Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Qupperneq 10
30
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 JD"V"
að eilífu
Leigir skreytingar úr silki- og þurrblómum:
Salurinn kostar fimmtán
„Brúðhjónin velja sér skreytingar
í einhverjum litum og ég skreyti
matborðið, háborðið og dúkana í
samræmi við þessar óskir,“ segir
Halldóra Sigurðardóttir sem byrjaði
fyrir nokkrum árum að búa til
óvenjulegar brúðkaupsskreytingar
sem hún leigir brúðhjónum. Hall-
dóra notar silkiblóm og þurrkuð
blóm í skreytingar sínar sem verður
til þess að þær verða miklu ódýrari
heldur en með lifandi blómum.
Á Hverfisgötunni hefur Halldóra
komið sér fyrir í litlum, þröngum
skúr á lóðinni heima hjá sér. Þar
getur fólk skoðað skreytingar henn-
ar eftir samkomulagi. Brúðkaups-
skreytingar eru ekki aðalstarf hjá
Halldóru heldur starfar hún að jafh-
aði sem sjúkraliði. Sumir vilja fá
brúðarvendi úr silkiblómum og þá
er bæði hægt að kaupa og leigja
ásamt blúndum og slaufum í öllum
regnbogans litirni.
„Ég sel fólki skreytingar á bílinn
en leigi skreytingar í kirkjuna. Þeg-
ar ég tek að mér brúðkaup úti á
landi fæ ég teikningu af salnum og
skreyti samkvæmt því. Starfssemin
spyrst aðallega út í gegnum fólk
sem hefur verið í veislum þar sem
ég hef skreytt. Þetta er ofsalega eðli-
legt og kemur mjög fallega út. Fólki
þykir skrýtið þegar ég tek niður
skreytingarnar og fer með þær. Ég
leigi þetta fyrir lítinn pening og
þannig getur fólk fengið blóma-
skreytingar sem jafngilda þeim sem
kosta kannski hundrað þúsund fyr-
ir 14 þúsund,“ segir Halldóra.
Rósirnar kaupir hún frá París og
Þýskalandi. Hún rífur yflrleitt
skreytingar sem hún kaupir niður
og býr til nýjar eftir smekk brúðar-
innar. Auk þess notar hún náttúru-
leg blóm sem hún þurrkar sjálf í
skreytingarnar. Halldóra hannar
skreytingamar í stíl við kjól brúð-
arinnar og vöndinn til þess að salur-
inn samsvari sér.
-em
Halldóra innan um blómahafiö í litla
skúrnum á Hverfisgötunni.
DV-mynd BG
Tískusveiflur í brúðarvöndum
Villtar rósir - „krúttíbangsar
„Við val á brúðar-
vendi verður að taka
mið af því hvemig brúö-
urin er vaxin, hæð
hennar og brúð-
arkjól. Við tök-
um einnig mið
af litarafti,
húðlit,
háralit og
augnlit
ásamt henn-
ar óskum.
Brúðurin á
oft uppáhalds-
blóm sem
hana langar
að hafa í vend-
inum. Síðan
veljum við
með henni hvaða litir
fara vel saman og hvaða
lögun hentar,“ segir Helga
Thorberg í Blómálfínum en
hún veitir persónulega ráð-
gjöf við val á brúðarvönd-
Heföbundinn brúöar-
vöndur frá Blómálfinum.
um.
Hægt er að velja um
kúluvendi, hringlaga
vendi,
dropalaga,
fosslaga og
fleira. Að
mörgu er að
gæta.
Lág-
vaxin
kona
getur
ekki ver-
ið með
mjög
stóran vönd
út í allar átt-
ir eins og
hentar þeirri há-
vöxnu ágætlega. Vönd-
urinn fer eftir sniðinu á
kjólnum, hvort hann er
aðskorinn eða víður.
Gimsteinn
dagsins
„í blómunum er
hægt að gera allt og
það skemmtilegasta sem
við gerum eru brúðar-
vendimir. Við gefum yfir-
leitt persónulega ráðgjöf og það
tekur talsverðan tíma. Því betri
tíma sem ungu stúlkumar gefa
sér því ánægðari verða þær
með vöndinn. Þær skoða
myndir og ég kem með tillög-
ur í framhaldi af því. Þær
koma aftur og ég legg saman
blóm sem gætu komið til
greina. Útkoman getur oft
orðið allt önnur heldur en lagt
var af stað með. Þegar þær sjá
einhverjar litasamsetningar
saman geta þær oft ákveðið
hvað þær vilja. Á endanum
eygjum við oft lausn sem þær
eru alsælar með. Það skiptir
mestu máli að brúðurin sé ham-
ingjusöm með vöndinn þvi þetta
er gimsteinn dagsins."
Helga segir grand- og glæsivendi
með kóngaliljum henta hávöxnum
konum. Tískusveiflur séu í vöndun-
um og nú séu þeir óreglulegri og
óhefðbundnari en þeir voru áður.
„Nú eru komnar á markaðinn
villtar rósir með óreglulegum blöð-
um en þær eru algjörir „krúttí-
bangsar“. Við erum einnig með ynd-
islega rós núna sem heitir
cappuchino og hún er mjög vinsæl,“
segir Helga.
