Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996
'myndbönd25
Wamer-myndbönd gefa út eftir
helgina á myndbandi The Bridges of
Madison County sem er byggð á
samnefndri skáldsögu Roberts
James Wallers en bók hans var gef-
in út árið 1992 og hefúr verið þaul-
setin á metsölulistum síðan og selst
í samtals nálægt níu milljónum ein-
taka. Myndin segir frá Francescu
sem er leikin af Meryl Streep. Hún
er ítölsk kona sem fylgdi eigin-
manni sínum, amerískum her-
manni, þegar seinni heimsstyrjöld-
inni lauk. Hún er ein heima þegar
Robert Kincaid, ljósmyndari hjá
National Geographic Magazine,
bankar upp á, en hann er leikinn af
Clint Eastwood sem jafnframt leik-
stýrir myndinni. Hann er á ferðinni
til að mynda yfirbyggðar brýr í
Madison County í Iowa og fær
Francescu til að fylgja sér um sýsl-
una og sýna sér brýmar. Þau fella
hugi saman og eiga í ástarsambandi
í fjóra daga en skynsemi og skyldu-
rækni koma í veg fyrir áframhald á
sambandinu.
Framboð og eftirspurn
Myndin er að því leyti frábrugðin
hefðbundnum stórsmellum í
Hollywood að hún sniðgengur
stærsta áhorfendahópinn - unga
fólkið. Samkvæmt upplýsingum frá
Warner Brothers er yfirgnæfandi
meirihluti áhorfenda yfir þrítugu,
enda fjallar myndin um ástarsam-
band pars sem er samtals 97 ára -
Robert Kincaid á að vera 52 ára og
Francesca 45 ára. Myndin er ástar-
saga um þroskað fólk og fyrir þrosk-
að fólk. Áhrif myndarinnar og bók-
arinnar á almenning sjást vel í því
tískufyrirbrigði meðal bandarískra
para að gifta sig á Roseman-brúnni
í Madison County og óteljandi fyrir-
spurnum til skrifstofu National Ge-
ographic frá fólki sem vill fá upplýs-
ingar um hinn raunverulega Robert
Kincaid (sem er ekki til). Með því að
ganga fram hjá stærsta markaðs-
hópnum hefur myndinni því greini-
lega tekist að virkja markaðshóp
sem hingað til hefur ekki verið
sinnt - lögmálið um framboð og eft-
irspum í hnotskum.
Betri og betri
með aldrinum
Clint Eastwood á að baki 40 ára
feril í kvikmyndum sem leikari og
hefur leikstýrt fjölmörgum mynd-
um síðan 1971 þegar hann leikstýrði
sinni fyrstu mynd, Play Misty for
Me. Ferill hans byrjaði á miðjum
sjötta áratugnum og lék hann þá
gjaman smáhlutverk í þriðja flokks
myndum en vendipunktur í leikferli
hans varð á árunum 1964-1966 þeg-
ar hann lék í spagettívestraþrenn-
ingu Sergios Leones. Á næstum
ámm treysti hann ímynd sína sem
yfirvegað hörkutól í myndum eins
og Hang Em High, Where Eagles
Dare, Two Mules for Sister Sara og
Dirty Harry, sem jafnframt er ein-
hver frægasta persóna sem Clint
Eastwood hefur skapað og hefur
hann leikið hann í fimm myndum.
Eins og áður segir leikstýrði hann
sinni fyrstu mynd 1971 og hefur síð-
an leikstýrt rúmlega helmingi
mynda sinna. Hann hélt áfram að
leika þögul hörkutól og var talinn
ákaflega takmarkaður leikari. Hon-
um tókst loks að sanna hæfileika
sina sem leikstjóri þegar hann leik-
stýrði Bird 1988 og öðlaðist loks
virðingu, bæði sem leikstjóri og
leikari, með Unforgiven 1992. Gamli
kallinn Clint virðist vera eins og
gott vín sem þroskast og verður
betra með aldrinum. Enginn talar
lengur um að hann geti ekki sýnt
önnur svipbrigði en að
gretta sig.
Ótrúlegur ferill
Clint Eastwood hafði
frá upphafi augastað á
Meryl Streep í hlutverk
Francescu en kvikmynda-
mógúlunum hjá Warner
Brothers þótti hún of
gömul í hlutverkið (hún
er 46 ára en Clint 65 ára).
Clint hafði betur að lok-
um og tókst að telja Meryl
Streep á að taka hlutverk-
ið að sér. Ferill hennar er
mjög frábrugðinn ferli
Clints því strax í upphafi
var tekið eftir leikhæfi-
leikum hennar. Hún lék í
sinni fyrstu mynd 1977 og
tveimur árum síðar fékk
hún óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í Kramer vs.
Kramer og aftur þremur
árum síðar fyrir Sophies +
Choice, en alls hefur hún
verið tilnefnd til ósk-
arsverðlauna tíu sinnum
á tuttugu ára löngum
ferli. Hún er þekkt fyrir
að leika ólík hlutverk og
geta tileinkað sér fas og
hreim fólks af öllum stétt-
um og úr ollum heims-
hornum. Meðal mynda
hennar eru The Deer Hunter, The
French Lieutenants Woman,
Silkwood, Out of Africa, Ironweed,
A Cry in the Dark, Postcards from "**
the Edge, Death Becomes Her, The
House of the Spirits og The River
Wild þar sem hún lék í fyrsta skipti
í hasarmynd. Hún hefur skapað sér
nafn sem hæfíleikaríkasta leikkona
í Hollywood.
-PJ
Neðanmáls: í þessari grein var
að hluta til stuðst við grein í
tímaritinu People frá 26/6 sl.
