Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Side 7
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996 27 Fjörugt í Borgarnesi DV, Borgarnesi: 0-1 Valur Fannar Gíslason (8.) 1-1 Þórhallur Jónsson (10.) 1- 2 Þorvaldur Ásgeirsson (11.) 2- 2 Valdimar Kr. Sigurösson (41.) „Við misstum einbeitinguna í lok fyrri hálfleiks og fyrir það var okkur refsað. Við sóttum grimmt í síðari hálfleik en til að vinna leik þarf auðvitað að nýta færin og það gerðum við ekki í þetta skiptið,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, eftir leikinn. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Skallagríms, sagðist vera ánægð- ur með jafnteflið. Liðið hefði sýnt góða baráttu og varnarleikurinn í siðari hálfleik hefði gengið upp. Um leikinn er það segja að hann var fjörugur og opinn í fyrri hálfleik. Liðin skiptust bæði að sækja og ekki vantaði marktæki- færin. Síðustu 20 mínútur leiksins þjörmuðu Framarar verulega að Skallagrímsmönnum en vörn heimamanna hélt velli. Menn leiksins: Hólmsteinn Jónason, Fram, og Jakob Hall- geirsson, Skallagrími. Stadan Skallagr. 3 2 1 0 9-2 7 Þór A. 3 2 0 1 5-5 6 Leiknir R. 3 1 2 0 4-1 5 Fram 3 1 2 0 7-5 5 Þróttur R. 3 1 2 0 7-5 5 FH 3 1 1 1 3-3 4 Víkingur R. 3 1 0 2 5-5 3 Völsungur 3 1 0 2 5-5 3 KA 3 1 0 2 4—6 3 ÍR 3 0 0 3 0-12 0 Knattspyrna: Úrslit í 4. deild Fjölmargir leikir voru í 4. deild um helgina Úrslit í leikjunum urðu þessi: KSÁÁ-Léttir ................1-5 Bolungarvík-Ernir..........4-1 BÍ-Reynir ..................2-0 Haukar-TBR .................6-0 Bruni-Vikingur Ó............1-6 Aíturelding-HB..............5-0 Smástund-Ármann ...........2-2 Magni-Hvöt..................3-2 Neisti-SM ..................2-0 Tindastóll-Kormákur...... 4-1 KVA-Sindri.................4-1 Einherji-Huginn ............2-0 ÍH-Njarðvík................2-1 -JKS Handknattleikur: Alsíringur í skoðun hja Stjornunni - stórskytta sem leikið hefur í Frakklandi í 10 ár 1. deildar lið Stjörnunn- ar í handknattleik er með alsírskan landsliðsmann i skoðun en hann kom til landsins um helgina. Stjörnumenn ræddu við hann í gær og mun hann æfa með Stjörnunni í dag. Eftir það ætti að koma í ljós hvort Stjörnumenn gera samning við hann. Tíu mörk að jafnaði Hér er um að ræða 29 ára gamla skyttu sem er um tveir metrar á hæð. Hann hefur leikið með fé- lögum í Frakklandi í tíu ár. Hann lék á síðasta ári með liði í 2. deild og skor- aði með því að jafnaði tíu mörk í leik. Þessi umræddi leik- maður hefur leikið með landsliði Alsír frá 16 ára aldri og þar á meðal leik- ið nokkrum sinnum gegn íslendingum Hann lék þó ekki með Alsír á heims- meistaramótinu hér á landi í fyrra vegna þess að hann fékk ekki leyfi frá félagi sínu til þess. Magnús Andrésson, for- maður meistaraflokks- ráðs Stjörnunnar, varðist allra frétta af þessu máli i samtali við DV í gær- kvöld. Hann sagði þó að málin myndu skýrast á allra næstu dögum. Fyrir helgina gekk Ein- ar Baldvin Ámason frá fé- lagaskiptum frá KR yfir í Stjömuna. Að sögn Magn- úsar Andréssonar hafa Stjörnumenn verið að æfa daglega í þessum mánuði og gera það fram að næstu mánaðamótum. Stjarnan fékk á dögunum boð um þátttöku á sterku móti í Þýskalandi í ágúst. Lið á borð við Essen og Wallau Massenhein og serbneska landsliðið taka þátt í mótinu. Magnús taldi litlar lík- ur á því að liðið færi utan á þetta mót en tímasetn- ing þess hentaði ekki lið- inu. -JKS Opna franska í tennis: Fyrsti sigur Rússa á mótinu Rússneski tennisleikarinn Yevgeny Kafelnikov fagnaði sigri í einliðaleik karla á opna ‘franska meistaramótinu sem lauk um helgina. Kafelnikov, sem sigraði Bandaríkjamanninn Pete Sampras í undanúrslitum, lék til úrslita gegn Þjóðverjanum Michael Stich og sigraði-í hörku- leik, 7-6 (7-4), 7-5 og 7-6 (7-4). Sigur Rússans var merkilegur og fer á spjöld tennissögunnar. Þetta er í fyrsta skipti sem rúss- neskur tennisleikari ber sigur úr býtum á opna franska meistaramótinu. Þetta er einnig fyrsti sig- ur tennisleikara frá Rússlandi á stórmóti