Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Side 4
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JÍLlV
* ferðir
Hvað eru Lykilhótel?
Lykilhótel er samheiti fjögurra hótela sem
hafa starfað sjálfstætt um árabil. Þetta eru
Hótel Örk í Hveragerði og Hótel Norðurland á
Akureyri, sem opin eru allt árið, Hótel Valhöll
á Þingvöllum og Hótel Garður í Reykjavík
sem eru starfrækt yfir sumarið.
Markmiðið með samstarfi þessara hótela er
fyrst og fremst hagræðing í stjórnun og
rekstri sem leiðir af sér skilvirkara bókunar-
kerfi, hagstæðari gistitilboð og lægra verð og
tryggja örugga, persónulega og vandaða þjón-
ustu. Hvert og eitt hótelanna heldur sínum
sérkennum.
Veitingahúsið Caruso við Bankastræti í
Reykjavík er nú rekið í samvinnu við Lykil-
hótelin.
Þetta er veitingastaður á tveimur hæðum.
Á fyrstu hæð eru sæti fyrir 50 manns. Matseð-
Ulinn er fjölbreyttur, með ítölsku ívafi fyrir
hópa og einstaklinga. Á anncirri hæð eru salir
fyrir stærri hópa. Caruso býður einnig ís-
lenskan matseðil fyrir erlenda ferðamenn,
jafnt sem aðra landsmenn.
Gestir á Hótel Garði, sem er eina Lykilhót-
elið i Reykjavík, geta keypt máltíðir á Caruso
á vægu verði.
Einnig geta hópar, sem gista á Hótel Örk
eða Hótel Valhöll og eiga pantað fæði, breytt
til og borðað á þessum stöðum til skiptis sé
það ákveðið með fyrirvara.
-ÞK
Lykilhdtel á Akureyri:
Hótel Norðurland í hjart
Sífellt fleiri leggja leið sína til Ak-
ureyrar allan ársins hring. Hótel
Norðurland er eitt Lykilhótelanna
og stendur í hjarta Akureyrar. Það
er eins og Hótel Örk opið allt árið. Á
Akureyri er ört dafnandi listalíf,
leikhús, tónleikar og fjörugt og fjöl-
breytt skemmtanalíf. Þá er Hlíðar-
fjall í nágrenni bæjarins skíðapara-
dís.
Á Hótel Norðurlandi eru 28 her-
bergi, öll með baðherbergi, síma, út-
varpi, sjónvarpi og vínskáp. Sem
dæmi um verð á gistingu á þessum
árstíma kosta tvær nætur í tveggja
manna herbergi með morgunverði
9.600 krónur og ein nótt í tveggja
manna herbergi með morgunverði
kostar 5.800 krónur.
Sérstök kjör eru í boði fyrir þá
sem eiga oft erindi til Akureyrar í
viðskiptaerindum. Þá kostar nóttin
í tveggja manna herbergi með morg-
unverði 4.400 krónur og nóttin í
eins manns herbergi með morgun-
verði kostar 3.300 krónur. Þetta
verð er það sama allt árið. Einnig er
í boði ódýr gisting fyrir leikhús-
gesti, skíðaiðkendur og skólahópa
yfir veturinn.
Nú hefur verið ákveðið að bæta
einni hæð ofan á hótelið og verður
það gert seinni partinn í vetur. Þar
verða tíu herbergi tO viðbótar og
glerskáli með heitum pottum og út-
sýni yfir bæinn. Morgunverður af
hlaðborði er framreiddur í sal á
fyrstu hæð hótelsins. Þar er einnig
veitingastaður með fjölbreyttum
matseðli. -ÞK
mmm
rtf
Hótel Norðurland stendur í hjarta Akureyrar. Sífellt fleiri leggja leið sína norður allan ársins hring.
Hótel Örk er eitt Lykilhótelanna. Þar verða meðal annars sparidagar eldri borgara í mars.
Hótel Örk í Hveragerði:
Stœrsta hótel utan
höfuðborgarinnar
Hótel Örk er stærsta hótel lands-
ins utan höfuðborgarinnar. Hótelið
er eitt Lykilhótelanna og er opið allt
árið. 81 herbergi er í hótelinu. Hvert
og eitt er með baði, síma, útvarpi,
sjónvarpi og vínskáp. í hótelinu eru
margir barir og veitingasalir fyrir
hvers konar starfsemi, ráðstefnur,
fundi, árshátíðir og einkasam-
kvæmi. Hótelið stendur í stórum
garði og þar er útisundlaug meö
heitum pottum, vatnsrennibraut,
barnalaug og jarðgufubaði. 9 holu
golfvöllur er við hótelið og tveir
tennisvellir. í nágrenninu eru hesta-
leigur, gönguleiðir og á vetrum
skíða- og vélsleðaferðir í boði.
Tilboð er nefnist LykUl að Hótel
Örk, þar sem innifalinn er kvöld-
verður, gisting og morgunverður
fyrir tvo, kostar 11.000 kr. Annað
dæmi um verð á gistingu er að 2
nætur í tveggja manna herbergi
kosta 8.900 kr., tvær nætur í eins
manns herbergi eru á 7.200 kr. með
morgunverði af hlaðborði í báðum
tilvikum.
Fastur liður í vetrarstarfinu á
Hótel Örk er sparidagar eldri borg-
ara. Þeir standa frá mánudegi til
föstudags og í ár verða þeir í fiögur
skipti, hefiast 4., 11., 18. og 25. mars.
Fjölbreytt dagskrá verður alla daga
og kvöld. Fjórar nætur með morg-
unverði, kvöldverði og dagskrá
kosta 14.900 kr. fyrir manninn á
sparidögum.
Um páskana er boðið upp á fiöl-
breytta dagskrá á Hótel Örk alla
daga, bæði úti og inni. -ÞK
Sól og sumar með fjölskyldunni
5.0W kr. afsláftur
á mann, 2ja ára og eldri, á eftirfarandi pakkaferðum
skv. Út í Heim/Ut í Sól sumarbæklingi Flugleiða 1996
Sólarpakkar til Barcelona, Costa Brava
og Costa Dorada.
Dönsku sumarhúsin á Mön og Lalandia.
Sparaðu og staðfestu snemma!
Bókun og greiðsla þarf að fara fram í síðasta lagi 26. febrúar 1996.
Nánari upplýsingar fást á söluskrifstofum Flugleiða,
og ferðaskrifstofum eða í söludeild í síma 50 50 100.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferdafélagi