Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 8
28 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 DV Haraldur Pétursson, íslandsmeistari í torfæru 1996, planar Kjörísbílinn hér glæsilega í einni brautinni á Hellu um helgina þar sem Haraldur sigraöi. DV-mynd Ása Jóa Haraldur bestur - og tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í torfæru annað árið i röð Síðasta torfærukeppni sumarsins, EJS, torfæra Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu var haldin á laugar- daginn. Þessi keppni var hrein úrslitakeppni um ís- landsmeistaratitilinn í báð- um flokkum. Um 2000 áhorfendur fylgdust með spennandi og skemmtilegri keppni sem var alveg ágætlega skipu- lögð og gekk vel. í flokki sérútbúinna bíla áttu íslandsmeistarar síð- ustu þriggja ára jafna möguleika á titlinum, þeir Haraldur Pétursson á Kjör- ísbílnum, Gísli G. Jónsson á Makkanum og Einar Gunn- laugsson á Norðdekkdrek- anum. Hver sá sem sigraði þeirra á milli yrði íslands- meistari. Þeir þrír röðuðu sér í efstu sætin og var Haraldur kominn með vænlega stöðu eftir þrjár brautir, 780 stig meðan Gísli var með 690 og Einar 660. Næstu tvær brautir voru tímabrautir. Gísli og Einar söxuðu aðeins á for- skot Haralds í fyrri braut- inni en hann náði bestum tíma í næstu og var með 1330 stig á móti 1210 hjá Gísla og 1110 hjá Einari þeg- ar eingöngu mýrin var eft- ir. Haraldur fór fyrstur þeirra þriggja, komst alla leið og var þar með búinn að verja íslandsmeistaratit- il sinn. f götubílaflokki áttu einnig þrír keppendur möguleika á titlinum. Gunnar Pálmi Pétursson á Ford var með bestu stöðuna og mátti lenda í þriðja sæti en myndi ná titilinum samt, meðan Sigurður Þ. Jónsson á Lukkutröllinu og Rafn A. Guðjónsson á Rauða Prins- inum þurftu hvor um sig að sigra og fá Gunnar í fjórða sæti eða neðar. í annarri braut, sem var tímabraut, bilaði bílinn hjá Gunnari Pálma og hann komst aðeins 80% brautar- innar og átti Sigurður þá möguleika á að veita hon- um hcirða keppni en Sigurð- ur fór ekki nema 20% brautarinnar og eingöngu Gunnar Guðmundsson kláraði og var baráttan um fyrsta sætið milli þeirra nafna en Gunnar Pálmi náði forustunni í þriðju braut og jók muninn í hverri braut og endaði sem öruggur sigurvegari og ís- landsmeistari. Úrslit urðu þessi á Hellu, Útbúnir bílar: 1. Haraldur Péturssoon, 1620 stig. 2. Gísli G. Jónsson, 1450 stig. 3. Einar Gunnlaugsson, 1390 stig. Tilþrifaverðlaun Gunnar Egilsson. Götubílar: 1. Gunnar Pálmi, 1510 stig. 2. Gunnar Guðmundsson, 1360 stig. 3. Rafn, 1145 stig. Tilþrif hlaut Steingrímur Bjamason. íþróttir Handbolti: „Mótið verður mjög spenn- andi“ - segir Þorbjörn landsliðsþjálfari DV, Akureyri: „Ég er alls ekki sammála þeim sem eru að flokka liðin í 1. deild niður eftir getu. Ég hef fylgst vel með haustleikjunum og ég fæ ekki betur séð en öll liðin geti unnið sigur gegn hverju hinna liðanna þannig að íslandsmótið verður að mínu mati geysilega spennandi," segir Þorbjöm Jens- son landsliðsþjálfari. „Þorbjörn segir að miklar breytingar á liðunum hafi þessa óvissu í för með sér, öllu máli skipti hvemig liðunum gangi að vinna úr sínum málum með nýj- an mannskap. „Ef við tökum íslandsmeistara Vals sem dæmi þá er vitað