atvinnu- manna. Einnig er þetta í fyrsta skipti sem Kafelnikov vinnur sigur á einu af stóru mótunum í tennis en hann er í sjötta sæti á lista Alþjóða tennissambandsins yfir bestu tennisleikara heims- ins. Þýska stúlkan Steffi Graf vann sigur í einliða- leik kvenna og ekki í fyrsta skipti heldur það fimmta á glæsilegum ferli. Graf lék til úrslita gegn Arönxu Sanchez Vicario frá Spáni. Graf vann fyrsta settið, 6-3, annað settið vann Vicario, 6-7, og Graf það þriðja, 10-8. -SK jafntefli - hjá Þrótti og Leikni Rússinn Yevgeny Kafelnikov fagnar tímamótasigri á opna franska meistaramótinu í gær. Símamynd Reuter Mjög sanngjarnt markalaust , < Það var ekki mikið að gerast á Valbjarnar- velli i þessum leik og var mikið jafnræði á lið- unum í þessum baráttuleik og voru þetta því sanngjörn úrslit. Þróttaramir voru örlítið sterkari í fyrri hálf- leik og áttu þó nokkur góð færi sem þeir náðu ekki að nýta en þeir höfðu lika heppnina með sér þegar þeir vörðu á línu eftir góða sókn Leiknis. í seinni hálfleik lifnaði yfir leiknum og áttu bæði liðin mörg tækifæri til þess að skora og varði markvörður Leiknis oft glæsi- lega, þar á meðal einu sinni i slá. Þróttarar fengu mörg upplögð tækifæri til þess að gera út um leikinn og átti maður oft erfítt með að skilja af hverju þeim tókst ekki að skora en Axel Gomez, mai-kvörður Leiknis, átti stórleik í markinu og geta liðsmenn þakkað honum stigið. Maður leiksins: Axel Gomez, markvörður Leiknis. -JGG Heiðar Sig- urjónsson sækir hér að mark- verði Leiknis. DV-mynd GS _______________íþróttir GÖIfl Naumur sigur hjá Guðjóni Guðjón G. Daníelsson, GK, varð sigurvegari á opna íslands- bankamótinu í golfi sem fram fór á Hvaleyrarholtsvelli um helg- ina. Guðjón lék holurnar 18 á 72 höggum en Jens Sigurðsson, GR, varð annar á 73 höggum. Þrir kylfingar, Einar Bjami Jónsson, GKJ, Kári Jóhannsson, GKJ, og Magnús Hjörleifsson, GK, komu næstir á 74 höggum. í keppninni með forgjöf sigraði Birgir Brynleifsson, GA, á 59 höggum nettó. Reynir Baldurs- son, GR, og Guðjón G. Daníels- son, GK, voru á 61 höggi nettó. -SK Úlfar á 64 Úlfar Jónsson keppti sem gest- ur á íslandsbankamótinu um helgina og íslandsmeistarinn fyrrverandi lék glæsilegt golf og kom inn á aðeins 64 höggum eða fjórum höggum undir pari vallar- ins. Úlfar hefur ekki keppnisleyfi hérlendis sem áhugamaður enda hefur hanh keppt sem atvinnu- maður undanfarið og það tekur tvö ár að verða áhugamaður á ný. -SK 3. deildin: Ægir skoraði sex mörk Reynir frá Sandgeröi er í efsta sæti 3. deildar eftir sigur á Fjölni í Grafarvoginum á föstudagskvöldið. Jónas G. Guðjónsson skoraði tvö af mörkum liðsins og Grétar ,V. Hjartarson eitt í 1-3 sigri. Ægir vann stórsigur á nágrönnum sínum í Selfossi, 6-1. Kjartan Helgason skoraði þrjú mörk fyrir Ægi, Guðmundur Gunnarsson, Ásgrimur Harðarson og Þórarinn Jóhannsson eitt hver. Gísli Bjömsson skoraði eina mark Selfyssinga. Höttur geröi jafntefli, 1-1, við Dalvíkinga á Egilsstöðum. Grótta tapaði síðan á Seltjarnamesinu fyrir Þrótti úr Neskaupstað, 2-3. Reynir S. Staðan 3 3 0 0 12-1 9 Dalvík 3 2 1 0 7-3 7 Þróttur N. 3 2 0 1 8-5 6 Víöir 3 2 0 1 10-8 6 Grótta 3 1 1 1 5-6 4 Selfoss 3 1 1 1 8-12 4 Ægir 3 1 0 2 7-4 3 HK 3 1 0 2 2-4 3 Höttur 3 0 0 3 4-13 1 Fjölnir 3 0 0 3 6-13 0 Handknattleikur: ísland komst ekki áfram íslenska landsliðið í hand- knattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, tók um helgina þátt í forkeppni að úrslitum Evrópu- mótsins í Danmörku um helg- ina. Slagurinn um sæti í úrslita- keppni Evrópumótsins, sem verð- ur í Rúmeníu í ágúst, stóö á milli Islendinga og Dana. ísland varð undir í þeirri baráttu við Dani, 35-19, en í hálfleik var staðan 18-10 fyrir Dani. Arnar Péturs- son skoraði 8 mörk gegn Dönum. ísland vann Finna, 26-19, í fyrsta leiknum á laugardag en í hálfleik var staðan 13-11 fyrir ís- lenska liðið. í þeim leik var Am- ar Pétursson markahæstur með 7 mörk og Lárus Long skoraöi 6 mörk. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.