Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Page 4
24
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996
25
íþróttir uv dv
„Verðum að
afsanna
spá um fall í
hverjum leik“
- Grindvík vann Fylki, 1-2
KR-ingar er mjög frískir um þessar mundir og unnu góöan sigur á Valsmönnum. í leik liöanna á Laugardalsvelli á laugardaginn KR-ingar fögnuöu mörkum þrisvar
sinnum í leiknum og á myndinni fagnar vesturbæjarliöiö marki Ásmundar Haraldssonar. Hin tvö mörkin skoraöi Guömundur Benediktson sem er í feiknalega góöu
formi. DV-mynd GS
íslandsmótið í knattspyrnu:
- vesturbæjarliðið vann sanngjarnan sigur á Val, 0-3, í Laugardal
Fylkir (1) 1
Gríndavík (0) 2
1-0 Ólafur Stígsson (32.)
Ólafur fékk boltann skammt utan
vltateigs hægra megin og skaut fbstu
skoti aö marki - i stöngina og inn.
1-1 Milan Stefán Jankovic (47.)
Zoran Ljubicic vann aukaspyrnu
skammt utan vítateigs Fylkis, hægra
megin, og sendi boltann fyrir markiö
þar sem Milan Jakovic stökk hæst
allra og sendi boltann í markið með
skalla.
1-2 Kekic Siusa (75.)
Zoran Ljubicic fékk boltann út við
miðlínu hægra megin, lék upp kant-
inn, inn í teig þar sem hann sendi
boltann beint fyrir fætur Kekic Siusa
sem sendi boltann í markiö.
Lið Fylkis: Kjartan Sturluson, Enes
Cogic, Ásgeir M. Ásgeirsson, Ómar
Valdimarsson, Ólafur Stígsson ®
(Erlendur Gunnarsson 67.), Andri
Marteinsson, (Sigurgeir Kristjánsson
(80.), Aðalsteinn Víglundsson, Finnur
Kolbeinsson @, Gunnar Pétursson
(Þorsteinn Þorsteinsson 78.), Kristinn
Tómasson, Þórhallur Dan Jóhanns-
son.
Lið Grindavíkur: Albert Sævars-
son, Guðmundur Torfason (Vignir
Helgason 82.), Gunnar M. Gunnars-
son, Guðjón Ásmundsson, Milan S.
Jankovic @, Ólafur Örn Bjarnason,
Hjálmar Hallgrímsson, Zoran Lju-
bicic @@ Kekic Siusa @ (Grétar
Einarsson 80.), Ólafur Ingólfsson,
Sveinri Ari Guöjónsson.
Gul spjöld: Gunnar P. (Fylki), Gunn-
ar Már (Grindavík).
Rauð spjöld: Engin.
Markskot: Fylkir 15, Grindavík 10
Horn: Fylkir 8, Grindavík 5
Skilyrði: Ágætis veður, gola, 10 stiga
hiti og glæsileg aðstaða á Fylkisvelli.
Dómari: Jón Sigurjónsson, dæmdi
vel.
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið en
líklega um 500.
Maður leiksins: Zoran Ljubicic,
Grindavík. Sívinnandi á hægri kant-
inum, skapaði mikla hættu með
hraða sínum og átti þátt 1 báðum
mörkum Grindavíkur.
Kefíavík(O) 0
Stjarnan(l) 1
0-1 Valdimar Kristófersson (10.)
fékk sendingu frá Heimi Erlingssyni
og einn og óvaldaður skoraði hann
auðveldlega fram hjá Ólafi
Gottskálkssyni.
Lið Keflvíkinga: Ólafur
Gottskálksson ® - Snorri Már
Jónsson, Kristinn Guðbrandsson @,
Jakob Jónharðsson (Guðjón
Jóhannsson 63.), Georg Birgisson @
- Jóhann B. Guömundsson (Hlynur
Jóhannsson 79.), Eysteinn Hauksson,
Róbert Ó. Sigurðsson, Ragnar
Steinarsson - Ragnar Margeirsson,
Jón Þ. Stefánsson (Óli Þór
Magnússon 59.).
