Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
51
í
Sýning Sirgíðar heitir Aflabrögð
á djúpmiðum.
Gallerí Homið:
Sigríður
Gísladóttir
sýnir
Sigríður Gísladóttir opnar
sýningu á málverkum í Galleri
Horninu, Hafnarstræti 15, laug-
ardaginn 6. apríl kl. 17.
Sýningin ber yfirskriftina
Aflabrögð á djúpmiðum.
Sigríður stundaði nám við
MHÍ og hefur einnig sótt nám-
skeið erlendis. Þetta er hennar
fyrsta einkasýning en hún hefúr
tekið þátt í samsýningum, síðast
Gullkistunni á Laugarvatni.
Sýningin í Gallerí Greip verður
opin alla daga frá klukkan
11-23.30 nema hvað lokað verður
á páskadag.
Frá 14 til 18 er sérinngangur
gallerísins opinn en annars er
hægt að fara í gegnum veitinga-
húsið inn í sýningarsalinn.
-ÞK
Skrautdúfa, parruki, í sýningar-
stellinu. Hún gefur fegurðardís-
unum, sem eru sem óðast að
koma fram um þessar mundir,
ekkert eftir í sviösframkomu.
Skraut- og
bréfdúfna-
sýning í
Tónabæ
Dúfnaræktarsamband íslands
stendur fyrir skraut- og
bréfdsúfnasýningu í Tónabæ 6.
og 7. apríl, laugardaginn fyrir
páska og á páskadag, milli
klukkan 12 og 18 hvom dag.
Sýndir verða um 150 fúglar af
ýmsum tegundum. Þá verður
sleppt 50 bréfdúfum fyrir utan
Tónabæ klukkan 14 og öðrum 50
klukkan 16. Þær fljúga til síns
heima, flestar í Laugardalnum.
Strautdúiharæktendur á land-
inu eru um það bil 50 og um
20-30 í bréfdúfnarækt.
Miðaverð verður 200 krónur
fyrir börn frá 6-12 ára og 500
krónur fyrir fullorðna.
-ÞK
Bréfdúfa. Hún virðist við fyrstu
sýn eins og villtu dúfurnar á göt-
unum en er öll sterkbyggðari.
Hægt er að láta hana flytja skila-
boð með því að festa hólk með
þeim um fót hennar.
Tuttugu stúlkur keppa til úrslita í Elite-keppninni á Hótel íslandi í kvöld.
Elite-keppnin á Hótel íslandi:
DV-mynd Teitur
Urslitin í kvöld
Þær tuttugu stúlkur, sem komust
í úrslit í Elite-keppnini í ár voru
kynntar á Café Óperu föstudags-
kvöldið 29. mars síðastliðinn.
Keppnin fer fram á Hótel íslandi í
kvöld, miðvikudaginn 3. apríl, og
verður húsið opnað klukkan 19.30.
Keppnin var fyrst haldin hér á
landi árið 1985 og er þetta því í
tólfta skiptið sem hún er haldin hér.
Mikill áhugi hefur verið á keppn-
inni frá upphafi, að sögn
aðstendenda hennar, og hefur hann
farið sívaxandi.
Þátttakendur hafa aldrei verið
fleiri en nú eða 110. í úrslit komust
20 stúlkur.
í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum keppninnar segir að stúlk-
urnar sem keppa í ár séu óvenju
góðar og þess vegna séu svona
margar í úrslitum. Enn fremur seg-
ir að aldrei hafl verið jafn erfitt að
velja sigurvegara og sé dómnefnd-
inni vandi á höndum.
Sigurvegarinn hlýtur vegleg verð-
laun, aðalverðlaun eru þátttökurétt-
ur í aðalkeppninni næsta haust í
Monte Carlo.
Tímaritið Nýtt líf og Skóli Johns
Casablancas standa að keppninni í
ár.
Aðstoðarforseti Elite í New York
kemur hingað að þessu sinni. ísland
hefur alltaf vakið mikinn áhuga
fulltrúa Elite þar sem hér á landi
hafa þær stúlkur sem tekið hafa
þátt í keppninni eftir ár verið
óvenju glæsflegar. í fyrra komst ís-
lenski fulltrúinn, Ásdís María
Franklín, í úrslit í alþjóðakeppninni
í Seoul í Suður- Kóreu. -ÞK
Sálumessa
Faurés í Bessa-
staðakirkju
Listafélagið Dægradvöl og Bessa-
staðasókn standa fyrir kyrrðar-
stund í Bessastaðakirkju á föstudag-
inn langa klukkan 16.
Álftaneskórinn flytur sálumessu
eftie Fauré ásamt einsöngvurunum
Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur sópran
og Bergþóri Pálssyni baríton. Orgel-
leikari er Lenka Mátéova en stjóm-
andi er John Speight.