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Friðrik Sophusson
Ég horfi ákaflega lítið á
myndbönd og það líður langt á
milli þeirra fáu sem ég sé. Það
eina sem ég hef skoðað almenni-
lega upp á síðkastið er upptaka úr
afmælisveislu dóttur minnar en
hún varð tveggja ára í vor. Það er
uppáhaldsmyndbandið mitt um
þessar mundir þótt ekki sé gæðun-
um fyrir að
fara, því
miður. Afi
hennar og
ég skipt-
umst á að
taka þetta
upp og við
verðum
satt
að segja varla Jkall-
aðir snillingar í kvikmynda-
gerð. Sumt heppnaðist þó og það
er afskaplega gaman að horfa á
það. Stundum fer ég í bíó, bæði
hér á landi og í útlöndum. Síðast
fór ég í bíó með dóttur minni og sá
þá Mission Impossible með Tom
Cruise. Þær voru flnar tæknibrell-
umar i henni og ég hafði meira
gaman af henni heldur en ég átti
von á. Þegar ég var ungur reyndi
ég að sjá allar kúrekamyndir sem
buðust en í seinni tíð hef ég meira
gaman af rómantískum myndum.
Ég á mjög erfitt með að skilja all-
ar þessar framtíðar- og geimmynd-
ir. Þær liggja fyrir utan hugarsvið
mitt og ég hef engan smekk fyrir
þeim. Vil frekar sjá nostalgískar
myndir sem rifja upp tím-
ann
þegar ég
var ung-
lingur.
Sjálfsagt
er aldurinn
bara að fær-
ast yflr mig.
-ilka
Company Affairs Strange Days
Trevor er forríkur viðskiptajöfur
sem rekur fyrirtæki sitt í Brasiliu.
En Trevor lifir
tvöfoldu og
jafnvel marg-
foldu lífi. Hann
er kvæntur
gullfallegri og
snjallri konu
en heldur við
tvær aðrar
konur.
Önnur
þeirra, Paige,
er vinkona eig-
inkonu Trevors
og félagi hennar í viðskiptum. Hin,
Miranda, er hálaunuð fylgdarkona.
Það liggur því í augum uppi að í
þessari aðstöðu má ekkert gerast ef
ekki á að komast upp um Trevor og
laumuspil hans. Það sem Trevor
veit hins vegar ekki er að bæði
Paige og Miranda eru búnar að
brugga honum launráð sem runnið
er undan rifjum viðskiptafélaga
Trevors.
En það er ekki allt sem sýnist og
áður en yfir lýkur kemur í ljós að
hér eru margir maðkar í mysunni.
Það er hinn góðkunni breski leikari
Michael York sem fer með aðalhlut-
verkið í þessari mynd.
Útgefandi myndbandsins er Berg-
vík og myndbandið kemur út þann
3. september. Aldurstakmark 16 ára.
Framleiðandi þessarar spennu-
myndar er James Cameron og leik-
stjóri Kathryn
Bigelow. Frá-1
bærir leikarar I
eru í aðalhlut-l
verkum, Ralph
Fiennes
(Schindlers
List) og Angela '
Bassett (Tina).
Strange Days
er hágæða
spennumynd og [
framtíðartryll-
ir. Dagurinn er'
30. desember 1999 og loftið í Los
Angeles er lævi blandið. Alls kyns
ruslaralýður fyllir göturnar, hvert
skúmaskot, og engum er treystandi.
Ralph Fiennes leikur lögreglu-
manninn fyrrverandi, Lenny Nero,
sem hefur snúið sér að því að kaupa
og selja nýja, ólöglega tækni. Þessi
tækni felst í því að hægt er að taka
upp á diska sýnir fólks og upplifun
sem aðrir geta síðan upplifað sem
sínar eigin. Þennan dag er vinkona
Lennys myrt og morðinginn tekur
upp reynslu sína. Að loknum verkn-
aðinum sendir hann Lenny upptök-
una og þar með dregst hann inn í
geöveikislegan heim peninga, valda
og ofsóknaræðis. Hann leitar að-
stoðar hjá öryggisfræðingnum Mace
(Bassett) og saman lenda þau í mikl-
um hremmingum.
Það er ClC-myndbönd sem gefa út
myndbandið þann 11. september og
myndin er bönnuð innan 16 ára.
Preeious Find
Framtíðartryllirinn Precious
Find skartar úrvalsleikurum, Rut-
ger Hauer og
Joan Chen, í að-
alhlutverkum.
Það er árið 2049,
200 ár eru liðin
frá upphafi
gullæðisins í
Kaliforníu. Nýtt
gullæði hefur
tekið við. Mann-
skepnan hefur
reist stóra borg
á tunglinu sem
orðin er miðstöð
stærstu gullnámu sem fundist hefur
í öllu sólkerfinu. Andrúmsloftið er
hlaðið spennu því þegar skjótfeng-
inn gróði er annars vegar er enginn
annars bróðir í leik.
Þrír aðkomumenn ákveða að
freista gæfunnar á nýju svæði þar
sem heyrst hefur um gullfund. Einn
þeirra er fjárhættuspilarinn Crile
Hager (Hauer). Eftir mikla hrakn-
inga komast þeir til hins fyrirheitna
staðar og finna þar mikið gull. En
systurnar græðgi og öfund taka
fljótlega í taumana og fljótlega dreg-
ur til tíðinda þegar sumir vilja ætla ^
sér fullstóran skerf af gullinu.
Útgefandi myndarinnar er Berg-
vík en hún kemur út þann 10. sept-
ember. Aldurstakmark er 12 ár.