Lið Stjörnunnar: Bjarni Sigurðsson
@ - Heimir Erlingsson (Ómar
Sigtrygsson 84.), Reynir Björnsson,
Helgi M. Björgvinsson @, Hermann
Arason (Ottó Ottóson 87.) - Kristinn
Lárusson @, Valdimar Kristófersson
®, Rúnar Sigmundsson, Baldur
Bjarnason @, Ragnar Ámason ®
(Bjarni G. Sigurðsson 70.) - Goran
Kristófer Micic.
Gul spjöld: Baldur (S), Georg (K),
Micic (S).
Rauð spjöld: Engin.
Markskot: Keflavík 7, Stjarnan 15.
Hom: Keflavík 5, Stjaman 8.
Skilyrði: Smágola, völlurinn
sæmilegur teiganna á milli.
Sandgryfja við annan vítateiginn sem
er llk og notuð er á golfvöllum.
Dómari: Guðmundur Stefán
Maríasson. Frábær og varla hægt að
biðja um betri dómgæslu.
Áhorfendur: 350.
Maður leiksins: Baldur Bjarnason,
Stjörnunni. Var sívinnandi allan
leikinn og fór vel með boltann,
nánast einráður á miðjunni á stórum
kafla leiksins. Er farinn að taka
varnarhlutverkið alvarlega og virðist
eiga i vændum gott tímabil.
Kristófer aftur
í Breiðablik
Kristófer Sigurgeirsson gekk
fyrir helgina frá félagaskiptum
úr KR í Breiðablik. Kristófer
gekk í raðir KR-inga fyrir tíma-
bilið en náði ekki að tryggja sér
sæti í liðinu og réð það mestu fé-
lagaskiptunum. Þau gengu hratt
og vel fyrir sig og lék Kristófer
fyrsta leik sinn með gömlu
félögunum sínum gegn
Eyjamönnum á laugardaginn.
-JKS
„Ég lagði upp ákveðna taktík fyr-
ir leikinn og það gekk ágætlega
fyrstu 25. mínútur leiksins og þá
var jafnræði með liðunum en síðan
sóttu Fylkismennirnir meira og ég
var ekki nógu ánægður með það.
Þá ákvað ég að færa okkur framar á
völlinn og það gekk upp. Okkur er
spáð falli og við verðum að afsanna
það í hverjum leik,“ sagði Guð-
mundur Torfason, þjálfari Grinda-
víkur, eftir sigurleik gegn Fylki á
föstudag.
Leikurinn fór rólega af stað og
vaiynikið um miðjuþóf en hvorugu
liðinu tókst að reka endahnútinn á
sóknarlotur sínar. Fylkismönnum
tókst þó er á leið að ná tökum á
miðjunni og áttu þá nokkur ágætis
færi og úr einu slíku skoraði Ólafur
Stígsson.
Grindavík kom með nýtt og betra
DV, Suðurnesjum:
„Við vorum engan veginn í takt
við leikinn. Allt sem við gerðum var
vitlaust og við vorum einfaldlega
ekki með hugann við leikinn," sagði
Ragnar Margeirsson, fyrirliði Kefl-
víkinga, eftir tapið gegn Stjörnunni,
0-1, á fostudagskvöldið.
Stigin, sem keppt var um voru
dýrmæt þar sem spáð er að bæði
liðin verði í neðri hluta deildarinn-
ar og mega því ekki við að tapa stig-
um. Stjarnan byrjaði leikinn með
miklum látum og lét boltann ganga
vel á milli manna.
