Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1996, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
21
DV
DANSSTAÐIR
Ari í Ögrí
Ingólfsstræti 3
Opið
Ártúu
Vagnhöfða
Opið
Áslákur
Mosfellsbæ
Opið
Borgarkjallarínn
(áður Amma Lú)
Opið.
Café Royale
Hafnarfirði
Opið
Veitinga- og skemMtistaður Café Oscar
í Miðbæ Hafnarfjarðar
Föstudags- og laugardagskvöld lifandi tónlist
frá kl. 22. Kantrýdans (kennsla) á sunnu-
dagskvöldum. Mexikanskir smáréttir.
Dansltúsiö
Glæsibæ
Opið
Dubliner
Um helgina verður hið fræga írska þjóðlaga-
dúó The Wild Rovers á staðnum.
Dtius-huS
v/Fischersund, s. 551-4446
Opið kl. 18-1 v.d., 18-3 föstud. og laugard.
Fógetinn
Lifandi tónlist föstudags- og laugardagskvöld.
Garðakráitt
Garðabæ
Opið.
Gaukur á Stöng
Opið
Gjáitt
SelfossL
Hljómsveitin Sól Dögg leikur föstudagskvöld.
Gullöláitt Café Bar
Meistari Tarnús leikur fyrir dansi á föstudags-
kvöld. Á laugardagskvöld verður fylgst með
kosningavökunni. Að henni lokinni mun
Tommi Gull leika á gítarinn.
Hlððufetl
Húsavík
Eiríkur Hauksson og Endurvinnslan mæta á
staðinn á laugardagskvöld og taka þátt í
kosningavöku Húsvíkinga.
H.B. bar
Vestmannaeyjum
Föstudagskvöld kl. 1-3. Lifandi tónlist.
Hafttarkrátn
Lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Hótel ísland
Laugardaginn 29. júní verður kosningavaka
Péturs Kr. Hafstein. Húsið opnar kl. 21.00.
Hótel Mælifríl
Sauðárkróki,
Eiríkur Hauksson og Endurvinnslan koma
fram og rokka gegn rusli á föstudagskvöld kl.
24.00.
Hótel Saga
Súlnasalur, Laugardagskvöld; kosningavaka
ólafs Ragnars Grímssonar. Opið hús, ókeypis
aðgangur.
Mímisbar; Föstudags- og laugardagskvöld
verður opið frá kl. 19.00-03.00. Geir og Kalii
skemmta. Sunnudagskvöld: opiö frá kl.
19.00-0100
Hótel Stykkishólmur
Hljómsveitin Zalka heimsækir bæjarbúa á
laugardagskvöld
Hreða va tnsskál i,
Milljónamæringarnir ásamt Páli óskar og
Stephan Hilmarz verða með hörkukosninga-
dansleik langt fram eftir nóttu á laugardags-
kvöld.
Kafji Krókur
Sauðarkróki Sixties verða með stórdansleik
á föstudagskvöld. @.mfyr: Kaffi Reykjavík
Föstudaginn 28 og laugardag 29. júní leika
Papar.
Katarína
Hamraborg 11
Opið til kl. 3 á föstudags- og laugardagskvöld-
um. Lifandi tónlist.
Kántrýbxr
Skagaströnd, Hljómsveitin Bylting leikur á
laugardagskvöld.
LA-Café
Laugavegi 45, s. 562-6120
Um helgina: Matur kl. 18-22.30 með léttri
tónlist, síöan diskótek til kl. 3. Hátt aldurstak-
mark.
Langisandur
Akranesi,
Hljómsveitin Sól Dögg leikur fyrir dansi á
laugardagskvöld.
Jazzbarínn
Lifandi tónlist föstudags- og laugardagskvöld.
Naústkjallarínn
Fimmtudags- og sunnudagskvöld er opið frá
kl. 20.00-01.00 hljómsveit önnu Vilhjálms
leikur. Föstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Sunnan tveir.
Staðuríitn
Keflavík
Sambandið - SAGA Klass, um helgina.
Sjallinn
Akureyri
Hljómsveitin Stjómin leikur á föstudagskvöld
ásamt Afródansaranum Helga sem kemur
fram upp úr miðnætti.
Skemmtistaðurinn 1929
Akureyri
Opið
Sólon ísiandus
Opið
Veitittgahúsið óðal
Opið virka daga frá kl. 18-1. Opið 18-3 um
helgina.
Yikin
Höfn í Homafirði,
Félagamir í TVvist og Bast spila lög af nýút-
komnum geisladiski á kosninganóttina
Við PúlHmt
Akureyri
Opið.
Þjóðleikhúskjaflarimt .
Öpið
Lítil hætta er á öðru en glatt verði á hjalla á böllunum sem Stjórnin spilar á fyrir norðan núna í kvöld og á laugar-
daginn.
Sumar norðlenskar nætur
Akureyringar munu fá kærkomna
heimsókn þegar Stjórnin, ásamt af-
ródansaranum Helga frá Keflavík,
skemmtir í Sjallanum föstudaginn 28.
júní. Þegar Stjórnin hefur heillaö þá
er byggja höfuðstað norðurlands verð-
ur haldið til Sauðárkróks. Leikið
verður fyrir trylltum dansi með
hljómsveitinni Panik og fyrrneíhdum
Helga, afródansaranum frá Keflavík.
Eins og allir vita hefur Stjórnin gefið
út nýjan disk, Sumar nætur.
Hljómsveitin Twist og bast mun leika lög af nýútkomnum geisladiski sínum,
Uppstökk.
