Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1996, Blaðsíða 5
24
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1996
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1996
25
íþróttir
Óvæntur sigur Keflvíkinga
- lögöu Leiftursmenn á Ólafsfiröi, 1-2
DV, Ólafsfirði:
Keflvíkingar unnu óvæntan sigur
á Leiftursmönnum á Ólafsfirði á
fostudagskvöldið. Það er fátt um
þennan leik að segja nema hvað
hann var einstaklega lélegur, dapur
fótbolti hjá báðum liðum. Keflvík-
ingar spiluðu skynsamlega og gerðu
í raun það eina sem þurfti að gera:
pakka i vöm og beita skyndisókn-
um. Sóknarnýting þeirra var um
80% í fyrri hálfleik. Þrjár snarpar
sóknir og tvö mörk. Það var fyrst og
fremst hörmuleg byrjun hjá Leift-
ursmönnum sem skapaði þennan
óvænta sigur gestanna.
Vörn heimamanna var gersam-
lega úti á þekju í fyrri hálfleik.
Þessir fáu sóknarmenn sem Keflvík-
ingar sendu fram fengu að athafna
sig óáreittir langtímum saman. Á
sama tíma var nánast enginn
broddur í sókn Leiftursmanna, að-
eins máttlaust dútl fram og aftur.
Seinni hálfleikur hófst með frá-
bærrri rispu Jóhanns Guðmunds-
sonar, Keflvíkings, Hann tætti vöm
Leifturs í sundur en skot hans fór
fram hjá. En Leiftursmenn tóku
völdin á vellinum upp úr því og
sóttu nær látlaust það sem eftir lifði
leiksins. Keflvíkingar beittu eitruð-
um skyndisóknum og var í raun
furðulegt að þeir skyldu ekki skora
tvö mörk til viðbótar en Þorvaldur
varði í tvígang vel og markstangim-
ar björguðu heimamönnum. Seinni
skiptingin hjá Leiftursmönnum
kom verulega á óvart. Pétur B.
Jónsson, sem var búinn að vera
einn alsprækasti maður liðsins og
einn af þeim fáu sem virtist hafa
áhuga á sigri, var'tekinn út af. Sú
skipting var liðinu ekki til mikils
happs.
Hjá Leiftri var Þorvaldur Jóns-
son markvörður besti maður liðsins
og þeir Auðun Helgason og Pétur
Björn sýndu góða baráttu. Hjá Kefl-
víkingum var Jónhann B. Guð-
mundsson yfirburðamaður og átti
frábæran leik. Þá var Ólafur Gott-
skálksson öruggur í markinu.
-HJ
Stjarnan komin
í fjórða sætið
- eftir öruggan sigur í Grindavík í gærkvöldi
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er ekkert annað en einbeit-
ingarleysi. Að fá tvö ódýr mörk á
okkur sem koma upp úr engu er
erfitt og það var slæmt að fara inn í
búningsherbergi með 2-0 á bakinu
og er ekki í fyrsta sinn sem það ger-
ist í sumar,“ sagði baráttujaxlinn í
liði Grindvíkinga, Hjálmar Hall-
grímsson, eftir ósigur á heimavelli
gegn Stjömunni, 0-3, í miklum bar-
áttuleik í gærkvöldi
Með sigrinum komust Stjömu-
menn upp í fjórða sæti deildarinnar
eftir tvo góða sigra en Grindvíking-
ar eru komnir í bullandi fallbaráttu
að nýju og eiga erfiða leiki fram
undan.
Gríndavík (0)0
Stjarnan (2)3
0-1 Valdimar Kristófersson (19.)
fékk sendingu frá Helga Björgvins-
syni úr auksapymu inn á miöja víta-
teigslínu, tók boltann viðstöðulaust
og setti hann í vinstra homið.
0-2 Goran Kristófer Micic (40.)
fékk sendingu frá Hermanni Arasyni
inn í víteig og hafði allan tímann til
að snúa sér við og skora.
Rangstöðutaktík Grindvíkinga brást.
0-3 Birgir Sigfússon (79.) skoraði
með viðstöðulausu skoti úr vítateign-
um eftir góða fyrirgjöf Gorans.
