Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Page 5
24
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 1996
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 1996
Iþróttir
1996
A-RIÐILL B-RIÐILL
England Spánn
Sviss Búlgaría
Holland Rúmenía
Skotland Frakkland
C-RIÐILL D-RIÐILL
Þýskaland Danmörk
Tékkland Portúgal
Ítalía Tyrkland
Rússland Króatía
Laugardagur, 8. jún. England Sviss
Sunnudagur, 9. jún. Spánn Búlgaria
Þýskaland Tékkland
Danmörk Portúgal
Mánudagur, 10. jún. Holland Skotland
Rúmenía Frakkland
Þriðjudagur, 11. jún. Ítalía Rússland
Tyrkland Króatía
Fimmtud., 13. jún. Sviss Holland
Búlgaría Rúmenía
Föstudagur, 14. jún. Tékkland Ítalía
Portúgal Tyrkland
Laugardagur, 15. jún. Skotland England
Frakkland Spánn
Sunnudagur, 16. jún. Rússland Þýskaland
Króatía Danmörk
Þriðjudagur, 18. jún. Skotland Sviss
Frakkland Búlgaría
Holland England
Rúmenía Spánn
Miðvikudagur, 19. jún. Rússland Tékkland
Króatía Podúgal
Ítalía Þýskaland
REUTERS Tyrkland Danmörk
QUARTER FINALS
Saturday, June 22 Sunday, June 23
Sigurv. í B-riðli Sigurv. í A-riðli Sigurv. í C-riðli Sigurv. í D-riðli
gegn gegn gegn gegn
2. sæti í A-riðli 2. sæti í B-riðli 2. sæti í D-riðli 2. sæti í C-riðli
1 '.
SEMI FINALS L Wednesday, June 26 L
FINAL Sunday, June 30
WEMBLEY
Evrópukeppni landsliða
í fótbolta verður haldin á
Englandi frá 8. til 30. júní 1996
ST JAMES’ PARK
Newcastle
(Newcastle United FC)
ELLAND ROAD
(Leeds United FC)
HILLSBOROUGH
Sheffield
(Sheffield Wednesday FC)
OLD TRAFFORD
Manchester
(Manchester United FC)
ENGLAND
CITY GROUND
Nottingham
(Nottingham Forest FC)
ANFIELD
Liverpool
(Liverpool FC)
VILLA PARK
Birmingham
(Aston Villa FC)
WEMBLEY
London
LEIKVELLIR
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR-inga, með Reykjavíkurbikarinn eftir að KR hafði sigrað Fylki, 4-2, á Laugardalsvelli í gær.
Þormóður er ekki óvanur að taka við titlinum því KR-ingar unnu Reykjavíkurmótið í þriöja sinn í röð. DV-mynd Brynjar Gauti
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Þrenna Guðmundar
og sá þriðji í röð
- fjörugur úrslitaleikur KR og Fylkis sem KR vann, 4-2
KR-ingar urðu í gær Reykjavíkur-
meistarar í knattspymu, þriðja árið í
röð. KR sigraði Fylki, 4-2, i skemmti-
legum leik sem fram fór á iðjagrænum
Laugardalsvelli sem ágúst væri.
Ólafur Kristjánsson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir KR og skömmu síð-
ar kom Guðmundur Benediktsson KR í
2-0. Fylkismenn náðu að minnka mun-
inn í 2-1 með marki frá Gunnari Þór.
Fylkismenn náðu varla að fagna mark-
inu. KR-ingar tóku miðju og Guðmund-
ur Benediktsson skaut samstundis frá
miðju og knötturinn sigldi yfir allan
vallarhelming Árbæjarliðsins, yfir
markvörðinn Kjartan Sturluson og í
markið. Stórkostlegt mark og það þarf
mikið hugmyndaflug til að reyna slíka
■hluti sem markskot frá miðjum vellin-
um.
Þetta skondna mark Guðmundar
virtist algerlega setja Fylkismenn út af
laginu og KR-ingar voru skarpari í öll-
um sínum aðgerðum. Guðmundur
Benediktsson bætti síðan fjórða marki
KR við og síðasta mark leiksins skor-
aði Kristinn Tómasson fyrir Fylki úr
vítaspyrnu.
Leikurinn var skemmtilegur og lofar
svo sannarlega góðu fyrir sumarið. Að-
stæður voru ótrúlega góðar, bæði veð-
ur og völlur.
Svo virðist sem hagstætt tíðarfar
undanfarið komi knattspyrnumönnum
til góða og knattspyrnan ætti að geta
orðið betri í sumar en undanfarin sum-
ur.
Víkingur áfram í A-deild
Vikingur sigraði Leikni, 2-1, um
helgina á Reykjavíkurmótinu og
Víkingar leika því í A-deild
Reykjavíkurmótsins að ári.