Aðgangur er ókeypis.
-ÞK
í Bessastaðakirkju verður sálumessa Faurés flutt á föstudaginn langa.
DV-mynd BG
Leikhópur Vegarins
sýnir leikritið Ég hef séð
Drottin í samkomuhúsi
Vegarins, Smiðjuvegi 5 í
Kópavogi, á föstudaginn
langa klukkan 20.30 og
páskadag klukkan 20.30.
Höfundur og leikstjóri
er Guðrún Ásmundsdótt-
ir, leikmynd gerði Gunn-
ar Halldórsson, ljósa-
meistari er Sveinn Bene-
diktsson og tónlistarstjóri
er Stefán Birkisson.
Leikritið fjallar um
undur páskanna, kross-
festingu og upprisu
Krists og hvílík áhrif þau
höfðu á vini og læri-
sveina Jesú.
Þetta er I fyrsta sinn
sem þetta unga trúfélag
tekur sér fyrir hendur
svo viðamikið leikverk-
efni, en um 45 manns
taka þátt í sýningunni.
-ÞK
Leikhópur Vegarins sýnir leikrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, Ég hef séð Drottin, á föstu-
daginn langa og páskadag.
Leikhópur Vegarins sýnir:
Eg hef séð Drottin
íþróttir
Skíðalandsmótið
í Bláfjöllum
Stærsti íþróttaviðburðurinn
um páskahelgina er Landsmótið
á skíðum sem fram fer í Bláfjöll-
um. Mótsetning er í Bústaða-
kirkju í kvöld en keppni hefst
svo á skírdag með keppni í 5 km
göngu kvenna klukkan 13 og 10
km göngu pilta 17-19 ára. Kukku-
tima síðar hefst svo ganga 20 ára
og eldri. Á föstudaginn langa
verður keppt í boðgöngu kvenna
klukkan 13 og boðgöngu karla
klukkan 14. Þá hefst einnig
keppni í alpagreinum með stór-
svigi karla og kvenna. Fyrri ferð
kvenna hefst klukkan 9.30 og
karlarnir hefja keppni klukkan
10.15. Á laugardaginn verður
keppt í svigi karla og kvenna og
hefst keppni klukkan 9. Mótinu
lýkur svo á sunnudag með
keppni í svigi og í göngu. Svig-
keppnin hefst klukkan 9 og 30
km ganga karla klukkan 11.
Fjórði úrslitaleikur-
inn í körfunni
Fjórði úrslitaleikur Grinda-
víkur og Keflavíkur um íslands-
meistaratitilinn I körfuknattleik
karla verður í Keflavík á laugar-
daginn og hefst leikurinn klukk-
an 16.
Páska-
barokk í
Gerðarsafni
Páskabarokk Kópavogs verð-
ur, eins og í fyrra, laugardaginn
6. aprfl klukkan 17 í Gerðar-
safni.
Sverrir Guðjónsson syngur
meðal annars lög eftir Hándel og
úr kvikmyndinni Farinelli sem
sýnd hefur verið í Háskólabiói
undanfarið. Einnig leika Martial
Nardeau og Guðrún Birgisdóttir
á barokkflautur, Anna Magnús-
dóttir á sembal og Páll Hannes-
son á violene. Á barokktónleik-
unum er leikð á upprunaleg
hljóðfæri.
Verði aðgöngumiða verður
still í hóf, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Gerðarsafni, og þeir
veröa seldir við innganginn.
-ÞK
Afgreiðslu-
tími OLÍS
um páskana
Þjónustustöðvar OLÍS verða
opnar á skírdag og annan í pásk-
um frá klukkan 8-16, á föstudag-
inn langa og páskadag er lokað.
Korta- og seðlasjálfsalar eru á
eftirtöldum stöðum: á Klöpp, við
Gullinbrú, í Garðabæ, Mjódd,
Hafnarfirði og Hamraborg.
Seðlasjálfsalar eru á eftirtöld-
um stöðum: í Ánanaustum, Álf-
heimum og Háaleiti.
-ÞK
Skotfélag Reykjavíkur:
Páskamót í
Leirdal
Skotfélag Reykjavíkur heldur
páskamót í Skeet 75+25 laug-
ardaginn 6. apríl og hefst það
klukkan tíu. Þátttakendur eru
beðnir að mæta klukkan hálftíu.
Mótið verður haldið í Leirdal
og keppt verður í öllum flokk-
um.
Á mótum Skotfélags Reykja-
víkur eru einungis leyföar
tveggja skota byssur.
Skráning er á staðnum.
-ÞK