Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 6
26
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996
Iþróttir
Sameinast hesta-
menn um ný samtök?
Undanfarin ár hafa verið uppi
það háværar raddir um samein-
ingu samtaka hestamanna: Lands-
sambands hestamannafélaga (LH)
og Hestaíþróttasambands íslands
(HÍS) að skipuð var sex manna
nefnd til að gera drög að lögum
fyrir ný samtök.
Sigurður Magnússon var kosinn
formaður nefndarinnar en aðrir
nefndarmenn eru Haraldur Þórar-
insson, Laugardælum, Sigfús
Helgason, Akureyri, Sveinbjöm
Sveinbjömsson, Kópavogi, Friðrik
ólafsson, Hafnarfirði og Sveinbjörn
Eyjólfsson, Mosfellsbæ.
Nú í september munu nefndar-
menn kynna nýju drögin fyrir
hestamönnum og hafa í samstarfi
við hestamenn raðað niður fundum.
Fundimir hefjast allir klukkan
18.00, nema fundur á ísafirði sem
hefst klukkan 20.30, og verða
haldnir á eftirtöldum stöðum:
17. september verður haldinn
fundur fyrir Óðin, Neista, Snar-
fara, Þyt, Blakk, Léttfeta, Stíg-
anda, Svaða og Glæsi í Varmahlíð
í Skagafirði.
18. september verður haldinn
fundur fýrir Grana, Þjálfa, Feyki
og Snæfaxa i Félagsheimili Grana
á Húsavík.
19. september verður haldinn
fundur fyrir Freyfaxa, Blæ,
Geisla, Goða og Glófaxa í Hótel
Valaskjálf á Egilsstöðum.
20. september verður haldinn
fundur fyrir Homfirðing, Sindra
og Kóp í Hrollaugsstaðaskóla í
Suðursveit.
25. september verður haldinn
fundur fyrir Geysi, Háfeta, Ljúf,
Sleipni, Smára, Trausta og Loga í
Félagsheimilinu Hliöskjálf á Sel-
fossi.
26. september verður haldinn
fundur fyrir Mána, Gust, Sóta,
Sörla og Andvara í Félagsheimil
Gusts í Kópavogi.
30. september verður haldinn
fundur fyrir Fák og Hörð í Félags-
heimili Fáks í Reykjavík.
í ársþingum LH í október og
HÍS í febrúar verður tekin afstaða
til þessara nýju hugmynda um
sameiningu. -EJ
Hröð framvinda í hrossarækt
- segir Kristinn Hugason
Öllum kynbótahrossadómum er
lokið á þessu ári. Mörg glæsileg
hross vora sýnd og virðist hrossa-
stofninn vera að styrkjast.
Galsi frá Sauðárkróki fékk hæstu
aðaleinkunn kynbótahrossa á ár-
inu, 8,44, en Kórína frá Tjarnarlandi
kemur næst með 8,43.
Randalín frá Torfastöðum fékk
hæstu byggingareinkunnina, 8,40,
og Frami frá Ragnheiðarstööum 8,36
í öðru sæti.
Galsi frá Sauðárkróki fékk einnig
hæstu hæfileikaeinkunnina, 9,01, en
Lukka frá Víðidal er í öðm sæti
með 8,95.
„Ég er sáttur við útkomu dóma,
það er greinilega hröð framvinda
í hrossaræktinni," segir Kristinn
Hugason hrossaræktarráðu-
nautur.
„Árið 1994 vora sýnd 1.806
kynbótahross á íslandi, 1.295 árið
1995 og 1.503 árið 1996.
Ég er þokkalega ánægður
með þátttökuna,
er hrossaræktin gróskumest um
þessar mundir og útkoman lang-
best.
Ég vil skora á Norðlendinga að
sýna fleiri hross á næstu árum því
sýningarhald er mælikvarði á rækt-
unarstarfið.
