Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 8
28
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
íþróttir_______________________________dv
Meistaramótið í frjálsum íþróttum:
FH-ingar sigruðu
með miklum mun
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum fór
fram um helgina á Laugardalsvelli en of mik-
ill vindur setti strik í reikninginn. FH-ingar
sigruðu á þessu meistaramóti með miklum
mun, fengu alls 231,5 stig.
í 100 m hlaupi karla sigraði Jóhannes Már
Marteinsson, ÍR, og hljóp á 10,62. í 100 m
hlaupi kvenna sigraði Geirlaug B. Geirlaugs-
dóttir, Á, og hljóp á 11,87. Vindur var allt of
mikill á mótinu og var þetta hlaup bæði hjá
konum og körlum því ólöglegt.
í 400 m hlaupi karla sigraði Friðrik Amar-
son, Á, á 49,43, Ingi Þór Hauksson, UMFA,
varð annar á 49,97 og Björn Traustason, FH,
þriðji á sléttum 50,00. í 400 m hlaupi kvenna
voru einungis þrír keppendur og sigraði
Helga Halldórsdóttir, FH, á 57,33, Steinunn
Leifsdóttir, Á, varð í öðru sæti á 59,75 og Ema
Dögg Þorvaldsdóttir, HSÞ, varð þriðja á 60,14.
Stefán Guðjónsson, ÍR, sigraði í 1500 m
hlaupi karla á 4:05,67 og varð Sigurbjörn Á.
Arngrímsson,, HSÞ, annar á 4:05,99 en Smári
Björn Guðmuiidsson, FH, þriðji á 4:09,31. Hjá
konunum sigraði Fríða Rún Þórðardóttir, Á, á
4:45,48, Bima Björnsdóttir, FH, varð önnur og
hljóp á 4:49,45 og Laufey Stefánsdóttir, FH,
varð þriðja á 4:49,65.
í 110 m grindahlaupi karla sigraði Ólafur
Guðmundsson, HSK, örugglega á 14,44 en
vindur var einnig of mikill í þessari grein.
í 3000 m hindrunarhlaupinu var ekki mikil
þátttaka. Björgvin Friðriksson, UMFA, var sá
eini sem hljóp það og var tími hans 9:59,49.
í 4 x 100 m boðhlaupi karla sigraði A-sveit
FH á 43,4 en sveit Breiðabliks varð önnur á
43,8 og A-sveit ÍR þriðja á 44,5. B-sveit FH
sigraði í sama hlaupi hjá konunum á 49,68,
A-sveit ÍR varð önnur á 50,80 en sveit Ár-
manns endaði í þriðja sæti á 50,96.
í hástökkinu stökk Einar Kristjánsson, FH,
hæst, 2,01. Hjá konunum stökk Þórdís Lilja
Gísladóttir, ÍR, hæst, 1,75.
Vindur var mjög mikill í langstökkinu en
Jón Oddsson, FH, stökk þar 7,04 lengst. Það
sama var að segja í langstökki kvenna en þar
stökk Sigríður Anna Guðjónsdóttir lengst,
5,96.
Jón A. Sigurjónsson, FH, sigraði örugglega
í sleggjukastinu og kastaði 61,28. í sleggjukasti
kvenna sigraði Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK,
kastaði lengst allra, 39,68, en Unnur Sigurðar-
dóttir, FH, varð önnur með 34,26.
Friðgeir Halldórsson, USAH, var eini kepp-
andinn í spjótkasti karla og kastaði hann 53,66
en hjá konunum kastaði Vigdís Guðjónsdóttir,
HSK, lengst, 44,92, Halldóra Jónasdóttir,
UMSB, varð í öðru sæti með 44,80 en Unnur
Sigurðardóttir, FH, varð þriðja og kastaði
38,68.
Bjami Þór Traustason, FH, sigraði í hörku-
spennandi 200 m hlaupi karla á 22,41, Jóhann-
es Már Marteinsson, ÍR, varð annar á 22,44 en
Friðrik Arnarson varð þriðji á 22,73. I 200 m
hlaupi kvenna varð Sunna Gestsdóttir, USAH,
fyrst í mark á 24,78 en Geirlaug B. Geirlaugs-
dóttir, Á, varð önnur á 25,08, Helga Halldórs-
dóttir, FH, varð svo þriðja á 25,10.
I 800 m hlaupi karla varð Finnbogi Gylfa-
son, FH, fyrstur í mark á 1:57,2 í sjötta sinn
sem hann sigrar í þessari grein, Björn Mar-
geirsson, UMSS, varð annar á 1:58,15 og Sigur-
bjöm Á. Amgrímsson, HSÞ, þriðji á 1:59,27.
Hjá konunum sigraði Fríða Rún Þórðardóttir,
Á, í 800 m hlaupinu á 2:18,98, Laufey Stefáns-
dóttir, FH, varð önnur á 2:20,11 og Bima
Bjömsdóttir, FH, varð þriðja í mark á 2:22,11.
