Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Qupperneq 13
!DV MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
Alltaf á mánudögum
Listaklúbbur LeikhúskjaOarans er að hefja
fjórða starfsár sitt undir nýrri stjórn: Þórunn Sig-
urðardóttir leikstjóri leysir Sigríði Margréti Guð-
mundsdóttur af til jóla, en Sigríður er stödd i
Mexíkó. Sem fyrr verða fundir á mánudagskvöld-
um í Þjóðleikhúskjallaranum. Hvað verður boðið
upp á í haust, Þórunn?
Hrólfur og Álfur
„Fyrsta kvöldið, 7. október, verður helg-
að Bengt Ahlfors, einu þekktasta leik-
skáldi Norðurlanda. Hann var að gefa út
bók sem hefur vakið mikla athygli um ár
sín sem leikhússfjóri í Helsinki og þegar
hann var rekinn úr því starfí. Söguleg bók
og lærdómsrík sem ýmsir leikhússtjórar, nú
verandi og fyrrverandi liggja yfir um þess-
ar mundir!
Stefán Bald
ursson
ætlar að
lesa þýð
ingu sína á
kafla úr henni.
Svo verða leikin
brot úr Ham
ingjuráninu sem núna er
að flytjast upp á stóra sviðið og
lesiö úr öðram verkum hans,
m.a. Umhverfis jörðina á átta-
tíu dögum sem margir muna eft-
ir.
Annars er dagskráin fram til
jóla lituð af ýmsum merkisviðburðum og
afmælum. Núna eru 200 ár síðan fyrsta ís-
lenska leikritið var sýnt opinberlega, að
því er best er vitað, og við verðum með
tvær leiksýningar af því tilefni. Annað
verkið er Hrólfur eftir Sigurð Pétursson,
sem var leikið í Hólavallaskóla í Reykja-
vík í árslok 1796. Spaugstofan ætlar að
spreyta sig á þvi og leika bæði karla og
konur, að sjálfsðgðu. Ég held að það verði
ansi gaman. Einnig á að flytja Álf í Nóa-
túnum sem talið er að Jónas Hallgríms-
son hafi skrifað ásamt öðrum nemendum
í Bessastaðaskóla, og það eru Bandamenn
sem leika. Þetta verk hefur aldrei svo vit-
að sé verið sýnt opinberlega. Álfur fer
upp 21. október, en Hrólfur verður sýnd-
ur 4. nóvember.“
- Bara eitt kvöld?
„Þetta er svo óskaplega upptekið fólk
að ég þori ekki að lofa neinu. Líkast til
verða þetta einstakir viðburðir.
A fyrsta klúbbkvöldínu verða leikin atriði úr Hamingjurán-
inu sem nú er að flytjast af Smíðaverkstæðinu upp á stóra MálþÍllS UHl lcikrítlin
sviðið í Þjóöleikhúsinu. Hilmir Snær Guönason í hlutverki Svo ætlum við að bjóða Leikfélagi Ak-
Slnu‘ DV-mynd ÞOK ureyrar í bæinn 25. nóvember. Það á 80
Flosi Olafsson er líka í
Hamingjuráninu
ára afmæli í ár. Leikarar þaðan koma með afmæl-
isdagskrá og ætla að hafa fjör í kjallaranum.
ieðal annars fáum við að sjá brot úr Vef-
aranum mikla sem verður sýndur fyrir
norðan í vor.
Við verðum með margar tónlistar-
uppákomur, Camerarcticu, Caput og
Atla Heimi, og Megas ætlar að
halda út-
gáfu-
tónleika
nýju plöt
unnar sinn-
ar hjá okkur
18. nóvember.
Svo langar
mig að vekja sér-
staka athygli á dag-
skránni 14. október. Þá
gengst Listaklúbburinn fyr-
ir málþingi um íslenska
leikritun í samvinnu við
Leikskáldafélagið. Tilefnið
er auðvitað áðurnefnt 200
ára afmæli. Frummælendur
eru sterkir, þeirra á meðal
leikskáldin Ólafur Haukur Símonarson, Svein-
björn I. Baldvinsson og Hrafnhildur Hagalín Guð-
mundsdóttir sem gerir sér sérstaka ferð frá París
til að taka þátt í þinginu. Það verður bæði talað
um sviðsverk og handrit fyrir sjónvarp og kvik-
myndir. Eftir framsöguerindi verða pallborðsum-
ræður.“
- Hvernig hefur gengið í samkeppni við aðra
staði?
