Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Síða 4
24 MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996 MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996 25 íþróttir 1. deild ÍA 8 7 0 1 24-8 21 KR 7 6 1 0 22-5 19 Leiftur 8 3 3 2 16-15 12 ÍBV 8 4 0 4 14-16 12 Stjarnan 8 3 2 3 9-12 11 Valur 7 2 2 3 5-7 8 Grindavík 7 2 2 3 7-13 8 Fylkir 6 1 0 5 11-12 3 Keflavík 6 0 3 3 5-12 3 Breiðablik 7 0 3 4 7-20 3 Markahæstir: Guömundur Benediktsson, KR .. . 9 Mihajlo Bibercic, lA..............7 Bjarni Guðjönsson, ÍA ............7 Ríkharður Daðason, KR ............6 Haraldur Ingólfsson, ÍA ..........5 Rastislav Lazorik, Leiftri .......5 Einar Þór Daníelsson, KR..........4 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV .........4 Þórhallur D. Jóhannsson, Fylki . . 4 Alexander Högnason, ÍA............3 Baldur Bragason, Leiftri..........3 Kjartan Einarsson, Breiðabliki ... 3 Sverrir Sverrisson, Leiftri ......3 Goran Kristófer Micic, Stjörnu. . . 3 Leifur Geir Hafsteinsson, ÍBV .... 3 Versti í sex ár Skellur Eyjamanna gegn KR í gærkvöldi er sá stærsti sem þeir hafa orðið fyrir á heimavelli síðan þeir töpuðu fyrir Fram, 0-4, í 1. deildinni í maí árið 1990. 4. deild A-riðill: Afturelding-KSÁÁ 4-3 GG-Njarðvík . , 1-6 Framherjar-Léttir 0-1 HB-ÍH 2-5 Léttir 7 5 1 1 17-7 16 Afturelding 7 5 0 2 21-16 15 Njarövík 7 4 1 2 24-14 13 ÍH 7 4 1 2 21-18 13 GG 7 3 1 3 17-18 10 KSÁÁ 7 2 0 5 19-24 6 Framherjar 7 1 2 4 10-14 5 HB 7 0 2 5 9-27 2 B-riðill: Haukar-Smástund..............5-0 Víkingur Ó.-Ármann...........8-3 Haukar-Smástund............5-0 Víkingur Ó.-Ármann.........8-3 Skautafélag Rvk.-Smástund .. . 1-12 Haukar 6 4 2 0 30-6 14 Víkingur Ó. 5 4 1 0 37-6 13 Smástund 5 3 1 1 27-11 10 Ármann 6 2 3 1 18-16 9 Bruni 6 2 0 4 12-26 6 TBR 6 1 1 4 12-23 4 Skautafél.R. 6 0 0 6 2-50 0 V-riðill: Ernir-BÍ . . 2-4 Reynir Hn.-Geislinn . 3-1 Bolungarvík 4 3 1 0 16-4 10 BÍ 4 3 1 0 13-3 10 Reynir Hn. 4 2 0 2 7-8 6 Geislinn 4 1 0 3 12-20 3 Ernir 4 0 0 4 8-21 0 Hörður hætti við þátttöku. C-riðill: Neisti H.-Tindastóll 0-3 SM-KS . . 2-2 Hvöt-Kormákur 0-2 KS 6 4 1 1 17-5 13 Tindastóll 6 4 1 1 15-8 13 Magni 6 4 1 1 14-9 13 Neisti H. 6 2 1 3 4-13 7 SM 6 2 1 3 12-10 7 Kormákur 6 2 0 4 8-14 6 Hvöt 6 0 1 5 5-16 1 D-riðill: KVA-Leiknir F. 3-1 Einherji-Huginn .. 3-3 KVA 6 6 0 0 26-5 18 Sindri 4 3 0 1 15-9 9 Einherji 6 2 1 3 16-17 7 Huginn 6 1 1 4 8-24 4 Leiknir F. 6 1 0 5 15-25 3 f kvöld Knattspyma - 2. deild: KA-Völsungur................20.00 Skallagrímur-Þróttur R......20.00 Fram-Þór Ak................20.00 Víkingur-Leiknir R..........20.00 Frískir Blikar máttu sætta sig við jafntefli gegn Leiftri - Hajrudin Cardaklija varði vítaspyrnu þegar liðin skildu jöfn, 1-1 Cardaklija setti met Hajrudin Cardaklija, markvorður Breiðabliks, varði í gærkvöldi sína þriðju vítaspymu í 1. deildinni i sumar. Það er met í deildinni og það þó aðeins séu sjö umferðir búnar. Þetta er fjórða vítaspyrnan í röð sem Cardaklija ver í 1. deild og hann hefur varið 8 spyrnur af 14 sem hann hefur fengið á sig frá því hann gekk til liðs við Kópavogsfélagið fyrir nokkrum árum. Það voru frískir Blikar sem tóku á móti Leifturs- mönnum og gerðu liðin 1-1 