Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
Fréttir
n>v
Skinnaiðnaður hf. á Akureyri:
Tæplega 40 milljóna
króna hagnaður
- fyrstu 6 mánuði ársins
Fisk-
verkafólk
með ráð-
stefnu
DV, Akureyri:
Málefni fiskverkafólks verða
til umræðu á ráðstefnu sem
haldin verður á Hótel íslandi
n.k. laugardag, en það er fisk-
vinnsludeild Verkamannasam-
bands íslands sem stendur að
ráðstefnunni.
Á dagskrá eru umræður um
mörg helstu baráttu fiskverka-
fólks. Eftir ávarp Aðalsteins
Baldurssonar formanns fisk-
vinnsludeildar VMSÍ mun Ari
Edwald aðstoðarmaður Þor-
steins Pálssonar ávarpa ráð-
stefnugesti en á eftir fylgja er-
indi og umræður um kjaramál,
starfsmenntunarmál, vinnu-
verndarmál, félagsleg áherif
kvótakerfisins, samanburð á um-
hverfi land- og sjóvinnslu og
starfsemi Fiskifélags íslands.
-gk
DV, Akureyri:
Hagnaður af rekstri Skinnaiðnað-
ar hf. á Akureyri fyrstu 6 mánuði
ársins nam 38,6 mUljónum króna og
segir Bjarni Jónasson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, að
þessi niðurstaða sé mjög í takt við
þær væntingar sem stjómendur fyr-
irtækisins hafi til rekstrarins. Á
síðasta ári nam hagnaður fyrirtæk-
isins 68 milljónum króna og er gert
ráð fyrir svipaðri afkomu í árslok
nú.
Ekki eru til sambærilegar tölur
frá síðasta ári. Hins vegar em til
tölur um tekjur fyrirtækisins fyrstu
8 mánuði ársins í ár og á síðasta ári
og hefur aukningin verið 77,5 millj-
ónir eða 15,6%.
Hagnaður Skinnaiðnaðar fyrstu 6
mánuði ársins fyrir fjármagnsliði
nam tæplega 75,7 milljónum króna
og hagnaður fyrir skatta var 61,8
milljónir. í lok júní voru eignir
Skinnaiðnaðar bókfærðar á rúmar
719 milljónir en skuldir námu 422,8
milljónum. Eigið fé nam tæpum
296,4 milljónum króna og eignar-
hlutfallið 41,22%.
-gk
Sauöfjárrækt viö DýraQörö:
Held áfram meðan ég skrimti
„Þetta er aðeins lakara en í fyrra
en þó þolanlegt. Það er hálfnað að
slátra frá mér og meðalfallþunginn
er um 14,5 kíló. Það lagði sig á 15,5
kíló á síðasta ári,“ sagði Jón Val-
geirsson, bóndi á Lækjarósi í Dýra-
firði, þegar DV ræddi við hann í síð-
ustu viku.
Jón er með milli 60 og 70 kindur
FIMMTUDAGAR
irsx^i
Dagskrá:
Á fimmtudögum fylgir DV
áttasíðna blaðauki um
dagskrá Ijósvakamiðlana. DV
er eina blaðið sem gefur út
sérstakt dagskrárblað
vikulega. Blaðið er þægileg
handbók um dagskrá
sjónvarps og útvarps þar sem
m.a. er að finna stjörnugjafir
við flestum myndum sem
sýnar eru.
I •AtiMenning:
Fjölbreytt og skemmtileg
menningarumfjöllun í umsjón
Silju Aðalsteinsdóttur er alla
fimmtudaga í DV.
- skemmtilegt
blað fyrir þig
- segir Jón bóndi á Lækjarósi
og segist ekki vera á leið að hætta
þrátt fyrir að vera nokkuð við ald-
ur.
„Ég held áfram meðan ég skrimti.
Maður verður að hafa eitthvað til að
lifa af,“ segir Jón.
Hann segir sárt að horfa upp á þá
hnignun sem orðið hefur í sveitinni,
m.a. með lokun Núpsskóla.
„Það hefur gengið mjög nærri
sveitinni og það er sárt að horfa upp
á fækkun starfa samfara lokun skól-
ans,“ segir Jón.
8
Jón bóndi Valgeirsson viö Land-Rover bíl sinn sem er af árgerð 1965. Jón segir sárt að horfa á hnignun sveitar sinn-
ar. DV-mynd BG
Bifreiöaskrá:
Leyndarskráning
möguleg
- til aö verjast þjófum, segir forstjóri Bifreiðaskoöunar
„Fólki er nú heimilt að setja nafn-
leynd á skráningu bíla sinna i bif-
reiðaskrá. Það hefur settur hemill á
þessa upplýsingaveitu, en einungis
þessa," segir Karl Ragnars, forstjóri
Bifreiðaskoðunar íslands.
Karl segir að bifreiðaskrá hafi
þótt dálítið galopin og jafnvel taliö
að hún væri misnotuð þannig að
þjófar hringdu til að fá nöfn og
heimilisföng bíleigenda gefin upp
eftir bílnúmerum til að geta síðan
fariö aö næturþeli til að brjótast inn
í bílana og stela úr þeim eða stela
bílunum sjálfum.
Karl segir að þurfi fólk hins veg-
ar af rökstuddum ástæðum að vita
um eiganda bíls með tilteknu núm-
eri, t.d. vegna áreksturs, þá fái það
þær upplýsingar en þurfi að vísu að
hafa lítið eitt meira fyrir því að fá
þær en áður, kannski skrifa línu
með beiðni um upplýsingarnar eða
sækja þær í gegnum lögreglu. „Því
er ekki alfarið hafnað að gefa upp-
lýsingamar heldur aðeins í þessari
galopnu upplýsingaveitu," segir
Karl.
Hann segir enga hættu á því að
ferli tjónbíla veröi haldið leyndu
fyrir fólki í skjóli nafnleyndar. Ef
fólk hringi og spyrji hvort trygg-
ingafélag hafi átt tiltekinn bíl þá
teljist það fullgild ástæða til að gefa
svar. Komi það fram í ferilskrá bíls
að hann hafi verið í eigu trygginga-
félags þá er það venjulega sterk vís-
bending um að um tjónbíl sé að
ræða. „Við teljum að fólk eigi rétt á
slíkum upplýsingum en í þeim er
fólgin viss neytendavernd. Hitt at-
riðið er einungis til þess að freista
þess að koma í veg fyrir misnotkun
óvandaðra manna,“ segir Karl
Ragnars.
-SÁ