Baldur Bjarnason, sem lék á miðj-
unni, var Keflvíkingum erfiður og
byggði upp ófáar sóknir með útsjón-
arsemi sinni.. Stjarnan fékk tæki-
lið út í síðari hálfleikinn. Þeir
pressuðu Fylkismenn mjög framar-
lega og strax á fyrstu mínútu hálf-
leiksins komust þeir í ákjuacJ 'gt
færi og skömmu síðar jafnaði M.,an
Jankovic leikinn. Eftir jöfnunar-
markið var eins og Fylkismenn
tækju við sér en þó aldrei svo að
þeir næðu tökum á leiknum. Grind-
víkingar bökkuðu nokkuð þegar
leið á leikinn eftir að Kekic Siusa,
nýr leikmaður í þeirra röðum, skor-
aði sigurmarkið á 75. mínútu.
Leikurinn var í heild sinni svo
sem ekki upp á marga físka. Fylk-
ismenn fengu fljúgandi start í fyrstu
umferð en hafa ekki sýnt þann leik
að nýju. Það býr margt í Grindavík-
urliðinu og með tilkomu Siusa í lið
þess er ljóst að það verður ekki
auðveld bráð í sumar.
færi til að bæta við mörkum í fyrri
hálfleik og í tvígang lenti boltinn í
stönginni. Jóhann B. Guðmundsson
fékk besta tækifæri heimamanna
þegar hann skaut yfir af markteig.
Síðari hálfleikur var ekki eins
fjörugur og sá fyrri. Þó þurfti Ólafur
í marki Keflavíkinga nokkrum sinn-
um að taka á honum stóra sínum.
„Þrátt fyrir sigur er ég ekki sátt-
ur með leik okkar. Við viljum detta
niður eftir að hafa skorað. Þetta á
allt eftir að koma hjá okkur,“ sagði
Valdimar Kristófersson.
Georg Birgisson og Ólafur
Gottskálksson voru bestir hjá
Keflavík. Liðsheildin var sterk hjá
Stjörnunni og börðust allir
leikmenn liðsins eins og ljón.
KRingar tylltu sér á topp 1. deildar-
innar í knattspyrnu með því að
leggja Valsmenn að velli, 3-0, á Laug-
ardalsvellinum á laugardaginn. Vest-
urbæjarliðið vann sanngjarnan sigur,
liðið hafði tögl og hagldir allan leik-
inn, lék á köflum mjög góða knatt-
spyrnu, einkum í síðari hálfleik. Vals-
menn áttu við ofurefli að etja.
Eftir fyrsta markið var Ijóst í
hvað stefndi
Fyrri hálfleikurinn var með daufara
móti og ekki mikið um opin mark-
tækifæri. KR-ingar stjórnuðu leiknum
en náðu ekki að nýta sér yfirburðina á
vellinum.
Eftir að Guðmundur Benediktsson
skoraði fyrsta markið var ljóst í hvað
stefndi en KR-ingar voru samt ekki
fullsáttir að fara til búningsherbergja
í hálfleik með aðeins eins marks
forystu.
Þeir tóku þó gleði sína á ný á upp-
hafsmínútum síðari hálfleiks en þá
skoruðu þeir tvívegis með stuttu milli-
bili. Þessi mörk komu eins og köld
vatngusa framan í Valsmenn og eftir-
leikurinn var auðveldur fyrir
KR-inga.
KR-liðið var mjög heilsteypt í þess-
um leik og nánast hvergi veikan hlekk
að fínna. Vörnin ásamt Kristjáni í
markinu var öryggið uppmálað, Þor-
steinn og Heimir sterkir á miðjunni
og Einar mjög skeinuhættur á vinstri
kantinum.
Guðmundur Benediktsson
sýndi frábæra takta
Ásmundur var duglegur í framlín-
unni og ætlar ekki að láta sæti sitt í
byrjunarliðinu svo glatt af hendi.
Besti maður vallarins var hins vegar
Guðmundur Benediktsson.
