Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Síða 3
JL>V FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
HLJÓH/IPLjÍTU
rnrnm
Rjúpan - Konungur háuloftanna:
Húmor sem ekki skilar sér
Það er ekki á allra færi
að vera skemmtilegur á
sviði og enn færri eru þeir
sem geta komið skemmti-
legheitunum yfir á plötu,
þar sem sú stemning sem
myndast í sal er ekki fyrir
hendi, því það er vitað að
góð stemning hjá fólki á
mikinn þátt í að vel takist
til hjá þeim sem skemmta.
Rjúpan er þriggja manna
hljómsveit og gerir mikið
út á húmor. Allt frá því að
sveitin kom fram á Akur-
eyri fyrir um það bil ári hefur hún verið að skemmta og þá aðal-
lega fyrir norðan. Liðsmenn hennar hafa vakið athygli fyrir
hressilegan húmor og skemmtiiega sviðsframkomu.
Fyrsta plata Rjúpunnar, Konungur háuloftanna, er tekin upp á
tveimur skemmtunum hjá þeim og það er ekki annað að heyra en
að áheyrendur skemmti sér vel yfir bröndurum og textum með
lunknum húmor. En áhrifm skila sér ekki þegar hlustað er á plöt-
una. Ég efast ekki um að þremenningamir, Skúli Gautason, Karl
Olgeirsson og Friðþjófur Sigurðsson, eigi í neinum vandræðum
með að ná upp stemningu á börum og pöbbum, en húmorinn
virkar heldur bragðdaufur þegar hlustað er á plötuna í steinköld-
um hljómgræjum. Og þar sem lögin eru í slöku meðallagi þegar
á heildina er litiö þá er Konungur háuloftanna eins og mislukk-
aður farsi. Það vill svo til að það sem helst situr eftir eru lög í ró-
legri kantinum þar sem dregið er niður í yfirborðslegu gríninu
og músíkin fær að njóta sín. Má nefna sem dæmi síðustu tvö lög-
in á plötunni, Dýrin á röltinu og Þú kysstir mig.
Eins og gefur að skilja eru upptökur á Konungi háuloftanna
frekar hráar og á það vel við þegar svona skemmtiprógramm er
flutt. En við þennan hráleika kemur vel í ljós hversu betur hefði
mátt vinna lögin og satt best að segja hefði mátt sleppa sumum,
sem eru nánast lagleysa. Konungur háuloftanna hefði alveg þol-
að styttingu um nokkrar mínútm- úr þeim rúmum sextíu mínút-
um sem tekur að hlusta á hana.
Hilmar Karlsson
NAS - It Was Written: ★★
Poppað rapp með válegt viðhorf
NAS er nýsköpuð rapp-
stjama. Með válegu við-
horfi og poppívafi býr hann
sér til nýjan rappstíl, ein-
hvers staðar mitt á milli
Snoop Doggy Dogg og Fu-
gees. Ádeilumar í textum
NAS em beittar, tekið á
málum svarta mannsins i
Bandaríkjunum og fær
diskurinn því Parental
Advisory - Explicit Lyrics
stimpilinn á sig. Mest er
tekið á dópsölunni, hatr-
inu, drápunum og minni-
máttarkenndinni í textum
NAS að hætti götuskáldsins. Hann lítur ekki út fyrir að vera
hættulegur og lendir sjálfsagt ekki í svipuðum vanda og Tupak
Shakur sem hefur nú einum of mörg göt á líkamanum en orð
hans bita þá sem hlusta. Svertingjar Ameríku: VAKNIÐ! Hvort
hér er um að ræða neyðarkall skal ég ekki segja en ég mun ekki
blanda þjóðfélagsástandinu ytra meira inn í umræðuna að svo
stöddu. Tónlistin og melódiumar, sem styðja rappið svo ötullega,
em ýmist nýjar eða fengnar að láni hjá öðm listafólki sem þegar
hefur gefið þær út á öðm sviði. Kassagítarinn úr laginu Shape of
My Heart, sem Sting gerði vinsælt um árið, fær til dæmis að
fljóta fallega undir í laginu The Message og Eurythmics melódían
úr Sweet Dreams er rappsungin i laginu Street Dreams.
Hittarinn á plötunni, ef svo má að orði komast, er hins vegar
frumsaminn og hefur náð gífurlegum vinsældum, jafnt hér á
landi sem ytra. Lagið hefur samt sína annmarka, viðlagið er
nefnilega endurtekið það oft að ekki þarf margar hlustanir til að
fá leið á því, jafnvel þó það sé grípandi í fyrstu.
Allt í allt hefur NAS tekist það sem hann ætlaði sér að gera í
textaflutningi. Enn þarf samt meira til að hann nái röppurum
eins og Snoop, Tupak, Dr. Dre og Fugees í melódíusmíðum en
hann er ungur enn. Sjáum hvað hann gerir næst.
