Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1996, Blaðsíða 8
28 MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1996 íþróttir Góður leikur Helga Helgi Sigurðsson átti góðan leik með TEBE Berlín í þýsku 3. deildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Union Berlin á úti- velli. Helgi og félagar hans eru í 5. sæti norðurausturhluta deild- arinnar með 5 stig. Sacchi verður áfram ítalska knattspyrnusambandið ákvað um helgina að Arrigo Sacchi yrði áfram við stjórvöl- inn sem þjálfari ítalska lands- liðsins í knattspymu. Ajax steinlá PSV sigraði Ajax, 3-0, í leik deildarmeistaranna og bikar- meistaranna í Hollandi í gær. Marc Degryse skoraði tvívegis og Rene Eykelkamp einu sinni. Birkir varði oft vel í markinu Brann, lið þeirra Birkis Krist- inssonar og Ágústs Gylfasonar, tapaði í gær fyrir Moss, 2-1, í norsku 1. deildinni. Birkir varð oft að taka á honum stóra sínum í leiknum. Rosenborg er sem fyrr með yfirburðastöðu. Liðið vann Viking, 2-1, og hefúr 43 stig í efsta sæti. Brann er í 5.-8. sæti með 26 stig. -JKS/GH Golf - sveitakeppni: Úrslit réðust í bráðabana í Hvaleyrinni A-sveit Golfklúbbs Suðumesja sigraði í sveitakeppni GSÍ í golfí karla en keppninni lauk á Hval- eyrinni í Hafnarfirði í gær. A- sveit Keilis varð í öðru sæti og sveit Golfklúbbsins Leynis frá Akranesi hafnaði í þriðja sæti. Þessar þrjár sveitir urðu allar jafnar að stigum en eftir taln- ingu á fjölda unninna leikja og innbyrðisúrslitum kom í ljós að Suðurnesjamenn voru hlut- skarpastir. A-sveit Golfklúbbs Reykjavík- ur var í fjórða sætinu og í neðstu tveimur sætunum urðu A-sveit Golfklúbbs Akureyrar og B-sveit GR og féllu þar með í 2. deild. Sigursveit GS var þannig skip- uð: Helgi Birkir Þórisson, Öm Ævar Hjartarson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Davíð Jónsson og Hilmar Björgvins- son. Liðstjóri var Sturlaugur Ólafsson. Hjá konunum var það A-sveit Golfklúbbsins Keilis í Hafnar- firði sem fagnaði sigri á glæsi- legan hátt en sveitin vann allar viðureignir sínar, 3-0. A-sveit GR varð í öðru sæti og sveit Golfklúbbs Suðurnesja í þriðja sæti. Sveitir GA og Golfklúbbs Sauðárkróks féllu í 2. deild. Sigursveit Keilis var þannig skipuð: Þórdís Geirsdóttir, Ólöf M. Jónsdóttir, Kristín Pálsdóttir, Lilja Karlsdóttir og Inga Magn- úsdóttir. Liðsstjóri sveitarinnar var Guðbrandur Sigurbergsson. Veður lék við keppendur og var glæsilegt golf leikið í Hval- eyrinni. -GH Ólympíumót fatlaöra: Kristín Rós vann gull - og Ólafur Eiríksson bronsverðlaun íslensku þátttakendurnir á Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta hófu keppni með glæsibrag um helgina. Strax á fyrsta keppnisdegi var uppskeran eitt gull og ein bronsverðlaun. Kristín Rós Hákonardóttir úr íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík sigraði í 200 metra fjórsundi og setti að auki nýtt og glæsilegt heimsmet. Kristín Rós synti vegalengdina á 3.15,16 mínútum. Ólafur Eiríksson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar krækti sér í bronsverðlaun í 200 metra fjórsundi. Ólafur synti á 2.32,39 mínútum. Haukur Gunnarsson lenti i 