Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Síða 8
24 télvur
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 |jV
Strengur hf.:
Þýðir nýjan viðskiptahugbúnað
- fyrsta kerfið sem er viðurkennt fyrir Windows 95
Fjölnir stærstur hingað til
Hingað til hefur viðskiptahug-
búnaðarkerfið Fjölnir verið aðal-
söluvara Strengs. Að
sögn Jóns Heiðars
Pálssonar, markaðs-
stjóra hjá Streng,
hafa um 1.200
fyrirtæki
keypt þann
hugbúnað.
Auk þessa
Strenaur
hf. nefur
framleitt
huqbúnað
fyrir allan
atvinnu-
rekstur
en hug-
búnaður
fyrirtæk-
isins hef-
ur sérstak-
lega veriö
notaður í
verslun og
þjónustu.
Fyrirtækið Strengur hefur selt
viðskiptakerfið Fjölni í nokkur ár.
Nokkur tímamót eru nú hjá fyrir-
tækinu þar sem það er flutt í nýtt
húsnæði að Ármúla 7 en með nýja
húsnæðinu breytist starfsemi fyrir-
tækisins verulega og mun starfs-
mönnum fjölga umtalsvert.
hefur fyrirtækið verið með In-
formix gagnagrunninn og Dow Jo-
nes Telerate sem er viðskiptaupp-
lýsingakerfi frá hinu kunna banda-
ríska fjármálafyrirtæki Dow Jones.
Síðast má nefna Hafsjó sem er
gagnagrunnur fyrir sjávarútveginn.
Nýjasta verkefni Strengs er for-
ritið Navision Financials. Hér er
um að ræða alhliða viðskiptakerfi
sem kemur frá Navision Financials
í Danmörku. Kerfið hefur hlotið
fjölda viðurkenninga, þar á meðal
fékk það gullverðlaun í úttekt
PCuser tímaritsins. Jón segir að
Navision Financials sé fyrsta við-
skiptakerfið sem Microsoft hefur
viðurkennt
fyrir stýri-
kerfi sitt,
Windows 95.
„Það er búið
að eyða tæpum
miUjarði í þróun
þessa kerfis erlend-
is,“ segir Jón. Að
hans sögn hafa fimm
starfsmenn Strengs unnið við að
þýða kerfið í 9 mánuði og það er
búið að þýða aUt yfir á íslensku,
hvort sem um er að ræða handbæk-
ur, hjálpartexta eða megintexta í
kerfmu sjálfu. Kerfið fer í sölu í
október. Þá verða sérkerfi eins og
til dæmis launakerfi og toUakerfi
líka komin yfir á íslensku."
Fjöldi möguleika
Navision Financials býður not-
endum sínum upp á fjölda mögu-
leika en markverðast verður að telj-
ast að kerfið nýtir sér að fuUu
myndræna framsetningu Windows
95. Seljendur kerfisins segja það
gefa stórbætt yfirlit yflr afdrif skatt-
korta og tímaskráningu, tengingu
við viðskiptamanna-, lánardrottna
og fjárhagsbókhald ásamt sjálfkrafa
álagsútreikningum. Kerfið gefur
fyrirtækjum möguleika á því að
starfsmenn þeirra séu skráðir í
fleiri en eitt starf með mismunandi
launagreiðslum. Einnig heldur það
utan um afborgunarkröfur og
gefur þann
Jón Heiöar Pálsson, markaösstjóri Strengs, í nýju húsnæöi fyrirtækisins aö
Ármúla 7.
möguleika að hver starfsmaður sé
skráður I fleiri en einn lífeyrissjóð.
Söluáætlunarkerfi Navision er
hugsað sem stjórntæki fyrir stjóm-
endur og sölumenn. Sölu má áætla
eftir vörunúmerum, vörubókunar-
flokkum eða í einingum og fjárhæð-
um. Kerfið býður upp á þann mögu-
leika að áætla sölu á einstaka sölu-
menn sem má síðan bera saman við
rauntölur úr Navision. í kerfmu má
sömuleiðis gera innkaupatillögur
sem byggjast á söluáætlunum.
Bjartsýnir á framtíðina
„Okkar styrkur er að Navision
Software í Danmörku, sem fram-
leiðir Fjölni og Navision Financials,
á 20% í Streng. Það þýðir að við
erum beintengdir við það sem er að
gerast hjá framleiðsluaðilanum er-
lendis." Jón segir líka að það hafi
gengið vel hjá fyrirtækinu undan-
farin ár. „Við höfum verið að selja
um 150 eintök af fjölni á hverju ári,
við erum líka bjartsýnir á að
Navision Financials slái í gegn þar
sem hugbúnaðurinn hefur fengið
viðurkenningu fyrir Windows 95.
Því geta notendur nýtt sér beinteng-
ingu við forrit frá Microsoft eins og
Word og Excel. Ef þú kannt á þessi
forrit þá kanntu á Navision Fin-
ancials," segir Jón að lokum.
Nýjasta nýtt:
Leikir með
hugarorku
- gefa fötluðum góða möguleika
í mörgum framtíðarmyndum
og vísindaskáldsögum leika
menn sér með hugmyndina að
geta stjórnað flóknum aðgerðum
með hugarorkunni einni saman.
