Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 32
V I K
1T#|
til n?iki/s að vinnO fi
*
@@(30)
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
Bárðarbunga:
Öskugos
hófst í
morgun
Gosið undir ísnum við
Bárðarbungu ruddi sér leið í upp í
gegn um ísinn og stóð gufu- og
öskustrókur flmm þúsund fet í loft
upp um níuleytið í morgun, að sögn
Ragnars Stefánssonar, jarð-
eðlisfræðings á Veðurstofunni.
Ragnar segir að um sé að ræða
gufugos. Bráðinn ís og aska hafi
rutt sér leið upp í gegnum jökulinn
og þegar frá líði muni aska færast i
aukana eftir því sem gosstrókurinn
bræðir meir og meir frá strokknum
sem myndast hefur upp í gegn um
íshelluna frá sjálfri eldstöðinni.
-SÁ
Loðnan fundin
á Halamiðum
DV, Akureyri:
„Við erum á landleið með full-
fermi eða 1100 tonn og Beitir fékk
700 tonn í nótt,“ sagði Ragnar Eð-
varðsson, stýrimaður á loðnubátn-
um Jóni Kjartanssyni, í morgun, en
þessi tvö skip hafa leitað að loðnu
að undanfómu.
Leitin bar árangur norður af Hal-
anum í nótt og segir Ragnar að svo
virðist sem talsvert sé af loðnu á
þeim slóðum og að loðnan sé á norð-
austurleið. „Ég er bjartsýnn á fram-
haldið, að það verði hægt að veiða
loðnu á næstunni, en annars er
þetta svo dyntótt kvikindi að það er
best að segja sem minnst.“ -gk
Grindavík:
Eldur í íbúö-
arhúsi
Eldur kom upp í íbúðarhúsi í
Grindavík í nótt. Töluverðar
skemmdir urðu en svo vel vildi til
að það var mannlaust. Vel gekk að
slökkva. -sv
Árnessýsla:
Banaslys við
Þrándarholt
Ungur maður fórst í árekstri á
Þjórsárdalsvegi, skammt austan
Þrándarholts í Gnúpverjahreppi um
kl. 21.30 í gærkvöldi.
Ungi maðurinn ók litlum fólksbíl
sem skall framan á pallbO og talið
er að hann hafi látist samstundis.
Við áreksturinn kastaðist pallbíll-
inn út fyrir veg og valt. Ökumaður
hans slasaðist ekki alvarlega. Öku-
mennirnir voru einir í bílunum.
-SÁ
Tveimur mönnum bjargað úr íbúð í Mávahlíð í morgun:
Heyrðum mann
hósta og reyna aö
ná andanum
- segir slökkviliðsmaður sem aðild átti að björguninni
„Það var allt svart af reyk í
íbúðinni þegar við komum þarna
inn. Við heyrðum snarkið í eldin-
um og heyrðum mann hósta og
reyna að ná andanum og ég er
ekki frá því að hann hafi verið að
kalla á hjálp, annars gerðust hlut-
irnir mjög hratt,“ sagði Sveinn
Logi Bjömsson slökkviliðsmaður
við DV í morgun, en Sveinn Logi
og félagi hans, Þorvaldur Geirs-
son, björguðu tveimur mönnum
úr brennandi íbúð við Mávahlíð
um fimmleytið í morgun.
Það var skömmu fyrir kl. 5 sem
tilkynnt var um bruna í íbúð á 2.
hæð í Mávahlíð. Þegar slökkvilið
kom á staðinn voru reykkafararn-
ir, þeir Sveinn Logi og Þorvaldur,
sendir inn í íbúðina og fundu þeir
tvo menn sem þar voru.
íbúðin var þá full af reyk og
reyndist hafa kviknað í hljóm-
flutningstækjum og stafaði reyk-
urinn af plastefnum sem tækin
eru gerð úr að hluta, en slíkur
reykur er mjög eitraður og hættu-
legur.