jafntefli í prýðisgóðum leik á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Breiðablik því Radenko Maticic, sem er nýkominn til liðs við Blika, þurfti að fara af leikvelli vegna meiðsla og var slæmt að missa þennan reynda leikmann út af. Breiðabliksmenn voru miklu frískari í fyrri hálfleik og er langt síðan maður sá þá spila svona vel. Leiftursmenn voru á hælunum og virtust vera með hugann við eitthvað annað en að spila fótbolta en samt tókst þeim að krækja sér í vítaspyrnu. Cardaklija braut á Sverri Sverrissyni og kom það í hlut Péturs B. Jónssonar að taka spyrnuna en Cardaklija gerði sér lítið fyrir og varði glæsilega. Blikar komu tvíefldir til leiks eftir vítið og átti Kjartan Einarsson skalla fram hjá í dauðafæri þar sem þrír Blikar voru lausir inni í teig Leifturs. Síð- asta færið í fyrri hálfleik átti Rastislav Lasorik þegar honum tókst að skjóta fram hjá í upplögðu færi. Leiftursmenn komu sterkir til leiks í seinni hálfleik og fékk Lasorik algjört dauðafæri eftir að Theódór Hervarsson hafði misst boltann yfir sig en Cardaklija var enn og aftur réttur maður á réttum stað. Blikar náðu að komast meira inn í leikinn og spiluðu þeir mjög skemmtilega á köflum. Eitt besta færi leiksins *'Á átti varamaðurinn ívar I Sigurjónsson hjá Blikum. Eftir góða sókn náði Krist- ófer Sigurgeirsson föstu skoti sem markvörður Leift- son sem skapaði oft hættu þegar hann fékk boltann og Sævar Pétursson sem var sterkur á miðjunni. Leiftursliðið var frekar jafnt en Slobodan Milisic átti sæmilegan leik í vörninni. -JGG Theodór Hervarsson og félagar í Breiðabliki voru óheppnir að gera aðeins jafntefli við Leiftur í gærkvöldi en þeir sitja áfram á botni 1. deildarinnar. urs, Atli Knútsson, náði ekki að halda, ívar náði boltanum en lét verja frá sér í algjöru dauðafæri. Það hlaut að koma að því að Blikar skoruðu og var markið einstaklega glæsilegt hjá Kjartani Einarssyni sem hamraði boltann viðstöðulaust upp í þaknetið . En eins og svo oft áður bökkuðu Blikar eftir mark sitt I stað þess að halda góðum sóknarleik sínum áfram og Leiftursmenn nýttu sér það. Daði Dervic skoraði ekki síðra mark, hann þrumaði boltanum í þverslána og inn eftir hornspyrnu . Blikarnir fengu margar ágætar sóknir eftir að Leiftursmenn jöfnuðu en þær runnu allar út í sandinn og eru þeir því enn á botni deildarinnar en þess má geta að þetta var fyrsta stig Blika á heimavelli. í liði Breiðabliks átti Cardaklija frábæran leik, ívar Sigur- jónsson var frískur frammi sem og Arnar Grétars- Skagamenn gerðu það sem þeir þurftu - unnu Grindavík létt, 0-2 DV, Suðurnesjum: Skagamenn þurftu ekki hafa mik- ið fyrir þvi að ná í þrjú stig í safnið og halda efsta sætinu í 1. deildinni þegar þeir sóttu Grindvíkinga heim í gærkvöldi. Leiknum lauk með 0-2 sigri Akurnesinga með tveimur skemmtilegum mörkum Haralds Ingólfssonar og Ólafs Adolfssonar undir lok fyrri hálfleiks. Lið Skagamanna minnti mest á lið Þjóðverja þar sem leikmenn voru ekki að gera meira en til þurfti, og það geta góð lið. Þeir voru einfaldlega betri á öllum sviðum og voru nær því að bæta við mörkum en Grindvíkingar að skora. „Já, það er rétt að við spiluðum ekki á fullu en þetta var alveg