Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Page 5
33'"V" FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 tónlist - fjöldi tón- listarmanna kemur saman á Hótel íslandi Laugardaginn 7. september verður haldinn einn stærsti dansleikur sem haldinn hefur verið á íslandi. Tilefni hans eru veikindi Rúnars Júlíusson- ar tónlistarmanns en hann var skor- inn upp við hjartagalla í vor. Fjöldi landsþekktra listamanna kemur fram og verður sennilega einsdæmi að svo margir þekktir rokkarar komi saman á einum dansleik. ÍUÍJjiiJUUJÍJf ★★★ Klám - Sóldögg: Sóldögg er þokkalegasta hljómsveit sem hefur innan- borðs ágætis söngvara. Á Klámi eru aðeins fimm lög. Platan er því stutt og laggóð. Hljómsveitir sem hafa ekkert sérstaklega mikið fram að færa mættu taka sér Sóldögg til fyrirmyndar og gefa út stutta og snarpa plötu. -ÁT Odelay - Beck og Aðalsteinn Ásberg: trk'k'k Það eru varla til orð til að lýsa þeirri tónlist sem Beck hefur framleitt á Odelay. Hún er einfold en samt margslung- in. Melódíumar era flestar grípandi, stimdum nánast ær- andi. í raun er aðeins hægt að lýsa plötunni með þessum ein- földu en samt flóknu stikkorð- um: Platan er frábær. Ég segi það aftur: „Beck ’n’roll." -GBG Salsaveisla aldarinnar - ýmsir flytjendur: ★★★ Það er ágætis skemmtun og virkilegur gleðigjafl að hlusta á Salsaveislu aldarinnar þó varla sé hægt að óska aðstand- endum hennar til hamingju með árangurinn í þetta sinn fyrir vel unnið verk. -ÁT Prince - Chaos and Disorder ★★★ Enginn Prince-aðdáandi verður svikinn af þessari plötu þó að hún lendi ekki í hópi þess besta sem hann hefur lát- ið frá sér fara. Svo er bara að vona að frelsið færi okkur nýj- an og enn betri Prince. -SÞS Fræbbblarnir - Viltu bjór, væna?: ★★★ Það kemur eflaust flestum á óvart hversu fáguð platan er. Áferðin er ekki eins gróf og við var að búast. Platan sýnir að Fræbbblamir voru stór- merkileg hljómsveit sem fram- leiddi mikið af góðri tónlist. -SÞS Michael Brecker-Tales from the Hudson tcktck Tónlistin á Tales from the Hudson krefst allnokkurrar at- hygli hlustandans. Hún er fremur innhverf og ljóðræn en ekki endilega hæg, oft mjög falleg en gersamlega laus við væmni. Við endurtekna hlust- un venst hún gríðarvel og lyft- ir huga og sál yfir hversdag- inn. -IÞK Allir gefa vinnu sína Eingöngu landsfrægir listamenn og hljómsveitir koma fram á Hótel íslandi á laugardaginn. Hér er um að ræða stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar og landslið Islands í poppi. Það skipar meðal annars Bubbi Morthens, K.K., Björgvin Halldórsson, Bjarni Arason, Pálmi Gunnarsson, Einar Júlíusson, Eng- ilbert Jenssen og Ari Jónsson. Hljómsveitirnar, sem koma fram, eru meðal annars Hljómar, Trú- brot, Lónlí Blú Bojs, Sléttuúlfarnir, Brimkló, GCD, Pops, Gömlu brýnin og Fánar. Tryggjum hver annan „Það má segja að Rúnari hafi verið kippt úr umferð svo til fyrir- varalaust fyrir fjórum mánuðum og hann hefur ekki getað unnið fyrir sér síðan,“ segir Magnús Kjartansson sem er einn af hvata- mönnum að dansleiknum. Að hans sögn voru það þeir Ólafur Laufdal, sem lánar húsnæðið undir dans- leikinn, og Gunnar Þórðarson sem áttu upphaflega hugmyndina að þessum tónleikum „Þetta hefur svona smám saman verið að fæð- ast,“ segir Magnús. „Margir aðrir einyrkjar og þá sérstaklega listamenn lenda í slæmri aðstöðu ef heilsan bregst. Listamaður eins og Rúnar fær ekk- ert veikindafrí,“ segir Magnús. Að hans sögn er þessi dansleikur við- brögð við þessu. „Við erum að tryggja hver annan með þessu,“ segir hann. Allt í botn Magnús telur að hér sé einstakt tækifæri fyrir unnendur rokk- og popptónlistar á