Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
Viðskipti
Starfsmenn KR-þjónustunnar.
KR-þjónustan
á Hvolsvelli
KR-þjónustan nefnist nýtt fyr-
irtæki á gömlum grunni á Hvols-
velli sem er að gera góða hluti. í
sumar keyptu Smári Jósafatsson
og Magnús Halldórsson fyrirtæk-
in Vélsmiðju KR, Bílalager KR og
Bílaverkstæði KR af Kaupfélagi
Árnesinga og sameinuðu þau
undir nafni KR- þjónustunnar.
Nýir eigendur hafa aukið þjón-
ustuna og fjölgað starfsmönnum
úr 11 í 15. Starfsemin er undir
sama þaki i 1.600 fermetra hús-
næði.
Landsbankinn
réttir úr
kútnum
Fyrstu átta mánuði ársins
hagnaðist Landsbankinn um 272
milljónir króna, samanborið við
177 milljóna hagnað allt árið í
fyrra. Rekstraráætlun gerir ráð
fyrir áframhaldandi hagnaði síð-
ustu fióra mánuði ársins.
í tilkynningu frá Landsbank-
anum, sem birtir milliuppgjör í
fyrsta sinn, segir að innlánsþró-
un hafi verið hagstæð. Heildar-
innlán, þ.m.t. bankabréf og
bankavíxlar, námu í lok ágúst
tæplega 77 milljörðum króna og
hafa aukist um 6,3 milljarða eða
9% frá síðustu áramótum. Lausa-
fjárstaða bankans hefur batnað
verulega á árinu.
Útlán námu 81,5 milljörðum
króna í lok ágúst og hafa lækkað
um 2,2 milljarða eða 2,6% á ár-
inu. Þess má geta að í tilefni 110
ára afmæli bankans gafst spari-
fjáreigendum kostur á að leggja
inn á sérstakan 12 mánaða spari-
reikning í júlí sl. Viðtökur voru
góðar og voru 707 miOjónir lagð-
ar inn á reikninginn.
Stóraukinn
útflutningur
Borgarplasts
Borgarplast fagnar um þessar
mundir 25 ára afmæli sínu og
hefur fyrirtækið aldrei fyn- stað-
ið í jafn miklum blóma. Megin-
starfsemin er_ framleiðsla fiski-
kera. Fyrstu átta mánuði ársins
jókst útflutningur á framleiðslu-
vörum fyrirtækisins um 170% en
flutt er út tfl 27 landa. Útflutn-
ingsverðmæti á árinu er áætlað
140 milljónir sem er tvöfóldun frá
síðasta ári.
Markaðshlutdeild Borgarplasts
i framleiðslu fiskikera hérlendis
hefur aukist úr 20% árið 1991 í
um 60% á síðasta ári. Áætlað er
að selja 16.500 ker á þessu ári.
Velta fyrirtækisins er áætluð 380
miOjónir á árinu en var rúmar
260 milljónir í fyrra. Fram-
kvæmdastjóri og aðaleigandi
Borgarplasts er Guöni Þórðarson
byggingatæknifræðingur.
ísland með 25.
bestu sam-
keppnishæfnina
ísland er í 25. sæti um sam-
keppnishæfni þjóða samkvæmt
alþjóðlegu skýrslunni „The
World Competiveness Report"
fyrir árið 1996. Árið 1995 var ís-
land einu sæti ofar á sama lista.
Hins vegar hafa efnahagsstoðir
hagkerfisins styrkst að mati
skýrsluhöfunda. ísland fer úr 24.
sæti 1995 í 17. sæti á þessu ári.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í síðustu viku á ráðstefnu á
Hótel Loftleiðum um bætta sam-
keppnisstöðu íslands. -bjb
DV
Þrettán af fimmtán stjórnarmönnum SH á vikuferðalagi í Japan.ásamt mökum:
Merkilegt að nán-
ast öll hjörðin fari
- segir Dagbjartur Einarsson útgerðarmaður og einn eigenda SH
Nær öll stjórn Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, SH, 13 af 15 fuO-
trúum, er stödd í Japan á vikuferða-
lagi ásamt forstjóra fyrirtækisins og
tveimur öðrum starfsmönnum þess.
Með í fór eru makar flestra þeirra.
Farið var utan sl. laugardag og
heimkoma ráðgerð um næstu helgi.
Mörgum þykir ferð af þessu tagi
skjóta skökku við þegar tekið er
mið af fréttum um taprekstur af
frystingunni og uppsögnum fisk-
vinnslufólks. SH greiðir ferðir og
uppihald starfsmanna og stjómar-
manna en ekki fyrir maka þeirra.
Lætur nærri að SH þurfi að kosta tO
2-3 milljónum króna vegna ferðar-
innar.
Dagbjartur
Einarsson, út-
gerðarmaður og
forstjóri Fiska-
ness í Grindavík,
er meðal félags-
manna og eig-
enda SH. Hann
hafði ekki heyrt
Dagbjartur Ein- af Japansferð.
arsson, forstjóri inni þegar DV
Fiskaness. sið a þráðinn tfl
hans.