nóg. Það bíður okkar erfitt verkefni. Þetta var fyrst og fremst vinnusigur og hann öruggur. Aðstæður voru erfiðar en við fengum fleiri mark- tækifæri sem við hefðum átt að nýta,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, við DV eftir leikinn. Áður en mörk Skagamanna komu var lítið að gerast í leik beggja liða. Þó áttu Skagamenn þrjú ágætis marktækifæri, Ólafur Þórðarson tvö þeirra og Bjarni Guðjónsson eitt. í síðari hálfleik var nánast um einstefnu að ræða. Skagamenn tóku öll völd á vellinum og hefðu auð- veldlega getað bætt við fleiri mörk- um. Um tíma komust Grindvíkingar ekki yfir miðju vallarins og áttu að- eins tvö marktækifæri. Fyrst var Guðmundur Torfason með hörku- skot sem Þórður Þórðarson varði og síðan skaut Ólafur Ingólfsson rétt yflr mark ÍA. Grindvíkingar mættu einfaldlega ofjörlum sínum í þessum leik. Varn- armenn liðsins stóðu upp úr en ef þeir hefðu átt jafn dapran leik og aðrir hefði leikurinn endað með skelfingu fyrir Grindvíkinga. Þá var Albert Sævarsson öruggur í mark- inu nema þegar fyrra markið kom, þá mistókst honum að slá b oltann frá. Skagamenn réðu yfir miðju vall- arins og lítið reyndi á varnarmenn liðsins. Það sem þeir höfðu fram yf- ir mótherja sína var að leikmenn- irnir voru hreyfanlegir og þurftu ekki á neinum stjörnuleik að halda til að sigra. „Þetta var ekki nógu gott. Þetta var dapur leikur hjá okkur og við fengum ódýr mörk á okkur. Við náðum ekki að spila boltanum á milli manna og því fór sem fór,“ sagði Ólafur Ingólfsson, fyrirliði Grindvíkinga, sem lék með þó hann væri enn að jafna sig eftir meiðsli. -ÆMK Breiðablik-Leiftur (O-O) 1-1 1-0 Kjartan Einarsson (59.) átti glæsilegt skot frá vinstri upp i þak- netið eftir góða sendingu frá Guð- mundi Þ. Guðmundssyni. Gullfallegt! 1-1 Daði Dervic (75.) skoraði ekki síðra mark þegar hann hamraöi bolt- anum í þverslána og inn eftir horn- spymu, mjög vel afgreitt. Lið Breiðabliks: Hajrudin Carda- klija @@ - Theódór Hervarsson, Radenko Maticic (ívár Sigurjónsson 11. @@), Hreiðar Bjamason @, Hákon Sverrisson © - Pálmi Har-’ aldsson, Sævar Pétursson ©©, Amar Grétarsson @@, Guðmundur Þ. Guömundsson, Kristófer Sigur- geirsson (Anthony Karl Gregory 77.) - Kjartan Einarsson ©. Lið Leifturs: Atli Knútsson - Auðun Helgason, Slobodan Milisic @, Daði Dervic @, Júlíus Tryggva- son (Páll Guðmundsson 69.) - Sverrir Sverrisson ©, Pétur Björn Jónsson ©, Baldur Bragason (Matthías Sig- valdason 84.), Gunnar Oddsson - Rastislav Lazorik, Gunnar Már Más- son. Markskot: Breiðablik 7, Leiftur 7 Hom: Breiðablik: 7, Leiftur: 9. Gul spjöld: Cardaklija, Theódór og Kjartan hjá Blikum en Július hjá Leiftri. Rauð spjöld: Engin Dómari: Pjetur Sigurðsson og dæmdi hann sæmilega en virtust línuverðir vera eilitið utan við sig hvað varðaði rangstöður. Skilyrði: Veður var ágætt og völl- urinn prýðisgóður. Áhorfendur: Um 300. Maður leiksins: Hajmdin Car- daklija, Breiðabliki, sem varði glæsilega víti frá Pétri og bjargaði oft sínum mönnum með frábærri markvörslu. KR-ingar fóru á kostum í Eyjum - léku ÍBV sundur og saman og unnu stórsigur, 4r-0 DV, Eyjum: „Ég get ekki kvartað yfir neinu. Við fundum formið og rétta liðið í maí og höfum veriö betri