Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
9
r
Danska skóla-
kerfið er að
hruni komið
DV, Kaupmannahöfn:
Ríkisreknu skólamir í Dan-
raörku hafa legiö undir ámæli
lengi. Hver rannsóknin á fætur
annarri sýnir að lestrarkunn-
átta danskra barna er með því
lakasta sem gerist og sérfræð-
ingar segja að kröfurnar sem
gerðar eru til nemenda séu allt
of litlar.
Þetta hefur orðiö til þess að í
ár eru 13 prósent danskra barna
í einkaskólum og ástæðan fyrir
því að þau eru ekki fleiri er að
framboðið er langt undir eftir-
spurn. Flestir einkaskólarnir eru
fullbókaðir fram á næstu öld.
„Það eru duglegu nemendurn-
ir sem em sendir í einkaskóla
og það eykur enn á vandræði
ríkisreknu skólanna. En ég skil
vel foreldra sem finnst ekki
nægar kröfur gerðar i ríkisskól-
unum, sem drepa niður áhuga
barnanna,“ segir Vagn Rabol
Hansen hjá uppeldisstofnun
Danmerkur. -pj
Meintur
raðmorðingi
í haldi
Lögreglan í Eistlandi skýrði
frá þvi í gær að hún hefði í haldi
mann sem væri grunaður um að
vera raðmorðinginn sem hefði
haldið bænum Narva í helgreip-
um sínum.
Fjórar konur hafa verið
drepnar og ein særð lífshættu-
lega í árásum í borginni undan-
farinn mánuð. Maðurinn sem er
í haldi er 21 árs atvinnuleysingi.
Reuter
New Yorkbúar
að missa vitið
vegna hávaða
íbúar í New York þola ekki
lengur hávaða. Lögreglan fær
stöðugar kvartanir um hávaða í
símanúmer sem var opnað í til-
efhi herferðar gegn betli, vændi
og drykkju á almannafæri. Yfir
40 prósent þeirra sem hringja
kvarta undan hávaða af um-
ferðinni, viðvörunarkerfum í
bílum og háværri tónlist. Alls
hefur hátt á þrettánda hundrað
hringt frá því númerið var opn-
að fyrir tveimur vikum. 545
hafa kvartað undan hávaða, 79
undan betli, 54 undan vændis-
konum og jafnmargir undan
drykkju.
Vill veita lög-
reglu meiri
völd
Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, lof-
aði í gær í þingræðu að lögregl-
an fengi
meiri völd í
baráttunni
gegn vél-
hjólagengj-
um og eit-
urlyfjasöl-
um. Reyndi
forsætis-
ráðherrann
að róa þjóð
sína sem er óttaslegin vegna
aukinna glæpa. Sex manns hafa
látið lífið síðastliðin tvö ár í
blóðugum átökum vélhjóla-
gengja. Rasmussen vill að
meintir eiturlyfjasalar verði
sjálfir látnir sanna að þeir hafi
unnið fyrir peningum sínum á
heiðarlegan hátt. Hann vill
einnig veita lögreglunni heim-
ild til símahlerunar og húsleit-
ar án úrskurðar dómstóla. Talið
er víst að tillögur forsætisráð-
herrans mæti andstöðu þing-
manna og lögmanna.
í mál vegna
skurðaðgerðar
eftir megrun
Kona í New York, sem létti
sig úr 136 kílóum í 68 með
breyttu mataræði og stífri lík-
amsrækt, hefur farið í mál við
fyrirtækið sem sér um sjúkra-
tryggingar hennar. Trygginga-
félagið vildi ekki greiöa fyrir
skurðaðgerð sem konan gekkst
imdir til að láta fjarlægja auka-
húð á lærunum. Konan fór i að-
gerðina fyrir tveimur árum,
sem var fimm árum eftir megr-
unina, og kostaði hún 25 þús-
und dollara. Skurðaðgerðin var
talin nauðsynleg þar sem konan
gat ekki þrifið sig almennilega
né stundað eðlilegt kynlíf vegna
húðfellinganna. Reuter
Lögfræðingur Dutroux vill að dómarinn víki:
Dómari borgaði
ekki fýrir pastað
Lögfræðingur belgíska bamaníð-
ingsins Marcs Dutroux hefur krafist
þess að rannsóknardómarinn sem
fer með málið verði látinn víkja.
Julien Pierre lögfræðingur segir
að Jean-Marc Connerotte dómari
verði að víkja þar sem hann sé hlut-
drægur. Fullyrðingar sínar byggir
hann á því að dómarinn hafi ekki
greitt fyrir málsverð sem stuðnings-
hópur týndra og myrtra bama bauð
honum til.
„Þetta er enn eitt dæmi um
hvernig dómskerfinu er haldið í
gíslingu vegna misnotkunar þeirra
lagalegu ráða sem verjendur geta
gripið til,“ sagði Jean-Pierre Mal-
mendier úr stuðningshópi sem
kenndur er við tvö börn sem vora
myrt í lok síðasta áratugar. „Er
ekki mikilvægara að veita fómar-
lömbunum einhver réttindi?"
spurði hann belgíska fjölmiðla.
Malmendier féllst á að Conner-
otte og Michel Bourlet saksóknari
hefðu ekki greitt fyrir pastamáltíð
þann 21. september síðastliðinn en
hann visaði á bug fullyrðingum lög-
fræðingsins um að þeir hefðu látið
fé af hendi rakna í sjóð fyrir bömin.
Dagblöð sögðu að Connerotte og
Bourlet hefðu fengið mikinn stuðn-
ing frá almenningi. Lögfræðingur-
inn Pierre, sem tók málið að sér eft-
ir að fjölmargir starfsbræður höfðu
hafnað því, hefur fengið margar
símahótanir fyrir vikið.
Mikinn óhug setti að belgísku
þjóðinni þegar upp komst um
barnarán, nauðganir og morð
dæmda barnaníðingsins Dutroux og
félaga. Reuter
Ræða Tony
Blair fær
mikið lof
Tony Blair, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, fékk næstum einróma lof
breskra fjölmiðla í morgun eftir
þmmuræðu sem hann hélt á þingi
flokks síns í gær.
Blair lofaði að bæta menntun,
draga úr atvinnuleysi ungs fólks um
helming, gera opinberan rekstur
skilvirkari og gera sambandið við
Evrópusambandið uppbyggilegra.
Dagblaðið Daily Telegraph, sem
er hliðhollt íhaldsflokknum, var
eina blaðið sem gagnrýndi eitthvað
að ráði innihald ræðu leiðtoga
Verkamannaflokksins. Reuter
Fyrirsæta þessi tók þátt í sýningu á vor- og sumarlínu tískuhönnuöarins
Prada í Mílanó á Ítalíu í gær en Prada þykir hafa endurskapaö hina nýju konu
með klæönaöi sínum að þessu sinni. Símamynd Reuter
VELDU ÞÆGILEGR
GREIÐSLUMÁT
GREIDDU ÁSKRIFTINA
ATH, AÍHt m gtGik úárífíargjöldin tiú þgor mi) taiagraitá
um ok boúgroiðslm oru sjáímrofa i pottí glmlkgra vínníngal