Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 / *Í tónlist 17 -----------------------------------------*^ Hvað er að gerast? Þaö líður að hausti hér á landi íss og elda, skólakrakkar hverfa af vinnumarkaðnum og snúa aftur til sinnar fyrri iðju, plötuútgefend- ur taka ákvarðanir um útgáfu og skrifa undir samninga, listamenn klára verkefhi sem unn- ið hefur verið að hörðum höndum fyrri hluta árs og snúa sér til dreifingaraðila. Þetta er hulinn heimur. Enginn vill gefa upp hvað hann/hún er að gera fyrr en jólaös- in skellur á en allir vilja umfjöllun. DV skyggndist inn í þennan hulinsheim jólaútgáf- unnar og athugaði hvað er að koma út, hvað er líklegast til að seljast og hverjir eru að íhuga útgáfu. Fjalliö seif? Emilíana Torrini er sú söngkona sem skaust hvað hraðast upp á stjömuhimininn hér á landi á síðasta ári. Eftir ómældar vin- sældir krúsídúllunnar tók Stone Free við og nú hugar stúlkan aö sólóplötu í samvinnu við bítlavininn og söngleikjastjórann Jón Ólafs- son „hinn góða“. Við þessa blöndu bætist víst upptökusnilli Bretans Kens Thomas sem einnig vinnur að plötu Páls Óskars. Þess má geta að hér verða á ferðinni frumsamin lög en eins og fólk man vel dæmdu gagnrýnend- ur eftirhermur annarra misvel fyrir síðustu jól. Enn er ekki komið neitt vinnuheiti á þessa plötu sem er væntanleg i nóvember. þessa plötu eða verður hún sett í bunkann með öllum öðrum endur- vakningum síðustu tveggja ára? Því verður víst ekki svarað fyrr en platan kemur í verslanir (hér gæti verið toppsöluplata á ferð). Frelsun söngvarans Páls Rósinkranz, sem lengi vel Söluhæstu aðilar síðasta árs voru þau Páll Óskar, Emilíana Torrini og Bubbi Morthens. Öll þrjú verða með nýja plötu fyrir þessi jól og líkt og þau síðustu má búast við metsölu- plötum úr þessum þrem áttum. Bubbi Morthens snýr aftur til fyrri iðju, þ.e.a.s. lagasmíða, eftir að hafa sýnt Hauki frænda sínum þann heiður að syngja lög sem hann gerði ódauðleg. Miklar vanga- veltur voru í kringum þessa plötu: New Or- leans rokk og ról? tvöföld plata? aftur til fortíðar? Út- koman er víst einföld plata þar sem ægir sam- an lagasmíðum Bubba úr öll- j um áttum. Platan mun heita Fjallið og spumingin er: Kemur fjallið til Bubba eða fer Bubbi til fjallsins? Svarið fæst þegar platan kemur út sem verður líklega um miðjan október (alltaf fyrstur inn á jóla- markaðinn). Páll Óskar er ekki við eina fjöl- ina felldur. Eftir að hafa leikið Frankenfurter, gefið út diskó- plötu, sungið latínlög og brætt hjörtu með ballöðum mætir Palli óragur inn á markaðinn með sína fyrstu dans- plötu. Platan verður unnin er- lendis (þar sem Palli er staddur núna) og ber vinnuheitið „Seif‘. Endurvakning og gospel Endurvakning hljómsveit- arinnar Todmobile hlýtur að vera ein stærsta fréttin í út- gáfuheiminum fyrir þess' jól. Enn hefur ekker | fengist uppgef' um þessa plö' nema Bl hún sé í t ; Uk gerð. Blása B ferski; ■ vinda m s um Ein stærsta fréttin í jólautgáfumálum er endurvakning Todmobile. Páll Rosin- kranz frels- aour og gef- gospel plötu jólin. var forsprakki Jet Black Joe ásamt Gunnari Bjama, var ein stærsta fréttin í rokkbransan- um á síðasta ári. Rósinkranz staðfestir nú frelsun sína með gospelplötu fyrir jólin og verður fróðlegt að sjá hvemig yngri kynslóð- in bregst við trúboði þessa frábæra rokksöngvara. Gítarleikarinn og lagasmiður- inn Gunnar Bjama fer hins vegar sína leið með hljómsveitina Jet Black sem tekur ekki þátt í útgáfústríði þessa árs en hitar hins veg- ar upp fyrir Blur á tónleikunum á sunnudag- inn. Erlendar stjörnur? Aðeins tvær íslenskar hljómsveitir hafa komist ná- lægt frægð Bjarkar í útlönd- um. Önnur státaði af henni sem aðalsöngkonu og báðar eiga þær plötur í útgáfúslagn- um fyrir þessi jól. Önnur þeirra kallar sig Mezzoforte og gefur nú út plötu sem lengi hefur verið beðið eftir. Platan heitir Mon- key Fields en forsmekkurinn heyrðist á danshlið siðustu Pottþétt-útgáfu. Hin er fallin frá. Sykurmol- arnir gefa út plötu með öllum sínum helstu og bestu lögum af frægðarferli sem fáir geta státað af. Ef marka má vin- sældir Bjarkar á platan eftir að seljast eins og heitar lummiu-, jafnt hér á landi sem erlendis. Em lummur í tísku? Það kemur í ljós. Og það er meira Tveir sólóferlar sameinast í dúett þegar Kristín Eysteins og Orri Harðar gefa út plötu fyrir jólin. Rokk- hljómsveitin Botnleðja er ein sú heitasta á landinu. Ný plata er væntanleg og þess má geta að Ken Thomas er líka með puttana í þess- ari. Anna Halldórs- dóttir hefur sóló- feril sinn fyrir jólin með plötu sem ber nafnið Villtir morgnar og getiði hver tekur upp? Jú, það er Ken Thomas. SSSÓL væfl- rst fram og aft- ir með sitt erkefni fyrir >lin. Safn- 'ata? Ég veit ;ki. Frum- imið efni? Ég 3Ít ekki. Jrafmagnað- iT? Ég veit ekki. Allt þetta og meira til? Kannski. Allt sem vitað er: Platan hef- ur vinnuheit- ið Hulda og verður gefin út. Kolrassa krókríðandi kom aldeilis á óvart með laginu Opn- aðu augun þín og nýja lagið, Bæ bæ, lofar góðu. Bæði em tekin af plötunni Köld era kvennaráð sem kemur út í þess- um mán- uði. Brimkló verður með eitt nýtt lag á safnplöt- unni Sígildar sögur og Björgvin mun syngja lög í anda Djöflaeyjartímabilsins á plötu úr samnefndri mynd Friðriks Þórs. Og svo má náttúrlega búast við Pottþétt 6 og Pottþétt 96. Fleiri eiga eftir að bætast í þennan hóp út- gefenda þegar nær dregur jólum því eitt er víst, það er nóg að gerast í hulinsheimum. -GBG Páll Óskar er að senda frá sér nýja dansplötu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.