„Klúbburinn hefur staðið sig vel. Auðvitað er
aðsóknin misjöfn, en það er líka meiningin að
opna fyrir nýstárlegum atriðum sem við getum
ekki átt von á að fólk flykkist að. Þetta er ekkert
hættuspil. Húsnæðið er ókeypis og klúbburinn
sér um kynningar þannig að þeir sem koma fram
bera engan kostnað en fá aðgangseyrinn í erfiðis-
laun.“
- Af hverju ætti fólk að ganga í svona klúbb?
„Af því að hann býður upp á góða upplyftingu
fyrir sáralítinn pening, og svo fá félagsmenn
skólaafslátt á sýningar í Þjóðleikhúsi, Borgarleik-
húsi og íslensku óperanni ef pantað er samdæg-
urs.
Fólk stundar líkamsrækt af kappi, og það er
gott mál, en það þarf líka að hugsa um andann.“
Árgjald Listaklúbbsins er 2000 kr. og félagar
borga 400 kr. inn, en aðrir 600.
Hver með sínu nefi?
Tónlistarhátíðin Norrænir músík-
dagar er haldin víða. Eiginlega í öllum
tónleikasölum borgarinnar nema í
tónlistarhúsinu margfræga. Enda er
'það ekki til enn. Á sunnudagskvöld
hafði íslenska óperan orðið fyrir val-
inu; hús sem hefur fremur litla endur-
ómun og hentar því strengjaleikurum
Kammersveitar Reykjavíkur illa.
Strengir þurfa nefnilega hljómmikinn
sal ef leikur þeirra á að njóta sín til
fulls. Samt virtist það ekki koma að
sök í þetta sinn því Kammersveitin
stóð sig með eindæmum vel. Átti
hlJómsveitarstjórinn, Silvia Massar-
elli, án efa drjúgan þátt í því að flutn-
ingur hljómsveitarinnar yfirvann nán-
ast alla vankanta hússins.
Fyrst á efnisskránni var Aura eftir
Dagfinn Koch, lagrænt verk og góð
byrjun á tónleikunum. Hver sagði að
nútímatónlist væri óaðgengileg? Aura
var það svo sannarlega ekki; tónlistin
rann áfram og var unaður á að hlýða.
Næst á dagskrá var Om att cykla
eftir Reine Jönsson. Það byggist á ein-
faldri tónhugmynd sem síðan er end-
urtekin hvað eftir annað i ýmsiun út-
gáfum. Svona þrástefjun er þekkt tón-
listarform sem kallar á framleika og
hugmyndaauðgi ef áheyrandanum á
ekki að leiðast óstjórnlega. Þvi miður
var Om att cykla ekki mjög spennandi;
byrjunin var að vísu ósköp áferðarfal-
leg en í heild var verkið trúlega of
langt. Þegar maður heyrir sömu tón-
ana aftur og aftur er hætt við að tón-
listin verði ekki merkilegri en hljóð í
hakkavél
Á eftir Om att cykla var komið að Kamme|-sveit Reykjavíkur.
Morgen eftir Pál P. Pálsson. í aðalhlut-
verki þar var Rannveig Fríða Bragadóttir skilið fyrir frammistöðuna. Textinn var eftir
messósópran. Hún skilaði sínu mjög vel og á lof skoska ljóðskáldið John Henry Mackay og í efn-
isskránni segir að verkið búi yfir eig-
inleikum sjálfsævisögu. Víst er að
mikið var um dramatísk tilþrif og
spilaði þar leikur píanósins stórt hlut-
verk. Morgen er vel heppnað tónverk
og var besta verkið fyrir hlé.
