Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Blaðsíða 8
24
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
---------------------------------
Opið hús hiá skólum og fræðslustofnunum:
Dagur
símenntunar
Dagur símenntunar verður haldinn á morgun en af
því tilefni hafa nærri fimmtíu skólar og fræðslustofnan-
ir um land allt opið hús fyrir almenning frá kl. 13 til 17.
Tuttugu mínútna kennslustundir, sem hefjast á hálf-
tíma fresti, verða í boði og má þar m.a. nefna kennslu í
jarðfræði, tjármálum heimilanna, dönsku með móðm'-
málstækni, alnetinu, útlitshönnun prentgripa, stefnu-
mótun fyrirtækja, fundum og fundarstjórn, tölvunotkun
og Windows 95, afstæðiskenningu Einsteins, gæðastjórn-
un, ræðumennsku og framsögn og kínversku.
Þá má einnig benda á ráðstefnu um lauslæti, hlaup í
kringum Tjömina, slakandi nudd fyrir gesti og fyrirlest-
ur um að snúa vöm í sókn í vímuefnavanda unglinga.
Skólar og fræðsluaðilar
Þátttakendur em Bankamannaskólinn (fræðslumið-
stöð bankamanna), Bréfaskólinn, Búnaðarbanki íslands
(fjármálaskólanámskeið), Farskóli Þingeyinga, Félags-
og fræðslumiðstöð iðnaðarins, Félagsmálaskóli UMFÍ,
Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskóli Suður-
lands/Farskóli Suðurlands, Framhaldsskóli Vest-
fjarða/Farskóli Vestfjarða, Framhaldsskólinn í Vest-
mannaeyjum, Fræðslumiðstöð i fíknivörnum (Vímulaus
æska), Fullorðinsfræðslan, Háskólinn á Akureyri, Heim-
ilisiðnaðarskólinn, Hvammshlíðarskóli (fullorðins-
fræðsla fatlaðra á Akureyri), Iðntæknistofun (fræðslu-
svið), Kvöldskóli Kópavogs, Leiklistarstúdíó Eddu og
Gísla Rúnars, MH (Öldungadeild), Myndlistaskólinn í
Reykjavík, Námsflokkar Reykjavíkur, Prenttæknistofn-
un, Slysavamaskóli sjómanna, starfsþjálfun fatlaðra,
Stjórnunarfélag íslands, Stjómunarskólinn, Tölvu- og
verkffæðiþjónustan, Tölvuskóli íslands, Ferðamálaskóli
íslands, Stjómtækniskóli íslands, Tölvuskóli Reykjavík-
ur, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Viðskipta- og tölvu-
skólinn, Vitund hf. og Ökuskólinn í Mjódd.
Ráðstefna á Hótel Loftleiðum
Sama dag, þ.e. á morgun, verður haldin ráðstefna á
Hótel Loftleiðum kl. 10 til 12 f.h. undir kjörorðunum
„Svo lengi lærir sem lifír“. Þar verður fjallað um spurn-
inguna: Hver ber ábyrgð á símenntun?
Þátttöku á ráðstefmma ber að tilkynna til Rannsókn-
arþjónustu Háskólans í síma 525 4900.
Leikritið er á léttum nótum en fjallar þó öðrum þræði um jafn viðkvæm og alvarleg mál og sjálfsvíg. DV-mynd GS
Möguleikhúsið við Hlemm:
Ekki svona!
Möguleikhúsið við Hlemm fmm-
sýndi í gærkvöld leikritið Ekki
svona! eftir þá Aðalstein Ásberg Sig-
urðsson og Pétur Eggerz en sá síðar-
nefndi er einnig leikstjóri verksins.
Höfundur tónlistar er Björn Jr.
Friðbjörnsson og Jón Þórisson
hannaði leikmynd.
Leiksýningin er samin og sviðsett
með það fyrir augum að vekja ungt
fólk til umhugsunar um líf sitt og
tilveru. í verkinu birtast brot af
þeim flókna heimi sem íslensk ung-
menni lifa og hrærast í. Leikritið
dregur upp raunsæja mynd af dag-
legu lffi með áherslu á atvik sem
ýmsum kunna að þykja léttvæg en
geta skipt sköpum í lífi þeirra sem
málið varðar. Verkið er á léttum
nótum en fjallar þó öðmm þræði
um jafn viðkvæm og alvarleg mál og
sjálfsvíg. Hvað er það sem fær ungt
fólk í blóma lífsins til að grípa til
svo hörmulegra örþrifaráða? Það er
sjaldgæft að fjallað sé um þessi mál
með þeim hætti sem hér er gert en
umræðan er þó mjög mikilvæg að
margra áliti. í leikritinu er ekki
boðið upp á neinar lausnir en spurt
er margra spuminga sem ræða má
að sýningu lokinni.
Leikendur eru Jóhann G. Jó-
hannsson, Alda Amardóttir, Bjami
Ingvarsson, Bjöm Jr. Friðbjöms-
son, Einar Rafn Guðbrandsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Erla Ruth
Harðardóttir, Ingrid Jónsdóttir og
Óskar Ögri Birgisson.
Næsta sýning á verkinu er í
Möguleikhúsinu á sunnudagskvöld
en einnig er hægt að setja upp sýn-
inguna annars staðar, t.d. i skólum.
Þrjár sýningar í Nýlistasafninu
Alda Sigurðardóttir, Hlynur Halls-
son og Steinunn Helga Sigurðardótt-
ir, sem öll útskrifuðust frá MHÍ 1993,
opna þrjár sýningar i Nýlistasafninu
á morgun en gestur í setustofu safns-
ins er Öm Karlsson og sýnir hann
þar myndir unnar með blandaðri
tækni.
