Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Qupperneq 8
40
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
1. deildar kynning
„Knattspyrnan betri
núna en oft áður“
- Logi Ólafsson landsliðsþjálfari spáir í spilin fyrir sumarið
- Geturðu séð fyrir þér, Logi,
hvaða lið kemur til með að
koma á óvart í sumar?
„Á síðasta tímabili komu Eyja-
menn á óvart. Það hafa lið í vor ver-
ið að sýna af sér eitthvað í þá veru
að þau gætu hæglega komið á óvart
í sumar. Stjarnan, Fylkir og Breiða-
blik hafa sýnt á vordögum tilhneig-
ingu til þess aö verða til alls líkleg.
Keflvíkingar hafa verið afskrifaöir
áður, en þeir koma hins vegar upp
alltaf aftur og aftur og standa sig
síðan með miklum ágætum. Hinu
má ekki gleyma núna að þeir hafa
misst leikmenn. Þeir gætu komið á
óvart eins og sagan hefur áþreifan-
lega sýnt. Valsmenn eiga á að skipa
ungu og efnilegu liði. Þeir luku mót-
inu í fyrra með mikilli reisn þannig
að ef þeir fá menn til að skora fyrir
sig í sumar verða þeir í góðum mál-
um.“
- Hvað með önnur lið og fall-
baráttuna?
„Þau lið sem ég nefndi hér á und-
an geta blandað sér í toppbaráttuna
og líka orðið í barningi. Menn vilja
kannski svona fyrir fram meta það
svo að Grindvíkingar verði í basli
vegna þess að þeir hafa misst góða
leikmenn og fengið lítið í staðinn.
Með góðu skipulagi held ég að þeir
geti spjarað sig.“
„Vill engu liði svo illt að
falla í 2. deild“
„Maður vill engu liði svo illt að
lenda í fallbaráttu og falla síðan
jafnvel niður úr deild. Það er af-
skaplega varasamt að fara að benda
þegar í stað á lið sem verða klárlega
í fallbaráttu. Það er bara hreinlega
ekki hægt því að liðin hafa náð góð-
um úrslitum í vor og vetur. Það tel-
ur hins vegar ekki þegar til íslands-
mótsins er komið.
Oftar en ekki hafa lið verið að
leika vel á undirbúningstímabili en
þegar til alvörunnar er komið hafa
þau ekki verið eins spræk. Það sem
verður auðvitað að vera í huga hjá
mörgum af þessum liðum er að þau
hafa verið að leika gegn veikari
andstæðingum og náð þar góðum
úrslitum. Alvaran er íslandsmótið
og þar verða menn að taka sig sam-
an og gera sér grein fyrir að það er
annað upp á teningnum þar en í æf-
ingaleikjum."
- Þú segir að liðin komi betur
undirbúin til leiks en áður. Skil-
ar það sér ekki í sterkara lands-
liði?
„Auðvitað er margt sem bendir
til þess. Ég hef úr fleiri mönnum að
moða, það er nokkuð ljóst. Það eru
örugglega margir sem eiga eftir að
skapa manni andvökunætur þegar
þarf að fara velja landsliðið. Það er
vegna þess að mér finnst leikmenn
hafa verið að spila vel. Mér finnst
persónulega margir koma til greina
í landsliðið."
- Þú átt annars von á skemmti-
legu og spennandi sumri í knatt-
spyrnunni:
„Já, ég get ekki annað sagt. Það
sem skiptir miklu máli fyrir fótbolt-
ann eru áhorfendur. Þeir hafa sýnt
fótboltanum mikla ræktarsemi á
vordögunum og er það vel, bæði í
deilda- og æfingaleikjum. Ég ætla
svo sannarlega að vona að því verði
vel fylgt eftir og fólk haldi áfram að
mæta á völlinn," sagði Logi Ólafs-
son landsliðsþjálfari.
„I fyrsta lagi á ég ekki von á öðru
en að deildin verði spennandi og
skemmtileg. Að minnsta kosti lofa
vorleikirnir góðu en þeir hafa verið
góðir að mínu mati. Undirbúningur
liðanna hefur verið með miklum
ágætum og það er ekki síst tíðarfar-
inu að þakka. Þetta rennir stoðum
undir það hve brýnt er fyrir knatt-
spyrnuna að fá viðunandi aðstöðu.
Við getum ekki alltaf treyst á veð-
urguðina eins og 1 vor.
