Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1996, Síða 1
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1996
IÞROTTIR
Getraunir:
Enski
bottinn
122 x11 x2x 1121
Lottó 5/38:
4 14 20 23 34 (25)
////////////////////////////////////
FIFA vill
bann við
barnaþrælkun
Alþjóða knattspymusamband-
ið (FIFA) gaf um helgina út þá
yfirlýsingu að það vildi fyrir alla
muni koma í veg fyrir að börn
ynnu bolta með merki FIFA. í
Evrópukeppninni í sumar voru
allir boltar, sem notaðir voru,
unnir af bömum. Bandaríski
stjómmálamaðurinn Joseph
Kennedy segir að 25% af þeim 35
milljónum bolta sem Pakistanar
flytja út séu unnir af bömum.
Atvinnumálaráðherra Pakistans
sagði fyrr í sumar að allir þeir
sem nota börn við framleiðslu á
boltum yrðu tafarlaust hand-
teknir. Það væri hlutverk barna
að horfa á fótbolta en ekki vinna
við framleiðslu á þeim.
Forsala á
úrslitaleikinn
gengur vel
Forsala á úrslitaleikinn í
Mjólkurbikarkeppninni stendur
yfir af fuflum krafti. Ljóst er að
leikurinn nýtur mikillar athygli
og mun fjöldi stuöningsmanna
liðanna frá Akranesi og Vest-
mannaeyjum fylgja sínum liðum
í Laugardalinn á sunnudaginn
kemur. Forsala aðgöngumiða
stendur yfir á bensínstöðvum
Esso við Lækjargötu í Hafnar-
firði, í Ártúnsbrekku og við
Geirsgötu. Miði í stúku kostar
1.100 kr„ 700 kr. í stæði og 300
kr. fyrir böm.
Fýrsti sigur
Stoke City á
Oldham í 10 ár
Láms Orri Sigurðsson og sam-
herjar hans í Stoke City lögðu
Þorvald Örlygsson og félaga í
Oldham að vefli í 1. deild ensku
knattspymunnar, 1-2, sem hófst
um helgina. Þetta var fyrsti sig-
ur Stoke gegn Oldham í tíu ár.
Guöni Bergsson lék ekki með
Bolton sem gerði jafntefli við
Port Vale.
28 mörk skoruð
í fyrstu umferð
á Englandi
Óhætt er að segja aö leikmenn
liðanna i ensku úrvalsdeildinni
hefi verið á skotskónum í 1. um-
ferö mótsins um helgina. 28
mörk voru skoruð í tíu leikjum
eða það sama og skorað var í
fyrstu umferð á síðasta tímabili.
Áf þessu að dæma sjá menn fyr-
ir sér skemmtilegan og fjörugan
vetur í ensku knattspymunni.
Frábær byrjun
hjá Ravanelli
„Félagar minir eru mér meira
virði en mörkin sem ég skoraði
gegn Liverpool. Þetta var athygl-
isverður dagur en hann hefði
verið betri ef við hefðum náð að
sigra,“ sagði Fabrizio Ravanelli
eftir sinn fyrsta leik með
Middlesboro. Vebankar stóðu
33-1 að Ravanelli yröi
markakóngur en oddsinn fór í
10-1 eftir leikinn á laugardaginn.
-JKS
Bibercic vill fara
frá Skagamönnum
- ósáttur með störf þjálfarans og fór ekki með til Moskvu
DV, Akranesi:
Mihaljo Bibercic, framherji ÍA í
knattspymu, hefur óskað eftir því
við stjórn Knattspymufélag Akra-
ness að hætta að leika með liðinu
og mun hann hafa farið fram á
þetta eftir leik Skagamanna gegn
Valsmönnum á fóstudagskvöldið.
Bibercic hefur verið ósáttur
með störf Guðjóns Þórðarsonar
þjálfara og fór hann ekki út með
liðinu sem hélt tfl Moskvu á laug-
ardaginn en Skagamenn mæta
CSKA Moskva í síðari leik sínum í
Evrópukeppninni annað kvöld.
Að sögn Arnar Gunnarssonar,
varaformanns Knattspymufélags
Akraness, hefur Bibercic farið
fram á þetta við félagið en ekki
hefur verið tekin afstaða um mál-
ið í stjórninni að sögn Arnar og
verður ekki gert fyrr en liðið kem-
ur heim frá Moskvu.
Samkvæmt heimildum DV
hyggst Bibercic halda af landi
brott í vikunni en eins og kunnugt
leika ÍA og ÍBV til úrslita 1
Mjólkurbikamum um næstu helgi.
Steinar ekki með
Skagamenn tefla ekki fram sínu
sterkasta liði í leiknum gegn
CSKA, sem eins og kunnugt, vann
fyrri leikinn á Akranesi, 2-0.