Alda sýnir fjórar myndir í forsal
safnsins sem gerðar eru úr lituðu
bómullarefni og festar á tréramma.
Útsaumur og hekl er gert úr ívafi
efnisins og neftiast verkin „Undan
rekkjuvoðum". Listakonan hefur
gert myndir af sínum eigin ættum,
eins konar minnismerki eða minnis-
varða um það sem varð og það sem
ekki varð.
Hlynur, sem er búsettur í Þýska-
landi, sýnir í efri sölum safnsins.
Sýningin ber heitið „Átta götumynd-
ir frá Akureyri" og samanstendur af
myndum, textum og bókverki. Á
morgun opnar listamaðurinn einnig
sýningu á verkum sína á Mokka.
Steinunn Helga sýnir í neðsta sal
safnsins myndir sem unnar eru eftir
myndum úr íslensku teiknibókinni.
Bókin er varðveitt í Árnasafni en
listakonan, sem býr í Danmörku, hef-
ur haft aðgang að íslensku handrit-
unum sem hún notar í verkum sín-
um.
Fjórtán „Langbrækur" hafa opnað sýningu á verkum sínum í Gallerf Úmbru.
Sýningin stendur til 13. mars en á henni eru smámyndir.
Hafnarborg:
Guðrún Ragnhildur,
Gígja og Ian Hobson
Þrjár sýningcir verða opnaðar á
morgun í Menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, Hafnarborg. Þetta
eru verk eftir Guðrúnu Ragnhildi
Eiríksdóttur, Guðrúnu H. Jónsdótt-
ur (Gígju) og Kanadamanninn Ian
Hobson.
Guðrún Ragnhildur sýnir vatns-
litamyndir í Sverrissal en þetta er
fyrsta opinbera sýning hennar. Hún
hefur fengist við vatnslitamálun
undanfarin níu ár, fyrst á nám-
skeiði hjá Ingibergi Magnússyni en
síðar undir leiðsögn listmálaranna
Eiríks Smith og Hrings Jóhannes-
sonar.
Gígja, sem nam við MHÍ 1989-91,
sýnir málverk í aðalsal en hún hef-
ur fengist við olíumálun frá því hún
var í áðumefndum skóla. Þess má
geta að Gígja hélt sína fyrstu einka-
sýningu i Hafnarborg fyrir fimm
árrnn.
Hobson hefur dvalið hér við störf
í myndlistarstöðinni í Straumi og
það er ekki sist veðrið hér sem hef-
ur fangað hug hans. Kanadamaður-
Guðrún Ragnhildur Eiríksdóttir sýn-
ir vatnslitamyndir í Hafnarborg.
inn hefur unnið hér um 160 teikn-
ingar og tuttugu og sjö olíumálverk.
Sýningar Guðrúnar Ragnhildar
og Gígju standa til 11. mars en verk
Hobsons verða í kaffístofu Hafnar-
borgar til 5. mars.
Tölvusýning í Keflavík
Á morgún kl. 13 hefst tölvusýning
í Tónlistarskólanum í Keflavík. Þar
verða kynntar allar helstu nýjungar
í tölvutónlist frá Apple-umboðinu og
Tölvuvæðingu hf., auk þess sem
boðið verður upp á tónlistaratriði á
hálftímafresti allan daginn á sal
skólans.
Úrslit í frjálsum
dönsum
Úrslit í Islandsmeistarakeppni 10
til 12 ára unglinga í frjálsum döns-
um fer fram í Tónabæ kl. 14 á morg-
Annað kvöld verður karnivalstemn-
ing á veitingahúsinu 22, 2. hæð. Páll
Óskar skemmtir ásamt föruneyti og
einnig er von á gömlu, góðu „Dúf-
unum“ í heimsókn. Krafist er karni-
valklæðnaðar við innganginn.
un. Keppt er i hóp- og einstaklings-
dansi.
í úrslitakeppninni taka þátt þrjá-
tíu hópar og tiu einstaklingar og
koma þeir af öllu landinu.
Bókamarkaður
í Perlunni
í Perlunni stendur nú yfir bóka-
markaður Félags íslenskra bókaút-
gefenda. Markaðurinn stendur til 3.
mars en á honum eru yfir tiu þús-
und titlar. Þar eru einnig seldir
geisladiskar.
Miðsvetrartónleikar
í Borgarneskirkju
Miðsvetrartónleikar Samkórs
Mýramanna verða i Borgarnes-
kirkju kl. 21 á sunnudaginn. Efhis-
skráin er fjölbreytt en einsöngvarar
með kómum verða Guðmundur Sig-
urjónsson og Guðbrandur Guð-
brandsson. Undirleik annast Ewa og
Jasek Toski Warzawiak.
Norræna húsið
Fyrsta norræna bókakynningin í
röð kynninga sem sendikennarar í
Norðurlandamálum við Háskóla ís-
lands halda árlega í Norræna hús-
inu verður á morgun kl. 16. Þar
verða norskar bókmenntir til um-
fjöllunar.
Á sama stað kl. 14 á sunnudaginn
verður kvikmyndasýning fyrir böm
og unglinga en þá verður sýnd
norska myndin Mormor og de átte
ungene sem er 90 mínútur að lengd.
Kl. 16 á sunnudaginn er svo kom-
ið að fyrirlestri forstjóra Norræna
hússins, Torbens Rasmussens, um
Per Hojholt sem er danskur rithöf-
undur en hann hefúr einkum skrif-
að ljóð og smásögur. Fyrirlesturinn
verður fluttur á dönsku.