Eftir að áheyrendur höfðu hvilt sig
stundarkom var komið að furðulegri
tónsmið eftir Göran Gamstorp. Hún
bar nafnið Puls III og mátti helst ætla
að tónskáldið hefði viljað að hver
hljóðfæraleikari spilaði með sínu nefi
og af alefli eins hratt og mögulegt var.
Án efa var þarna úthugsað form að
Tónlist
Jónas Sen
baki, þó erfitt hafi verið að átta sig á
því við fyrstu áheym. Sum tónverk
þarf að hlusta á oft og mörgum sinn-
um - og stundum oftar en það - áður
en einhver glóra fæst í þau. Vel má
vera að svo sé um Puls III.
Það sama var ekki uppi á teningn-
um í síðasta verki tónleikanna, Canto
IV eftir Einojuhani Rautavaara.
Rautavaara er eitt fremsta tónskáld
samtímans og hefur samið margar
merkilegar tónsmíðar. Enda er auð-
heyrt að hann býr yfir miklum inn-
blæstri og er Canto IV glöggt dæmi
um það. Slíkri tónlist er ekki hægt að
lýsa með orðum; maður verður að hlusta
til að upplifa hana. Einmitt þannig eru
mikil listaverk.
4/þenning 13
Þrennir tónleikar
hjá Kammer-
sveitinni
Kammersveit Reykjavíkur hóf
23. starfsár sitt með tónleikum á
Norrænum músikdögum, sem
Ífiallað er um á menningarsíðu í
dag. Auk þeirra veröa þrennir
tónleikar í vetur á vegum sveitar-
innar, þeir fyrstu 18. nóvember,
: tileinkaðir Johannesi Brahms, en
á næsta ári verður 100 ára ártíð
hans.
Johann Sebastian Bach.
Jólatónleikamir í Askirkju 15.
desember bera yfirskriftina Bach
og synir og þar verða leikin verk
eftir Carl Philippe Emanuel og
Johann Christian Bach og tvö
verk eftir föður þeirra, konsert
fyrir 3 fiðlur og Brandenburgar-
konsert nr. 1.
17. mars verða svo tónleikar
undir heitinu f Vesturheimi þar
sem verða leikin verk eftir
bandarísk tónskáld auk strengja-
kvintetts eftir Árna Egilsson sem
hefur búið lengi vestanhafs.
Kammersveitin mun einnig
halda þrenna tónleika á menning-
arhátíðinni Les Boréales de
Normandie í Frakklandi I desem-
ber þar sem kynnt verða verk ís-
lenskra tónskálda.
Kvikmynda-
fræðafélag
Nýlega var stofnað Hið ís-
lenska kvikmyndafræðafélag til
að vinna að framgangi rannsókna
og fræðimennsku um öll svið
I kvikmyndagerðar og „efla kvik-
myndatengda menntun innan
skólakerfisins", eins og segir í
fréttatilkynningu. í fyrstu stjórn
félagsins sitja kvikmyndafræð-
ingarnir Kormákur Bragason,
Oddný Sen og Anna Sveinbjarn-
ardóttir, sem er formaður, Ólafur
H. Torfason kvikmyndagagnrýn-
andi og Böðvar Bjarki Pétursson,
forstöðumaður Kvikmyndasafns
íslands.
Þýskt ljóðakvöld
Annað kvöld, 3. október, verð-
ur þýskt ljóðakvöld I Skálanum á
Hótel Sögu. Þar flytur Petra von
Morstein eigin ljóð og ræðir um
þau við áheyrendur. Með henni
verður Ingo Seidler, prófessor í
þýskum bókmenntum við Michig-
an háskóla í Bandaríkjunum og
Itekur þátt í umræðunum, sem
fara fram á þýsku, íslensku og
ensku.
Petra von Morstein er þýsk en
hefur verið búsett í Kanada frá
1967 og starfað sem prófessor í
heimspeki við Calgary háskóla.
Hún hefur samið fræðileg rit auk
ljóða bæði á þýsku og ensku.
Petra verður hér þennan mánuð
og kennir námskeið um heim-
speki og skáldskap fyrir nemend-
ur í heimspeki, bókmenntafræði
og þýsku við Háskóla íslands.
Ljóðakvöldið er öllum opið og
aðgangur ókeypis.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir