Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 4
24 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 25 I Iþróttir Sigurður Grétarsson, þjálfari Vals: „Ætlum að klára mótið með sæmd“ - Valsmenn unnu góðan sigur á Stjörnunni í Garðabæ „Ég er aö vonum kátur með úrslit- in. Strákamir spiluðu vel, skoruðu fjögur mörk og sköpuðu sér mikið af marktækifærum. Þá var baráttan í liðinu mjög góð og allir vora á tán- um. Við erum komnir með góða stöðu í deildinni og ætlum að klára mótið með sæmd,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari Vals, við DV eftir sigur sinna manna á Stjörh- unni, 2-4, í Garðabæ í gær. Aðstæður til að leika knattspyrnu í gær voru afleitar, rok og mikil rigning, en mesta furða var hvað leikmönnum gekk að spila knettin- um á milli sín og þá einkum Vals- mönnum. Valur hafði undirtökin allan tím- ann og Stjömumenn geta prísað sig sæla að hafa ekki tapað stærra því Valsmenn áttu mörg góð marktæki- færi í leiknum. Valsmenn létu bolt- ann ganga vel á milli sín og beittu stuttum samleik og það var greini- legt að Valsmenn voru mættir i Garðabæinn til að selja sig dýrt enda gengi liðsins í seinni umferð- inni ekki verið upp á það besta. Þá Baldur Bjarnason skoraði bæði mörk Stjörnunnar. er þungu fargi örugglega létt af leik- mönnum liðsins en mikið marka- leysi hefur háð liðinu í sumar. Vængbrotiö Stjörnuliö Stjörnumenn voru með nokkuð vængbrotið lið í leiknum. Valdimar Kristófersson, Reynir Björnsson og Helgi Björgvinsson voru allir í leik- banni og Kristinn Lárusson er far- inn til náms í Bandaríkjunum. Garðbæingar máttu ekki við því aö missa þessa menn og sérstaklega var varnarleikur liðsins gloppóttur. í frekar slöppu liði Stjömunnar bar mest á Baldri Bjarnasyni. Valsliðið lék í heild mjög vel og er leikurinn örugglega einn sá besti hjá liðinu í langan tíma. í jöfnu liði var Heimir Porca mjög áberandi á miðjunni. Hann lék samherja sína vel uppi og barðist vel. Sigþór Júlíusson var sprækur á kantinum og hinn ungi Guðmundur Brynjólfsson átti góðan leik. -GH Stjarnan (1)2 Valur (2)4 0-1 Guömundur Brynjólfsson (7.) með skoti frá markteig. 0-2 Guðmundur Brynjólfsson (23.) skoraöi af stuttu færi eftir að Bjarni markvörður hafði varið og misst boltann frá sér. 1-2 Baldur Bjarnason (28.) úr vitaspymu. 1- 3 Heimir Porca (60.) úr víti. 1^1 Anthony K. Gregory (64.) með skalla eftir sendingu Porca. 2— 1 Baldur Bjarnason (75.) með skoti af markteig. Lið Stjörnunnar: Bjarni Sigurös- son - Birgir Sigfússon, Goran Micic, Ragnar Ámason, Sigurhjörtur Sigfús- son (Sæmundur Friöjónsson 68.) - Heimir Erlingsson (Veigar Gunnars- son 64.), Ingólfur Ingólfsson, Rúnar Sigmundsson, Baldur Bjamason @, Loftur S. Loftsson (Hörður Gíslason 52.), Bjami Sigurðsson. Lið Vals: Lárus Sigurðsson Bjarki Stefánsson @, Jón G. Jónsson, Krist- ján Halldórss, Gunnar Einarsson @ - Heimir Porca @, Jón Helgason, ívar Ingimarss., Guðmundur Brynj- ólfss. @ (Nebojsa Corovic 88.) - Sig- þór Júlíuss. @ (Sigurbjöm Hreiðars- s. 89.) - Anthony Gregory (Amljótur Davíðsson 68.). Markskot: Stjaman 6, Valur 17. Horn: Stjaman 3, Valur 9. Gul spjöld: Goran (Stjörn.), ívar (Val), Anthony (Val). Dómari: Eyjólfur Ólafsson. Maður leiksins: Heimir Porca, Val. Prímus mótor í leik liðsins. fóru á kostum - Grindavík komst í 0-2 gegn Skagamönnum en einum færri fóru þeir á kostum og skoruðu sex mörk „Þetta var sterkur sigur hjá okkur svo ekki sé meira sagt. Við tókum okkur saman í and- litinu eftir að hafa verið tveim- ur mörkum undir. Skipting- amar hjá Guðjóni þjálfara voru beittar. Það skiptir ekki máli í mínum huga hverjir skora mörkin. Sigurinn skiptir öllu máli og stigin þrjú,“ sagði Skagamaðurinn Gunnlaugur Jónsson eftir að Skagaliðið hafði sigrað Grindvikinga, 6-3, á Akranesi í gærkvöld. Viðureignin var fyrir margra hluta sakir stórkostleg. Skagamenn voru greinilega ákveðnir að selja sig dýrt og byrjuðu betur en þegar hálf- tími er liðinn af leiknum verða kaílaskil sem setja mikið rót á leikinn. Stefáni Þórðarsyni hjá Skagamönnum er vikið af leik- velli fyrir brot og leikurinn tók allt aðra stefnu. GrindvíkingELr fylltust eldmóði og Skaga- menn, einum færri, vissu vart sitt rjúkandi ráð. Grindvíking- ar tóku leikinn í sínar hendur. Gestirnir tóku forystuna og til að bæta gráu ofan á svart mis- notuðu Skagamenn víta- spyrnu. Albert Sævarsson, markvörður Grindvíkinga, varði glæsilega frá Haraldi Ingólfssyni. Grindvíkingar voru ekki af baki dottnir og bættu við öðru marki fyrir leikhlé. Það voru því ekki létt skref sem leik- menn Skagaliðsins stigu til búningsherbergis. Ótrúleg umskipti Ótrúleg umskipti urðu á leiknum þegar Skagamenn gerðu fimm mörk á stundar- fjórðungi í síðari hálfleik. Bar- áttan fleytir mörgum yfír erfið- an hjalla og það á svo sannar- lega við um Skagamenn í þessu dæmi. Haraldur Hinriksson gleymir ekki þesum leik Haraldur nokkur Hinriks- son minnist þessa leiks örugg- lega með hlýjum hug. Honum var skipt inn á á 66. mínútu, lagði upp tvö mörk og skoraði tvö. Glæsileg innkoma i meira lagi. Þótt Skagamenn lékju án þriggja fastamanna virðist Guðjón eiga nóg af efnilegum leikmönnum. Bestir Skaga- manna í þessum leik voru þeir Haraldur Ingólfsson og Gunn- laugur Jónsson. Þáttur Harald- ar Hinrikssonar var rekinn hér að framan og fær hann plús fyrir frammistöðu sína. Staða Grindvikinga, sem virtust vera með unninn leik í höndunum, er allt annað en glæsileg. Þeir verma botnsætið og nálgast fall í 2. deild óðíluga og veröa að taka til hendinni í síðustu tveimur umferðunum ef ekki á illa að fara. Albert Sævarsson, Kecic Simisa og Óli Flóventsson voru bestir Grindvíkinga í þessum leik. -DVÓ Haraldur Hinriksson skoraöi tvívegis gegn Grindvíkingum. íþróttir ÍA (0)6 Grindavík (1)3 0-1 ÓIi Stefán Flóventsson (35.) 0-2 Kekic Sinsa (53.) 1- 2 Ólafur Adolfsson (61.) 2- 2 Alexander Högnason (68.) 3- 2 Gunnlaugm' Jónsson (70.) 4- 2 Haraldur Hinriksson (72.) 5- 2 Haraldur Ingólfsson (74.) 5- 3 Zoran Ljubicic (85.) 6- 3 Haraldur Hinriksson (89.) Lið í A: Þórður Þórðarson - Sturlaug- ur Haraldsson @ Steinar Adolfs- son @, Gunnlaugur Jónsson @@ (Reynir Leósson 89.), Ólafur Adolfs- son - Jóhannes Harðarson (Haraldur Hinriksson 66. @.), Alexander Högnason @, Sigursteinn Gíslason, Haraldur Ingólfsson @@ - Kári Steinn Reynisson @, Viktor Viktors- son 89.), Stefán Þórðarson. Lið Grindavíkur: Albert Sævarsson @@, Sveinn Guöjónsson (Ólafur Ingólfsson 65.), Guðlaugur Jónsson, Guðjón Ásmundsson, Milan Jankovic @ - Ólafur Örn Bjarnason, Hjálmar Hallgrímsson, Zoran Ljubicic @ Gunnar Már Gunnarsson, Kekic Simisa (Júlíus Daníelsson 64.) - Óli Stefán Flóventsson @, (Páll Valur Björnsson 86.) Markskot: ÍA 18, Grindavík 10. Horn: ÍA 6, Grindavík 2. Gul spjöld: Simisa (G), Ólafur Ö. (G), Jóhannes (ÍA). Rautt spjald: Stefán Þórðarson (ÍA). Dómari: Gylfi Orrason, ágætur. Áhorfendur: Um 600. Skilyrði: Sunnanátt, rigning og rok og völlurinn þungur. Maður leiksins: Haraldur Hinriks- son. Innáskipting hans virkaöi sem vítamínsprauta á liðið. Skor- aði tvö mörk og lagði upp tvö, toppleikur. KR (1) 1 ÍBV (0) 0 1-0 Ríkharður Daðason (36.) Oskar Hrafn lék úr vörninni, tók tvö þrihyrningsspil við Heimi og Guðmund og slapp þannig i gengum vörn ÍBV. Sendi síðan boltann mjög óeigingjarnt á Ríkharö sem skoraði. Sérlega glæsilegt. Liö KR: Kristján Finnbogason @ - Þormóður Egilsson, Óskar Hrafn Þor- valdsson @ (Sigurður Öm Jónsson 68.), Brynjar Gunnarsson @, Ólafur Kristjánsson - Hilmar Björnsson, Heimir Guðjónsson @, Þorsteinn Jónsson, Einar Þór Daníelsson - Rik- harður Daðason @, Guðmundur Benediktsson @ (Bjarni Þorsteinsson 85.). Lið iBV: Gunnar Sigurðsson - Björn Jakobsson, Hermann Hreiðarsson @, Friðrik Sæbjömsson, ívar Bjarklind @ - Ingi Sigurðsson @, Jón Bragi Amarson (Bjarnólfur Lámsson 87.), Hlynur Stefánsson, Tryggvi Guð- mundsson © - Rútur Snorrason (Sumarliði Ámason 87.), Steingrímur Jóhannesson © (Leifur Geir Haf- steinsson 87.). Markskot: KR 15, ÍBV 13. Horn: KR 6, ÍBV 4. Gul spjöld: Ingi (ÍBV) og Hermann (ÍBV). Dómari: Ólafur Ragnarsson, dæmdi vel en sleppti vítaspyrnu sem Eyjamenn áttu að fá í síðari hálfleik. Áhorfendur: Um 650. Skilyrði: Dæmigert íslenskt haust- veöur, rigning og vindur. Maður leiksins: Rikharður Daða- son, KR. Skoraði sigurmarkið og lék tnjög vel. 100. leikur Inga Ingi Sigurðsson úr ÍBV lék í gær sinn 100. leik í 1. deildinni. r#:v- . DEILD KARLA ÍA 16 12 1 3 40-15 37 KR 16 11 3 2 36-11 36 Leiftur 16 8 5 3 31-24 29 ÍBV 16 7 1 8 27-30 22 Stjaman 16 6 3 7 21-28 21 Valur 16 6 2 8 17-22 20 Keflavík 16 3 7 6 15-24 16 Fylkir 16 4 3 9 21-23 15 Breiðablik 16 3 5 8 16-31 14 Grindavík 16 3 4 8 18-34 13 Markahæstir: Ríkharður Daðason, KR ..........12 Bjami Guðjónsson, ÍA............11 Guðmundur Benediktsson, KR ... 9 Haraldur Ingólfsson, ÍA .........8 Einar Þór Daníelsson, KR.........7 Mihajlo Bibercic, LA.............7 Ríkharöur Daöason, markahæsti leikmaöur 1. deildar, skorar hér sigurmark KR gegn Vestmannaeyingum á KR-vellinum í gær. Á stærri myndinni er Ríkharöur aö leika á varnarmenn ÍBV og á innfelldu myndinni leikur hann markvörð Eyjamanna upp úr skónum. Skömmu síðar lá knötturinn í netinu og sigurmark leiksins var staðreynd. DV-mynd Brynjar Gauti Enn æsist leikurinn - KR-ingar unnu sigur á ÍBV og fylgja Akurnesingum enn sem skugginn á toppi 1. deildar „Við höldum áfram I baráttunni eftir þennan sigur, við verðum að vinna einn leik í viðbót og þá eigum við möguleika á að klára mótið,” sagði Ríkharður Daðason, leikmaður KR og markahæsti leikmaöur deildarinnar, eftir sigur á Eyjamönnum, 1-0, í Vest- urbænum í gær. Ríkharður skoraði sigurmarkið og lék mjög vel. Guð- mundur Benediktsson var í byrjunar- liði KR að nýju og áttu þeir Ríkharð- ur nokkrar góðar rispur saman en vantaði að reka endahnútinn á sókn- imar. „Við ætluðum að gera þetta of flnt og hefðum mátt skjóta fyrr en þegar þetta tekst eru þetta falleg mörk,” sagði Ríkharður enn.fremur. KR-ingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, voru mun meira með bolt- ann og áttu margar prýðissóknir. Eyjamenn ógnuðu með skyndisókn- um og reyndu að nýta hraða fram- herja sinna. Strax á 8. min. slapp Steingrímur inn fyrir KR-vörnina, sendi fyrir en Ingi Sigurðsson átti skot í hliðarnetið. Á 15. mín. komst Ríkharður í gegnum Eyjavörnina eft- ir glæsilegt þríhyrningsspil við Guð- mund en missti boltann klaufalega frá sér. Kristján Finnbogason varði mjög vel í tvígang um miðjan hálf- leikinn og síðustu fimmtán mínútur hálfleiksins tóku KR-ingar öll völd á vellinum. Fyrst slapp Hilmar Björns- son inn fyrir en skot hans fór í innan- verða stöngina. í næstu sókn átti Guðmundur skot sem Gunnar Sig- urðsson, markvörður Eyjamanna, varði. Um tveimur mín. síðar leit dagsins ljós sigurmark KR í leiknum sem Ríkharður geröi eftir frábæran undirbúning félaga sinna, þá einkum Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Eyjamenn mættu mun ákveðnari til siðari hálfleiks og sóttu meira en KR- ingar beittu snörpum skyndisóknum. Tryggvi Guðmundsson átti skot fram hjá úr teignum á 62. mín. og fjórum mínútum síðar vildu Eyjamenn fá vítaspymu. Ingi Sigurðsson var þá rifinn niður í teignum eftir að hafa sloppið inn fyr- ir vöm KR en Ólafur Ragnarsson dómari sá ekki ástæðu til að flauta. Boltinn barst svo til Tryggva en