Utan þess að skora tvö glæsileg
mörk og eiga þátt í þriðja markinu
sýndi Guðmundur frábæra takta og
fór hann oft illa með varnarmenn
Vals. Leikni hans og skilningur gerist
vart betri. Guðmundur hefur sýnt og
sannað að hann er með betri knatt-
spyrnumönnum landsins og verð-
skuldar sæti í byrjunarliði íslenska
landsliðsins.
Valsmenn voru skrefinu á eftir KR-
ingum allan leikinn. Þeir gáfu KR-ing-
um alit of mikið pláss á vellinum,
báru of mikla virðingu fyrir andstæð-
ingum sínum og virtust ekki hafa trú
á því sem þeir voru að gera.
Hið unga lið Vals á í vændum erfitt
sumar en meira býr samt í liðinu en
það sýndi í þessum leik.
„Við kláruöum þetta í byrjun
síðari hálfleiks"
„Við kláruðum þetta í byrjun seinni
hálfleiks en við vorum samt ekki allt
of sáttir við fyrri hálfleikinn. Það er
góð stígandi í þessu hjá okkur en við
eigum samt eftir að bæta okkur meira.
Það er alltaf plús að skora mörk en
aðalatriðið er að vinna og fá ekki á sig
mörk. Auðvitaði blundaði í mér að ná
100.000 krónunum en ég lét það samt
ekkert trufla mig í leiknum," sagði
Guðmundur Benediktsson, sóknar-
maðurinn frábæri hjá KR, við DV eft-
ir leikinn, en hann hefur nú skorað 5
mörk í deildinni og er markahæstur.
„Það vantaði allan sigurvilja í
strákana“
„Þetta var dapur leikur af okkar
hálfu. Það vantaði allan sigurvilja í
strákana, baráttan var ekki til staðar
og allt of mörg návígi töpuðust. Það
gengur ekki gegn jafnsterku liði og KR
sem er mjög gott og vel spilandi lið.
Nú verðum viö að bretta upp
ermarnar og sýna betri leik þegar við
mætum ÍA uppi á Skaga,“ sagði Sig-
urður Grétarsson, þjálfari Vals, sem
gat ekki leikið með vegna meiðsla í
læri.
-GH
-ÆMK
_ Góður sigur
ÍBV í Kópavogi
Það var ekki falleg knatt-
spyrna spiluð í Kópavogi en
fimm falleg mörk litu þó dagsins
ljós þegar Eyjamenn sigruðu
Breiðablik, 2-3, í Kópavogi á
laugardag.
Leikurinn fór rólega af stað og
sóttu bæði liðin jafnt og áttu sín
færi en tókst bara ekki að klára
þau með marki. ÍBV var aðeins
sterkara og skapaðist mikil hætta
fyrir framan mark UBK þegar
liðið tók hornspymur og það var
einmitt úr einni slíkri sem Leifur
Geir skoraði með glæsilegum
skalla rétt fyrir hálfleik.
í seinni hálfleik mættu Breiða-
bliksmenn sterkari til leiks og
voru óheppnir að skora ekki eft-
ir nokkur fin færi. Það var síðan
Arnar Grétarsson sem jafnaði
leikinn úr vítaspyrnu sem dæmd
var á Hlyn Stefánsson fyrir
hendi. Eyjamenn þurftu ekki
langan tíma til að svara fyrir sig
því varamaöurinn, Bjarnólfur
Lárusson, skoraði með glæsilegu
skoti beint úr aukaspymu.
Eftir þetta dalaði spil ÍBV
mikið og ætlaði það að halda
fengnum hlut en Breiðabliks-
menn settu sæmilega pressu á
það en náðu bara ekki að skora.
Það var síðan Tryggvi Guð-
mundsson sem skoraði þriðja
mark gestanna þegar hann vipp-
aði yfir Cardaklija eftir góða
sendingu frá Kristni Hafliðasyni.