aðilinn í öllum leikj- um okkar hingað til og erum taplaus- ir í þrjá mánuði. í dag léku strákamir mínir mjög vel miðað við aðstæður, spiluðu stutt og einfalt. Ég hef trú á mínum strákum og hef enga trú á öðru en við munum fara alla leið á toppinn í sumar. Mórallinn í liðinu er frábær, þeir eru líkamlega sterkir og spilið á toppnum. Flestir þeirra hafa tekið miklum framforum og við erum að spila skemmtilegasta fótboltann í dag. Eins og staðan er í dag eru tvö lið að berjast um titilinn. Okkur er nú al- vara með að fá titilinn í vesturbæinn í fyrsta skipti í þrjátíu ár,“ sagði Lúk- as Kostic, þjálfari KR, eftir frábæran sigur KR á ÍBV í EYjum, 4-0. KR-ing- ar léku eins og þeir sem valdið hafa, fóru á kostum og hreinlega gerðu grín að ömurlega slökum Eyjamönnum á köflum. Þetta var sjötti sigur KR í röð í deildinni en þriðja tap ÍBV í röð. KR fékk óskabyrjun, eins og ÍBV í fyrra, og sótti án afláts og skoraði tvö mörk, Einar Þór það fyrra eftir aðeins tvær mínútur. Guðmundur Benedikts- son fékk tvö dauðafæri til að skora en Friðrik varði vel. I lok hálfleiksins kom besti kafli ÍBV. Tryggvi komst einn inn fyrir en missti boltann of langt frá sér og Hlynur átti þrumuskot rétt yfir. í seinni hálfleik bættu Eyjamenn manni í sóknina en spiluðu með þriggja manna vörn sem þeir réðu ekkert við. ÍBV sótti meira eftir rok- inu án þess að skapa sér eitt einasta tækifæri allan seinni hálfleik. KR-ing- ar léku vel í vörn og stutta spilið þeirra splundraði götróttri vörn ÍBV hvað eftir annað enda uppskáru þeir tvö mörk í lokin. Guðmundur komst svo í þriðja sinn einn inn fyrir en Friðrik varði vel. Sigur KR var síst of stór því þeir hefðu hæglega getað bætt við mörk- um. Hvergi var veikan hlekk að finna og spilið einfalt og skemmtilegt. Heim- ir fór hamförum á miðjunni, var sem kóngur í ríki sínu og hrissti Nökkva, sem var settur honum til höfuðs, auð- Heimir Guðjónsson átti frábæran leik með KR-ingum í Eyjum í gærkvöldi. veldlega af sér. Kantmennirnir Einar Þór og Hilmar voru stöðug ógnun og Guðmundur skeinuhættur frammi. Ekki verður séð hvemig KR-ingar verða stöðvaðir úr þessu og aðeins gamli KR-draugurinn getur komið í veg fyrir að titillinn verði þeirra. Hjá ÍBV stóð ekki steinn yfir steini og aðeins Friðrik forðaði liðinu frá stærra tapi. Fréttir berast að eitthvað mikið sé að i herbúðum ÍBV þessa dagana og það endurspeglast í leik liðsins. ÍBV er heillum horfið og farið að krauma í stuðningsmönrium liðs- ins. „Við fengum tvö mörk á okkur í byrjun sem var einmitt það sem KR þurfti að fá. Við erum að spila illa, ekkert í gangi hjá okkur og eins og vanti eitthvert sjálfstraust í liðið. Það segir sig sjálft að eitthvað mikið er að eftir svona stórt tap og við verðum að setjast niður, ræða málin og brjóta til mergjar," sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, við DV eftir leikinn. Heimir í Smástund Heimir Hallgrímsson, varnarjaxl- inn úr ÍBV, er hættur i 1. deildinni og farinn að leika með Smástund í 4. deild. Þá vantaði Magnús Sigurðsson í Eyjaliðið í gærkvöldi en hann er meiddur. -ÞoGu Barátta en sanngjörn úrslit - markalaust hjá Val og Stjörnunni ÍBV-KR (0-2) 0-4 0-1 Einar Þór Danlelsson (2.) með góðu hægri fótar skoti rétt utan markteigs eftir fyrirgjöf Guðmundar Benediktssonar. 