að veturinn getur orðið þeim erfið- ur. Eini möguleikinn til að búa til öflugt lið er að byggja það inn- an frá og það er einmitt það sem Valsmenn eru að gera núna. Þeir gefa ungum leikmönnum tæki- færi i vetur,“ segir Þorbjöm. Haim segir enn fremur að bik- armeistarar KA eigi einnig við vandamál að glíma: „Þeir misstu Patrek, sem er geysilega sterkur sóknarmaður og skytta, en fengu i staðinn Rússa sem er leik- stjómandi og mikill baráttumað- ur. Það er mín skoðun að Zisa eigi eftir að reynast KA vel í vet- ur. Það em skiptar skoðanir um hann en mér líst mjög vel á hann,“ segir Þorbjörn Jensson. -gk Torfæruúrslitin Haraldur Pétursson varð íslandsmeistari í flokki sérútbúinna bíla og hlaut hann 73 stig. Hann sigraði í þremur af fimm keppnum í sumar. Annar varð Gísli G. Jónsson með 69 stig og þriðji Einar Gunnlaugsson með 67 stig. í flokki götubíla sigraði Gunnar Pálmi Pétursson með 77 stig samtals. Hann sigraöi einnig í þremur af fimm keppnum sumarsins. Annar varö Rafn Amar Guðjónsson með 67 stig og þriðji Sigurður Þ. Jónsson með 65 stig. 35-40 milljónir sjá keppnina Lokaslagurinn um íslandsmeistaratitiiinn í torfæra verður sýndur á nokkrum erlendum sjónvarpsstöðvum og er reiknað með að 35-40 milljónir manna muni sjá keppnina í sjónvarpi. AC Milan tapaöi Sampdoria vann AC Milan í gærkvöld, 2-1. Önnur úrslit era á bls. 22. Meistaraleikurinn í handbolta: Vítiö bjargaði ser Róbert Duranona 09 Þor'eiísson meistarabikarinn eftir sigurinn gegn Val. DV Mmy__9_ „Þetta var ekkert sérstakur leikur en sýnir ef til vill hvernig deildin mun spilast í vetur. Leikirnir verða jafnir og það geta allir unnið alla,“ sagði Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir að KA hafði sigrað Val, 24-23, í meistaraleik liðanna, leik íslands- og bikarmeistara frá síðustu leiktíð. Nokkur „septembersvipur" var yfir þessum leik. Það þarf ekki að koma á óvart. Valsmenn hafa misst fjóra lykil- menn og verða án efa oft í vandræðum í vetur. KA-menn eiga enn í erflðleikum með sóknarleik sinn og eru að slípa hann til eftir brotthvarf Patreks. Mikil spenna var i leiknum í lokin. Eft- ir að KA hafði verið 1-3 mörkum yfir all- an leikinn komust Valsmenn yfir, 21-22, þegar 5 minútur vora eftir. KA-menn bitu þó ffá sér í lokin og Duranona tryggði KA sigurinn með marki úr liði KA í lokin vítakasti sem Erlingur Kristjánsson fiskaði þegar 22 sekúndur vora eftir af leiknum. Besti leikmaður vallarins var Rússinn „Kisa“ Zisa hjá KA. Hann er óðum að átta sig á leik KA og gefur sig allan í leikinn all- an leiktimann. Duranona virtist latur fram- an af en skoraði grimmt í lokin. Veturinn verður langur og erfiður hjá Val. Jón Kristjánsson er allt í öllu í sóknar- leiknum og ungir leikmenn era komnir í lykilstööur. En með markvörð eins og Guð- mund Hrafnkelsson og menn eins og Skúla Gunnsteinsson og hornamanninn Valgarð Thoroddsen er alls ekki hægt að vanmeta lið Valsmanna. Duranona skoraði 7 mörk fyrir KA og „Kisa“ 6. Jón Krisljánsson skoraði 5 mörk fyrir Val. Dómaramir „Sydney 2000“, þeir Stefán Amaldsson og Rögnvald Erlingsson, voru mjög góðir og ánægjulegt að þeir hættu við aö hætta. -gk DV, Akureyri:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.