held- ur máttlaust skot hans fór fram hjá. Skömmu síðar átti Ingi svo þrumu- skot af löngu færi á mark KR en bolt- inn fór fram hjá. Um tíu mín. fyrir leikslok bjargaði ívar Bjarklind á elleftu stundu fyrir Eyjamenn en þeir Ríkharður og Guðumundur höfðu þá leikið sér skamma stund að Eyjavöminni og Ríkharður var nærri því að reka smiðshöggið á sóknina. Undir lok leiksins átti Heimir svo lúmskt skot en Gunnar sá við honum í mai'ki ÍBV. Þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka sá Atli Eðvaldsson, þjálfari ÍBV, ástæðu til að skipta þremur varamönnum inn á. Þessi skipting var með öllu tilgangslaus og hefði mátt koma miklu fyrr í leiknum. KR-ingar léku mun betur í fyrri hálf- leik en þeim síðari. Kristján varði það sem á markið kom, Óskar Hrafn og Brynjar léku vel í vörninni. Heim- ir var geysilega öflugur í fyrri hálf- leik en datt aðeins niður seinni hluta þess síðari. Ríkharður og Guðmund- ur náðu vel saman í framlínunni og sköpuðu oft hættu. Hjá ÍBV vora Tryggvi og Ingi bestir, börðust vel og unnu úti um allan völl. Hlynur náði sér ekki á strik fyrr en í síðari hálfleik en þá sýndi sig hvað hann er liðinu dýrmætur. -ÞG „Mikilvægast að tapa ekki þessum ieiku „Það var mikilvægt að tapa ekki leiknum. Aðstæður til að leika knattspymu voru vart bjóðandi. Þetta voru sanngjöm úrslit og það var mikilvægt að tapa ekki leikn- um,“ sagði Kjartan Másson, þjálfari Keflavíkur, eftir markalaust jafn- tefli við Fylki í Keflavík í gær. Gríðarlegur vatnselgur á vellin- um setti mark sitt á leikinn lengst af og gríðarlega erfitt var að leika knattspyrnu. Fylkismenn voru betri aðilinn og áttu fleiri hættuleg tæki- færi. Keflvíkingar geta vei við unað að ná stigi út úr þessari viðureign. Þeir urðu fyrir áfalli þegar einn besti maður liðsins, Jóhann B. Guð- mundsson, meiddist og þurfti að fara af leikvelli. Kom það sér mjög illa fyrir heimamenn. „Hefðum átt að klára þetta og innbyröa öll stigin" Fylkismenn áttu hættulegasta tækifæri sitt undir lok leiksins. Vatnselgurinn stöðvaði þá knöttinn á leið til Bjarka Péturssonar sem var í dauðafæri á markteig. „Við áttum fleiri hættuleg færi í þessum leik og áttum auðvitað að klára þertta og innbyrða öll stigin þrjú. Annars buðu aðstæður alls ekki upp á að hér yrði leikin ein- hver knattspyrna af viti. Þetta var barningur út í gegn í 90 mínútur," sagði Þórir Sigfússon, þjálfari Fylk- is, við DV eftir leikinn. -ÆMK Kefíavík (0)0 Fylkir (0)0 Lið Keflavíkur: Ólafur Gottskálks- son @ - Guömundur Oddsson, Krist- inn Guðbrandsson, Gestur Gylfason @, Karl Finnbogason - Jóhann Stein- arsson (Róbert Sigurðsson 62.), Ey- steinn Hauksson, Ragnar Steinars- son, Jóhann B. Magnússon (Guðjón Jóhannsson - Haukur Guðnason @, Jóhann B. Guðmundsson (Adolf Sveinsson 21.) Lið Fylkis: Kjartan Sturluson @ - Enes Gocic @, Ómar