Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
23
pv___________________________________________________________________________________________íþróttir
Torfæran í Jósepsdal:
Haraldur á toppinn
- vann á laugardag og er efstur í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn
Haraldur Pétursson á Kjörísbílnum leiöir íslandsmótiö eftir goöan sigur f Jósepsdal á iaugardaginn og hér er hann
í síöustu brautinni. Mynd Ása Jóa
Torfærukeppni Jeppaklúbbs
Reykjavíkur og Nýju Bilasölunnar
var haldin í Jósepsdal á laugardag.
Keppnin, sem fór fram í miklu
ryki, gekk ágætlega þrátt fyrir
margar veltur sem sumar voru ansi
harkalegar.
Fyrir þessa keppni voru þeir Har-
aldur Pétursson á Kjörisbílnum og
Gísli G. Jónsson á Makkanum efstir
og jafhir til íslandsmeistara meö 33
stig. Þeir skipuðu sér fljótt í efstu
sæti og voru eftir 3 brautir meö
nokkuð mikla forustu á aðra kepp-
endur; Haraldur með 750 stig og
Gísli með 740.
Einar Gunnlaugsson á Norðdekk-
drekanum var fyrir þessa keppni
einu stigi á eftir þeim til íslands-
meistara en honum gekk illa i þess-
ari keppni. í fjórðu braut var hann
fyrstur og var brautin nánast ófær
þegar hann lagði í hana en hún
breyttist mikið eftir að hann reyndi
við hana og meðan hann fékk að-
eins 60 stig voru þeir sem á eftir
komu að fá um og yfir 200 stig.
í sömu braut fékk Haraldur 50
stigiun meira en Gísli og einnig í
næstu og var með gott forskot fyrir
síðustu braut sem var erfið hliðar-
hallabraut. Haraldur fór á undan
Gísla í þá braut, náði 150 stigum
áður en bíllinn tók af honum völdin
og velti. Gísli átti þá möguleika á
að komast upp fyrir Harald, náði
190 stigum og velti einnig.
Sigurður Axelsson á Fríðu Grace
var síðasti bíU í síðustu braut. í
næstsiðustu braut náði hann 200
stigum meðan aðrir voru með undir
100 stigum og var kominn nokkuð
nálægt efstu mönnum. Hann gerði
sér lítið fyrir, keyrði síðustu braut-
ina listavel og fékk 290 stig og
skaust með því í 2. sæti.
í götubílaflokki voru nánast bara
Keflvíkingar sóttu ekki guU í
greipar hins kunna austurríska
félags Austria Wien þegar liðin
mættust í Intertoto-keppninni í
knattspymu í Vínarborg á
laugardaginn. Austria hafði
talsverða yfirburði og sigraði, 6-0.
Heimamenn skomðu þrjú mörk
í fyrri hálfleiknum og bættu því
fjórða við í upphafi síðari
háUleiks. Tvö þau síðustu komu á
Það er ekki margt sem virðist
geta komið í veg fyrir að Breiðablik
vinni íslandsmótið í
kvennaknattspymu þriðja árið í
röð. Blikastelpur hafa nú sjö stiga
forystu að loknum sex umferðum.
Stórleikur helgarinnar fór fram á
Akranesi þar sem ÍA og Valur
áttust við. Skagastelpur léku án
fjögurra fastamanna. Tveir leik-
menn em í Finnlandi með stúlkna-
landsliði Islands og þær Ingibjörg
Ólafsdóttir og Áslaug Ákadóttir em
meiddar.
Valsstúlkur sóttu meira nær all-
an leikinn en Skagastúlkur vöröust
vel og lauk leiknum með 1-1 jafn-
tefli. Kristbjörg Ingadóttir skoraði
4 brautir þar sem tvær þær síðustu
vom ófærar og keppendur fengu úr
þeim 0-70 stig. Rafn A. Guðjónsson
náði forustunni í þriðju braut og þá
var Sigurður Þ. Jónsson annar og
Gunnar Pálmi Pétursson þriðji. í
næstu braut fékk Sigurður helmingi
færri stig en Rafn og Gunnar og
síðasta stundarfj órðungr.um. Ekki
hjálpaði það Keflvíkingum að þeir
Ragnar Margeirsson og Ragnar
Steinarsson fóm meiddir af velli í
fyrri hálfleik.