Sveinn Logi segir að þeir hafi
fundið annan manninn á gólfi í
suðvesturhorni íbúðarinnar og
hafði hann greinilega andað tölu-
vert aö sér reyknum og var tals-
vert máttfarinn. Hinn hafi hins
vegar verið í herbergi með nokk-
uð þéttum dyrum og var lítill
reykur í því herbergi og maður-
inn sem þar var, eldri maður,
hafði beðið minni skaða af reykn-
um en sá sem fyrr fannst. Aðstæð-
ur til björgunar voru erfiðar
vegna þykks reyks; . . . „það var
kolsvartur reykur þannig að við
þurftum að þreifa okkur áfram og
reyna að átta okkur á því hvar við
værum,“ segir Sveinn Logi.
Mennirnir tveir sem voru í
íbúðinni voru fluttir á Sjúkrahús
Reykjavíkur og var annar þeirra,
sá sem fannst á gólfinu, fluttur á
gjörgæsludeild vegna reykeitrun-
ar og síðan í þrýstiklefa, þar sem
hann var enn þegar DV fór í
prentun.
Talsverðar skemmdir urðu á
íbúðinni og innanstokksmunum
af völdum reyksins. -SÁ
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og kona
hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, heilsa Olafi G.
Einarssyni þingforseta viö upphaf þingsetningar í
gær. Á innfelldu myndinni ræðir Ólafur Ragnar við
Árna Johnsen, Sigríði Jóhannesdóttur og Siv Frið-
leifsdóttur. Sigríöur fer á þing fyrir hinn nýkjörna for-
seta.
Kartöflur
hækká á ný
Svo virðist sem verðstrið á kart-
öflumarkaðinum sé í rénun ef
marka má verð á 2 kg pokum i gær
því flestar verslanimar höfðu þá
hækkað verðið frá síðustu könnun
okkar um miðjan september.
Bónus var með lægsta verðið í
gær og bauð pokann á 69 kr. Heild-
sölubakaríið bauð næstlægsta verð-
ið, 99 kr„ en hafði þó hækkað pok-
ana aftur frá því að bjóða þá á 79 kr.
Hæsta verð í könnuninni var 199 kr.
fyrir pokann. -ingo
Forseti íslands:
Þingið verj-
ist sérfræð-
ingum
121. löggjafarþing íslendinga var
sett í gær og í þingsetningarræðu
sinni sagði forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grimsson, að þingið þyrfti
að heyja vissa varnarbaráttu til að
tryggja það vald sem því ber sam-
kvæmt stjómskipaninni.
Þingið yrði að tryggja að vald
þess færðist ekki smátt og smátt
yfir til sérfræðistofnana fram-
kvæmdavaldsins eða stjómenda
hagsmunasamtaka. Þetta væri ekki
séríslenskur vandi heldur þekkt
meðal allra þróaðra lýðræðisríkja.
Forseti íslands sagði enn fremur að
eitt meginverkefni þingsins þyrfti
að vera það að leita leiða til að
styrkja efnahagslífið og bæta um
leið lífskjör heimilanna. -SÁ
Helgi Skúla-
son látinn
Einn þekktasti leikari og leik-
stjóri þjóðarinnar, Helgi Skúlason,
lést síðastliðið mánudagskvöld.
Hann var 63 ára gamall. Á ferli sín-
um lék Helgi fjölda eftirminnilegra
persóna, bæði á hvíta tjaldinu og á
leiksviði. Hann leikstýrði einnig
fjölda leikrita en síðast leikstýrði
Helgi leikritinu Þrjár konur stórar í
Kjallaraleikhúsinu. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Helga Bachman,
leikari og leikstjóri. -JHÞ
CHÚRRA FYRIR
FORSETANUM!
Veðrið á morgun:
Rigning og
skúrir
Á morgun verður norðaust-
ankaldi á Vestfjörðum en ann-
ars suðlæg átt. Rigning verður
norðan og norðvestan til en
skúrir í öðrum landshlutum.
Hiti verður á bilinu 4 til 8 stig
en kólnandi síðdegis, fyrst um
landið vestanvert.
Veðrið í dag er á bls. 36
Kvöld- og
helgarþjónusta