Lokaorðið átti síðan Kristófer
Sigurgeirsson sem skoraði glæsi-
legt mark eftir góðan einleik á
síðustu mínútu leiksins en þvi
miður fyrir heimamenn kom
þetta bara of seint.
Leikurinn var jafn út í gegn og
einkenndist af mikilli baráttu og
bar enginn leikmaður af en Eyja-
menn nýttu betur færin sín og
fóru því heim með mikilvæg stig.
—JGG
„Vorum í engum
takti við leikinn"
íþróttir
Rafmögnuð spenna á Ólafsfirði:
Ekki fyrir
hjartveika
- þegar Leiftur vann Skagamenn
DV, Ólafsfirði:
Leikur Leifturs og íslandsmeist-
ara ÍA á Ólafsfjarðarvelli á laugar-
daginn verður lengi í minnum hafð-
ur. Fjölmargir áhorfendur fengu að
sjá stórskemmtilegan leik og um
fram allt æsispennandi leik.
Leikurinn byrjaði með látum og
eftir fyrsta mark gestanna á þriðju
mínútu héldu flestir að meistararn-
ir myndu valta yfir heimamenn.
Ekki leið á löngu áður en Leifturs-
menn voru búnir að taka öll völd á
vellinum sem þeir héldu síðan allan
fyrri hálfleikinn.
í raun var ótrúlegt að Leiftur
skyldi ekki skora nema tvö mörk
fyrir hlé, slík voru tækifærin. Leift-
ur átti fjögur stangarskot í fyrri
hálfleik og seint í leiknum átti liðið
að fá vítaspyrnu þegar Sverrir
Sverrisson var felldur innan víta-
teigs.
Það breytti miklu að Steinari Ad-
olfssyni var vikið af leikvelli hjá
Skagamönnum eftir að hafa fengið
að líta annað gula spjaldið sitt í
leiknum. Hann felldi þá Rastslav
Lazorik sem var að sleppa inn fyrir.
í síðari hálfleik bakkaði Leift-
ursliðið allt of mikið og hleypti þar
Valur (0) 0
KR (1) 3
9-1 Guömundur Benediktsson
(34.) skallaði í netiö eftir eftir glæsi-
lega fyrirgjöf Heimis Guöjónssonar.
0-2 Guðmundur Benediktsson
(50.) skoraöi meö laglegu bogaskoti
af um 25 metra færi eftir að Lárus
markvörður hafði farið langt út úr
markinu til að slá boltann.
0-3 Ásmundur Haraldsson (52.)
fékk sendingu frá Guðmundi og
renndi sér í gegnum vörn Vals.
Lið Vals: Lárus Sigurðss. - Bjarki
Stefánss., Jón G. Jónsson @, Stef-
án Ómarss. (Sigurbjörn Hreiðarss.
55.), Kristján Halldórss. - Gunnar
Einarss., Heimir Porca, ívar Ingi-
marsson, Nebojsa Corovic (Geir
Brynjólfss. 59.) - Arnljótur Davíðs-
son F, Sigþór Júlíuss..
Lið KR: Kristján Finnbogason @ -
Sigtmður Ö. Jónsson @ Þormóð-
ur Egilss., Brynjar Gunnarss. @,
Ólafur Kristjánss. @ (Þorsteinn
Guðjónss. 77.) - Hilmar Björnsson
(Ríkharður Daðason 75.), Heimir
Guðjónss. @ (Bjarni Þorsteinss.
82.), Þorsteinn Jónss., Einar Þór
Daníelss. @ - Ásmundur Haraldss,
©, Guðmundur Benediktsson @@
Gul spjöld: Jón Grétar (V), Stefán
(V), ívar (V), Ásmundur (KR).
Rauð spjöld: Engin.
Markskot: Valur 6, KR 12.
Horn: Valur 3, KR 4.
Skilyrði: Klassaveöur, góður völl-
ur.
