Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Page 2
22
MÁNUDAGUR 13. MAÍ1996
íþróttir I>V
Ballesteros kærður
fyrrverandi kylfusveinn hans telur hann hafa brotið samning
Fyrir ári síðan sigraði
Severiano Ballesteros á
opna spánska meistara-
mótinu í golfi. Eftir sigur-
inn lofaði hann kylfusvein
sinn og tjáði honum að
hann yrði kylfusveinn
sinn næsta árið.
Fljótlega eftir sigurinn
rak Ballesteros kylfusvein-
inn, Joey Jones, sem er
breskur. Hefur Jones nú
ákveðið að höfða mál á
hendur Ballesteros fyrir
samningsrof.
Ballesteros er væntan-
legur til Bretlands um
helgina þar sem hann
hyggst taka þátt í Benson
og Hedges stórmóti at-
vinnumanna. Jones ætlar
að nota tækifærið og kæra
Ballesteros um helgina og
segist gera það um leið og
hann stígur fæti á breska
grund.
„Ballesteros réð mig upp
á 60 þúsund krónur á viku
og 7% af verðlaunafé sínu
að auki. Um mitt síðasta
ár ákvað hann hins vegar
að ráða annan kylfusvein,
son vinar síns. Ég hafði þá
þegar slegið lán út á laun-
in frá Ballesteros og ör-
ugga vinnu að auki.
Þetta kemur sér því afar
illa fyrir mig. í dag vildi ég
að ég hefði skelt símanum
á hann þegar hann hringdi
í mig og réð mig sem kylf-
usvein sinn,“ segir Joey
Jones.
Talið er
að kylfu-
sveinninn
eigi litla
möguleika á
að vinna
málið enda
ekki um
skriflegan
samning að
ræða.
-SK
Faustino Asprilla, lengst til vinstri, ásamt vini sínum, Pirri Osmiro, og
unnustu hans. Osmiro segir ekki fagrar sögur af Asprilla sem á greinilega
við margvísleg vandamál að stríða.
Býður Ferguson
1,4 milljarða í
Alan Shearer?
- Andy Cole á leið til Everton?
I fréttum breskra
sjónvarpsstöðva i
gærkvöld var fullyrt
að Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri
Englands- og bikar-
meistara Manchester
United, væri með til-
boð í Alan Shearer
hjá Blackburn
Rovers í lokaundir-
búningi.
í fréttunum var
fullyrt að Ferguson
ætlaði að bjóða
Blackburn 12 miiljón
ir punda fyrir
þennan mikla marka-
skorara en það gerir
um 1,4 milljarða
króna.
Ekki var greint frá
viðbrögðum forráða-
manna Blackburn
við tilboði Fergusons
en talið er líklegt að
Blackburn geti ekki
hafnað þessu tilboði.
Verði af kaupunum
verður Shearer dýr-
asti leikmaður
breskrar knatt-
spyrnu frá upphafi
og með allra dýrustu
leikmönnum heims.
Andy Cole til Ev-
erton?
í framhaldi af þess-
um fréttum breskra
fjölmiðla fóru menn
að velta fyrir sér
framtíð Andys Coles
hjá Manchester
United en hann var
keyptur á sínum
tíma til United fyrir 6
milljónir punda. í
gær var fullyrt að
viðræður hefðu átt
sér stað á milli
United og Everton og
ef Shearer færi til
United yrði Cole lát-
inn fara til Everton.
Andy Cole hefur
ekki staðið undir
þeim væntingum
sem Ferguson gerði
til hans og hefur
gengið illa að skora á
nýafstöönu keppnis-
tímabili. Margir hafa
þó vanmetið Cole sl.
vetur en hann lagði
upp mörg mörk. -SK
Kólombíumaðurinn Faustino Asprilla hjá Newcastle er umdeildur:
Drykkjusvoli sem
allir hata í Kólombíu
- segir Pirri Osmiro, besti vinur Asprilla, og ber honum illa söguna
Faustino Asprilla, Kólombíumað-
urinn í liði Neewcastle United, er
mjög umdeildur knattspymumaður.
Sumir telja hann afar snjallan leik-
mann en aðrir segja hann varla
meðalmann á knattspyrhuvellinum.
Ætla mætti að Asprilla væri þjóð-
hetja í heimalandi sínu en það er
öðru nær. Nýlega birtist viðtal við
besta vin Asprilia, landa hans Pirri
Osmiro, sem verið hefur besti vinur
Asprilla frá barnæsku.
„Asprilla er ótrúlega óvinsæll í
Kólombíu. Ég er líklega eini maður-
inn sem hann treystir fullkomlega í
dag,“ segir Osmiro sem aldist upp
með Asprilla í bænum Tulua þar
sem glæpagengi og eiturlyfjasalar
voru í aðalhlutverki. Asprilla leið
fyrir litarhátt sinn og uppi varð fót-
ur og fit þegar hann birtist á æfing-
um í íþróttahúsi bæjarins. Og þegar
Asprilia fór I sundiaugina voru öll
hvítu börnin fljót að forða sér upp
úr lauginni og þau hurfu síðan
hvert af öðru.
„íbúar Tulua hafa alltaf hatað
Asprilla. Til að byrja með var það
vegna þess að hann er blökkumaður
en í seinni tíð vegna þess að hann
er ríkur og heimafrægur. Asprilla
er vel meðvitaður um að allir í
Kólombíu hata hann.“
Drykkjusvoli
Osmiro segir ennfremur að í
hvert sinn sem Asprilla fari heim til
Kólombíu taki hann flöskuna fram
yfír allt annað og drekki í miklu
óhófi. „Asprilla er drykkjusvoli.