-em
Kremlituð rós og ryörauðar berja-
greinar og yfir í gult og appel-
sínugult ásamt safarí sem er gróöur
frá Afríku, Suöur-Ameríku og Ástr-
alíu.
DV-mynd BG
ina við val á brúðarvendi
„Við erum með litgreiningarsérfræðing í
búðinni sem leiðbeinir brúðinni um val á
brúðarvendi. Sumar eru svo óákveðnar og
þurfa virkilega á aðstoð að halda,“ segir
Kolbrún Sveinbjörnsdóttir, eigandi
blómabúðarinnar Holtablóm.
Það er vandi að velja rétta
brúðarvöndinn því valið
stendur á milli fagurra
blóma f öllum regnbogans
litum. Litir og lögun vand-
anna fara að sjálfsögðu eft-
ir því hver ætlar að bera
vöndinn og við hvernig
klæðnað. Litasam-
setningin á bíla-
skreytingunum
og vöndunum fer
oftast nær sam-
an.
„Ég lít á litaraft
brúðarinnar og sé
hvaða blóm J
passa henni
best.
Það fer líka eftir því
ijti konunni
líkar sjálfri vel við.
Fyrir dökkhærðar
konur myndi ég velja
rauðar rósir og fjólublátt
brúðarslör og eitthvað
grænt. Ef konan er mjög
lágvaxin verður vöndurinn
að vera aflangur frekar
en breiður. Fyrir
rauðhærða mjög föla
konu myndi ég velja
appelsínugular rósir.
Bleikar rósir eru oftast
nær valdar fyrir ljóshærð-
ar konur með hvítu brúð-
arslöri. Yfirleitt hafa konurnar
einhverjar óskir þegar þær koma.
Við komum yfirleitt með rök fyrir
því ef við teljum að litirnir fari konunni
illa,“ segir Sveinbjörg V. Lúðvíksdóttir,
meðeigandi Kolbrúnar, en hún litgreinir
konur við val á brúðarvöndum.
-em
Að skora stig
Færðu henni blóm, jafnt án
| tilefhis og við sérstök tækifæri.
Kauptu handa henni litlar gjaf-
| ir, konfektkassa eða ilmvötn.
Komdu fram við hana eins og þú
1 gerðir í byrjun sambandsins.
| Gerðu ráð fýrir tíma sem þið
| getið notið saman tvö ein á sér-
stakan hátt. Faðmaðu hana að
þér fjórum sinnum á dag og
| segðu henni að hún líti vel út.
Teygjur
Þegar karlmaður elskar konu
þarf hann að fjarlægjast hana
með reglulegu millibili áður en
hann getur færst nær henni aft-
ur.
Forðist rifrildi
Á sama hátt og tjáskipti eru
mikilvægasti þátturinn í sam-
bandi geta rifrildi verið mesti
skaðvaldurinn. Það er ekki það
sem við segjum í rifrildum sem
særir heldur hvernig við segj-
um það.
Úlíkar tilfinningaþarfir
Kona þarfnast umhyggju og
karlmaður trausts. Besta leiðin
til að hjálpa karlmanni að
þroskast er að hætta að reyna að
breyta honum.
Hvatning
Dýpsti ótti karlmannsins er
að hann standi sig ekki nógu vel
eða skorti hæfni. Karlar eru
áhugasamir og sterkir þegar
þeir finna að þeirra er þörf. Kon-
ur flnna til hvatningar og styrks
þegar þær skynja að þær eru
elskaðar. Rétt eins og konur eru
hræddar við að þiggja eru karl-
ar hræddir við að gefa.
Hlúð að töfrum
ástarinnar
Til þess að þroska með okkur
hæflleikann til að elska sjálf
okkur þurfum við líka að þiggja
ást. Vegna þess að hann hlustaði
á hana þegar hún þurfti gat hún
unnt honum frelsis þegar hann
þurfti á að halda.
Sjálfshamingja
Æfðu þig I að gera eitchvað
fyrir sjálfa þig án þess að treysta
á að hann geri þig hamingju-
sama.
IUmbætur
Að ráðleggja karlmanni óum-
beðið er að telja vist að hann
viti ekki hvað hann skal gera
eða að hann sé ekki fær um að
leysa málin sjálfur. Karlmenn
vilja ekki láta bæta sig. Þegar
| ástvinur sýnir okkur mótstöðu
j er það líklega vegna þess að okk-
j ur hafa orðið á mistök í tíma-
setningu og nálgun.
Hinn frægi hellir
Karlar hverfa inn í helli sinn
og konur tala. Kona sem er und-
ir álagi hugsar ekki strax um að
leysa vandamálið heldur reynir
fyrst að létta á sér og fá skilning.
Flestir karlmenn leggja sig fram
Íum að ná stöðugt betri árangri
af því að þeir trúa að þá verðs-
kuldi þeir ást. Ef kona biður
karlmann ekki um stuðning tel-
ur hann víst að hann gefi nóg.
; Marsverjinn gengur inn í helli
j sinn til að glíma við vandamál
sín í einrúmi svo honum líði
betur. Konur koma saman og
tala opinskátt um vandamál sín
til þess að þeim líði betur. -em
Tilvitnanir úr Karlar eru frá
Mars og konur frá Venus.
Margs konar skreytingar eru
vinsælar í brúökaupi.