-SK
Knattspyrnan um helgina í Noregi og Svíþjóð:
Sigur hjá Brann en
tap hjá Örgryte
Birkir Kristinsson og fé-
lagar hans í norska liðinu
Brann unnu góðan sigur
um helgina gegn Start á
útivelli, 0-2.
Birkir lék ekki með
Brann vegna meiðsla sem
hann varð fyrir í síðasta
leik með Brann. Ágúst
Gylfason var hins vegar í
liðinu.
Liö Gests Gylfasönar og
Marko Tanasic, Strömgod-
set, gerði jafntefli á heima-
velli sínum gegn Stabæk,
2-2.
Toppliðin í norsku 1.
deildinni, Lilleström og
Rosenborg, áttust við um
helgina og vann LiUeström
stórsigur, 3-0. LiUeström
er efst með 16 stig en Ros-
enborg er með 13 og leik
minna. Brann er í 7. sæti
með 9 stig.
í sænska boltanum tap-
aði Örgryte á heimavelli
gegn Helsingborg, 0-2.
Rúnar Kristinsson lék
mjög vel fyrir Örgryte
þrátt fyrir tap liðsins.
-SK
Iþróttir
Tveir handboltalandsleikir gegn Færeyingum:
Öruggt í
Þórshöfn
íslenska A-landsliðið í
handknattleik lék tvo
landsleiki gegn frændum
okkar í Færeyjum um
helgina. Báðir leikirnir
unnust nokkuð örugg-
lega, sá fyrri 29-19 og
þann síðari með 29
mörkum gegn 20.
I fyrri leiknum á laug-
ardag tók það íslenska
liðið nokkurn tíma að
hrista af sér færeyska
liðið. Smám saman kom
styrkleikamunur á lið-
unum í ljós og íslending-
ar sigu jafnt og þétt
fram úr.
Mörk íslands: Ólafur
Stefánsson 7, Gústaf
Bjarnason 5, Bjarki Sig-
urðsson 4, Dagur Sig-
urðsson 3, Rúnar Sig-
tryggsson 3, Júlíus
Gunnarsson 2, Arnar
Pétursson 2, Davíð Ólafs-
son 1, Róbert Sighvats-
son 1, Gunnar Viktors-
son 1.
t síðari leiknum í
Þórshöfn í gærkvöldi
þróaðist leikurinn með
svipuðum hætti og fyrri
leikurinn. Færeyingar
voru þó mun grimmari
og fyrri hálfleikur var
lengst af í jafnvægi. í
hálfleik var staðan 13-10
fyrir tsland.
í síðari hálfleik náði
íslenska liðið yfirhönd-
inni og níu marka sigur
varð staðreynd.
Aftur var það Ólafur
Stefánsson sem var at-
kvæðamestur, skoraði 8
mörk, og þeir Dagur Sig-
urðsson og Bjarki Sig-
urðsson skoruðu fimm
mörk hvor.
Það mátti greina á
leik íslenska liðsins að
menn hafa aðeins dottið
úr leikæfingu en samt
sem áður brá fyrir ágæt-
um leikköflum.
Ólafur Stefánsson,
Dagur Sigurðsson og
Bjarki Sigurðsson voru
einna frískastir í
leikjunum í Færeyjum.
Allir fengu að spreyta
sig og ungir og
óreyndari leikmenn
komust vel frá sínu.
Landsliðið saman í
júní fyrir Svissferð
Þorbjörn Jensson
þjálfari hefur kallað lið-
ið saman til æfinga í
júni og mun það æfa af
kappi fram að keppnis-
ferð til Sviss í lok júní.
Þar verða leikinir tveir
leikir. Það verða að öll-
um líkindum síðustu
leikir liðsins fyrir for-
keppni Evrópuþjóða að
HM sem hefst í byrjun
október. -JKS
Olafur Stefánsson skor-
aði 15 mörk í tveimur
leikjum gegn Færeying-
um í Þórshöfn um helg-
ina.
Mihajlo Bibercic sést hér í baráttu um knöttinn í leiknum gegn Fram en Bibercic skoraði þrjú mörk í leiknum. Til
varnar er Valur Fannar Gíslason, leikmaður Fram. DV-mynd Brynjar Gauti
^ Deildabikarkeppni KSÍ í knattspyrnu:
IA og Breiðablik í úrslit
Ótrúlegar
sveiflur
Ungverska liöið Zaiau varð
um helgina sigurvegari í Borga-
keppni Evrópu í handknattleik
kvenna.
Zalau vann fyrri leikinn gegn
norska liðinu Gjerpen, 23-15, en
síðari leiknum í Noregi lauk
með sigri norska liðsins, 27-19.
Ungverska liðið varð Evrópu-
meistari á fleiri mörkum skor-
uðum á útivelli.
-SK
Golf:
Öruggt hjá
Harrington
Lítt þekktur kylfmgur, írinn
Padraig Harrington, varð sigur-
vegari um helgina á opna
spænska meistaramótinu í golfi.