0-2 Ríkharður Daðason (19.) af stuttu færi eftir að Friðrik hafði var- ið en missti frá sér boltann eftir skot Einars Þórs úr aukaspyrnu 0-3 Guðmundur Benediktsson (77.) var aleinn í teignum eftir fallega fyrirgjöf Hilmars Björnssonar og skoraði með viðstöðulausu skoti. 04 Heimir Guðjónsson (87.) úr vítaspymu eftir að Lúðvík Jónasson slæmdi hendi klaufalega í boltann eft- ir fyrirpjöf Einars Þórs. Lið IBV: Friðrik Friðriksson © - ívar Bjarklind, Jón Bragi Amarsson (Kristinn Hafliðason 46.), Hermann Hreiðarsson, Lúðvik Jónasson - Hlynur Stefánsson, Nökkvi Sveinsson (Friðrik Sæbjömsson 87.) Bjamólfur Lámsson, Leifur Geir Hafsteinsson, Tryggvi Guðmundsson - Steingrímur Jóhannesson (Sumarliöi Árnason föj Lið KR: Kristján Finnbogason © - Brynjar Gunnarsson © (Björn Skúlason89.), ÞormóðurEgilsson@, Sigurður Örn Jónsson ©, Ólafúr H. Kristjánsson © (Bjami Þoreteins- son 80.) - Hilmar Björnsson ©, Þor- steinn Jónæon (Þorsteinn Guðjóns- son lú ©), Heimir Guðjónsson ©©©, Einar Þór Danielsson ©© - Guðmundur Benediktsson Ríkhai-ður Daðason @. Markskot: ÍBV 14, KR 13. Horn: ÍBV 3, KR 6. Gul spjöld: Brynjar (KR), Þor- steinn J. (KR), Lúðvík (tBV), Jón Bragi (tBV), Leifur Geir (ÍBV). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Gylfl Þór Orrason, mjög góður. Skilyrði: Strekkingsvindur að austan eftir endilöngum vellinum sem haíði töluverð áhrif á leikinn. Áhorfendur: 820. Maður leiksins: Heimir Guð- jónsson, KR. Fór á kostum á miðj- unni, braut niður sóknir Eyja- manna, var allt í öllu í spilinu og skapaði oft usla í vöm IBV með frábærum sendingum. „Stjömumenn komu mun beittari til leiks en í bikarnum á fimmtudag- inn og við voram ekki eins öflugir. Við spiluðum ekki nógu vel í fyrri hálfleik en Bjarni kom í veg fyrir að við settum mark í þeim síðari. En stig er alltaf stig í baráttunni,“ sagði Lárus Sigurðsson, markvörður Vals, eftir markalaust jafntefli gegn Stjörnunni á Hlíðarenda í gær- kvöldi. Stjömumenn tóku öll völd í byrj- un leiks og léku mjög vel fyrsta hálf- tímann í leiknum. Lárus varði vel í tvígang skot frá þeim Baldri Bjama- syni og Valdimar Kristóferssyni á þessum kafla. Valsmenn náðu sínu fyrsta skoti á mark Stjörnunnar eft- ir 26. mín. en þá átti Heimir Porca gott skot beint úr aukaspyrnu sem Bjami Sigurðsson varði vek Valsmenn mættu vel stemmdir til siðari hálfleiks og á 53. min. komst Arnljótur-Davíðsson einn inn fyrir vöm Stjörnunnar en var alltof seinn að klára. Aðeins tveimur mín. síðar átti Goran Micic gott skot sem Lár- us varði frábærlega. Arnljótur fékk skömmu síðar tvö tækifæri til að gera mark en hann var ekki á skot- skónum í gærkvöldi. Valsmenn náðu smá saman undirtökunum á miðjunni en í síðari hálfleik mynd- aðist of mikið bil milli sóknar og vamar Stjömunnar. En þrátt fyrir að Valsmenn hafi sótt meira og ver- ið meira með knöttinn undir lok leiksins áttu Stjörnumenn hættuleg- asta færið. Goran Micic átti skalla að marki Vals á 89. mín. en Láras varði vel og sá til þess að Stjömu- menn færu ekki með öll stigin i Garðabæinn. Leikur liðanna einkenndist af mikilli baráttu og oft meira af