Lið Grindavikur: Albert Sævars-
son - Guðlaugur Jónsson, Guðjón Ás-
mundsson @, Ólafur Ö. Bjarnason
@, Júlíus Daníelsson @ - Óli S. Fló-
ventsson (Sigurbjörn Dabjartsson
63.), Hjálmar HaUgrimsson @, Zoran
Ljubicic, Kekic Sinisa, Ólafur Ingólfs-
son - Grétar Einarsson (Guðmundur
Torfason 63.)
Lið Stjömunnar : Bjami Sigurðs-
son @ - Hermann Arason @, Helgi
Björgvinsson @, Reynir Bjömsson
@, Birgir Sigfússon - Valdiinar
Kristófersson @, Baldur Bjamason
@, Rúnar Sigmundsson (Bjami G.
Sigurðsson 66.), Ómar Sigtryggsson
(Kristinn Lámsson 26. (Ragnar Ama-
son 83.) - Goran Kristófer Micic @,
Ingólfur Ingólfsson.
Markskot: Grindavík 14, Stjarnan
12.
Hom: Grindavík 9, Stjarnan 4.
Gul spjöld: Guðjón Á (Grindavík),
Óli S. (Grindavík), Hjálmar Hall-
grímsson (Grindavik), Ólafur Ingólfs-
son (Grindavík), Valdimar (Stjöm),
Rúnar S. (Stjöm), Reynir (Stjöm).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Pjetur Sigurðsson, dæmdi
mjög vel og hafði góð tök á leiknum.
Lét leikmenn ekki stjórna sér.
Áhorfendur: Um 250.
Skilyrði: Smánorðanvindur, völl-
urinn nýsleginn og í frábæru ásig-
komulagi.
Maður leiksins: Bjami Sigurðs-
son, Stjömunni. Var öryggið upp-
málað í markinu og varði oft
meistaralega.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu allan leikinn. Valdimar
Kristófersson átti fyrsta færið á 9.
mínútu þegar hann átti skot í stöng
og stuttu síðar átti Kekic gott skot
rétt fram hjá.
Eftir fyrra mark gestanna gerðist
fátt markvert en á 40. minútu bætti
Goran Kristófer við ööru marki og
það var talsvert kjafshögg framan í
heimamenn sem sóttu talsvert und-
ir lok fyrri hálfleiks án árangurs.
Besta færið átti Zoran Ljubicic þeg-
ar hann komst einn fyrir en Bjami
markvörður bjargaði með góðu út-
hlaupi. Stuttu síðar varð Bjarni aft-
ur að taka á honum stóra sínum
þegar hann varði vel skot frá Ólafi
Ingólfssyni.
Leiftur (1)1
Keflavík (2)2
0-1 Adolf Sveinsson (5.) fékk
knöttinn rétt fyrir utan vítateig,
óvaldaður, og skaut strax. Boltinn
fór fram hjá kyrrstæðum varnar-
mönnum Leifturs í netið.
0-2 Eysteinn Hauksson (17.) fékk
sendingu frá Jóhanni Guðmunds-
syni af hægri kanti í miðjan vita-
teiginn og skoraði meö lausu skoti.
1-2 Gunnar Már Másson (37.)
fékk sendingu frá Auðuni Helga-
syni eftir hornspyrnu, tók boltann
laglega niður og setti hann fram hjá
Ólafi i markinu.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson
@ - Daði Dervic, Sindri Bjarnason,
Júlíus Tryggvason, Auðun Helga-
son @ - Gunnar Oddsson, Pétur B.
Jónsson @ (Matthías Sigvaldason
80.), Sverrir Sverrisson, Ragnar
Gíslason (Páll Guðmundsson 57.) -
Gunnar Már Másson @, Rastislav
Lazorik.
Lið Keflavtkur: Ólafur Gottskálks-
son @ - Jakob Jónharðsson, Krist-
inn Guðbrandsson, Karl Finnboga-
son @ - Gestur Gylfason @ Jó-
hann Steinarsson, Eysteinn Hauks-
son, Adolf Sveinsson (Haukur I.
Guðnason 61.) - Ragnar Margeirs-
son (Róbert Sigurðsson 75.), Jóhann
B. Guðmundsson @ (Guömundur
Oddsson 80.)
Markskot: Leiftur 12, Ketlavik 8.
Horn: Leiftur 6, Keflavik 2.