Hann drekuur mikið vegna þess að
hann er einmana og einnig vegna
ýmissa annarra vandamála sem
hann á við að glíma."
Peningarnir hafa breytt
miklu í lífi Asprilla
Asprilla hefur gífurleg laun hjá
Newcastle, um 1,8 milljónir í viku-
laun. Hann er milljónamæringur
eftir langan feril á Ítalíu hjá Parma.
Asprilla ólst hins vegar upp í mik-
illi fátækt, einn af níu systkynum.
Foreldrar hans voru svo fátækir að
faðir Osmiros urðu að borga fyrir
skólagöngu hans. Einn kennara
hans ber Asprilla ekki vel söguna: „
Hann var ekki fyrirmyndarnem-
andi. Hann lærði aldrei heima og
var alltaf að trufla kennsluna
Lögreglan i Tulua hefur ekki far-
ið varhluta af Asprilla. Hann hefur
meðal annars verið tekinn fyrir að
brjóta rúðu í strætisvagni og skjóta
úr skammbyssu fyrir utan nætur-
klúbb. Tveimur vikum áður en
hann skrifaði undir hjá Newcastle
var hann þátttakandi i gríðarlegum
slagsmálum á næturklúbbi i Tulua.
Kvennamálin eru einnig í upp-
námi. Hann hefur verið að sniglast
með klámkerlingu undanfarið og í
kjölfarið kom skilnaður og barátta
um forráði yfir barni þeirra hjóna.
Asprilla var varla lentur í
Englandi er hann var kominn í
vanræði hjá Newcastle. Hann
veittist ruddalega að Keith Curle,
fyrirliða Man City, og heur næsta
tímabil í leikbanni. -SK
Venables náði sáttum
Terry Venables, landsliðsþjálfari Englendinga átti að mæta fyrir rétti
vegna máls gegn fyrrum viðskiptafélaga sínum viku eftir að
Evrópukeppninni lýkur.
Ekkert verður hins vegar af réttarhöldunum því um helgina náðu þeir
félagar sáttum og því verður einum réttarhöldunum færra hjá
Venables. SK
HM 2001 í Finnlandi og Austurríki
Um helgina var ákveðið að heimsmeistaramótið á skíðum árið 2001
yrði haldið í tveimur löndum, Austurríki og Finnlandi.
Þetta var ákveðið á þingi alþjóða skíðasambandsins sem haldið var á
Nýja Sjálandi. Keppnin í alpagreinum fer fram í St. Anton S Austurríki
en keppt verðir í norrænum greinum í Lathi í Finnlandi. Lillehammer
í Noregi sóttist einnig eftir norrænu greinunum. Clr
-OXY
Rall:
Meistarinn
ók útaf og
beiö ósigur
Spánverjinn Carlos Sainz varð
sigurvegari í fyrstu rallkeppni
heimsmeistarakeppninnar um
helgina en keppnin fór fram i
Indónesíu.
Aðstæður voru mjög erfiðar til
aksturs og margir ökumennimir
fengu að finna fyrir því. Bretinn
Colin McRae hafði örugga forystu
fyrir þriðja og síðasta daginn og
virtist hafa sigurinn í hendi sér.
Hann ók hins vegar útaf í gær og
stórskemmdi bíl sinn á blautum
og hálum malarvegi. ítalinn Pieri
Liatti hafnaði í öðru sæti og
Finninn Juha Kankkunen varð í
þriðja sæti.
-SK
Wembley:
Hrækt var á
Eric Cantona
Leiðindaatvik átti sér stað
skömmu fyrir verðlaunaafhend-
inguna í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu á iaugardag.,
Þegar Eric Cantona, fyrirliði
Manchester United, gekk upp
tröppurnar að heiðursstúkunni
til að taka við bikarnum, hrækti
einn stuðningsmanna Liverpool á
hann. Þá reyndi önnur Liverpool-
bulla að slá Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóra Man Utd, en hann
komst undan högginu.
Hún birtist með ýmsum hætti
öfundin í íþróttunum og greini-
legt að misheppnaðar tilraunir
Liverpool til að vinna til verð-
launa á liðnu tímabili hafa farið í
taugamar á umræddum bullum.
-SK
Hvetjum strákana
gegn írum á EM
Islenska unglingalandsliðið í
knattspyrnu skipuðum leikönn-
um 18 ára og yngri mætir írum í
síðari leik þjóðanna á Laugar-
dalsvelli klukkan 18 á morgun.
írar unnu fyrri leikinn í Dublin,
2-1, og því er rík ástæða fyrir
knattspymuáhuagmenn að fjöl-
menna á leikinn og styðja vel við
bakið á strákunum, ekki veitir
þeim af í þetta skiptið.
Það lið sem kemst áfram
ávinnur sér rétt til þátttöku í 8-
liðá úrslitum Evrópumótsins í
Frakklandi í sumar. Þess mmá
geta að ókeypis aðgangur verður
að leiknum.
-JKS
Handbolti:
Er Sviss að
gefa eftir?
Svo virðist sem landslið Sviss í
handknattleik karla sé að gefa
eftir á lokasprettinum fyrir Evr-
ópumótið á Spáni sem hefst eftir
nokkra daga.
Svisslendingar léku gegn Norð-
mönnum um helgina og töpuðu
stórt, 28-18.
Þjóðverjar léku um helgina
gegn liði Egypta og unnu nauman
sigur, 23-22.
-SK
Portúgal meistari
Landslið Portúgals, skipað
leikmönnum 16 ára og yngri,
varð um helgina Evrópumeistari
í knattspyrnu.
Lið Portúgals lék gegn liði
Frakklands í úrslitum og sigraði
1-0. Staðan í leikhléi var marka-
laus.
-SK