7. sæti í langstökki. -JKS Hrafnhildur Hannesdóttir og Gunnar Einarsson sópuðu til sín verðlaunum á íslandsmótinu í tennis i Kópavogi um helgina. DV-mynd Sveinn íslandsmótiö í tennis: Hrafnhildur og Gunnar meistarar í einliðaleik íslandsmótið í tenn- is fór fram í Kópavogi um helgina. Gunnar Einarsson úr TFK sigraði í einliðaleik karla og Hrafnhildur Hannesdóttir úr Fjölni varð íslandsmeistari í kvennaflokki. Þetta var annað áriö í röð sem þau fagna sigri á íslandsmótinu. Á leið sinni í úr- slitaleikinn sigraði Gunnar Arnar Sig- urðsson úr TFK. Einar Sigurgeirsson lagði hins vegar Ólaf Sveinsson að velli í hinum undanúrslita- leiknum. Gunnar mætti síðan Einari Sigurgeirssyni, TFK, í úrslitaleiknum og urðu lyktir leiksins, 6-2, og 6-4, Gunnari í vil. í undanúrslitum kvennaleiksins vann Hrafnhildur Rakel Pét- ursdóttur og íris Staub sigraði Stefaníu Stef- ánsdóttur. í úrslita- leiknum hafði Hrafn- hildur betur gegn írisi í mjög jöfnum og spennandi leik. Iris vann fyrstu hrinu, 4-6, Hrafnhildur þá næstu, 6-2, og síðan þá þriðju, 6-4. Tvíliðaleik karla unnu Gunnar Einars- son og Stefán Pálsson. Tvíliðaleik kvenna unnu Hrafnhildur Hannesdóttir og Stef- anía Stefánsdóttir. Tvenndarleikinn unnu Gunnar Einars- son og Hrafhildur Hannesdóttir. -JKS TENNIS - TENNIS - TENNIS - TENNIS Vetraráskrift hefst 1. sept. nk. Þeir sem voru meö fastan tíma síðastiiðinn vetur og vilja halda honum eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta bókun á völlum eigi síðar en 26. ágúst nk. Að þeim tíma liðnum verða vellir leigðir öðrum. TENNISHÖLLIN Dalsmára 9-11, Kópavogi. Sími 564-4050, fax 564-4051, tennis islandia.is. Staðan í 2. deild Fram 12 7 4 i 34-14 25 Skallagr. 12 7 3 2 23-8 24 Þróttur R. 12 6 5 1 28-17 23 FH 12 5 3 4 20-16 18 KA 12 5 3 4 22-22 18 Þór A. 13' 5 3 5 17-23 18 Völsungur 13 4 3 6 20-24 15 ÍR 13 4 1 8 14-29 13 Víkingur R. 13 3 3 7 16-21 12 Leiknir R. 12 1 2 9 13-33 5 DV Jón Kr. leikur meó Grindavík „Ég gerði upp hug minn i sum- ar að leika einn vetur til viðbótar. Grindvíkingar höfðu samband við mig sögðu sig vanta bakvörð og leikstjórnanda. Ég sló til eftir að hafa ráðfært mig við KKÍ. Þeir töldu aö þetta stangaðist ekki á við þjálfunina með landsliðið sem mun æfa með sama hætti og undanfarin ár. Næsta vetur mun landsliðið æfa mun meira þegar Evrópukeppnin hefst. Það var ljóst eftir að ég var ákveðinn að leika í vetur að ég varð að breyta um um- hverfi. Ég er svolítið spenntur að sjá hvar ég stend eftir að hafa ver- ið spilandi þjálfari hjá Keflvíking- um síðan 1990,“ sagði Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari í körfuknattleik og leikmaður með Keflvíkingum siðan 1979 og eitt árið lék hann í Danmörku, í sam- tali við DV í gær um þá ákvörðun sína aö leika með Grindvíkingum í úrvalsdeildinni næsta vetur. „Ég átti frábæran tíma hjá Kefl- víkingum. Þeh- eiga fullt af bakvörðum," sagði Jón Kr. enn fremur við DV. -JKS Víkingur í fallsætið - eftir 0-2 tap gegn Völsungi 0-1 Guðni R. Helgason (52.) 0-2 Guðni R. Helgason (86.) Völsungar náðu að hifa sig úr fallsæti 2. deildar eftir góðan sigur, 0-2, á Víkingum í gær. Leikurinn bar þess merki að bæði lið eru að berjast um sæti sitt í deildinni. Fyrri hálfleikur var til- þrifalítill. Víkingar voru meira með boltann en Völsungar beittu skyndi- sóknum sem voru stórhættulegar. Völsungar komu mjög ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og á 52. mínútu skoraði Guðni R. Helgason með laglegu skoti eftir frábæra aukaspyrnu Ásgeirs Baldurs sem hann tók frá eigin vítateig. Eftir markið jafnaðist leikurinn nokkuð en Vikingar létu mótlætið fara í taugamar á sér og þrátt fyrir ágætt spil á köflum tókst þeim ekki að skapa verulega hættu við mark Völsunga. Guðni gulltryggði síðan Húsvíkingum 3 stig með fallegu marki undir lok leiksins. „Við stefnum að því að halda sæti okkar í deildinni. Við komum út i seinni hálfleik með fullan bar- áttuhug og náðum okkur í dýrmæt stig,“ sagði Ásgeir Baldurs, leik- maður Völsungs. Maður leiksins: Guðni R. Helgason, Völsungi. -ih Framarar í efsta sætið 0-1 Ágúst ólafsson (40.) 0-2 Hólmsteinn Jónasson (53.) 0-3 Þorbjörn Atli Sveinsson (74.) Framarar endurheimtu efsta sæt- ið í 2. deildinni í gærkvöld þegar þeir sigruðu ÍR-inga í Mjóddinni, 0-3. Framarar voru betri á öllum sviðum og var sigurinn því fyllilega sanngjam. Undir lok fyrri hálfleiks kom Ágúst Ólafsson Fram á blað með marki úr markteignum eftir fyrir- gjöf Steinars Guðgeirssonar. í síðari hálfleik tóku Framarar öll völd á vellinum og voru afgerandi betri að- ilinn. í liöinu var baráttan allsráð- andi og spilamennskan á köflum skínandi góð. Annað mark Framara gerði Hólmsteinn Jónasson af stuttu færi. Markvörður ÍR hélt ekki boltanum og enn fremur svaf vörnin á verðin- um og þetta nýtti Hólmsteinn sér til fulls. Þriðja markið var glæsilegt. Góða fyrirgjöf Hólmsteins tók Þor- bjöm Atli á lofti og skoraði með við- stöðulausu skoti. ÍR-liðið náði sér ekki á strik og enginn úr þeirra röðum skaraði fram úr. Hólmsteinn Jónasson var beittur í Framliðinu, sívinnandi all- an leikinn og barðist af krafti. Ant- on Björn var einnig sterkur í annars jöfnu liði. Maður leiksins: Hólmsteinn Jónasson, Fram. -SS Ótrúlega létt hjá Skallagrími 1- 0 Sindri Grétarsson (21.) 2- 0 Hilmar Hákonarson (37.) 3- 0 Valdimar Sigurðsson (44.) 3-1 Hreinn Hringsson (87.) DV, Borgarnesi: „Þetta var ótrúlega léttur sigur þegar staða beggja liða er höfö til hliðsjónar. Ég átti von á Þórsurum mun ákveðnari en raunin varð á ,“ sagði Garðar Newman hjá Skalla- grími við DV eftir sigurinn á Þór, 3-0, í Borgamesi í gærkvöld. Skallagrímsmenn vom mun beitt- ari frá byrjun til enda. Sigurinn var síst of stór og máttu Þórsarar ef eitt- hvað var bara prísa sig sæla að fá ekki á sig fleiri mörk. Norðanmenn fengu sitt eina raunhæfa tækifæri þegar skammt var til leiksloka og nýttu það fulls. Garðar Newman komst mjög vel frá leiknum og var sterkur hlekkur í vöminni þegar á hana reyndi. Liðsheildin var mjög sterk en i fyrri hálfleik lék liðið oft á tíðum vel og lék gestina sundur og saman. Hreinn Hringsson stóð upp úr í slöku Þórsliði. Maður leiksins: Garðar New- man, Skallagrími. -EP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.