Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Side 5
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
______________________________ Hónlist 19
Rafmagnaðir í Nirvana
- tónleikaupptökur frá árunum 1989 til 1994
Laugardagskvöldið 5. október
verður stórsýningin Bítlaárin
1960-70 á Hótel íslandi. Fjöldi lista-
manna flytur lögin frá árum ’68
kynslóðarinnar. Bjarni Arason,
Björgvin Halldórsson, Ari Jónsson
og Pálmi Gunnarsson munu auk
Söngsystra sjá um sönginn. Stór-
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
sér um undirleik. Dansleikur verð-
ur að lokinni sýningu.
Björgvin Halldórsson er einn þeirra sem syngja á stórsýningunni Bítlaárin
1960-70.
Hótel ísland:
Eins dauði er annars brauð. Þetta
máltæki mætti auðveldlega heim-
færa á lát söngvarans og gítarleikar-
ans Kurts Cobains þann 8. aþríl
1994. Geffen hljómplötuútgáfan hef-
ur sannarlega grætt á þvi andláti,
jafnt með sölu eldri platna hljóm-
sveitarinnar Nirvana sem útgáfu
MTV Unplugged tónleika hljóm-
sveitarinnar. Nú bætir Geffen um
betur og gefur út tónleikaplötu með
hljómsveit sem hefur ekki starfað í
2 ár og mun hvergi starfa á ný nema
þá kannski í öðrum víddum.
Auðvitað er þetta ekki aðeins gert
til að græða peninga, hver veit,
kannski er þetta hugsjónastarfsemi
hljómplötuútgáfunnar. Eitt er víst,
hér er á ferðinni einstaklega raf-
magnaður gripur, sérstaklega gerð-
ur fyrir þá sem ekki fíluðu Nirvana
órafmagnaða á MTV.
Frá drullubökkum
Wishkah...
... er nafti breiðskífunnar sem leit
andlit hljómplötukaupenda um all-
an heim á þriðjudaginn, eða eins og
það uppleggst á engilsaxnesku:
From the Muddy Banks of the Wis-
hkah og þýði betur hver sem vill.
Gripurinn hefur að geyma 16
hljómleikaupptökur og er afrakstur
vinnu bassaleikarans Kirst Novos-
elic og trommuleikarans Dave
Grohl en saman völdu þeir lögin á
plötuna af 100 klukkutímum af upp-
teknu efni frá tónleikum Nirvana á
árunum 1989 til 1994. Hljómurinn á
upptökunum er ekki allur jafn góð-
ur enda voru þær ýmist teknar af
kassettum eða 24 rása spólum.
Upphaflega var hugmyndin að
gefa út tvöfalda tónleikaplötu, raf-
magnaða öðrum megin, órafmagn-
aða hinum megin, en sú vinna varð
einfaldlega of tilfinningaleg fyrir
fyrrum félaga Cobains og verða að-
dáendur því að láta sér lynda ein-
falda tónleikaplötu þetta árið.
Meðal efnis á plötunni eru lögin
Smells Like Teen Spirit, Lithium,
Polly, Heart-Shaped Box og fleiri í
þeim stíl, enda platan miklu hrárri
en gengur og gerist.
Cobain snýr hér aftur til heims
lifenda í formi tónleikaguðs ásamt
félögum sínum í seindrepnu hljóm-
sveitinni Nirvana. Hún lengi lifi,
húrra, húrra.
-GBG
Bítlaárin 1960-70
vriJLEI^lS
,\ained,^-
oeimverur
Skífan ehf. er einkaumboðsaöili fyrir fræðsluefni á fölvutæku formi frá
l^hinu þekkta og viöurkennda útgáfufyrirtæki Dorling Kindersley^j?;