Gul spjöld: Ragnar G. (Leiftri), Ad-
olf (Ketlavík)
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, þokka-
legur.
Skilyrði: Þokkaleg en blautur völl-
ur og suðvestangola settu mark sitt
á leikinn.
Áhorfendur: Tæplega 400.
Maður leiksins: Jóhann B. Guð-
mundsson, Keflavík. Drengurinn
sýndi frábæra takta sem urðu
meira áberandi eftir því sem hin-
ir leikmennirnir á vellinu
urðuslakari. Tók frábærar risp-
ur og var stórhættulegur.
I síðari hálfleik sóttu Grindvík-
ingar miklu meira en gestimir án
þess að skapa sér nein umtalsverð
færi. Gegn gangi leiksins skomðu
Stjömumenn þriðja markið og þar
með var ljóst að sigurinn yrði
þeirra. Úndir lokin voru
heimamenn í tveimur góðum fær-
um en eins og áður var Bjami á
réttum stað í markinu.
„Þetta var mjög þýðingarmikill
sigur. Við voram betri aðilinn í
leiknum og sigurinn var sanngjam.
Undir lokin var smáþungi á okkur.
Við erum komnir upp í fjórða sætið
í deildinni og eigum Leiftur í næsta
leik sem verður án efa mjög erfið-
ur,“ sagði Þórður Lárusson, þjálfari
Stjörnunnar. -ÆMK
Valur (1)1
Akranes (0)3
1-0 fvar Ingimarsson (32.) Stór-
glæsilegt mark, sendi boltann með
þrumuskoti upp í bláhornið eftir
góðan undirbúning Arnljóts Davíðs-
sonar.
1-1 Stefán Þórðarson (51.) með
hörkuskalla eftir hornspyrnu Ólafs
Þórðarsonar.
1-2 Stefán Þórðarson (53.) sneri
skemmtilega á Valsmenn rétt utan
vítateigs, rakti boltann aðeins nær
teignum og lét vaða með vinstri fæti
í hornið vinstra megin.
1-3 Bjarni Guðjónsson (85.) sendi
boltann viðstöðulaust í fjærhornið
eftir stórglæsilega fyrirgjöf Haralds
Ingólfssonar.
Lið Vals: Lárus Sigurösson @@ -
Bjarki Stefánsson, Jón G. Jónsson,
Gunnar Einarsson © Kristján Hall-
dórsson @ - Nebosja Corovic (Sig-
urbjörn Hreiðarsson 55.), Heimir
Porca, Jón S. Helgason (Anthony K.
Gregory 79.), ívar Ingimarsson @,
Sigþór Júlíusson - Arnljótur Dav-
íðsson.
Lið f A: Þórður Þórðarson - Stur-
laugur Haraldsson @ Ólafur Ad-
olfsson, Zoran Miljkovic @, Sigur-
steinn Gíslason - Ólafur Þórðarson
@ Jóhannes Harðarson, Steinar
Adolfsson @, Kári S. Reynisson @
- Stefán Þórðarson @@ (Haraldur
Ingólfsson 82.), Bjarni Guðjónsson
®
Markskot: Valur 4, ÍA 19.
Horn: Valur 6, ÍA 10.
Gul spjöld: Sigþór (Valur), Kristján
(Valur), Sturlaugur (ÍA).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Kristinn Jakobsson,
dæmdi mjög vel.
Skilyrði: Smávindur í fyrri hálfleik
en lægði i þeim síðari. Völlur ágæt-
ur en laus í sér á köflum.
Maður leiksins: Stefán Þórðaron
(ÍA). Skoraði tvö skemmtileg
mörk og gerði oft mikinn usla
við mark Vals með baráttugleði
sinni og dugnaði. Gaf allt í leik-
inn og er likamlega sterkur.
■
Hajrudin Cardaklija, markvöröur Blika, stóö sig vel þegar Blikarnir unnu óvæntan sigur á KR á laugardaginn, 1-0. Hér ver Cardaklija frá Hilmari Björnssyni í
dauðafæri og til varnar ásamt Cardakilja er bakvörðurinn, Theodór Hervarsson. DV-mynd
'V 9 rí- i u
Sk ■ I 'k - I 1
Fylkir (2)2
IBV (2)3
0-1 Leifur G. Hafsteinsson (3.). Ingi
Sigurðsson tók homspymu frá hægri
beint á kollinn á Leifl sem var óvald-
aður og afgreiddi hann í netið.