Vegna hagstæðs veðurfars er
knattpyrnan betri núna en oft áður.
Það má kannski segja að flestöll lið-
in hafi verið að leika vel í vor og ég
held að fleiri lið eigi eftir að blanda
sér í toppbaráttuna en oft áður,“
sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálf-
ari, aðspurður hvaða tilfinningu
hann hefði fyrir knattspyrnunni á
komandi sumri en á morgun byrjar
boltinn að rúlla í 1. deild.
„Fleiri félög í toppbarátt-
unni en áður“
„Eins og ég kom inn á hér á und-
an held ég að fleiri lið verði í topp-
baráttunni en undanfarin ár. Fyrir
fram getum við sagt að það verði ÍA,
KR, ÍBV og Leiftur sem veröa hvað
líklegust tO að berjast um titilinn.
Ég tel hins vegar að þau sex lið sem
eftir eru verði nánast í einum
hnapp og komi til með að reyta stig
af hvort öðru. Það verður síðan ekki
fyrr en undir lokin að í ljós kemur
hvaða lið falla.
Yfirleitt hafa mál þróast með
þeim hætti að eitt lið kemur hvað
mest á óvart og geri meira en ráð
var fyrir gert. Svo getur annað lið
valdið vonbrigðum en í ljósi þessa
alls á ég von á spennandi keppni í
sumar."
Breiðabliksmönnum er spáð þokkalegu gengi í sumar en Keflvíkingum botnbaráttu. Eitt er þó víst aö liðin gefa ekki
þumlung eftir í sumar eins og myndin frá síðasta tímabili ber glöggt merki um.
Þórir Jónsson:
Ekkert lið
stingur af
„Slagurinn í sumar kemur til
með að standa á milli ÍA, KR og
ÍBV. Leiftur gæti líka hæglega
blandast inn í þá baráttu. Þegar
svo upp verður staðið í haust
yrði ég ekki svo hissa þó Akur-
nesingar stæðu uppi sem sigur-
vegarar enn eitt árið. Þeir eru
komnir með þennan vinnings-
glampa sem þeir missa ekki svo
auðveldlega.
Eyjamenn og KR-ingar hafa
góðum liðum á að skipa í dag og
veita eflaust Skagamönnum
verðuga keppni," sagði Þórir
Jónsson, fyrrum formaður
Knattspyrnudeildar FH, þegar
hann velti möguleikum sumars-
ins fyrir sér.
„Það stingur ekkert lið af eins
og Skagamenn hafa gert undan-
farin ár. Deildin verður jafnari
og ég sé fyrir mér skemmtilegt
sumar í fótboltanum. Botnbarátt-
an verður hörð og í hana bland-
ast fiögur lið.
Ég þori ekki að segja til um
hvaða lið það verða. Það kemur
alltaf eitt lið á óvart og kannski
verður það Breiðablik í ár. Þar
hafa menn verið ansi sprækir í
vor,“ sagði Þórir.
Þorgrímur Þráinsson:
Deildin
tvískipt
? „í fljótu bragði tippa ég á að
Skagamenn og KR-ingar berjist
um titilinn í ár. Ég hallast þó
meira á Skagamennina. Þeir
stinga þó ekki af og deildin verð-
ur fyrir vikið jafnari, Eyjamenn
gætu svo strítt þessum liðum en
þeir komu sterkari til leiks en
áður.
Eyjamenn hafa líklega aldrei
mætt betur undirbúnir til leiks
og verða þeir til alls vísir í sum-
ar. Þar fyrir neðan getur allt
gerst og ég hef á tilfiningunni að
deildin verði nokkuð tvískipt,"
sagði Þorgrímur Þráinsson, fyrr-
um landsliðsmaður og ritstjóri
íþróttablaðsins.
„Það tala margir um að Grind-
víkingar og Keflvíkingar séu
með slökustu liðin í deildinni.
Fyrri reynsla segir okkur að
Keflvíkingar spjara sig alltaf en
líklega aldrei meira en þegar
þeim er spáð einhverjum ógöng-
um.
Grindvíkingar hafa orðið fyrir
blóðtöku og sumarið verður
þeim erfitt. Breiðabliksmenn eru
álitlegir í sumar og þeir gætu
þess vegna orðið spútnikliðið.
Við eigum bara vonandi fyrir
höndum skemmtilegt sumar í
knattspyrnunni," sagði Þorgrím-
ur.