Harrington lék holurnar 72 á
272 höggum en Gordon Brand jr.
varð í ööru sæti á 276 höggum.
Rolf Muntz, Hollandi, kom næst-
ur á 278 höggum.
Mikil rigning setti mark sitt á
mótið og á lokadeginum í gær
urðu keppendur að leika 36 hol-
ur til að ljúka mótinu í tíma.
-SK
Tennis:
Tífaldaði
tekjurnar
„Ég veit ekki hvað er að ger-
ast hjá mér. Ég var mjög tauga-
óstyrkur í byrjun enda hef ég
aldrei komið nálægt svona úr-
slitaleik áður,“ sagði Spánverj-
inn Roberto Carretero í gær eft-
ir að hann hafði gert sér lítið
fyrir og sigrað á móti atvinnu-
manna í tennis í Hamborg.
Carretero var í 143. sæti á
heimslistanum fyrir mótið og
því ekki til mikils ætlast af hon-
um fyrir mótið. Fyrir sigurinn
fékk hann rúmar 20 milljónir
króna sem er tífalt meira en
hann hefur þénað á öllum sínum
ferli fram að þessu.
„Þetta er draumasigur fyrir
mig. Þegar kom að verðlaunaaf-
hendingunni hafði ég ekki hug-
mynd um hvað ég ætti af mér að
gera,“ sagði Spánverjinn og var
greinilega ekki búinn að átta sig
á hlutskipti sínu í Hamborg.
-SK
Skíði:
Sú sænska úr
leik í hálft ár
Sænska skíðadrottningin,
Kristina Andersson, verður frá
æfingum og keppni næstu sex
mánuði en hún er á meðal
sterkustu skíðakvenna í
heiminum. Hún meiddist 1. maí
sl. á hné og á næstu dögum verð-
ur húh að gangast undir upp-
skurð. Andersson vann fyrsta
sigur sinn í heimsbikarkeppn-
inni á síðasta keppnistímabúi.
-SK
EM i Englandi:
Lediakhov
er úr leik
Rússneska landsliðiö í knatt-
spyrnu varð fyrir miklu áfalli í
gær er miðvallarleikmaðurinn
Igor Lediakhov meiddist alvar;
lega í leik með liði sínu Sporting
Gijon gegn Compostela á Spáni.
Lediakhov var borinn af leik-
velli þegar skammt var til
leiksloka eftir að hafa skorað tví-
vegis fyrir lið sitt. Lediakhov
verður ekki með Rússum í Evr-
ópukeppninni. -SK
Það verða Akurnesingar og Breiða-
blik sem leika til úrslita í fyrstu
deildabikarkeppni KSÍ í knatt-
spymu. Leikur liðanna verður háð-
ur á miðvikudagskvöldið kemur á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Þetta var ljóst eftir stórsigra lið-
anna beggja á andstæðingum sínum
á fóstudagskvöldið var. Akurnesing-
ar unnu Framara, 0-5, á fyrsta gras-
leik vorsins í Reykjavík á Valbjarn-
arvelli. Akurnesingar voru öllu
frískari í leiknum og hefðu þess
vegna getað skorað fleiri mörk.
Mihajlo Bibercic gaf tóninn fyrir
sumarið með þremur mörkum en
þeir Bjarni Guðjónsson og Bjarki
Pétursson skoruðu sitt markið
hvor. Akurnesingar verða sem áður
sterkir í sumar. Þeir léku oft vel við
bestu aðstæður. Framarar hins veg-
ar ollu vonbrigðum, vömin slök og
sóknarmenn liðsins stundum miklir
klaufar upp við markið.
Bibercic frískur
Bibercic kemur greinilega mun
frískari til leiks en áður og veit það
á gott fyrir átök sumarsins. Zoran
Mijolovic var sem klettur í vörn-
inni.
Framarar náðu sér ekki á strik og
hafa oft áður leikið betur í vor. í
þetta skiptið mættu þeir ofjörlum
sínum.
Blikar mun betri
Breiðablik vann sanngjarnan sig-
ur á Grindvíkingum, 3-0. Pálmi
Haraldsson og Kjartan Einarsson
skoruðu fyrir Blika í fyrri hálíleik
og undir lok leiksins bætti Arnar
Grétarsson við þriðja markinu.
Rétt á eftir var honum svo vikið
af velli fyrir að stöðva boltann með
hendinni. Hann verður því fjarri
góðu gamni í úrslitaleiknum.
Breiðabliksliðið hafði tögl og
hagldir í leiknum og virkar það í
góðri æfingu. Mótspyrnan verður
eflaust meiri í úrslitaleiknum en
engu að síður lék liðið ágætlega á
köflum í þessum leik.
Grindvíkingar léku lengstum
ekki vel að þessu sinni. -JKS