Ræktunin á Austurlandi stendur
á gömlum merg og þar var mjög góð
útkoma á Héraði. Að vísu era það fá
hross sýnd að einstaka topphross
geta skekkt myndina.
Á næsta ári verður fjórðungsmót
á Vesturlandi og skora ég á
Vestlendinga að taka dag-
inn snemma. Mjög góðir
stóðhestar hafa verið
notaðir á
gangar fjögurra og fimm vetra
gripa.
Að lokum við ég segja að ég er
bjartsýnn á framhaldið. Ræktunar-
menn verða að vera vakandi í fram-
tíðinni og herða kröfumar við úr-
valið til að framleiða gæðahross,"
segir Kristinn Hugason.
Hér er listi yfir fimm hæst
dæmdu kynbótahrossin í hverjum
flokki en auk þeirra vora dæmd
nokkur kynbótahross fyrir af-
kvæmi.
Angi frá Laugarvatni fékk 129
stig fyrir afkvæmi sín og heið-
ursverðlaun á Fjórðungsmótinu á
Hellu (FM) og þeir Orri frá Þúfu og
Piltur frá Sperðli 1. verðlaun. Orri
var með 139 stig og Piltur 123 stig.
Platon frá Sauðárkróki fékk 119 stig
og 2. verðlaun.
Glíma frá Laugarvatni og Brana
frá Kirkjubæ fengu heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi á FM og fékk Glíma
126 stig og Brana 124 stig.
Gola frá Brekkum og Perla frá
Kjartansstöðum fengu 119 stig og 1.
verðlaun fyrir afkvæmi á FM, Blíða
frá Gerðum og Dúna frá Stóra-Hofi
fengu 118 stig, Gyðja frá Gerðum 117
stig og Blíöa frá Kálfholti 116 stig.
E.J.
sérstak-
lega á
Suður-
landi
en þar
Vesturlandi og
þar ættu að
koma fram
góðir ár-
Reykur ekki seldur enn
„Reykur er ekki seldur enn,“ seg-
ir Kristinn Guðnason í Skarði, einn
stjórnarmanna Hrossaræktarsam-
Enn sömu
Þýskalandsmeistarar
Á næsta sumri verður heims-
meistaramót í hestaíþróttum haldiö
í Seljord í Noregi. Margir hesta-
menn á íslandi eru famir að skipu-
' leggja sumarfrí í tengslum við mót-
ið.
Yfirleitt hafa Þjóðverjar verið
meistara 1996 því þar er eflaust að
finna þá knapa og hesta sem verða í
þýska landsliðinu sumarið 1997.
Endymýjun er ekki hröð í hesta-
íþróttageiranum í Þýskalandi sem
sést á því að Wolfgang Berg, Jolly
Schrenk og Walter Feldmann era
bands Suðurlands.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að Hrossaræktarsambandið hafi
selt Andreas Trappe Reyk frá Hof-
túnum en sú sala er ekki í höfn.
„Vissulega er Reykur til sölu en
við seljum ekki nema við fáum gott
tilboð. Tískan er hörð og þó Reykur
sé afbragðshestur í góðu formi er
hann ekki vinsæll. Andreas Trappe
hefur skoðað hestinn og við sömd-
um um að fá Galsa á Sauðárkróki til
afnota en lengra ná þau viðskipti
ekki.
Einnig kemur til greina að selja
okkar hlut í Kólfi frá Kjamholtum
en Hrossaræktarsambandið á 50%
hlut í honum með Magnúsi Einars-
syni í Kjamholtum," segir Kristinn.
Sunnudaginn 22. september næst-
komandi verður haldinn fundur Fé-
lags hrossabænda í Ámes- og Rang-
árvallasýslum og Hrossaræktarsam-
bandi Suðurlands og verða stofiiuð
ein heildarscuntök fyrir fjórðung-
inn.
E.J.