„Mér fmnst merkOegt að nánast
öll hjörðin skuli fara. Maður hefði
haldið að það væri ekki þörf á því.
Ég held að flestir hljóti að vera sam-
mála um það. Mér finnst svona ferð
varla við hæfi og tel hana ástæðu-
lausa. Eflaust hafa þeir sérstök rök
fram að færa fyrir ferðinni, sem em
þó líklega hæpnar. MOljónunum er
ekki vel varið að þessu sinni, þeir
hefðu átt að borga þetta sjálfir,“
sagði Dagbjartur.
Engin lúxusferð
DV náði tali af Friðriki Pálssyni,
forstjóra SH, í Japan í gær. Hann
sagði ekkert óeðlOegt við þessa ferð.
Hún hefði staðið tO lengi en skrif-
stofa SH i Japan fagnaði 5 ára af-
mæli í fyrra. Gagnrýni á ferðina
væri vart svaraverð.
„Það er víðs fjarri að þetta sé ein-
hver lúxusferð. Við eram að heim-
asækja okkar við-
skiptavini, sem
eru nokkrir af
þeim stærstu hjá
SH. Helmingur
af okkar útflutn-
mánuði ársins
var til Japans.
Friörik Pálsson, Jafnframt erum
forstjóri SH. við að si?oða fisi{.
markaði og
heimsækja nokkra framleiðendur
sem vinna úr okkar fiski. Það er
mjög mikOvægt að fara svona ferð, í
raun er það óeðlOegt að hún hafi
ekki verið farin fyrr,“ sagði Friðrik.
-bjb
Stofnun dótturfyrirtækis Kaupþings í Lúxemborg tilkynnt.
Kaupþing í
Lúxemborg
Kaupþing varð fyrst íslenskra
verðbréfafjrrirtækja tO að setja á
stofn fjármálafyrirtæki í útlöndum.
Á mánudaginn var tilkynnt stofnun
dótturfyrirtækis í Lúxemborg í
samráði við Rothschild-bankann.
Fyrirtækið mun fyrst um sinn stýra
tveimur sjóðum, annars vegar al-
þjóðlegum skuldabréfasjóði og hins
vegar alþjóðlegum hlutabréfasjóði.
Rotschild verður vörsluaðOi sjóð-
anna. Markmið Kaupþings er að
fylgja eftir árangri í rekstri sjóða er-
lendis, bjóða íslenskum fjárfestum
upp á nýja valkosti og fá útlendinga
tO þess að kaupa verðbréf í íslensk-
um krónum. Sigurður Einarsson,
aðstoðarforstjóri Kaupþings, er
lengst tO hægri á myndinni til
hliðar. Síðan koma Olivier d’Auriel,
aðalbankastjóri Rothschild, Guð-
mundur Hauksson, stjórnarformað-
ur Kaupþings, og Anne de la VaUeé,
bankastjóri og varaforseti banka-
stjórnar RothschOd i Lúxemborg.
300 milljóna viðskipti
Hlutabréfaviðskipti í gegnum
Verðbréfaþing og Opna tilboðs-
markaðinn í síðustu viku námu
tæpum 300 milljónum króna. Lang-
mestu viðskiptin voru með bréf
Plastprents eða fyrir 118 mOljónir.
Næst komu Eimskipsbréfin með ríf-
lega 20 mOljóna viðskipti og hluta-
bréf fyrir 19,5 milljónir skiptu um
eigendur í SÍF.
Þingvísitala hlutabréfa náði sögu-
legu hámarki sl. fóstudag þegar hún
fór 1 2189 stig. Munaði þar nokkru
um hækkun hlutabréfa í fyrirtækj-
um eins og Flugleiðum, Haraldi
Böðvarssyni og SOdarvinnslunni.
Núna á mánudaginn varð hins veg-
ar lækkun í Flugleiðum úr 3,15 í
3,00 og þingvísitalan fór niður í 2180
stig.
Álverð á heimsmarkaði hækkaði
lítiflega í síðustu viku en lækkaði
aftur á ný eftir helgi. Staðgreiðslu-
verðið var komið niður í 1334 doll-
ara tonnið þegar viðskipti hófust í
London í gærmorgun. Lægra verð
hefur ekki sést síðan í júli 1994. Eft-
irspurn er lítO um þessar mundir og
búist er við frekari verðlækkunum,
niður í 1310-1320 doUara.
Dolfar og pund hækka
DoUar og pund halda áfram að
hækka í verði. Sölugengi pundsins
var komið í 105,30 krónur í gær-
morgun sem er um 2% hækkun frá
byrjun september. Sölugengi doUars
var 67,30 krónur í gærmorgun.
Mark og jen hafa lítið breyst að und-
anfomu.
Upplýsingar um skipa- og gáma-
sölu erlendis höfðu ekki borist frá
Aflamiðlun LÍÚ þegar þetta var rit-
að í gær. -bjb
Olís
Þingvísit hlutabr.
2100
2050
Þingvísit. húsbr.
157
156
155
154
15