síldarkvóta norsk- ís-
lensku síldarinnar sem hófust í
Moskvu í gær.
Viðræðufundurinn í gær var
styttri en ráðgert hafði verið. Hon-
um verður fram haldið í dag. Á
morgun er svo ráðgert að hefja við-
ræður þessara sömu þjóða um
þorskveiðar í Barentshafi. Þá skipta
■ ^Pforðmenn og Rússar um viðræðu-
nefndir en sömu menn sitja áfram
fyrir íslands hönd undir forystu
Guðmundar Eiríkssonar. -S.dór
Hafnir á Suðurnesjum:
Eldur í
mannlausu
timburhúsi
■"*Mannlaust timburhús í Höfnum á
Suðurnesjum skemmdist illa í eldi i
gærkvöldi. Slökkvistarf tók drjúga
stund þar sem mikil glóð leyndist
milli þilja. Slökkviliðið í Keflavík
kom á vettvang rúmlega 9 og slökkti
í síðustu glóðinni klukkan 1 í nótt.
Verið var að standsetja timbur-
húsið en rannsókn lögreglu hafði í
morgun ekki leitt í ljós hver elds-
upptökin voru. -bjb
Dottaöi
undir stýri
Mjög harður árekstur tveggja bíla
varð skammt norðan við Akureyri
um klukkan níu í gærkvöldi. Bil-
*"áfnir voru að mætast þegar öðrum
þeirra var skyndilega ekið yfir á
rangan vegarhelming. Talið er að
ökumaðurinn hafi dottað undir
stýri. Þrennt var í hinum bílnum en
engin meiðsl urðu á fólki í þessum
árekstri. Bílarnir eru mikið
skemmdir ef ekki ónýtir. -bjb
Röntgentæknar:
Bfða eftir svari
Röntgentæknar á Landspítalan-
um hafa frestað því að taka til starfa
þar til skýrist hvort mál verður
höfðað gegn þeim.
Pétur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Ríkisspítala, segist ekki geta
. „^arað þvi hvort mál verði höfðað.
pað yrði prófmál og gert i sam-
komulagi við BHMR, fjármálaráðu-
neytið og fleiri aðila og ekki beint
gegn röntgentæknum persónulega.
-GHS
L O K I
Gæsluvarðhaldsúrskurður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær:
Þrir inni grun-
aðir um Búnað-
arbankaránið
- sömu menn og sátu í haldi vegna tryggingasvikanna
Þrír menn á þrítugsaldri voru í
gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til næstkomandi miðvikudags
vegna gruns um að hafa átt hlut
að máli við bankaránið í Búnað-
arbankanum í desember.
Þann 17. janúar fékk RLR fjóra
menn úrskurðaða í gæsluvarð-
hald vegna gruns um aðild þeirra
að umfangsmiklu tryggingasvika-
máli. Um helgina var tveimur
þeirra síðan sleppt úr haldi en
tveir sátu áfram inni vegna rann-
sóknarinnar í tryggingamálinu.
Á þriðjudag fór síðan verulega
að draga til tíðinda og voru þeir
tveir sem var sleppt um helgina
handteknir á ný, grunaðir um að
hafa staðið að bankaráninu með
þriðja aðilanum sem enn sat inni
vegna tryggingamálsins.
Þremenningamir voru síðan
leiddir fyrir Héraðsdóm Reykja-
víkur í gær og var úrskurðað
gæsluvarðhald á þá vegna gruns
um að þeir séu „huldumennimir“
sem stóðu að bankaráninu á Vest-
urgötu. Sá fjórði situr hins vegar
enn inni vegna tryggingamálsins.
Talsmenn RLR vildu ekki tjá
sig frekar um málið i samtali við
DV í morgun.
-Ótt
Játuðu innbrot:
Voru hættir að
sofa vegna
sektarkenndar
„Þeir komu hérna skömmu eftir
að það fór að kvisast út hverjir
hefðu brotist inn í bústaðinn. Þeir
játuðu á sig sökina og gáfu þá skýr-
ingu á innbrotinu að þá hefði lang-
að til að gera eitthvað sem fjör væri
í,“ segir Steinar Snorrason, lög-
reglumaður í Borgarnesi, um far-
sælan endi þjófnaðarmáls í Borgar-
flrði.
Pitlamir eru fimm, á aldrinum 15
til 17 ára. Þeir eru allir úr Borgar-
firði og gerðu það fyrir einskær
strákapör að fara inn í sumarbústað
á Eyrarlandi í Svínadal. Brutu þeir
upp bústaðinn og stálu þaðan sjón-
varpstæki og áfengi.
Samviskan tók þó fljótlega að
naga þá pilta og voru þeir að sögn
hættir að sofa á nóttunni vegna
sektarkenndar. Gáfu þeir sig þá
fram og lofuðu að bæta eiganda bú-
staðarins allt tjón i innbrotinu.
Þeir sleppa við svo búið og er
ekki reiknað með að þeir reyni aft-
ur að stytta sér stundir við að ásæl-
ast eigur annarra. -GK
Veðurblfðan það sem af er árinu hefur gefið tilefni til ýmissa verka sem allajafna eru illfram-
kvæmanleg á vetrarmánuðum. Sjálfsagt á Vetur konungur eftir að segja til sín en er á með-
an er. Menn notuðu blíðuna í gær til aö dytta að símastaurum í Hvalfiröi. Hér sjást tveir vask-
ir viðgerðarmenn uppi í einum stauranna og líkar lífið vel.
DV-mynd BG
Átök milli stjórnenda og starfsmanna Columbia:
Áform um
nýtt álver
eru í hættu
- segir yfirmaður nýrra verkefna fyrirtækisins
„Vegna þessara átaka við starfsmenn er ljóst að áform
um nýtt álver eru í hættu. Ákvarðanir verða sennilega
ekki teknar fyrr en eftir tvo eða þrjá mánuði," sagði James
Hensel, yfirmaður nýrra verkefna hjá Columbia Alum-
inum í Bandarikjunum, í samtali við DV en eignarhaldsfé-
lag starfsmanna álfyrirtækisins, sem á minnihluta í félag-
inu, hefur sett sig upp á móti áformum meirihlutans að
reisa nýtt álver á íslandi eða í Venesúela. Forráðamenn
Columbia ætluðu að vera búnir að taka ákvörðun um hvar
álverið yrði reist en nú er ljóst að það tefst enn frekar.
Starfsmennirnir vilja nýta sér forkaupsrétt á bréfum'
meirihlutans, sem nær eingöngu eru í eigu Ken Petersons,
forstjóra Columbia Aluminum, kaupa þau og selja síðan
áfram til annars álfyrirtækis í Washington- fylki, Gold-
endale Aluminum, sem gert hefur starfsmönnunum tilboð.
Stjórn Columbia hefur hins vegar gert starfsmönnunum
gagntilboð og er tilbúin að greiða þeim 63 milljónir doll-
ara, eða rúma 4 milljarða króna. Hlutur Petersons í fyrir-
tækinu er 60%, eignarhaldsfélagið á 30% og aðrir starfs-
menn 10%.
Eignarhaldsfélag starfsmanna var stofnað þegar Col-
umbia hóf rekstur fyrir 10 árum. í félaginu eru 650 starfs-
menn, þar af eru 100 þeirra hættir hjá fyrirtækinu en eiga
enn sinn hlut. Að sögn Hensel lá andstaða þeirra við áform
um álver utan Bandaríkjanna fyrst fyrir í lok desember og
síðan hefur málið verið í biðstöðu.
Samkvæmt því sem fram kemur í blaðinu American
Metal Market hefur Ken Peterson áhuga á því að reisa ál-
ver á íslandi eða í Venesúela þótt hann fari út úr Col-
umbia Aluminum. -bjb
Veðrið á morgun:
Rigning
eða slydda
Á morgun verður hæg norð-
anátt. Rigning eða slydda verð-
ur allra austast á landinu í
fyrstu en annars skýjað með
köflum. Léttir til um mestallt
land þegar líður á daginn.
Hiti um og rétt yfir frost-
marki en víða næturfrost.
Veðrið í dag er
á bls. 36
bnother
Litla
merkivélin
Loksins
með Þ og Ð
Nýbýlavegi 28-sími 554-4443