Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Qupperneq 10
24 '
jyndbönd
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
fer eigin leiðir og er nokk sama um almenningsálitið
Sean Penn í hlutverki hins dauöadæmda Matthews Poncelets í Dead Man Walking.
Sean Penn leikur aðalhlutverkið
á móti Susan Sarandon í Dead Man
Walking og fékk hann mjög góða
dóma fyrir leik sinn í hlutverki
Matthew Poncelet, dæmds morð-
ingja sem bíður aftöku og setur allt
sitt traust á nunnu sem verður hans
andlegur leiðtogi. Ekki fékk Penn
þó óskarsverðlaun eins og Susan
Sarandon en það voru ófáir sem
sögðu réttilega að hann hefði átt
þau alveg jafnmikið skilið og Sar-
andon.
Sean Penn á skrautlega fortíð að
baki, hann hefur ávallt farið sínar
eigin stormasömu leiðir, hvort sem
um er að ræða verkefnaval eða
einkalíf. Hann var fyrir nokkrmn
árum tíður gestur á síðum slúður-
blaða, sérstaklega tímabilið þegar
hann var giftur Madonnu og mátti
þá lítið út af bera og fengu ljós-
myndarar oft og tíöum að kenna á
hnefum hans. En eftir að hann gift-
ist leikkonunni Robin Wright og
eignaðist börn hefur hann róast til
muna.
Sjálfur segir Penn að hann sé í
raun jarðbundinn og langi helst til
að starfa í friði, það sé hara svo
erfítt í Hollywood. Penn er ekki
mikið fyrir viðtöl og hefur sagt að
það eina sem þeir sem taki þau hafi
áhuga á sé hvernig það var að vera
giftur Madonnu og af hverju hann
hafi slegið þennan og þennan ljós-
myndara: „Það er nauðsynlegt að
fara í viðtöl þegar verið er að frum-
sýna kvimynd en helst vildi ég
losna við það. Ég dáist að mönnum
eins og Robert De Niro sem kann að
fara í viðtöl vegna nýrrar kvik-
myndar og komast alltaf upp með
það að ræða aldrei um sjálfan sig.“
Kvikmyndafjölskylda
Sean Penn er kominn af kvik-
myndafólki, faðir hans, Leo Penn,
er leikstjóri og bróðir hans er leik-
arinn Chris Penn. Frægastur er þó
foðurbróðir hans, leikstjórinn Arth-
ur Penn, leikstjóri The Left- Handed
Gun, Bonnie and Clyde, Little Big
Man og fleiri ágætra kvikmynda.
Sean Penn byijaði feril sinn með
námi og vinnu hjá The Los Angeles
Group Repertory Theatre þar sem
hann steig fyrst á svið og leikstýrði
einnig sínu fyrsta sviðsverki. Penn
kom fyrst fram á Broadway í Heart-
land eftir Kevin Heeland. Góð
frammistaða hans þar leiddi til
fyrstu kvikmyndarinnar, Taps, þar
sem hann lék á móti Tom Cruise og
Timothy Hutton, tveimur ungum
leikurum sem einnig voru í start-
holunum. Næsta kvikmynd hans
var hlutverk Jeff Spicoli í Fast
Times at Ridgemond High sem Amy
Heckerling leikstýrði. Fékk hann
mikiö hrós fyrir leik sinn auk þess
sem vinsældir myndarinnar urðu
miklar.
Ekki lét Penn þó glepjast af
frægðinni og hélt tryggð sinni við
leikhúsið og hefur í raun alla tíð
gert það. Eftir að hafa leikið í Bad
Boys á móti Ally Sheedy sneri hann
aftur á Broadway þar sem hann lék
í vinsælu leikriti, Slap Boys, og
voru mótleikarar hans þar Val Kil-
mer og Kevin Bacon.
Næst vakti hann athygli í Racing
with the Moon þar sem Richard
Benjamin var leikstjóri. Var um að
ræða dramatíska kvikmynd um
ungmenni á stríðsárunum. Racing
with the Moon fékk góðar viðtökur
og varð til þess að eftirspumin eftir
Penn jókst til muna. í kjölfarið
fylgdu tvær ágætar kvikmyndir,
The Falcon and the Snowman, sem
fjallaði um tvo unga menn sem ger-
ast rússneskir njósnarar, og At
Close Range, mikið fjölskyldudrama
þar sem hann lék á móti Christoph-
er Walken. En hann lék einnig í
Shanghai Surprise á móti þáverandi
eiginkonu sinni, Madonnu, kvik-
mynd sem hann vill örugglega
gleyma sem fyrst.
Hefur leikstýrt tveimur kvik-
myndum
Eftir þvi sem frægð Penns hefur
aukist hefur hann minnkað að leika
í kvikmyndum en vert er að minn-
ast á frammistöðu hans í Carlito’s
Way þar sem hann lék á móti A1
Pacino. Fyrir leik sinn sem veik-
lundaður vinur Pacinos var hann
tilnefndur til Golden Glope verð-
launanna. Og nú kom að því að
Penn fetaði í fótspor nokkurra
kollega sinna og leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, The Indian Runn-
er. Myndin, sem fjallar um erfitt
samband tveggja bræðra, er sterk
og þótt aðsókn hafi ekki verið góð
að henni fékk hún góðar viðtökur
hjá gagnrýnendum. í aðalhlutverk-
um voru lítt þekktir leikarar; David
Morse og Viggo Mortensen, en í
minni hlutverk fékk Penn til liðs
við sig marga kunningja. Dennis
Hopper launaði Penn greiðann þeg-
ar hann lék í Colors fyrir hann og
lék í myndinni, þá má einnig sjá
Chcirles Bronson í litlu hlutverki
auk þess sem Patricia Arquette lék
þama í einni af sínum fyrstu mynd-
um. Ekki er langt síðan The Cross-
ing Guard, önnur kvikmyndin sem
Sean Penn leikstýrir, var frumsýnd
og fékk hún ekki jafngóðar viðtökur
og The Indian Runner. í henni leika
aðalhlutverkin Jack Nicholson og
David Morse.
Hér á eftir fer listi yflr þær kvik-
myndir sem Sean Penn hefur leikið
i:
Taps, 1981
Fast Times at Ridgemont High,
1982
Bad Boys, 1983
Crackers, 1984
Racing with the Moon, 1984
The Falcon and the Snowman,
1985
At Close Range, 1986
Shanghai Surprise, 1986
Colors, 1988
Judgement in Berlin, 1988
Casualities of War, 1989
We're No Angels, 1989
State of Grace, 1990
Carlito's Way, 1993
Dead Man Walking, 1995
-HK
Sean Penn var fyrir
nokkrum árum tíður
gestur á síðum slúður-
blaða, sérstaklega tíma-
bilið þegar hann var
giftur Madonnu. Mátti
þá lítið út af bera og
fengu Ijósmyndarar oft
og tíðum að kenna á
hnefum hans.
.SPÓLAN
I TÆKINU
{
Hind Hannesdóttir: Bed of
roses og hún var mjög góð.
Hlynur Geir Richardsson:
Mask fyrir krakkana. Hún var
góð.
Bergþóra Andrésdóttir:
BravehecUt. Hún var góð.
Bjami Veigar Wdowiak: Heat
og hún var virkilega góð.
Susan Sarandon, Sean Penn og Tim Robbins við tökur á Dead Man Walking.