íslandi til að sjá alla helstu tónlistarmenn landsins á einum stað. Hann leggur áherslu á að hér sé um að ræða hreina stuðhátíð þar sem ætlunin er að sýna Rúnari Júlíussyni samstöðu í veikindum hans. „Þetta er bara til þess að minna á að Rúnar missir ekkert taktinn þó að hann hafi orð- ið fyrir þessu áfalli. Rúnar hefur verið mikill gleðigjafi um langan aldur. Því er full ástæða fyrir aðdá- endur hans og lífs og fjörs að láta sig ekki vanta á laugardaginn,“ segir Magnús að lokum. Hljómsveitin Sixties veröur umvafin blómarósum í Hverageröi laugardaginn 7. september. r Hljómsveitin Sixties Astfangnir sem fyrr - spila á Sauðárkróki og í Hveragerði Sixties ætla að halda tvo stórdansleiki um helgina. Föstudag- inn 6. september halda þeir til Sauð- árkróks og spila þar á Kaffi Króki. Laugardaginn 7. september verð- ur sveitin með árlegan blómadcms- leik á Hótel Örk í Hveragerði. Þar verður jafhframt keppt um titilinn blómastúlka Suðurlands og mætir mikill kvennablómi frá Suðurlandi á þá keppni. Félagamir í Sixties hafa verið með eindæmum duglegir við spila- mennskuna í sumar út um allt land og notið mikilla vinsælda. í haust verð- ur Sixties I húshljóm- sveit á Hótel íslandi og spilar þar fram eftir vetri. Hljóm- sveitina Sixties skipa þeir Rúnar Örn Frið- riksson söngvari, Þórarinn Freysson bassaleik- ari, Guð- mundur Gunnlaugs- son trommu- leikari og Andrés Gunn- laugsson gítar- leikari. Árlegir tónleikar Harðar Torfasonar Allt efni nýtt - spilað í Borgarleikhúsinu í kvöld Ljóðskáldið og tónlistarmaðurinn Hörður Torfason verður með árlega tónleika sína í Borgarleikhúsinu föstudaginn 6. september. 1 þetta sinn verð- ur öll tónlistin og ljóðin sem hann flytur ný enda er ný plata á leiðinni frá Herði. Hörður Torfason hefúr haldið tónleika sína í tvo áratugi en framan af fór lítið fyrir þessmn tónleikum. Fyrir ellefu árum urðu ákveðin vatnaskil þeg- ar hann leigði Austurbæjarbíó og fyllti húsið. „Fólk hélt að ég væri orðinn eitthvað skrýtinn en þetta voru afar skemmtilegir og góðir tónleikar. Þetta lifir í minningunni" segir Hörður. Hann segir að tónleikamir nú verði með hefðbundnu sniði. „Þetta verður bara eins og venjulega, ég ætla að skemmta mér og reyna að skemmta öðrum. Núna verð ég einungis með nýtt efni, það eru kannski 20-25 ný lög og Ijóð sem ég ætla að flytja í kvöld. Það hefur líka verið þannig á þessum hausttónleikmn að ég hef verið að kynna nýtt efni á þeim,“ segir Hörður. Tónleikunum skipt í tvennt Hörður segir að þessir tónleikar verði í raun tvískiptir. „Fyrir hlé verð ég bara einn með gít- arinn. Eftir hlé koma strákarnir úr hljómsveit- inni og spila með mér,“ segir hann. Hörður vill lítið tjá sig um nýja efnið og seg- ir að fólk verði bara að mæta og heyra hvernig efnið hljómar. „Maður veit oftast lítið hvað maður er að gera, maður bara skapar. Það er annarra að dæma hvemig efhið er,“ segir hann. Hann segir að hópurinn sem sæki tónleika hans sé afar fjölbreyttur. „Það drífur fólk víða að. Þetta er alls konar fólk, allt frá átta ára upp í áttrætt“ segir Hörður. Að hans sögn er tölu- verð eftirvænting fyrir þessa tónleika. „Það er alltaf þannig þegar það er komið fram í ágúst þá byrjar síminn að klingja.“ Tónleikamjr byrja klukkan 20.00 í kvöld og hlj ómlistarmennimir sem spila með Herði í kvöld eru þeir Hjörtur Howser, Jón Hansson, Friðrik Sturluson, Björgvin Gíslason, Eysteinn Eysteinsson og Magnús R. Einarsson verður sérstakur gestur. -JHÞ Stjörnugjöf tónlistargagnrýnenda Óútgáfuhæf ★ Slæm ★★ Slök ★★ í meðallagi ■ktc'k Sæmileg ★★★ Góð :★'★★ Frábær ★★★ Meistaraverk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.