Sigmar Gunnarsson, UMSB, varð langfyrst-
ur í 5000 m hlaupi karla á 15:28,06, næstur í
mark varð Sveinn Margeirsson, UMSS, á
15:42,37 og Jóhann Ingibergss. þriðji á 15:52,11.
í 400 m grindahlaupi karla sigraði Egill
Eiðsson, Breiðabliki, á 55,46 en Gunnhildur
Hinriksdóttir, HSÞ, sigraði hjá konunum í
þessari gi'ein á 66,14.
í kúluvarpinu kastaði Eggert Bogason, FH,
lengst, 14,85, en Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK,
kastaði lengst hjá konunum, 11,80..
100 m grindahlaup kvenna var einnig ólög-
leg út af vindi en Helga Halldórsdóttir, FH,
hljóp það best á 14,22.
Þrístökk kvenna var einnig ólögleg sökum
vinds en Sigríður Anna Guðjónsdóttir, HSK,
stökk lengst þar, 12, 66.
í kringlukasti kvenna sigraði Guðbjörg Við-
arsdóttir, HSK, með 40,36.
-JGG
I m i - m w ,^4 líB&eA ■
(t P i Á % } \ i
Lið FH sigraði glæsilega á meistaramótinu í frjálsum íþróttum um helgina og hér sjáum við allan hópinn eins og hann leggur sig. Þetta var frekar
erfitt mót því vindur var alltof mikill og gerði það keppendum erfitt fyrir. DV-mynd S
í 200 m hlaupi karla sigraði Bjarni Þór Traustason, FH, í æsispennandi hlaupi
á meistaramótinu í frjálsum íþróttum. DV-mynd S
Löng feröalög hjá öllum íslensku liðunum:
Erfiðir leikir en öll
eiga möguleika
- Skagamenn sennilega með snúnasta verkefnið
íslensku félögin þrjú, sem taka
þátt í Evrópumótum félagsliða í
knattspyrnu, eiga öll nokkur ferða-
lög fyrir höndum í forkeppninni en
til hennar var dregið á laugárdag-
inn. Þau ættu þó öll að eiga mögu-
leika á að komast áfram, Eyjamenn
þó sennilega mesta.
ÍA leikur gegn Sileks frá
Makedóníu i UEFA-bikarnum og
verður fyrri leikurinn á Akranesi
17. júlí en sá síðari í Makedóníu 24.
júlí.
IBV leikur gegn Lantana frá Eist-
landi í UEFA-bikamum og fer fyrri
leikurinn fram i Eistlandi 17. júlí en
sá síðari í Eyjum 24. júlí.
KR mætir MPKC Mozyr frá
Hvíta-Rússlandi í Evrópukeppni
bikarhafa og fer fyrri leikurinn
fram ytra 8. ágúst en sá síðari hér
heima 22. ágúst.
Erfitt verkefni hjá
Skagamönnum
Svo virðist sem Skagamenn eigi
erfiðasta verkefnið fyrir höndum.
Sileks varð í vor meistari i
Makedóníu í fyrsta skipti en hafði
fram að því ávallt hafnað í öðru
sæti á eftir Vardar Skopje.
Þessi tvö lið hafa haft mikla yfir-
burði á önnur í Makedóníu og Is-
lendingar vita eftir jafnteflið á
Laugardalsvellinum í júníbyrjun að
makedónískir knattspymumenn
era sýnd veiði en ekki gefin.
Nokkrír landsliðsmannanna koma
einmitt frá Sileks. Búast má við því
að útileikurinn í borginni Kratovo
verði Skagamönnum sérlega erfið-
ur.
Sileks mætti Mönchengladbach
frá Þýskalandi í Evrópukeppni bik-
arhafa í fyrrahaust og tapaði þá 3-0
á útivelli og 3-2 á heimavelli.
Lantana eingöngu skipað
rússneskum leikmönnum
Lantana, mótherji ÍBV, kemur frá
höfuðborginni, Tallinn og er eitt af
toppliðunum í Eistlandi. Það er nán-
ast eingöngu skipað rússneskum
leikmönnum sem ekki eru gjald-
gengir í landslið Eistlands. Félagið
var stofnað á síðasta ári í stað ann-
ars félags sem hét Nikol Tallin og
varð bikarmeistari Eistlands fyrir
þremur árum. Nikol tók þátt í Evr-
ópukeppni bikarhafa 1993-94 og tap-
aði þá fyrir Lilleström frá Noregi,
4-0 heima og 4-1 í Noregi.
Mozyr er spútnikliö Hvít-
Rússa
MPKC Mozyr, mótherji KR-inga,
er spútniklið í hvít-rússnesku knatt-
spymunni. Félagið er aðeins 9 ára
gamalt en vann 2. deildina með yfir-
burðum 1995 og lék í fyrsta skipti í
1. deild á nýliðnu timabili. Þar hafn-
aði Mozyr i öðru sæti, á eftir meist-
uram Dinamo Minsk, og var eina
liðið sem náði að sigra Minsk á
tímabilinu. Mozyr tekur nú þátt í
Evrópukeppni í fyrsta skipti.
-VS