Steinar Adolfsson fékk leyfi frá fé-
laginu til að sleppa ferðinni vegna
prófa og Sturlaugur Haraldsson
tekur út leikbann.
-DVÓ
Mihaljo Bibercic vill fara frá ÍA.
jRaab
WS
FLUGLEIÐIi
> ? Tpíjpi 'vy qty W|
l 5 ii l 1 j
¥ ' ‘ 1 Vqv ¥
«: ‘. 5 < ■:'í \ '•V-ir»:'
v;' /f
\ ' : 7TF, ■'mtín í
m ÉrAJmBmí M
Bretinn Hugh Jones sigurreifur eftir sigur í 13. Reykjavíkur maraþoninu sem þreytt var í gær. Sigur Jones var
öruggur en þetta er annað árið í röð sem hann kemur fyrstur í mark. DV-mynd GS
Reykj avíkurmaraþon:
Jones fyrstur í mark
annað árið í röð
Bretinn Hugh Jones sigraði í
karlaflokki í maraþoni karla í 13.
Reykjavíkur maraþoni sem þreytt
var í gær í blíðskaparveðri. Jones
kom í mark á 2:24,16 klst. og tókst
þar með ekki að bæta brautarmetið.
„Tíminn var í lagi en það er ekki
auðvelt að hlaupa á íslandi, jafnvel
á degi sem þessum. Frábært verður
fyrir íslendinga en í samanburði
við aðra staði þá var hvassara hér.
Þetta var mun betra en í fyrra en ég
held að ég hafi samt hlaupið betur
þá út af aðstæðunum sem voru
mjög erfiðar. Ég er samt mjög
ánægður með sigurinn," sagði
Hugh Jones við DV eftir sigurinn.
Jones var 5 mínútum á undan
næsta manni, landa sinum, Chris
Penny, sem átti í efiðleikum á síð-
ustu kílómetrunum. „Þetta var gott
hlaup en ég lenti i erfiðleikum og
þurfti að æla þegar 39 km voru bún-
ir og 5 km áður var ég mjög slappur
en eftir að ég kastaði upp leið mér
betur,“ sagði Penny eftir hlaupið.
í kvennaflokki kom breska
hlaupakonan Angaharad Mair fyrst
i mark á 2:38,47 klst. sem er nýtt og
glæsilegt brautarmet í maraþoni
kvenna. Hún bætti brautarmetið
um rúmar 9 mínútur.
„Ég er himinlifandi því ég vissi
að metið var 2:47 klst. og minn besti
tími fyrir daginn í dag var 2:46. All-
ir sögðu mér að maður gæti ekki
náð góðum tíma í Reykjavík ef
vindurinn væri á móti. Aðstæðurn-
ar voru frábærar og ég er mjög
ánægð,“ sagði Mair.
í hálfmaraþoni karla var það
Bretinn Kevin McCluskey sem kom
fyrstur i mark á 1:05,36 klst. og setti
um leið nýtt brautarmet.
„Ég er mjög ánægður með hlaup-
ið, leiðin var skemmtfleg en örlítið
hvasst en ég er sáttur. Þetta var
ekki minn besti tími en ég er búinn
að vera meiddur í tvö ár og er ný-
farinn að hlaupa aftur,“ sagði
McCluskey eftir hlaupið.
-JGG
Miklir yfirburðir
hjá Mörthu í
hálfmaraþoni
Martha Ernstdóttir sigraði í
hálfmaraþoni kvenna og voru yf-
irburðir hennar miklir. Martha
kom í mark á 1:11,40 klst sem er
nýtt brautarmet kvenna.
„Ég er rosalega ánægð með
hlaupið. Aðstæðurnar voru
miklu betri núna heldur en i
fyrra, enda voru þær hryllilegar
þá, rok og rigning. Það var svo-
litill mótvindur núna í lokin, ég
var ein og hljóp með maraþon-
hlaupurunum í fyrstu sem var
mjög gott, þeir hjálpuðu mér
rosalega mikið. Ég sannaði það
fyrir sjálfri mér að ég átti alveg
erindi á Ólympíuleikana i mara-
þoni, þannig að ég er mjög
ánægð,“ sagði Martha.
Um 3000 manns tóku þátt í
Reykjavíkur maraþoninu og ekki
er hægt að segja annað en að
veðrið hafi leikið við
hlauparana. Mikfl örtröð var við
skráninguna áður en hlaupið
hófst enda margir sem klæddu
sig í hlaupagallann eftir að hafa
litið út um gluggann.
Öll úrslit í Reykjavíkur
maraþoninu eru birt á bls. 26
og 27.
-JGG
Martha Ernstdóttir kemur í
mark sem sigurvegari í hálf-
maraþoni kvenna.
DV-mynd S