Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Page 6
22
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
^pngar
Sýningar
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Ttl sýnis verk eftir Ertu B. Axelsdóttur, Helgu Ár-
mannsdóttur, Sigrúnu Gunnarsdóttur og Margréti
Salome. Gallerfið er opið alla virka daga kl.
12-18.
Gallerí + á AkureYri
Hlynur Hallsson opnar sýningu slna „þrjú her-
bergi" í nýju sýningarrými, Gallerí +, I Brekkugötu
35 á Akureyri laugardaginn 17. febr. klukkan 14.
Sýningin stendur til 10. mars og Gallerí + er opiö
á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14 til 18.
Gallerí Birgir Andrésson
Vesturgötu 20
Gunnar M. Andrésson sýnir ný verk, nokkurs kon-
ar lýriska hljóöskúlptúra, þar sem unnið er með
upprunatengsl og vitnað er i þjóðleg minni. Galler-
íið er opið kl. 14-18 á fimmtudögum en aðra daga
eftirsamkomulagi.
Gallerí Greip
Hverfisgötu 82 (Vltastígsmegin).
Jón Bergmann l^artansson opnar sýningu á mál-
verkum laugardaginn 24. feþr. kl. 17. Þetta er
fyrsta einkasýning Jóns hér á landi en hann hefur
áður haldið einkasýningar í Hollandi og tekið þátt
I samsýningum f Hollandi, Englandi og á íslandi.
Gallerí Regnbogans
Sveinn Bjðmsson sýnir myndlist. Meðal verka:
Rauð mynd, Blátt í blátt, Hveralitir, Ástariitir, Grátt
f grátt, Græn og Brúnt.
Gallerí Fold
Laugavegl 118d
Laugardaginn 24. febrúar kl. 15 verður opnuð
sýning á vatnslitamyndum Siguijóns Jóhannsson-
ar. Sýningin stendur til 10. mars.
Gallerf Fold er opiö daglega frá kl. 10 til 18 nema
sunnud. frá kl. 14 til 17.
Gallerí Geysir
Aðalstræti2
Galleriið er opið alla virka daga kl. 9-23 og um
helgar kl. 12-18.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15.
Galleriið er opið virka daga kl. 10-18.
Gallerí
Ingólfsstræti 8
Slðastliðinn fimmtudag var opnuð sýning á nýjum
verkum Hrafnkels Sigurðssonar. Efniviðinn f verk-
in sækir Hrafnkell úr íslenskri náttúru, hefur tekið
stuðfaberg traustataki og klætt í nælon. „Stuðla-
berg með dýfu* til 3. mars. Galleríið er opið alla
daga frá 14-18, nema mánudaga, þá er lokað.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleriið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugar-
daga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á hverju
kvðldi.
Gallerí Ríkey
Hverfisgötu 59
Sýriing á verkum Ríkeyjar. Opið kl. 13-18 virka
daga en laugardaga og sunnudaga kl. 13-16.
Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Opiðfrákl. 14-18 daglega.
Árdís Olgeirsdóttir sýnir tfl 3. mars.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
„Straumar" sýning Þórs Elfsar Pálssonar stendur
yfir í gallerí Sævars Karls. Opið á verslunartíma
frá kl. 10-18 virka daga.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstíg 1
Fimmtudaginn 22. febrúar var opnuð sýning GalF
eri Úmbru á Bemhöftstofu. Þar sýna 14 Lang-
brækur verk sín til 13. mars. Opið er frá Id. 13-18
alla daga nema kl. 14-18 sunnudaga og lokað
mánudaga.
Hafnarborg
Hafnarborg sýnir verk lan Hobson f kaffistofu
Hafnarborgar. Opnað verður laugardaginn 24.
febrúar og stendur sýningin til 5. mars.
Laugardaginn 24. febrúar verður opnuð sýning á
málverkum eftir Guðrúnu H. Jónsdóttur. Sýningin
stendurtil 11. mars.
Laugardaginn 24. febrúar verður opnuð sýning á
vatnslitamyndum eftir Guðrúnu Ragnhildi Eiríks-
dóttur. Þetta er fyrsta opinbera sýning Guðrúnar.
Sýningin stendur til 11. mars.
Kjarvalsstaðir
v/Mlklatún
3 nýjar sýningar: Laugardaginn 24. febr. '96 kl. 16,
verða formlega opnaðar þrjár nýjar listsýningar. I
vestursal eru sýrtd málverk eftir Kjartan Ólason, f
vesturforsal verk eftir Philippe Richard og f mið-
rými eru sýndir skúlptúrar eftir Guðninu Hrönn
Ragnarsdótur.
Listasafn Einars Jónssonar
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Hðggmyndagarðurinn er opinn alla
daga.
Listasafn íslands
Frfkirkjuvegi 7
Sýning á fkonum frá Norður-Rússlandi. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á vatnslitamyndum Ásgrims Jónssonar.
Sýndar eru um 25 myndir frá um fimmtíu ára tfma-
bili á ferii listamannsins og sýna þær breiddina f
túlkun og tækni þessa mikla vatnslitamálara. Opið
laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Stendur
til 31. mars.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Sýning á verkum Steinunnar Þórarinsdóttur. Sýn-
ingunni lýkur 10. mars.
Goðaferðin þýski myndlistamaðurinn Thomas
Huber sýnir I Gerðarsafni til 10. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugamestanga
Sýning á völdum andlitsmyndum eftir Sigurjón
Ólafsson „Þessir kollóttu steinar" mun standa í all-
an vetur. Bætt hefur verið við verkum, bæði þrívfð-
um andlitsmyndum, skúlptúrum o.fl. Safnið er
opið á laugardögum og sunnudðgum kl. 14-17.
Kaffistofa safnslns er opin á sama tíma.
Jón Bergmann Kjartansson opnar á morgun sína fyrstu einkasýningu hér á landi en hann hefur áður haldið tvær
slíkar erlendis. DV-mynd GVA
Málverk í Gallerí Greip:
Litlar myndir
mynda stærra verk
„Ég hef haldið tvær einkasýning-
ar í Hollandi en þetta er fyrsta
einkasýning mín hér heima. Ég hef
tekið þátt í nokkrum samsýningum,
bæði heima og erlendis,“ segir
myndlistarmaðurinn Jón Bergmann
Kjartansson sem á morgun opnar
sýningu á verkum sínum í Gallerí
Greip.
Jón var á listasviði Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti en fór síðan í
myndlistamám við akademíuna í
Enschede í Hollandi. Það er flmm
ára nám og lauk Jón því sl. vor en
hann dvaldi síðan áfram ytra þar til
í árslok. En hvemig myndir em
þetta sem haxm sýnir?
„Þetta era málverk. Flest unnin
með olíu á striga. Ég er ekki alveg
búiim að ákveða hversu margar
myndir ég sýni en yfirleitt era
nokkrar myndir hjá mér sem
mynda eitt verk. Þetta era sem sagt
litlar myndir sem mynda stærra
verk. Það má segja að ég byggi upp
málverk þannig,“ segir Jón og bæt-
ir við að hann vinni figúratíft og
nýti sér geometrískt myndmál.
Listamanninum finnst meira um að
vera á listasviðinu hér heima held-
ur en hann átti von á. Séu listvið-
burðimir leitaðir uppi er nóg að
gerast. Jóni finnst jafnframt að hér
sé verið að gera ágætishluti og alls
ekkert síðri en ytra.
Verk listamannsins era flest eða
öll unnin á síðasta ári. Sýning hans
i Gallerí Greip stendur til 10. mars.
Þrjár iistsýn-
ingar á Kjar-
valsstöðum
Á morgun verða formlega opnað-
ar þrjár nýjar listsýningar á Kjar-
valsstöðum. í vestursal era sýnd
málverk eftir Kjartan Ólafsson, í
vesturforsal verk eftir Philippe Ric-
hard og í miðrými era sýndir
skúlptúrar eftir Guðrúnu Hrönn
Ragnarsdóttur.
Kjartan Ólafsson
Kjartan er einn af kröftugri full-
trúum „Nýja málverksins" sem kom
fram beggja vegna Atlantshafsins í
byrjun 9. áratugarins. Sl. áratug hef-
ur hann þróað áfram persónuleg
efnistök og stílbrigði í stórum mál-
verkum sem oftar en ekki hafa vís-
anir í goðsögur og heimspeki.
Philippe Richard
Philippe sýnir myndir sem hann
hefúr gert hér á landi á síðastliðn-
um misseram. Þær eru hluti af
verkefhi þar sem myndimar era
settar í hylki og hent á haf út í maí
1996. Ætlunin er að hafstraumar
flytji myndimar að ströndum
Frakklands en ráðgert er að þær
verði síðan hluti af sýningu í
Fondation Cartier í París í vor.
Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir
Guðrún Hrönn er ein af þeim
listamönnum sem fikra einstigi per-
sónulegrar sköpunar og draga frum-
legar ályktanir af þekktum liststefii-
um - minimalisma og ready made.
Á þessari sýningu kynnumst við
nýjum verkum listakonunnar þar
sem stUlinn er orðinn enn knappari
en áður þó svo að aldrei sé langt í
glingurskreyti eða kitsch.
í austursal stendur eún sýning á
verkum Kjarvals sem Helgi Þorgils
Friðjónsson hefur valið. Kjarvals-
staðir era opnir daglega frá kl.
10-18.
Einkasamkvæmi eftir Ernu G. Sig-
urðardóttur.
Málverkasýning í
Listhúsi Ofeigs:
Eva og Erna
Eva G. Sigurðardóttir og Ema G.
Sigurðardóttir opna málverkasýn-
ingu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðu-
stíg 5, á morgun.
Eva sýnir málverk frá síðastliðnu
ári. Þau era unnin með olíu og
blandaðri tækni á striga, krossvið
og pappír. Viðfangsefni verkanna er
leikur með hugmyndir hvað varðar
margbreytileika.
Ema sýnir einnig málverk unnin
á siðastliðnu ári. Öll verkin eru
unnin með olíu á krossvið. Verk
hennar era samtvinnuð úr leiðangri
hennar í gegnum fortíð, nútíð og
framtíö.
Eva lauk námi frá MHÍ 1989 og
stundaði nám við Ecole des Beaux
Arts de Lyon í Frakklandi 1990-91.
Þetta er önnur einkasýning hennar.
Ema lauk líka námi frá MHÍ 1989
en stundaði nám við The Slade
School of Fine Art 1990-92. Þetta er
einnig önnur einkasýning hennar
en bæði Eva og Ema hafa líka tekið
þátt í samsýningum.
Gallerí Fold:
Vatnslita-
myndir Sig-
urjóns
Sýning á vatnslitamyndum Sigur-
jóns Jóhannssonar hefst á morgim í
Gallerí Fold og þá hefst jafhframt
kynning á olíumyndum Sveinbjarg-
ar Hallgrímsdóttur.
Sigurjón, sem hefúr unnið mikið
fyrir Þjóðleikhúsið, lagði stund á
arkitektúr við Rómarháskóla og síð-
£m myndlistamám við Handíða- og
myndlistaskólann og Myndlistaskól-
ann við Freyjugötu. Þá fór Sigurjón
í námsferð til Lundúna en fluttist
svo búferlum til Danmerkur en þar
lærði hann leikmyndagerð, leik-
myndateiknun og fleira. Hann
stundar myndlistina af kappi og hef-
ur haldið fjölda einkasýninga og
tekið þátt í samsýningu. Honum era
hugleiknar minningar frá æskudög-
unum á Siglufirði.
Sveinbjörg, sem er búsett á Ólafs-
firði, var í MHÍ og Myndlistaskólan-
um í Reykjavík. Hún hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið þátt
í samsýningum.
Sigurjón við nokkur verka sinna.
Sýningar
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17
Gallerí - Sjöfn Har. Þar stendur yfir myndlistar-
sýning á verkum eftir Sjðfn Har. Sýningin ber yfir-
skriftina „islensk náttúra, íslenskt landslag." Opið
virkadaga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
í menningarmiðstöðinni er hægt að skoða eldri
verk Braga Ásgeirssonar. En f nýjum sýningarsal
að Hverfisgötu 121 húsi Sævars Karfs, sem hlotið
hefur nafnið Sjónarhóll og rekinn er af Gerðu-
bergi, verða jafnframt til sýnis nýrri verk eftir
Braga.
Listhús 39
Strandgötu, Hafnarfirði
Laugardaginn 24. febnlar opnar Ásrún Tryggva-
dóttir sína fimmtu einkasýningu. Sýningin er opin
til 10. mars.
Listasafn Akureyrar
Tvær myndlistarsýningar ern f Listasafninu á Ak-
ureyri. í austur og miðsal eru sýndar Japanskar
tréristur frá byijun 19. aldar fram á hina tuttugustu
' auk sýnishgma af kímanéum, Óbis (mittislindum)
og rullum. i vestursal er sýning á lýsingum úr ís-
lenskum handritum, 13 Ijósmyndir af myndskreyt-
ingum frá 14. öld og fram á þá 17. Tilvalið er að
velta fyrir sér myrtdgerð tveggja menningarheima,
fstands og Japan.
Listasafn'ið er opið alla daga vikunnar nema
mánudaga frá kl. 14-18. Sýningunni lýkur á
sunnudag 25. febrúar.
Listhús Ófeigs
Skólavörðustíg 5.
Laugardaginn 24. febrúar kl. 14-17 opna Eva G.
Sigurðardóttir og Ema G. Sigurðardóttir málverka-
sýningu. Sýningin stendur til 9. mars og er opin
alla daga á almennum verslunartíma, lokað er á
sunnudðgum.
Mokka kaffi
Skólavörðustíg
Hlynur Hallsson, sýnir „Innsetning fyrir Kaffihús"
og þar eru 55 vaxhúðaðir kaffibollar ásamt kaffi-
orðum. Sýningin opnar klukkan 21 og stendur til 9.
mars.
Myndás
Laugarásvegi 1
Ljósmyndasýning Páls Guðjónssonar í Ljós-
myndastöðinni Myndás, Laugarásvegi 1. Páll sýn-
ir ijósmyndir frá Afriku en þar ferðaðist hann í 8
mánuði árið 1992 og heimsótti 17 þjóðlðnd. Sýn-
ingin stendur yfir í mánuð eða til 2. mars. Opið
virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjamamesi
Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum kl. 13-17.
Norræna húsið
Samsýning myndlistarmanna frá Færeyjum,
Grænlandi og islandi. Á sýnirtgunni sem ber heit-
ið 920 MILLIBÖR ern Ijósmyndir málverk, skjálist,
grafik og skúlptúr. Sýningin stendur tit 10. mars og
er opin daglega frá Id. 14-19.
Nýlistasafnið
Vatnsstfg 3b, 101 Reykjavík.
Alda Sigurðardóttir, HÍynur Hallsson og Steinunn
Helga Sigurðardóttir opna þtjár sýningar í Nýlista-
safninu, laugardaginn 24. febrúar kl. 14. Gestur f
setustofu safnsins er Önrar Karisson. Sýningam-
ar eru opnar daglega frá kl. 14-18 og þeim lýkur
sunnudaginn 10. mars.
Þjóðminjasafnið
Oþið sunnud, þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
12-17.
Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur
Sýningin, sem nefnist „Orka + Steinn = Mynd*,
verður opin kl. 8-19 virka daga og kl. 12-18 um
helgar.
Ingólfsstræti 8
Opið frá 14-18, alla daga nema mánudaga.
Sólon íslandus
Birgir Andrésson sýnir 30 teikningar ásamt fána-
borgum úr íslenskri ull.
Veitingastaðurinn
Á næstu grösum
Laugavegi 20b
Nú stendur yfir myndlistarsýning, 11 málverk, eftir
Kristberg Ó. Pétursson. Kristbergur stundaöi nám
í MHÍ og f Hollandi. Hann befur tekið þátt f sam-
sýningum heima og eriendis og haldið nokkrar
einkasýningar.
Arkitektafélag íslands
Laugardaginn 10. febrúar opnar sýning á loka-
verkefnum nýútskrifaðra arkitekta. Sýningin er
haldin í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu á 2. hæð f
vesturenda byggingarinnar. Sýningin er opin
11.-25. febrúar alla daga frá kl. 14-18.
Listasetrið Kirkjuhvoli
Akranesi
Síðasta sýningarhelgi á sýning Sossu í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli, Akranesi. Sossa sýnir þar nýunnin
olíuverk. Listasetrið er opið virka daga frá kl.
16-18 og frá kl. 15-18 um helgina.
Safnahús í Borgarfjarðar
í Safnhúsi Borgarfjarðar, Borgamesi, stendur yfir
sýning á 24 olíumyndum eftir Einar Ingimundar-
son.
Veitingahúsið við Tjörnina
Öm Karlsson sýnir verk, unnin með blandaðri
tækni. Sýningin stendur til sunnudagsins 3. mars
og er opin á sama tima og veitingahúsið. Einnig
verða sýndir handgerðir matseðla_r frá Hótel Búð-
um frá 1980 til 1986, einnig eftir Öm.
Veitingahúsið 22
Ljósmyndasýning á 22. Laugardaginn 24. febrúar
kl. 19 opnar Björgvin Gíslason sýningu á erótísk-
um Ijósmyndum. Myndimar sýna manninn heftan
og praðan af aðstæðum sínum, umhverfi og áiiti
annarra. Sýningin er opin alla daga eins og veit-
ingahúsið til 12. mars.