Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Síða 10
★
24*
★
★ ★
tyndbönd
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 13 "V
Ralph Fiennes:
Heldur tryggð
við sviðsleikinn
„Aö vera eða vera ekki kvik-
myndastjarna, það er spumingin.
Ég vona að Ralph Fiennes verði
aldrei kvikmyndastjama," sagði
leikstjórinn Steven Spielberg eitt
sinn um þennan breska leikara sem
sló í gegn í kvikmyndinni
Schindlers List. Orð Spielbergs hafa
þó alls ekki neikvæða merkingu þó
að þau hljómi þannig. Sannleikur-
inn er sá að Spielberg hefur mikið
álit á Ralph Fiennes.
Áður en Fiennes varð heiminum
kunnur sem kvikmyndaleikari var
hann búinn að skapa sér nafn sem
einn færasti sviðsleikari Breta. Það
sem Spielberg átti við með orðunum
hér á undan er að of mikill kvik-
myndaleikur myndi örugglega
skemma hæfileika Fiennes sem
sviðsleikara.
„Þrátt fyrir að Fiennes sé örugg-
læga fær um að leika í fjölda aðal-
hlutverka nýtur hann sín frábær-
lega i aukahlutverki. í myndum síð-
ustu ára hefur orðið meira áberandi
að það eru leikaramir í aukahlut-
verkunum sem slá í gegn og skyggja
á aðalpersónumar. Sú varð til dæm-
is raunin með Schindlers List.
Einnig má nefna myndina „The
Fugitive“ þar sem Tommy Lee Jo-
nes, í aukahlutverki, skyggði alger-
lega á Harrison Ford í aðalhlutverk-
inu,“ sagði Spielberg.
Stór fjölskylda
Ralph Fiennes er fæddur í heim-
inn þann 22. desember 1962 í bæn-
um Suffolk á Englandi. Hann er elst-
ur sex systkina sem fæddust á að-
eins 7 áram. Fljótlega á æskuárum
hans kom í Ijós að hugur hans
beindist til lista. Hann fór í lista-
skóla að lokna grunnskólanámi en
var ekki búinn að gera upp við sig
hvað hann ætti að fást við.
Fiennes þótti strax i æsku vera
drátthagur og stefndi fyrst að því að
verða málari. En eftir að hafa stund-
að nám í eitt ár í teiknun söðlaði
hann um og fékk inngöngu í „Royal
Academy of Dramatic Arts“ leiklist-
arskólanum og útskrifaðist það-
an með láði 1985.
Þar komu
hæfileikar
hans fljótt
í ljós og
hlut-
verkin létu ekki biöa eftir sér.
Fiennes komst strax á samning
hjá National Theater Company þar
sem hann starfaði næstu tvö árin.
Að þeim loknum var honum boöið
að ganga til liðs við hið konunglega
leiklistarfélag Shakespeare’s. Þar
lék hann hlutverk Hinriks IV, Lér
konung, Hamlet og fleiri þekktar
persónur. Stuttu síðar fékk hann
sitt fyrsta kvikmyndahlutverk í
sjónvarpsmyndinni „A Dangerous
Man“ sem byggð var á sögu
T.E.Lawrence. Sagt er að Spielberg
hafi þá fyrst tekið eftir honum.
Fiennes haföi alla tíð mikinn
stuðning foreldra sinna sem hvöttu
hann til dáða. Því var það honum
mikið áfall þegar móðir hans lést
aðeins 54 ára að aldri úr krabba-
meini, stuttu eftir að Schindlers
List var frumsýnd.
Kom á óvart
Fiennes lék hinn ógeðfellda
nazista Amon Goeth í Lista
Schindlers. Hann þótti gera það á
mjög sannfærandi hátt og það kom
Spielberg nokkuð á óvart. „Ég var
svo hræddur um að erfiölega gengi
að búa til óþokka úr Fiennes því
hann hefur óvenjulega töfrandi og
seiðandi augnaráð,” sagði Spiel-
berg.
Fiennes fékk ekki síður lof fyrir
leik sinn í næstu kvikmynd sinni,
The Quiz Show. Sú mynd er byggð á
sönnum atburðum frá sjötta ára-
tugnum. Þá var vinsælasta sjón-
varpsefhið í Bandcirikjunum sam-
nefndur spurningaþáttur og Charles
Van Doren var aðalstjama þeirrar
keppni. Hann var eftirlæti Banda-
ríkjamanna þar til í ljós kom að
svindlað var í þáttunum til að
tryggja honum sigurinn. Túlkun
Fiennes á Van Doren er slík að allir
sem myndina sjá kenna i brjósti um
hann.
Vandlátur á hlutverk
Fiennes hefur hafnað mörgum
kvikmyndahlutverkum og er vand-
látur mjög á hlutverk. Hann
heldur reglulega áffam leik
á leiksviði og hefur raðað
að sér viðurkenningum á
því sviði. Eftir leik í Quiz
Show sneri hann sér að
leik í Hamlet á leiksviði
í London og fékk fyrir
það Tony verðlaunin
sem besti leikari á
sviði 1995. Þar á eft-
ir lék hann í fram-
tíðartryllinum
„Strange Days“ á
móti Angelu
Bassett sem
gat sér frægð
fyrir frá-
bæra túlk-
un á söng-
konunni
Tinu Tum-
er. Sú mynd
er væntan-
leg á mynd-
bandi þann
11. september.
Fiennes liggur ekk-
ert á að slá í gegn í
kvikmyndunum og fer
sér rólega. Aðdáendur
hans vona samt sem áður
að hann leiki í sem flest-
um myndum því ekki
gefast mörg tækifæri til
þess að sjá hann á sviði.
-ÍS
Ralph Fiennes er
fæddur í heiminn
þann 22. desember
1962 í bænum Suffolk
á Englandi. Hann er
elstur sex systkina
sem fæddust á aðeins
7 árum. Fljótlega á
æskuárum hans kom
í Ijós að hugur hans
beindist til lista.
.SPÓLAH
I TÆKINU
Smári Guðmundsson: Und-
er Siege H með Steven Seagal.
Ég mæli með henni.
Gunnar Hjálmarsson:
Mallrats. Hún var skítsæmileg.
Oddný Eir Ævarsdóttir:
Priest. Mér fannst hún fín.
Eva Hrund Sigurðardóttir:
Dirty Dancing í 10. eða 11. sinn.
Hún er góð.