kappi en forsjá. „Þetta var baráttuleikur, en i heildina séð held ég að úrslitin hafi verið sanngjörn," sagði Baldur Bjarnason, miðvallarleikmaður Stjörnunnar, en hann var besti mað- ur liðsins eins og svo oft áður í sum- ar. Reynir Bjömsson átti einnig ágætan leik í vörninni og Goran Kristófer var ógnandi frammi. Lárus var besti maður Vals- manna, varnarleikur liðsins var góður þegar á leið og athygli vakti góður leikur Gunnars Einarssonar í stöðu miðvarðar. Heimir Porca komst einnig vel frá leiknum. -ÞG íþróttir Grindavík-ÍA (0-2) 0-2 0-1 Haraldur Ingólfsson (42.) með viðstöðulausu skoti í stöng- ina og inn eftir fyrirgjöf Ólafs Þórðarsonar frá hægra kanti. 0-2 Ólafur Adolfsson (45.) með skalla í stöngina og inn eft- ir sendingu Jóhannesar Harðar- sonar frá hægri. Lið Grindavíkur: Albert Sævarsson - Guðlaugur Jónsson, Guðmundur Torfason @, Guð- jón Ásmundsson @, Júlíus Dan- íelsson @ - Zoran Ljubicic, Hjálmar Hallgrímsson (Gunnar Már Gunnarsson 53.), Ólafur Örn Bjarnason, Siusa Kekic (Sig- urbjörn Dagbjartsson 88.), Ólafur Ingólfsson - Grétar Einarsson (Bergur Eggertsson 76.). Lið ÍA: Þórður Þórðarson - Steinar Adolfsson @, Ólafur Ad- olfsson, Zoran Miljkovic, Sigur- steinn Gíslason @ (Sturlaugur Haraldsson 85.) - Ólafur Þórðar- son @, Alexander Högnason @, Jóhannes Harðarson @ - Bjarni Guðjónsson, Mihajlo Bibercic, Haraldur Ingólfsson @. Markskot: Grindavík 6, ÍA 16. Horn: Grindavík 2, ÍA 1. Gul spjöld: Sigursteinn (ÍA), Grétar (Grindavík). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Bragi Bergmann, ágætur. Skilyrði: Suðaustan strekk- ingsvindur, kalt, völlurinn háll en þó ekki þungur. Áhorfendur: Um 250. Maður leiksins: Ólafur Þórðarson, ÍA. Lék geysilega vel á miðjunni, var hreyfan- legur og baráttuglaður allan tímann og Grindvíkingar áttu í erfiðleikum með að stöðva hann. Frestað um mánuð Leik Fylkis og Keflavíkur sem tilheyrði umferðinni f gærkvöldi var frestað um einn mánuð vegna þátttöku Keflvíkinga í Inter-toto- keppninni. Valur-Stjarnan (0-0) 0-0 Lið Vals: Láms Sigurðsson @@ - Bjarki Stefánsson, Jón Grétar Jónsson @, Gunnar Ein- arsson @, Nebojsa Corovic - Sigurbjörn Hreiðarsson (Krist- ján Halldórsson 60.), Salih Heim- ir Porca @, ívar Ingimarsson (Sigurður Grétarsson 76.), Jón S. Helgason, Sigþór Júliusson - Arnljótur Davíðsson. Lið Stjörnunnar: Bjami Sig- urðsson @ - Hermann Arason, Helgi Björgvinsson, Reynir Björnsson @, Birgir Sigfússon - Ingólfur Ingólfsson (Ragnar Ámason 60.), Baldur Bjarnason @, Rúnar Páll Sigmundsson, Valdimar Kristófersson, Krist- inn Lárusson - Goran Kristófer Micic @. Markskot: Valur 12, Stjarnan 16. Horn: Valur 4, Stjarnan 6. Gul spjöld: Gunnar (Val), Rúnar Páll (Stjörnunni), Her- mann (Stjörnunni). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Gísli H. Jóhannsson, dæmdi ágætlega. Skilyrði: Léttur vindur á ann- að markið, þungbúið en nánast þurrt. Völlurinn í góðu ásig- komulagi. Áhorfendur: 246. Maður leiksins: Lárus Sig- urðsson, Val. Geysilega örugg- ur í marki Hlíðarendaliðsins og varði nokkrum sinnum glæsilega. Baldur Bjarnason úr Stjörn- unni lék 100. leik sinní 1. deild í gærkvöldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.