álitnir aðalandstæðingar íslenska enn í efstu sætunum eins og mörg landsliösins. Það er því ekki úr vegi undanfarin ár. að kikja á lista yfir Þýskalands-
Grein Meistari Hestur
Tölt Wolfgang Berg Blettur
4 gangur Jolly Schrenk Ófeigur
5 gangur Walter Feldmann Valur
Slaktaumatölt Walter Feldm. Valur
Gæöingask. J. Fúchtenschn. Bjarmi
150 metra skeiö Horst Klingh. Svalur
250 m skeiö Lothar Schenzel Gammur
Hlýönikeppni Jolly Schrenk Ófeigur
GRUNNSTIG ÍSÍ
Fræöslunefnd ÍSÍ heldur námskeiö á
prunnstigi ÍSÍ 20. - 22. september nk. í
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Grunnstig ÍSÍ er undirstöðumenntun fyrir
leiðbeinendur barna og unglinga.
Námskeiðið er 26 kennslustundir og er
námskeiðsgjald kr. 6.000.
Matur og námskeiðsgögn eru innifalin, auk
gistingar á Sport Hótel ISÍ ef þörf krefur.
Þátttöku skal tilkynna í síðasta lagi
18. september til fræðslustjóra ÍSI sem
einnig veitir nánari upplýsingar (sími 581
3377, fax 588 8848).
Fræöslunefnd ÍSÍ
6 vetra stóðhestar
Nafn og fæöingarstaöur Bygging Hæfileikar Aöaleinkunn Sýningarstaöur
Galsi frá Sauöárkróki 7,87 9,01 8,44 Gunnarsh.
Hlekkur frá Hofi 7,98 8,84 8,41 Vindh.
Logi frá Skaröi 8,23 8,55 8,40 FM
Jór frá Kjartansstöðum 8,14 8,57 8,35 FM
Vikingur frá Voðmúla 8,12 8,59 8,35 FM
5 vetra stéðhestar
Frami frá Ragnheiðarstööum 8,36 8,12 8,24 FM
Kormákur frá Flugumýri 8,19 8,30 8,24 Gunnarsh.
Goöi frá Prestsbakka 7,93 8,43 8,18 FM
Skinfaxi frá Póreyjarnúpi 7,97 8,37 8,17 Hella
Valberg frá Arnarstöðum 8,21 8,12 8,16 Gunnarsh.
4 vetra stóðhestar
Hamur frá Þóroddsstööum 8,26 8,21 8,23 Hella
Eiöur frá Oddhóli 8,18 8,15 8,16 FM
Roöi frá Múla 8,10 8,03 8,07 FM
Skorri frá Gunnarsholti 8,08 7,95 8,02 FM
Fengur frá íbishóli 7,95 8,03 7,99 Vindh.
6 vetra hryssur
Kórina frá Tjarnarlandi 8,25 8,61 8,43 FM
Eydís frá Meðalfelli 7,91 8,93 8,42 Hella
Randalín frá Torfastööum 8,40 8,39 8,39 FM
Lukka frá Víöidal 7,81 8,95 8,38 Víðidalur
Eva frá Kirkubæ 8,11 8,53 8,32 FM
5 vetra hryssur
Píöa frá Hólum 8,31 8,25 8,28 Vindh.
Þöll frá Vorsabæ 8,21 8,17 8,19 FM
Hera frá Herríöarhóli 8,20 8,16 8,18 Vindh.
Elding frá Víöidal 7,89 8,47 8,18 FM
Þröm frá Hólum 7,97 8,37 8,17 Vindh.
4 vetra hryssur
Vigdís frá Feti 8,11 8,15 8,13 FM
Hrafntinna frá Sæfelli 8,16 8,07 8,12 FM
Eva frá Ásmundarstööum 8,04 8,16 8,10 FM
Fluga frá Kolluleiru 7,79 8,37 8,08 Hella
Vænting frá Stóra-Hofi 7,94 8,16 8,05 FM