Nú hillir undir að þetta veröi
veruleiki.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið og bandaríska geimferða-
stofnunin hefur lengi staðið að
þróun búnaðar sem gerir flug-
mönnum kleift að stýra þotum
með heilabylgjum. Nú er þessi
tækni komin yfir í skemmtana-
iðnaðinn. Ron Gordon, sem
samdi hinn fomfræga tölvuleik
Pong á áttunda áratugnum fyrir
Atari, stjómar nú fyrirtækinu
The Other 90%. Nafn fyrirtækis-
ins vísar til frægra ummæla Al-
berts Einsteins að venjulega not-
uðu menn einungis 10 prósent af
heilaorku sinni. Nýjasta nýtt frá
fyrirtækinu er skynjari sem er
festur á fingur notandans. Hann
nemur rafboö frá hörundi en þau
spretta frá hugsunum manna.
Boðin eru svo send í kassa þar
sem sérstakur hugbúnaður vinn-
ur úr boðunum. Kassinn er svo
tengdur í venjulega einkatölvu.
Með þessari tækni er til dæmis
hægt að stýra skíðamanni niður
brekku.
Margir möguleikar
The Other 90% hefur þegar
sett á markaðinn vélbúnaðinn
sem til þarf og tíu leiki þar sem
hugsanir eru notaðar til þess að
stjórna leiknum. Einnig er fyrir-
tækið í samstarfi við Walt Disn-
ey fyrirtækið Miramax um þró-
un stuttmynda þar sem áhorfend-
ur geta ráðið söguþræöinum með
hugsunum sínum. Búist er við að
fyrsta myndin verði komin á
Intemetið snemma á næsta ári.
Hugsað fyrir fjölfatl-
aða
Það er hægt að gera meira við
þessar græjur en leika sér að
þeim. Samtök ijölfatlaðra í
Bandaríkjunum líta þessa nýju
tækni hýru auga. Hún gæti verið
himnasending fyrir þá sem geta
ekki hreyft útlimi sína og gætu
þeir notað búnaðinn sér til af-
þreyingar eða til annarra nota.
Þeimi hugmynd hefur til dæmis
verið fleygt að hægt verði að
stýra hjólastólum með hugsun-
um einum saman.
-JHÞ/Reuter
■■■■■■
Japis:
Mest ánersla á
Sega Saturn
- berum ábyrgð gagnvart viðskiptavinum, segir Guðný D. Valsdóttir
Japis selur Sega Megadrive sem
eru 16 bita leikjatölvur og Sega Sa-
tum sem era ný kynslóð 32 bita
leikjatölva. Það má segja aö yngri
notendurnir hneigist frekar að Sega
Megadrive en þeir eldri, fólk á ferm-
ingaraldri og upp úr kjósi frekar
hina tæknilega fullkomnu Sega Sa-
turn.
Leikir eins og í spila-
kössum
Japanski tölvurisinn Sega fram-
leiðir meira en leikjatölvur fyrir
heimili. Fyrirtækið er einnig ríkj-
andi fyrirtæki á spilakassamarkað-
inum. Leikir sem fyrirtækið gerir
fyrir spilakassa era jafnharðan
fluttir yfir á leikjatölvumar sem
eru seldar fyrir heimilin. Guðný D.
Valsdóttir hjá Japis segir að þetta sé
helsti styrkleikur Sega Satum tölv-
unnar. „Sega Rally, Daytona USA,
Mortal Kombat leikimir og Virtual
Fighter hafa verið mjög vinsælir
enda eru þetta góðir leikir sem ís-
lendingar þekkja úr spilakössun-
um,“ segir Guðný. Hún leggur
áherslu á að margt sé á döfinni fyr-
ir Sega Satum. „Stóru fyrirtækin,
sem framleiða leiki fyrir PC- tölvur,
eru farin að framleiða leiki fyrir
Sega Satiu-n. Þar má nefna leiki
eins og Theme Park, Sim City 2000
og Myst,“ segir hún enn fremur.
Ekkert vesen
Aö sögn Guðnýjar er annar styrk-
ur Saturn tölvunnar sá aö vanda-
laust sé fyrir hinn almenna notanda
að nota hana. „Maður setur bara
geisladiskinn í drifið og byrjar. Við
eigum von á því að hægt verði að
tengja Satum við Intemetið von
bráðar og þá stækkar sennilega not-
endahópur hennar veralega. Nú er
þegar hægt að kaupa aukabúnað í
tölvuna sem gerir fólki kleift að
horfa á kvikmyndir af geisladiskum
og breyta ljósmyndum. Einnig er
hægt að kaupa sérstök stýri fýrir
rallí- leiki og byssu sem nota má í
skotleikjum," segir Guðný.
Sumt ekki fyrir börn
Það er eftirtektarvert að í verslun
Japis er sérstakur merkimiði við þá
leiki sem ekki eru taldir við hæfi
bama. Guðný segir að það sé stefna
fyrirtækisins að þaö beri ábyrgð
gagnvart ungum viðskiptavinum.
„Við útskýrum fyrir fólki þegar það
er að kaupa ofbeldisleiki að margir
þeirra séu bannaðir börnum. Oft
fáum við þau svör að þetta sé ein-
faldlega það sem böm þeirra vilji.
Annars held ég að umi-æða um
tölvuleiki sé of neikvæð, margir
þessara leikja eru bráðsniðugir og
þroskandi."
-JHÞ/DV-mynd Svenni
Paö er hægt að gleyma sér yfir spennandi tölvuleikjum í Sega Saturn. Leik-
urinn, sem er spilaður þarna, heitir Virtual Fighter og sá sem lætur rafknúin
illmennin kenna duglega á því heitir Svavar Sverrir Svavarsson.