1-1 Bjarki Pétursson (31.). Ásgeir
Már óð upp vinstri vænginn sendi
glæsilega sendingu inn á teiginn þar
sem Bjarki skallaði í netiö.
1- 2 Bjamólfur Lárasson (34.)
Bjamólfur tók hornspymu inn á nær-
stöngina þar sem boltinn lenti í hópi
leikmanna og þaðan i netið.
2- 2 Bjarki Pétursson (45.) skaut
laglegu skoti frá vítateig I fjærhornið
eftir frábæran undirbúning Þórhalls
og Kristins Tómassonar.
2-3 Hermann Hreiðarsson (72.)
slapp i gegnum vöm Fylkis eftir þrí-
hymingsspil viö Leif Geir og skaut
fóstu skoti á nærstöng.
Lið Fylkis: Kjartan Sturluson @ -
Enes Cogic @, Aðalsteinn Víglunds-
son @, Ómar Valdimarsson, Þor-
steinn Þorsteinsson (Gunnar Þ. Pét-
ursson 84.) - Ásgeir M. Ásgeirsson,
Finnur Kolbeinsson @, Ásgeir F. Ás-
geirsson (Sigurgeir Kristjánsson 81.)
- Þórhallur D. Jóhannsson @, Krist-
inn Tómasson @, Bjarki Péturss @.
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson @ -
Friðrik Sæbjörnsson, Hermann
Hreiðarsson @@, Jón B. Amarsson
S, ívar Bjarklind - Ingi Sigurðsson
, Bjarnólfur Lámsson @, Hlynur
Stefánsson, Tryggvi Guömundsson
(Kristinn Hafliðason 77.) - Leifur G.
Hafsteinsson @ (Steingrímur Jó-
hannesson 75.), Rútur Snorrason
(Sumarliði Ámason 80.)
Markskot: Fylkir 16, ÍBV 14.
Horn: Fylkir 7, ÍBV 11.
Gul spjöld: Enes (Fylki), Jón B
.(ÍBV), Bjarnólfur (ÍBV).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Gylfi Orrason, þokkalegur.
Skilyrði: Skýjað, gola og völlurinn
blautur.
Áhorfendur: 350
Maður leiksins: Hermann Hreið-
arsson, ÍBV. Geysilega sterkiur í
vörninni og skoraði sigurmarkið
eftir að hafa brugðið sér í sóknina.
Breiðablik (0)1
KR (0)0
1-0 ívar Sigurjónsson (40.)
potaði boltanum í netið af stuttu
færi eftir góða sendingu frá Arnari
Grétarssyni.
Lið Breiðabliks: Hajrudin Car-
daklija @ - Pálmi Haraldsson @,
Kjartan Antonsson, Hreiðar Bjarna-
son, Theodór Hervarsson - Halldór
Páll Kjartansson (Gunnlaugur Ein-
arsson 88.), Sævar Pétursson, Arnar
Grétarsson ®, Hákon Sverrisson
(ívar Sigurjónsson 25. ® (Gunnar
B. Ólafsson 89.) - Kjartan Einars-
son.
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Þormóður Egilsson, Óskar Hrafn
Þorvaldsson, Þorsteinn Guðjónsson,
Ólafur Kristjánsson (Björn Skúla-
son 38.) - Hilmar Björnsson, Heim-
ir Guðjónsson (Bjarni Þorsteinsson
66.), Brynjar Gunnarsson @, Þor-
steinn Jónsson (Arnar Sigurgeirs-
son 70.) - Ríkharður Daðason, Ás-
mundur Haraldsson.
Markskot: Breiöablik 7, KR 8.
Horn: Breiðablik 0, KR 5.
Gul spjöld: Kjartan (Breiða-
bliki), Amar G. (Breiðabliki), Kjart-
an E. (Breiðabliki), Ásmundur
(KR), Brynjar (KR).
Rauð spjöld: Kjartan E. (Breiða-
bliki).
Dómari: Egill Már Markússon,
dæmdi mjög vel.
Áhorfendur: Um 400.