Valdimarsson @, Aðalsteinn Víglundsson, Sigur- geir Kristjánsson - Andri Marteins- son, Finnur Kolbeinsson, Kristinn Tómasson (Erlendur Gunnarsson), Ólafur Stígsson @ - Bjarki Péturs- son, Þórhallur Dan Jóhannsson. Markskot: Keflavík 7, Fylkir 9. Horn: Keflavik 7, Fylkir 6. Gul spjöld: Gestur (K), Karl (K), Ragnar S. (K), Guðmundur (K), Þór- hallur (F), Enes (F). Dómari: Egill Már Markússon, góður. Áhorfendur: Urn 400. Skilyrði: Völlurinn þungur. Maður leiksins: Ólafur Gottskálks- son, Keflavik, geysilega öruggur. Gestur og Karl í bann Gestur Gylfason er kominn í eins leiks bann og Karl Finn- bogason tveggja vegna gulra spjalda. Besti árangur Leiftursmanna - öryggir meö 3. sætiö í 1. deild Leiftur (2)3 Breiöablik (1) 1 1- 0 Pétur Bjöm Jónsson (26.) 2- 0 Gunnar Már Másson (32.) 2- 1 Kristófer Sigurgeirsson (45.) 3- 1 Sverrir Sverrisson (85.) Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson @ - Daði Dervic, Slobodan Milisic, Júlíus Tryggvason ©, Auðun Helgason @ - Gunnar Oddsson @ Sverrir Sverr- isson, Páll Guðmundsson, Matthías Sigvaldson 87.), Pétur B. Jónsson @@ (Rastislav Lazorik 78.) - Bald- ur Bragason, Gunnar M. Másson @. Lið Breiðabliks: Cardaklija ©, Guðmundur Ö. Guðmundsson (Gunn- laugur Einarsson 45.), Maticic, Hákon Sverrisson, Hreiðar Bjamason - Sæv- ar Pétursson @, Pálmi Harlaldsson, Arnar Grétarsson @, ívar Sigurjóns- son - Gunnar Ólafsson (Guðmundur Guðmundsson 80.), Kristófer Sigur- geirsson @ Markskot: Leiftur 19, Breiðabhk 10. Horn: Leiftur 7, Breiðablik 8. Gul spjöld: Hákon (B), Pétur (L), MU- isic (L). Dómari: Guðmundur S. Maríasson. Skilyrði: Frábær. Áhorfendur: 250. Maður leiksins: Pétur Bjöm Jónsson, Leiftri. DV, Ólafsfirði: Leiftur lagði Blikana á sannfær- andi hátt á Ólafsfirði í gærkvöld. Leiftursmenn áttu frábæran fyrri hálfleik og skoruðu tvö mörk en bökkuðu í síðari háfleik og þá bitu Blikarnir frá sér. Með þessum sigri tryggði Leiftur sér 3. sæti í 1. deild sem er langbesti árangur liðsins til þessa. Blikar sitja eftir í magnaðri botnbaráttu. Leiftur fékk mörg góð tækifæri til að skora enn fleiri mörk í fyrri hálfleik en Cardaklija, markvörður Breiðabliks, kom í veg fyrir að mörkin yrðu fleiri. Síðari háfleikur var ekki eins fjörugur og sá fyrri. Blikar urðu ágengari þrátt fyrir að spil þeirra væri fjarri því að vera markvisst. Hreiðar Bjarnason komst í dauða- færi og ívar Sigurjónsson komst einnig í gott færi. Liðheild Leifturs var óvenju jöfn, en samt báru Pétur Björn Jónsson og Auðun Helgason af, ásamt Júl- íusi Tryggvasyni og Þorvaldi Jóns- syni, sem bjargaði tvisvar úr dauða- færi. Þá var Gunnar Már Másson sí- vinnandi og baráttuglaður. Hjá Blikum var Arnar Grétarsson léttleikandi og frískur og Kristófer Sigurgeirsson átti mjög góðan leik. -HJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.