Utankj örstaðarball
Ultra í Vör
Hljómsveitin Ultra mun leika
gleðitðnlist fyrir gesti og gangandi í
sjómannastofunni Vör í Grindavík
laugardaginn 29. júní. Að sögn Ant-
ons Kröyer, hljómborðsleikara og
söngvara hljómsveitarinnar, verð-
ur leikið frumsamið efni og gamlir
slagarar. „Það sem tónlistin á sam-
merkt er að þetta er allt gleðitón-
list,“ segir Anton.
Sérstakur gestagítarleikari verð-
ur með hljómsveitinni Ultra í
Grindavík en það er hann Sævar
Árnason er lék á sínum tíma með
Celsíus og Óperu. Auk Antons
skipa hljómsveitina söngkonumar
Elín Hekla Klemenzdóttir og Guð-
björg Bjamadóttir.
Anton Kröyer leiöir hljómsveitina
Uitra sem leikur í Grindavík á laug-
ardaginn.
Meðlimir hljómsveitarinnar Twist
og bast hafa ákveðið að þeir muni
kjósa utan kjörfundar enda telja
þeir nauðsynlegt, í þágu lands og
þjóðar, að spila á veitingastaðnum
Víkinni á Höfn. Eina kosningalof-
orðið sem þeir gefa í þetta skiptið er
að leika lög af nýútkomnum geisla-
diski sínum, Uppstökk.
Hljómsveitin Sixties mun trukka noröur um helgina og
sjá um aö halda uppi stuöinu á Akureyri og Sauðár-
króki.
Bítlaspil fyrir
norðan
Strákarnir í Sixties halda áfram að tmkka um land-
ið með bítlaslagarana í farteskinu. Nú er ætlunin að
halda norður yfir heiðar og spila á KafEi Króki föstu-
daginn 28. júní. Laugardaginn 29. júní veröur svo farið
í hinn fornfræga Sjalla á Akureyri og haldinn kosn-
ingadansleikur. Hljómsveitin leikur mörg vinsæl lög á
borð við slagarana Stjáni saxófónn, Lífið er ljúft og Þú
ein.
Kosning með
suðrænni sveiflu
Miljónamæringamir hafa löngum heillað landann með
suðrænni sveiflu og tilheyrandi mjaðmahnykkjum. Nú
gerist hið ótrúlega að þeir hafa bæði þá Pál Óskar
Hjálmtýsson og Stephan Hilmarz með sér. Laugardaginn
29. júni ætla þeir kappar að slá upp kosningadansleik í
Hreðavatnsskála. Þeir ætla að ráða í kosningaúrslit sem
munu verða sýnd á sjónvarpsskjám, enda búnir að taka
nokkur flýtinámskeið í stjórnmálafræði.
Sú var tíöin aö Milijónamæringarnir höföu hann Pál Ósk-
ar Hjálmtýsson meö sér og engum leiddist þá. Nú halda
þeir ball meö bæöi honum ogStephani Hilmarz í Hreöa-
vatnsskála á laugardaginn.
tó
Umhverfisvænt
rokk
Eirikur Hauksson og Endur-
vinnslan halda áfram tónleika-
ferð sinni um landið. Föstudag-
inn 28. júní leika þau á Hótel
Mælifelli á Sauðárkróki. Laugar-
daginn 29. júní rokka þau á Ráð-
hústorginu á Akureyri í sam-
starfi við UMFÍ og umhvei-fissjóð
verslunarinnar undir slagorðinu
„Rokk gegn rusli“. Á laugardags-
kvöldið munu Eiríkur Hauksson
og Endurvinnslan aðstoða Hús-
víkinga við kosningavöku í
Hlöðufelli.
Wild Rovers á
Dubliners
Hið kunna írska þjóðlagaband,
The Wild Rovers, verður á Dub-
liners föstudaginn 28. júní, laug-
ardaginn 29. júní og sunnudaginn
30. júní. Á vegum staðarins er nú
gefið út fyrsta reglulega skemmti-
staðafréttabréfið á íslandi. Það
mun koma út mánaöarlega og er
fyrst og fremst fyrir viðskipta-
vini staðarins. Fréttabréfið mun
heita Dub-línan.
Reyðarfjörður:
Bryggjuhátíð
Reyðfirðingar halda sína ár-
legu bryggjuhátíð um kosninga-
helgina. Þar verður margt sér til
gamans gert og þar munu Sól-
strandargæjarnir spila á dansleik
föstudaginn 28. júní. The Butter-
fly Band mun hefja írska stemn-
ingu á loft kl. 10 á laugardags-
morgninum og mun hún haldast
fram á nótt.
Papar og KOS
Eins og venjulega verður leik-
in lifandi tónlist á Kaffi Reykja-
vík um helgina. Hljómsveitin
Papar mun leika föstudaginn 28.
júní og laugardaginn 29. júní.
Þann 30. júní mun svo sveitin
KOS stíga á svið og skemmta
gestum og gangandi.
Lagiö Álfar inni í mér meö SSSól
hefur náö miklum vinsældum.
SSSól fer vestur
SSSól leikur fyrir dansi föstu-
daginn 28. júní í Sjallanum á ísa-
firði. Lagið Álfar inni í mér hef-
ur náð miklum vinsældum enda
er þar um að ræða gæðalag. Ef-
laust verður það spilað þegar
SSSól stígur á stokk fyrir vestan
daginn fyrir kosningar.
Sóldögg gerir
garðinn frægan
Um helgina mun spútniksveit-
in Sóldögg verða á ferð og flugi
eins og venjulega. Föstudaginn
28. júní leikur hljómsveitin í
Gjánni á Selfossi. Á laugardegin-
um verður svo brunað upp á
Skaga þar sem haldið verður
uppi fjörinu á Langasandi. Disk-
ur hljómsveitarinnar, Klám, hef-
irn aldeilis..slegið I gegn og er
einn vinsælasti geisladiskurinn
sem islensk hljómsveit hefur gef-
ið út í sumar.