Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
7
DV Sandkorn
Ekki í sömu
í Víkurblað-
inu á Húsa-
vík sagði af
því að þær
kjaftasögur
hefðu verið
lífseigar i S-
Þingeyjar-
sýslu að séra
Sigurður Æg-
isson á
Grenjaðar-
stað hefði
haldið við
Önnu Gerði
Guðmunds-
dóttur, eiginkonu sveitunga síns,
vinar og frænda Bjarna Höskulds-
sonar frá Aðalbóli. „Sú staðreynd
að séra Sigurður er nýskilinn við
konu sina gaf fiskisögunni auðvit-
að byr undir báða vængi,“ segir
Vikurblaðið. Sigurður og Anna
brugðust hins vegar þannig við að
þau sendu Víkurblaöinu yfirlýs-
ingu um þessar sakir og hljóðaði
hún þannig:
Að færa allt á versta væng,
er veiki sumra manna.
Við deilum ekki sömu sæng,
- Sigurður og Anna.
prestur
Sigurður
mun hins
vegar að sögn
Vikurblaðs-
ins hafa feng-
iö þá bak-
þanka að
þessu loknu
að nú myndu
kjaftaskamir
bara búa til
þá sögu að í
stað þess að
hann hefði
haldið við
Önnu þá
hefði hann hins vegar örugglega
átt í harla nánu sambandi við
Bjama vin sinn. Sem sé, lögga og
prestur á föstu. Og þá sendi Sig-
urður bara aðra yfirlýsingu:
En ástin milli vina vex,
þó von sé ekki á bami.
Við eigum gjaman saman sex,
- Sigurður og Bjami.
Litlir hátalarar
BæjarfuUtrú-
ar á Húsavík
ku hafa
„sungið hátt“
er þeir
ræddu á bæj-
arstjómar-
fundi rnn nið-
urskurð
menntamála-
ráðuneytisins
til framhalds-
skólans á
Húsavik og
var ekki far-
ið með háif-
kveðnar vísur á þeim fundi. Vik-
urbláðið segir frá þvi að einn
bæjarfulltrúanna hafi sagst hafa
fengið sig fullsaddan á aö standa
í vamarbaráttu og endalausum
slagsmálum við einhverja Papp-
irs-Pésa að sunnan. Ekki væru
þingmenn kjördæmisins betri,
þeir kæmu hingað annaö slagið
vesælir og vælandi eins og litlir
hátalarar. - Þeir kunna enn að
koma fyrir sig orði Þingeyingam-
ir, ekki satt?
Biðin langa
Er ekki best
að enda
þetta í vest-
urbænum í
Reykjavík?
Þar ku nú
ríkja þjóðar-
sorg eftir
ósigurinn á
Skaganum á
sunnudaginn
og enn mega
KR-ingar
bæta við ári
eða áram í
biðinni eftir
íslandsmeistaratitlinum. Titilinn
hafa KR-ingar ekki unnið síðan
skömmu eftir miðja öldina en þá
var Ásgeir Ásgeirsson forseti Is-
lands. Gárangamir svokölluðu
hafa haft á orði að það sé einn
hlutur sem KR-ingar verði að
koma i gegn ef þeir ætli sér titil-
inn að nýju. Hann sé sá að aftur
verði fariö að leika með reimuð-
um T-bolta í íslandsmótinu eins
og gert var þegar Vesturbæjarlið-
ið vann titilinn fyrir 28 árum.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson.
Lögga og
sæng
Fréttir
Fiskiðjan Freyja á Suðureyri:
Þorskur ætti helst ekki
að koma á land til vinnslu
Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Freyju hf. á Suðureyri.
DV-mynd BG
DV, Suðureyri:
„Því er ekki að leyna að staðan er
snúin. Þetta er erfltt og hundleiðin-
legt við að eiga. Fiskvinnslan er erf-
ið og þar er sérstaklega tiltekinn
þorskur, aðrar tegundir sleppa.
Þorskur er eitthvert fyrirbæri sem
helst ætti ekki að koma á land til
vinnslu á íslandi," segir Óðinn
Gestsson, framkvæmdastjóri Fisk-
iðjunnar Freyju hf. á Suðureyri, um
landvinnslu á fiski.
Freyja er langstærsta fyrirtæki
Súgfirðinga og þar starfa um 40
manns. Óðinn segir að rekstur fyrir-
tækisins hafi verið í jámum undan-
farin ár en hafi þó sloppið fyrir
hom. Nú sé þó dekkra framundan í
frystingu á þorski en verið hafi
áður. Hann segir fyrirtækið ekki
eiga möguleika á að breyta vinnslu
frá frystingu yfir í söltun.
„Það er sjálfsagt mögulegt aö
snúa þessum rekstri úr tapi með
söltun á þorski. Við erum bara ekki
útbúnir í það og það myndi kosta
okkur fjárfestingar. Þá býður fisk-
stærð á Vestfjarðamiðum ekki upp
á þessa vinnslu," segir Óðinn.
Hann segir næstu framtíð heldur
óljósa þar sem ekki hafi verið út-
kljáð fiskverð og ljóst að ná verði
fram lækkun eigi vinnslan að eiga
möguleika á því að vinna þorsk án
stórtaps.
„Við getuni greitt 65 krónur á
hvert kíló. Við erum að keppa við
það að kvótinn einn selst á 90 til 100
krónur þannig að menn geta séð við
hvað við erum að keppa. Ég get bent
á að fiskverð í Noregi er þannig að
þorskverð er ef miðaö er við fyrsta
flokks fisk, á bilinu 1,1 kíló til 2,6
kíló, 60,54 kr. Verð á ýsu þar er 58,17
krónur. Hér erum við að tala um
þorsk á 64 krónur, óslægðan, og ýsu
á 65 krónur, óslægða,“ segir Óðinn.
„Það hefur verið hagnaður af
rekstrinum síðustu tvö ár en í fyrra
var reksturinn mjög lélegur. Fyrstu
5 mánuði þessa árs var þetta betra
en við fórum í ákveðinn fiskverðs-
slag og það kom strax fram í reikn-
ingum. í heildina held ég að staðan
sé mjög svipuð og hjá öðrum fyrir-
tækjum á Vestfjörðum, hvorki verri
né betri," segir Óðinn. -rt
Grunnskólinn á Flateyri býr yfir öflugum tölvukosti. Hér er Björn Hafberg skolastjóri ásamt nemendum 6. bekkjar
sem eru aö æfa fingrasetningu. DV-mynd BG
Grunnskólinn á Flateyri:
Hefur yfir aö ráöa
öflugu tölvuveri
DV, Flateyri:
„Við höfum verið að byggja upp á
seinustu tveimur árum öflugt tölvu-
ver. Við erum í dag mjög sátt og
ánægð með þessa tæknivæðingu,"
segir Bjöm Hafherg, skólastjóri
Grunnskólans á Flateyri.
1 skólanum er mikið byggt á tölvu-
kennslu og segir Björn að börnum
allt niður í 4. bekk sé kennt að vinna
á tölvur.
„Krakkarnir gera sér vel grein fyr-
ir hversu mikilvægt það er upp á
framtíðina að tileinka sér þessa
tækni og þeir eru mjög áhugasamir
um þetta nám. Að auku gefa tölvurn-
ar okkur möguleika á samskiptum
um Intemet við aðra skóla,“ segir
hann.
Bjöm segir tölvumar að miklu
leyti keyptar fyrir gjafafé en að auki
hafi sveitarfélagið lagt fram fjármagn
til kaupanna. Hann segir ætlunina að
útfæra tölvunámið og gefa Flateyr-
ingum á öllum aldri kost á að læra á
tölvur.
„Það hefur verið ákveðið að bjóða
aðstöðuna hér og tölvukostinn end-
urgjaldslaust til að halda námskeið
hér í vetur. Þar með gefst fólki kost-
ur á því að læra á tölvurnar gegn
vægu gjaldi," segir Björn Hafberg.-rt
Guðni Einarsson:
Alltaf
eitthvaö til
bjargar
DV, Suðureyri:
„Eg hef enga trú á að þessar
breytingar verði til þess að út-
gerð smábáta héðan leggist af
eða stórminnki. Þeir sem ætla að
hætta eru þegar hættir og það
eru aöeins tveir bátar,“ segir
Guðni Einarsson, skipstjóri og
eigandi Hrannar ÍS, sem er með
4. stærsta kvóta smábáta yfir
landið. Á Suðureyri hefur útgerð
smábáta blómstrað á undanförn-
um árum og Guðni segir að svo
verði vafalaust áfram.
„Það er alltaf eitthvað sem
verður til bjargar og útgerð smá-
báta mun áfram blómstra héðan.
Ég get nefrit sem dæmi að hér
mokveiddist ýsa í sumar. Við
prófuðum að beita loönu og feng-
um hreina ýsu sem mjög hag-
kvæmt er að veiða. Einn róður-
inn fengum við 2.500 kíló af ýsu
og 12 kíló af þorski. Það er
hvergi betra að gera út smábáta
og þessi útgerð mun verða héðan
áfram,“ segir Guðni. -rt
Guöni Einarsson skipstjóri
DV-mynd BG
STÓRA SKRIÐDÝRASÝNINGIN
Lifandi
hitabeltisdýr
Risasnákar
Eitursnákar
Eðlur
Skjaldbökur
Sporðdrekar - kóngulær
o.s.frv. ^
Hitabeltisfiðrildi ^e//^r,á
Upplýsingar gefur Gula línan - sími 562-6262 í hundraðatali
Tropical Zoo í heimsókn
JL-Húsið v/Hringbraut
2. hæð, 1000 m2 sýningarsalur
5. okt. - 27. okt.
Opið virka daga kl. 12-20;
laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-19