Guðjón Bergmann
Þriðja Partý
Zone platan
Danstónlist á svo sannarlega ekki
undir högg að sækja þessa daganna,
mun frekar vex henni fiskur um
hrygg og hefur fyrst nú verið tekin
í sátt hjá tónlistarmönnum og gagn-
rýnendum um leið og hlustendahóp-
urinn stækkar. Aðeins einn út-
varpsþáttur á íslandi hefur fylgst
með þessari þróun danstónlistar
cillt frá byrjun. Það var ekki
fyrr en í fyrra að út
kom diskur sem
innihélt tón-
listina úr
þáttunum
sem nú hafa
gengið í 6 ár,
sem þýðir að
þeir Helgi og
Kristján (stjórn-
endur þáttarins)
hafa sent út u.þ.b. 250
þætti tileinkaða danstón-
list. Reyndar komu út tveir
Partý Zone diskar í fyrra, þá
undir verndarvæng Skífunnar.
Partý Zone menn hafa nú fært sig
yfir til Japis sem gefur út Partý
Zone plötu ársins 1996.
Minna að gerast þetta
árið
Vinsældir danstónlistar haldast
nokkuð í hendur við skemmtistaða-
menningu landans. í fyrra var mik-
il uppsveifla í þeirri menningu hér
á landi og var það mikið til góða fyr-
ir unnendur danstónlistar. Fjöl-
margir erlendir listamenn lögðu
leið sína til landsins og skemmti-
staðir mundu sinn flfil vart fegri.
Þetta ár hefur hinsvegar verið
viðburðarminna og segja eigendur
skemmtistaða landsins sumarið eitt
það daufasta í mörg ár. Dansfíklar
hafa þó fengið Marc Anthony, DJ
Food, Coldcut, Grooverider, Frankie
Valentine, Prodigy, PropeOerheads
o.fl. hingað til landsins á þessu ári
og má búast við einhverjum uppá-
komum af þessu tagi áður en árið er
liðið.
Plötusnúðar á Internet-
inu
Útvarpsþátturinn Partý Zone hef-
ur að venju verið á dagskrá X-ins
97,7 á laugardagskvöldum miUi 19
og 23 aUt árið undir stjórn Helga
Más og Kristjáns Helga. Nokkur vel
heppnuð PZ kvöld hafa verið haldin
þetta árið og má því húast við mik-
Uli dansveislu á útgáfuhátið PZ á
Tetris í kvöld.
Plötusnúðar þáttarins eru: Mar-
geir, Grétar, Frímann, Tommi, Ámi
E, Andrés, Siggi, Hólmar og Amar.
Nokkrir nýir plötusnúðar hafa litið
í heimsókn til þáttarins, m.a. þeir
Richard, Aggi, Bjössi og Geiri.
Tækninýjungar hafa komið til
þetta árið, því Partý Zone er fyrsti
útvarpsþátturinn hér á landi sem er
sendur út um aUan heim á intemet-
inu. Þetta er gert i samvinnu við
vefritið Decode, en PZ er sendur út
á this.is/decode. Vinsældarlisti þátt-
arins er einnig birtur vikulega í rit-
inu og fólk getur því hlustað á hann
eftir eigin hentugleika.
Bylgjur ársins
Að sögn þáttarstjórnenda hefúr
danstónlist ársins 1996 verið mjög
fjölbreytt. House-byljgan frá því í
fyrra hefúr þróast út í dýpri diskó
útgáfuhátíð á Tetris í kvöld
tóna og neðanjarðar house tónlist
hefúr verið mjög áberandi. Techno-
ið hefur staðið fyrir sínu en jungle
tónlist verður að þeirra sögn
stöðugt vinsæUa. Danspoppið virð-
ist aUtaf vera tU staðar en er ansi
misjafnt að gæðum. Margir hafa
spurt Helga
og
Kristján hvers vegna þeir spili ekki
poppaðari tóna eins og Robert
MUes, Klubbheadz og Prodigy?
Ástæðan er líklega sú að það hef-
ur ekkert nýtt gerst þar síðan 1992
þegar Grétar og Maggi vora að spUa
rave og handbag tónlist þess tíma.
Það er meira að segja verið að end-
urútgefa hvem smeUinn á fætur
öðrum síðan þá. Tónlistin sem PZ
leitast við að spila er nákvæmlega
það sem er að gerast á heitustu
klúbbunum á Bretlandi, meginlandi
Evrópu og Bandaríkjunum. Rjóm-
inn af þeirri tónlist verður síðan að
megasmeUum á útvarpsstöðvunum,
en það gerist yfirleitt ekki fyrr en
nokkrum mánuðum seinna þegar
stóru útgáfufyrirtækin gefa hana út.
Fólk fær því frí frá útvarpspoppinu
í þann tíma sem PZ er í loftinu og
fær tækifæri tU að heyra
tónlist sem það heyrir
ekki annarrs staðar
nema þá á klúbbum
hérlendis og þó aðal-
lega erlendis.
Diskur ársins
Partý Zone diskur árs-
ins er sýnishom af þyngri
hluta þáttarins, þ.e. 14 lög
sem hafa verið hvað lífseig-
ust á árinu. Stefna PZ var að
velja lög sem fólk hefur ekki
fengið óbeit á vegna ofspUunar.
Frímann og Grétar, tveir af
fremstu plötusnúðum þáttarins
mixa diskinn i eitt samfeUt dans-
flæði. Lögin og listamennimir á
diskunum koma víöa að, frá Bret-
landi, Bandaríkjunum og HoUandi.
Lokaorð Helga og Kristjáns: Það
er á stefnuskránni hjá PZ að halda
áfram að þróa þáttinn eftir þörfum
hlustenda og að hjálpa við að við-
halda dansmenningunni hér á
landi.Á
-GBG