„Þetta var hálfslappt hjá okkur,
við áttum aldrei möguleika og
fengum engin afgerandi
marktækifæri í leiknum. Þetta er
sterkasta lið sem við höfum mætt í
þessari keppni, mun betra en
fyrir Val en Margrét Ákadóttir fyrir
Skagann.
KR komst í annað sætið
KR-ingar skutust upp í annað
sæti deildarinnar með sigri á Aftur-
eldingu í Frostaskjóli.
„Fyrri hálfleikur var slakur af
okkar hálfu en í síðari hálfleiknum
lékum við af skynsemi. Við höfum
verið að tapa dýrmætmn stigum í
jafnteflisleikjum gegn ÍA og Val en
eins og deildin hefur spilast undan-
farin ár þá má maður ekki við því
að tapa mörgum stigum ætli maður
sér að vera með í toppbaráttunni.
Við erum ekki sáttar við stöðu okk-
ar í deildinni en svona er þetta,”
missti svo út brautina þar á eftir
Úrslit urðu sem hér segir:
Sérútbúnir. 1. sæti Haraldur Pét-
ursson, 1230 stig, 2. sæti Sigurður
Axelsson, 1190 stig, 3. sæti Gísli G.
Jónsson, 1160 stig. Tilþrifaverð-
laun fékk Hörður Sigurðsson á
Kjúklingnum.
austurriska liðið Linz, sem við
mættum i fyrra, og það hreinlega
rúllaði yfir okkur. Undirbúningur
okkar var að visu ekki góður, við
vorum þreyttir eftir 18 tíma
ferðalag og komum ekki til Vínar
fyrr en klukkan hálftvö nóttina
fyrir leik,“ sagði Ragnar
Margeirsson, fyrirliði Keflvíkinga,
í samtali við DV eftir að þeir komu
til landsins í gær.
sögðu Helena Ólafsdóttir og Guð-
laug Jónsdóttir, sem stýrðu KR-lið-
inu í þessum leik. Guðrún J.
Kristjánsdóttir (2), Olga Færseth og
Olga Stefánsdóttir skorðu mörk KR.
Mikilvægur sigur
Stjörnunnar
Stjarnan vann mikilvægan sigur,
2-0, á ÍBV íEyjum. Stjömustelpur
hafa átt mjög erfitt uppdráttar í
sumar og verið í fallbaráttunni
ásamt nýliðum deildarinnar, ÍBV og
Aftureldingu. Rósa Dögg Jónsdóttir
tryggði Stjömunni öll stigin þrjú
með því að skora bæði mörk liðsins.
Með sigrinum skaust Stjaman upp
fyrir ÍBV og er nú í þriðja neðsta
Götubílar. 1. sæti Rafn A. Guð-
jónsson 1060 stig, 2. sæti Gunnar
Pálmi Pétursson, 990 stig, 3. sæti
Sigurður Þ. Jónsson, 845 stig . Til-
þrifaverðlaun fékk Gunnar Pálmi.
^ -ÁJ
Keflvikingar eru þar með
neðstir í sínum riðli, eins og fram
kemur í stöðunni á síðunni til
vinstri. Austria hafði tapað, 3-0,
fyrir Maribor frá Slóveníu í fyrsta
leik sínum. Keflvikingar eiga
aðeins einum leik ólokið en þeir fá
danská liðið FC Köbenhavn í
heimsókn þann 20. júlí.
sæti deildarinnar.
Breiðablik tók á móti ÍBA í Kópa-
voginum og sigraði, 4-1. Þaö ætlaði
ekki að ganga þrautalaust hjá ís-
landsmeisturunum aö hala inn sig-
ur og var markalaust í hálfleik. Það
tók Margréti Ólafsdóttur hins vegar
ekki nema 46 sekúndur að koma
Blikunum yfir í síðari hálfleik og
eftir það var aldrei spuming um
hvorum megin sigurinn myndi
lenda. Ásthildur Helgadóttir og
Katrín Jónsdóttir bættu við sinu
markinu hvor en eitt marka Breiða-
bliks var sjálfsmark. Katrín Hjart-
ardóttir skoraði mark ÍBA.
-ih
3. deild:
Efstu liðin
sigruðu öll
Þróttur, N.-HK..........3-2
Vilberg Jónasson skoraði eitt
mark fyrir heimamenn en Hlyn-
ur Eiríksson hin tvö, Stefán Guð-
mundsson og Ólafur Már Sæv-
arsson svöruðu fyrir HK.