Dómari: Egill M. Markúss., góöur.
Áhorfendur: Um 1200.
Maður leiksins: Guðmundur Bene-
diktss., KR. Sýndi frábær tilþrif. -
með Skagamönnum aftur inn í leik-
inn. Leikurinn var ótrúlega spenn-
andi, enda opinn og gat farið á
hvorn veginn sem var. Gylfi dómari
lét leikinn ganga tíu mínútur fram
yfir venjulegan leiktíma og ekki dró
það úr spennunni.
Leiftursliðið lék skínandi bolta
lengst af og áttu aliir leikmenn liðs-
ins góðan dag. Enginn þó eins og
Lazorik sem var yfirburðamaður á
vellinum. Sverrir Sverrisson átti
mjög góðan leik, sem og Þorvaldur
Jónsson markvörður. Auðun Helga-
son og Júlíus Tryggvason voru
traustir í vörninni.
Skagaliðið var jafnt en langbestir
voru þó Þórður Þórðarson í mark-
inu og Haraldur Ingóifsson. Einnig
áttu Jóhannes Harðarson og Bjarni
Guðjónsson góða spretti.
Skagamaðurinn Ólafur Þórðarson
sagðist hafa átt von á erfiðum leik
og taldi hann leikmenn eiga heiður
skilið fyrir góða baráttu. Þetta voru
skemmtileg slagsmál en það kemur
dagur eftir þennan dag sagði hann.
Gunnar Oddsson hjá Leiftri sagði
að þeir hefðu átt að vera búnir að
gera út um leikinn í fyrri hálfleik.
-HJ
Breiöablik (0) 2
ÍBV (1)3
0-1 Leifur Geir Hafsteins (39.)
1-1 Arnar Grétarsson (64.)
1-2 Bjarnólfur Lárusson (66.)
1- 3 Tryggvi Guömundsson (89.)
2- 3 Kristófer Sigurgeirsson (90.)
Lið UBK: Hajrudin Cardaklija-
Pálmi Haraldsson @, Guðmundur Þ.
Guðmundsson, Sævar Pétursson @
Hákon Sverrisson - Arnar Grétars-
son, Þórhallur Hinriksson @, Gunn-
laugur Einarsson (Theódór Hervars-
sen 62.), Kjartan Einarsson (Hreiðar
Bjarnason 73.) - Anthony Karl
Gregory (Kristófer Sigurgeirsson 56.),
ívar Sigurjónsson.
Lið iBV: Friðrik Friðriksson @ -
ívar Bjarklind, Hermann Hreiðars-
son @, Jón Bragi Amarsson, Magn-
ús Sigurðsson - Ingi Sigurðsson @
(Rútur Snorrason 62.), Leifur Geir
Hafsteins (Bjarnólfur Lárusson 55.),
Hlynur Stefánsson, Tryggvi Guð-
mundsson © - Sumarliði Árnason
(Kristinn Hafliðason 55.), Steingrím-
ur Jóhannesson.
Gul spjöld: Pálmi Haraldsson (38.),
Theódór Hervarssen (62.)
Rauð spjöld: Engin.
Markskot: UBK 10, ÍBV 12.
Horn: UBK 10, ÍBV 9.
Skilyrði: Fínn völlur og veður mjög
gott.
Dómari: Kristinn Jakobsson komst
vel frá leiknum.
Áhorfendur: 526.
Maður leiksins: Tryggvi Guðmunds-
son. Þótt hann dalaði í seinni hálfleik
átti hann góðan leik í jöfnu liöi ÍBV.
Leiftur (2) 4
Akranes (1) 3
0-1 Mihajlo Bibercic (3.), eftir
fyrirgjöf Haraids Ingólfssonar.
1- 1 Rastislav Lazorik (12.), eftir
glæsilega sendingu Auðuns
Helgasonar.