Skilyröi: Sól og blíða, völlurinn
góður.
Maður leiksins: fvar Sigur-
jónsson, Breiðabliki. Skoraði
sigurmarkið i leiknum og
tryggði sinum mönnum mikil-
vægan sigur í botnbaráttunni.
KR gegn Mosyr á
miövikudaginn
KR-ingar leika síðari leik sinn gegn
Mosyr frá Hvita-Rússlandi í Evr-
ópukeppninni á Laugardalsvellin-
um klukkan 20 á miðvikudaginn.
Fyrri leiknum lyktaði með 2-2 jafn-
tefli.
Langþráður sigur
hjá Eyjamönnum
- lögöu Fylki í Árbænum, 2-3
„Þetta var langþráður sigur en við
höfðum tapað íímm af síðustu sex
leikjum í deildinni. Stefnan er enn
sú sama og fyrir mótið, að ná tuttugu
stigum og skoða svo málin í fram-
haldinu. Mér fannst við ættum að
geta gert meira í fyrri hálfleik en við
sofnuðum á verðinum í síðari hálf-
leik en það hefur einmitt verið okk-
ar veikleiki í sumar. En við erum
sáttir við úrslitin," sagði Atli Eð-
valdsson, þjálfari ÍBV, eftir sigur á
Fylki, 2-3, á Árhæjarvelli á föstu-
dagskvöld.
Eyjamenn voru betri í fyrri hálf-
leik en mark á 3. mín. virtist slá
Fylkismenn út af laginu. Þeir náðu
ekki að komast almennilega inn í
leikinn fyrr en eftir hálftímaleik en
þá höfðu gestirnir slakað nokkuð á.
Aðeins liðu tæpar þrjár mínútur frá
því Bjarki Pétursson jafnaöi leikinn
þar til Bjarnólfur Lárusson kom
Eyjamönnum aftur yfir með marki
úr hornspyrnu. Fylkismenn gáfust
ekki upp og Bjarki náði að jafna aft-
ur rétt fyrir hálfleik eftir mjög vel
útfærða sókn.
Fylkismenn mættu fullir sjálfs-
trausts til síðari hálfleiks og voru
miklu ákveðnari en gestimir. Eftir
um stundaríjórðungsleik átti Finnur
Kolbeinsson skot í vamarmann og
þaðan í slá. En tíu minútum síðar
kom sigurmark gestanna eftir gott
upphlaup Hermanns Hreiðarssonar.
Aðeins tveimur mínútum síðar áttu
Fylkismenn skalla í þverslá Eyja-
manna í tvígang, fyrst Þórhallur Dan
Jóhannsson og svo Enes Cogic. Eyja-
menn skiptu svo þremur óþreyttum
mönnum ínn á í sóknina, drógu liðið
aftar á vöOinn og freistuðu þess að
senda langa bolta fram. En Fylkis-
menn náðu ekki að skora mark og
Eyjamenn höfðu sigur.
Leikurinn var á köflum vel leik-
inn og fjöragur. Fylkismenn fengu á
sig nokkuð ódýr mörk en hættuleg-
ustu færi Eyjamanna komu eftir föst
leikatriði, þ.e. horn og aukaspyrnur,
þar sem stóru mönnunum var pakk-
að fyrir framan markvörð Fylkis og
fengu þeir oft að ganga ansi nærri
honum inni í markteignum.
Hjá Fylki varði Kjartan vel, Aðal-
steinn og Enes voru góðir í vöminni.
Kristinn var mjög sterkur í fyrri
hálfleik, Bjarki nýtti færin sín og
Þórhallur átti góða spretti.
Hermann lék best hjá ÍBV og
Bjamólfur var einnig góður. Friðrik
varði vel, Ingi var duglegur að vanda
og Leifur Geir var sterkur í teignum.
Þaö eru mörkin sem gilda
„Við duttum niður í fyrri hálfleik
en áttum þann síðari en þá small
knötturinn í tréverkinu hvað eftir
annað. En það er ekki nóg það era
mörkin sem gilda," sagði Kristinn
Tómasson, leikmaður Fylkis, í sam-
tali við DV að leik loknum.
-ÞG
Blikar
skelltu
liðiKR
„Ég er þokkalega sáttur. Loksins
rataði boltinn rétta leið. Eftir frá-
bæra sendingu frá Adda Grétars
náði ég að reka tána í boltann og ég
gæti ekki verið sáttari. Okkur var
spáð stóru tapi í þessum leik og fólk
var búið að bauna 2. deildinni á
okkur en við eram búnir að sparka
því frá okkur,“ sagði ívar Sigurjóns-
son, framherji Blika, sem skoraði
sigurmarkið á Kópavogsvellinum á
laugardaginn þegar Blikar unnu
óvæntan sigur á toppliði KR, 1-0.
Þetta var fyrsta mark ívars i sumar
og kom það á besta tíma fyrir
Breiðablik sem hefur staðið í
ströngu í sumar.
Eitt er víst að þó að sigur Breiða-
bliksmanna hafi verið kærkominn
fyrir Kópavogsbúa þá var það ekki
knattspyman sem blómstraði held-
ur hrein barátta sem gaf þeim stig-
in þrjú. Fyrri hálfleikurinn hafði
ekki upp á neitt að bjóða fyrir áhorf-
endur, færi fá sem engin og sóknar-
leikur beggja liða rann alltaf út í
sandinn, sérstaklega hjá KR-ingum
sem náðu sér aldrei á strik í leikn-
um, og ekki er laust við að leik-
menn KR hafi vanmetið andstæð-
inga sina.
Vesturbæingar fengu þó nokkur
færi en Cardaklija, markvörður
Blika, var réttur maður á réttum
stað. Tvívegis varði hann vel frá Ás-
mundi Haraldssyni. Hilmar Björns-
son fékk þó besta færið í fyrri hálf-
leik. Hann var þá aleinn gegn Car-
daklija sem sá við honum.
Ef eitthvað var þá var síðari hálf-
leikurinn leiðinlegri en sá fyrri því
nákvæmlega ekkert var að gertast
hjá liðunum. KR-ingar reyndu að
setja pressu á heimamenn en spil
þeirra gekk engan veginn og mátt-
vana sóknarlotur dóu út. Tíu mínút-
um fyrir leikslok var Blikinn Kjart-
an Einarsson rekinn af leikvelli en
það skipti litlu máli fyrir gang leiks-
ins.
Baráttan var í fyrirrúmi hjá
heimamönnum. Spil þeirra var
sæmilegt á köflum en ekkert meira
en það. Amar Grétarsson var ágæt-
ur á miðjunni og vörnin skilaði
sínu. KR-ingar voru meira með
boltann en gekk hann ágætlega á
milli manna en þeir komust lítt
áleiðis, varnarleikur þeirra var
óstyrkur og á miðjunni var lítið að
gerast fyrir utan góða baráttu
Brynjar Gunnarssonar.
„Þetta var ljúft“
„Þetta var ljúft og við unnum fyr-
ir því. Það hlaut að koma að því að
við myndum klára með stæl. Þetta
eykur sjálfstraustið hjá liðinu upp á
framhaldið að gera og minnkar
spennustigið sem hefur verið of
hátt. Ég er bjartsýnn á framhaldið,"
sagði Sigurður Halldórsson, þjálfari
Blika, í samtali við DV eftir leikinn.
-JGG
Skagamenn efstir
- eftir öruggan sigur á Val, 1-3
Gulir og glaðir stuðningsmenn
Akurnesinga sáu sína menn hafa
mikla yfírburði gegn Valsmönnum
að Hlíðarenda á föstudaginn. Þrátt
fyrir að vera undir, 1-0, í hálfleik
náðu Skagamenn að snúa leiknum
sér í vil í þeim síðari. Gestimir
fengu fjöldann allan af marktæki-
færum en Lárus Sigurðsson, mark-
vörður Vals, bjargaði sínum mönn-
um frá stærra tapi með frábærri
markvörslu.
Stefán Þórðarson nýtti tækifærið
í byrjunarliðinu til fullnustu og áttu
Valsmenn erfitt með að hemja pilt-
inn. Stefán tók sæti Bibercics í
framlínunni og spuming er hvort
hann hafi ekki spilað sig inn í liðið
með þessari frammistöðu.
„Ég var svekktur að fá markið á
okkur en það sem er ánægjulegt er
að höldum áfram þrátt fyrir að
lenda undir. Við gerðum þrjú mörk
og sköpuðum okkur fullt af færum.
Boltinn gekk ágætlega í liðinu og
við spiluðum ágætlega,“ sagði Guð-
jón Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir leik-
inn og bætti við: „Mikki hefur ekki
átt neitt sérstaka leiki að undan-
fömu þannig að ég ákvað að hvíla
hann í þessum leik og Stefán stóð
sig ljómandi vel.
„Þetta var verðskuldaður sigur.
Það vantaði allt í þetta hjá okkur og
við voram ekki að gera það sem við
áttum að gera. Menn vora ekki á
tánum. í síðari hálfleik var aðeins
eitt lið á vellinum og við getum
þakkað fyrir að ekki fór verr,“ sagði
Sigurður Grétarsson, þjálfari Vals,
við DV eftir leikinn.
-ÆMK
íþróttir
Staðan
ÍA 13 10 1 2 32-11 31
KR 13 9 2 2 32-10 29
Leiftur 13 5 5 3 23-21 20
Stjarnan 13 5 3 5 15-20 18
Valur 13 5 2 6 12-16 17
ÍBV 11 5 0 6 19-23 15
Fylkir 13 4 1 8 20-20 13
Grindavlk 13 3 4 6 14-24 13
Keflavik 12 2 4 6 11-21 10
Breiðablik 12 2 4 6 11-23 10
3. deild:
Reynir á
toppinn
Reynir úr Sandgerði skaust á
topp 3. deildarinnar í knatt-
spymu á föstudaginn með 4-2
sigri á Gróttu. Kevin Docherty
skoraði tvö marka Reynis og
þeir Jónas G. Jónasson og Snorri
M. Jónsson skoruðu sitt markið
hvor. Sæbjörn Guðmundsson og
Kristinn Kærnested skoruðu fyr-
ir Gróttu.
Dalvíkingar misstu toppsætið
þegar þeir steinlágu fyrir HK í
Kópavogi, 5-2, en HK hefur verið
á mikilli siglingu og er búið að
blanda sér í toppbaráttuna.
Steindór Elíson og Tryggvi Vals-
son skoruðu tvö mörk hvor fyrir
HK og ívar Jónsson eitt en Jón
Örvar Eiríksson og Heiðmar Fel-
ixsson svöruðu fyrir Dalvíkinga.
í Neskaupstað töpuðu heima-
menn í Þrótti fyrir Víði, 0-1.
Hlynur Jóhannsson skoraði sig-
urmarkið.
Ægir vann þýðingarmikinn sig-
ur á Fjölni i Grafarvogi, 1-2.
Hannes skoraði mark Fjölnis en
Kjartan Helgason bæði mörk
Ægismanna.
Selfyssingar lögðu Hött á heima-
velli sínum, 3-1. Jóhannes
Snorrason skoraði tvö marka
Selfoss og Njörður Steinarsson
eitt. Sigurður Valur Árnason
gerði mark Hattar.
ReynirS. 14 8 4 2 40-23 28
Dalvík 14 8 3 3 38-27 27
Víðir 14 8 2 4 32-23 26
Þróttur N. 14 7 3 4 32-23 24
HK 14 7 1 6 32-29 22
Selfoss 14 5 5 4 32-36 20
Fjölnir 14 4 2 7 24-34 14
Ægir 14 3 3 8 24-27 12
Höttur 14 3 3 8 22-39 12
Grótta 14 2 4 8 22-37 10
Bolungarvík og
Haukarunnu
Tveir leikir voru í forkeppni
að úrslitakeppni 4. deildar karla.
í Bolungarvík unnu heimamenn
sigur á Tindastóli, 2-1. Haukur
Benediktsson skoraði bæði mörk
Bolvíkinga.
Haukar unnu góðan sigur á BÍ
á Ásvöllum, 4-1. Brynjar Gests-
son 2, Orri Baldursson og Agnar
Heiðarsson skoruðu mörk
Hauka en Kristján Baldursson
svaraði fyrir BÍ.
Síðari leikir félaganna fara
fram annað kvöld.
-GH
Þu fær$ ailar upplýsingar
um stöðu pína í letknum
og stöðu efstu liðanna
í síma 904 1015
Verð 39,90 mínútan.
ÍÞRÓTTADEILD
t