Reynir, S.-Selfoss......3-2
Grétar Hjartarson, Marteinn
Guöjónsson og Scott Ramsey
skoruðu fyrir Reyni en Valgeir
Reynisson og Sigurður Þorvarð-
arson skoraðu fyrir Selfoss.
Ægir-Viðir..............2-3
Halldór Páll Kjartansson skor-
aði tvö fyrir Ægi en Ólafur Jóns-
son, Atli Vilhelmsson og Þor-
valdur Logason tryggðu Víði sig-
ur.
Grótta-Höttur ..........1-1
Gísli Jónasson skoraði fyrir
Gróttu en Haraldur Klausen
fyrir Hött.
Fjölnir-Dalvik..........1-2
Fjölnismenn náðu forystunni í
byrjun leiks en Sverrir
Björgvinsson og Örvar Eiríksson
tryggðu Dalvík sigurinn með
mörkum seint í leiknum.
Víðir 8 6 0 2 25-14 18
Reynir, S. 8 5 2 1 25-13 17
Þróttur, N. 8 5 1 2 21-15 16
Dalvik 8 4 3 1 22-14 15
HK 8 3 0 5 15-20 9
Ægir 8 2 2 4 13-12 8
Selfoss 8 2 2 4 16-24 8
Grótta 8 14 3 11-15 7
Fjölnir 8 2 1 5 15-23 7
Höttur 8 1 3 4 12-25 6
-JGG/VS
Barcelona að kaupa
Svo getur fariö að Brasilíu-
maðurinn Ronaldo, félagi Eiðs
Smára hjá PSV Eindhoven,
gangi til liðs viö Barcelona.
Hann hefur í höndunum tilboð
frá félaginu og er talið að kaup-
verð hans muni vera 1,3 milíj-
arðar króna. Ronaldo er ekki
ánægður með Dick Advocat,
þjálfara PSV, og hefur hann sagt
að ef Advocat hætti sem þjálfari
yrði hann um kyrrt.
Portúgalski landsliðsmark-
vörðurinn Victor Baia gekk um
helgina til liðs við Börsunga og
skrifaði undir átta ára samning.
Andreas Köpke, þýski landsliðs-
markvörðurinn, var á leið til
Barcelona en nú verður senni-
lega ekki af þvi og fer hann lík-
lega til Stuttgart í Þýskalandi.
Æfingar byrjaðar
Æfingar hjá íslendingaliðun-
um í þýsku knattspymunni
hófust á föstudaginn og fóra þeir
Þórður Guðjónsson, Bochum, og
Bjarki Gunnlaugsson, Mann-
heim, út um helgina. Mannheim
mætir Zwickau á útivelli í fyrsta
leik 2. deildar, sem hefst 3. ágúst,
og Hertha Berlín, lið Eyjólfs
Sverrissonar, mætir Mainz. Þá
mætir Bochum Duisburg í fyrsta
leik þýsku 1. deildarinnar, sem
hefst 16. ágúst, og síðan Bayem
Mtinchen á heimavelli.
Amar Gunnlaugsson hjá Soc-
haux í Frakklandi á enn við
meiðsli að stríða en lið hans fór
í hálfs mánaðar æfingabúðir um
helgina og á Amar aö hvíla í
hálfan mánuð og svo á að sjá til
hvað verður gert.
íslendingaslagur
í síðustu viku var tilkynnt um :
röðun á leikina í ensku 1. deild-
inni sem hefst 17. ágúst. í fyrsta
leik mætir Stoke, lið Lárasar
Orra, Oldham, liði Þorvaldar Ör-
lygssonar. Þeim íslendingum
sem hafa aðgang að sjónvarps-
stöðinni Sky Sport gefst síðan
kostur á að sjá Láras Orra og
Guðna í tvö skipti fyrir áramót
í beinni útsendingu. Bæði Bolton
og Stoke munu leika tvo leiki í
beinni útsendingu fyrir áramót.
Keflvíkingar fengu skell
- töpuöu 6-0 fyrir Austria Wien í Intertoto-keppninni
-ÆMK/VS
1. deild kvenna í knattspyrnu:
Breiðablik á beinu brautinni
eftir jafntefli íA og Vals
- Blikastelpur náðu 7 stiga forskoti á næstu þrjú lið eftir leiki 6. umferðar