2- 1 Rastislav Lazorik (43.), beint úr
aukaspyrnu,
2- 2 Haraldur Ingólfsson (61.), fallegt
mark úr teignum.
3- 2 Sverrir Sverrisson (73.), skallaöi
yfir Þórð í markinu.
3- 3 Haraldur Ingólfsson (77.), beint
úr homspyrnu.
4- 3 Rastislav Lazorik (85.), lék á
fimm menn áður en boltinn fór í
netið.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson @
- Auðun Helgason ® Júlíus Tryggva-
son ®, Slobodan Milisic, Daði Dervic
- Pétur Björn Jónsson @ Gunnar
Oddsson, Páll Guömundsson (Sindri
Bjarnason 87.), Gunnar Már Másson,
Sverrir Sverrisson @ (Baldur Braga-
son 73.) - Rastislav Lazorik
Lið ÍA: Þórður Þórðarson @@-
Steinar Adolfsson, Jóhannes Harðar-
son @ (Kári Steinn Gunnlaugsson
88.), Zoran Miljkovic, Sigursteinn
Gíslason, Ólafur Adolfsson - Alex-
ander Högnason, Ólafur Þórðarson,
Haraldur Ingólfsson @@ (Stefán
Þórðarson 88.)- Mihaljo Bibercic,
Bjami Guöjónsson @ (Bjarki Pétus-
son 88.)
Gul spjöld: Daði (Leiftri), Gunn-
ar:(Leiftri), Sverrir (Leiftri), Baldur
(Leiftri), Þorvaldur (Leiftri), Steinar
(ÍA), Ólafur Þ. (ÍA)
Rautt spjald: Steinar Adolfsson, ÍA.
Markskot: Leiftur 15, ÍA 13.
Horn: Leiftur 5, ÍA 10.
Skilyrði: Norðangola, þoka en völl-
urinn í slæmu ástandi.
Dómari: Gylfi Orrason. Stóð sig
þokkalega í heildina í erfiðum leik en
gerði samt áberandi mistök.
Áhorfendur: 1000.
Maður leiksins: Rastislav Lazorik,
Leiftri. Yfirburðamaður, sívinnandi
og ógnandi. Skoraði þrjú glæsileg
mörk og átti sendingu sem gaf fjórða
markið. Er hægt að gera meira í ein-
um leik?
Staöan
KR 3 2 1 0 7-3 7
Akranes 3 2 0 1 11-5 6
Leiftur 3 2 0 1 8-6 6
ÍBV 3 2 0 1 5-5 6
Stjarnan 3 2 0 1 3-3 6
Grindavík 3 1 1 1 2-3 4
Fylkir 3 1 0 2 7-4 3
Valur 3 1 0 2 2-4 3
Breiðablik 3 0 1 2 3-9 1
Keflavík 3 0 1 2 2-8 1
Markahæstir
Guðmundur Benediktsson, KR . . 5
Bjarni Guðjónsson, ÍA ............5
Rastislav Lazorik, Leiftri .......4
Sverrir Sverrisson, Leiftri ......3
Haraldur Ingólfsson, ÍA ..........3
Næsta umferð
Fjórða umferð hefst á
miðvikudaginn kemur með
fjórum leikjum. Þá leika
Akurnesingar gegn Val á
Akranesi, ÍBV gegn Fylki í
Eyjum, Keflavík gegn Leiftri í
Keflavík og KR tekur á móti
Breiðabliki í Frostaskjólinu.
Umferðinni lýkur síðan á
fimmtudaginn með viðureign
Stjörnunnar og Grindvíkinga í
Garðabæ.
Leikirnir hefjast bæði kvöldin
klukkan 20.
;S-
Þuiærð allar upplýsingar
um stödu þína í leíknum
og stöðu efstu liðanna
í síma 904 101 £
Verð 39,90 mínútan.
SamviBMilepðiP-LaiiðsíB
ÍÞRÓTTADEILD