Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Blaðsíða 11
komst hún að því að hann virtist
undarlega vel fallin til verksins
þrátt fyrir ólíkan menningarheim.
Ang Lee hélt að þau væru gengin af
göflunum þegar hann fékk sent
handritið til skoðunar en nafn
Emmu Thompson á handritinu
vakti athygli hans og eftir lestur
þess gat hann fundið í því samsvör-
un með eigin myndum að mörgu
leyti og féllst því á að leikstýra
myndinni. Útkoman er feikivinsæl
óskarsverðlaunamynd og fyrsta
kvikmynd eftir sögu Jane Austen í
meira en hálfa öld.
Stjörnufans
Emma Thompson, sem hlaut
óskarinn fyrir handrit sitt, er
einnig í aðalhlutverki i myndinni.
Hún nýtur mikillar hylli og virðing-
ar fyrir leiklist sína og hlaut óskars-
verðlaun 1992 fyrir leik sinn í How-
ards End. Árið eftir fékk hún tvær
óskarsverðlaunatilnefningar fyrir
leik sinn í myndunum The Remains
of the Day og In the Name of the
Father. Hún hefur einnig leikið í
myndunum Much Ado about Not-
hing, Henry V, Dead again og Peters
Friends (eiginmaður hennar, Ken-
neth Branagh, leikstjóri í þeim öll-
um), Impromptu og Junior. Hún
sást síðast í Carrington með Jonath- .
an Pryce.
Kate Winslet hlaut mikið lof fyrir
leik sinn í áströlsku verðlauna-
myndinni Heavenly Creatures eftir
leikstjórann Peter Jackson en hefur
einnig átt stór hlutverk í myndun-
um Jude og Hamlet sem báðar eiga
eftir að koma fyrir augu almenn-
ings á íslandi.
Alan Rickman, sem leikur Colon-
el Brandon, hefur sennilega vakið
mesta athygli fyrir túlkun sína á ill-
mennum í Die Hard og Robin Hood,
Prince of Thieves, en hann hefur
einnig átt athyglisverð hlutverk í
An Awfully Big
Adventure og Bob Ro-
berts. Nýjustu myndir
hans eru Michael Collins,
nýjasta mynd Neils Jor-
dans, og Rasputin.
Hugh Grant er öllum
kunnur, fyrir kvik-
myndaleik og fleira, en
hann þykir meistari í að
túlka háttprúða enska
herramenn. Meðal
mynda hans má nefna
The Lair of the White
Worm, Impromptu, The
Remains of the Day, Bitt-
er Moon, Sirens, Four
Weddings and a Funeral,
The Englishman who
Went up a Hill But Came
down a Mountain, An
Awfully Big Adventure
og Nine Months.
-PJ
Hugh Grant og Emma Thompson, Edward Ferr-
ars og Elinor Dashwood sem verða ástfangin.
■ ■
Oskrar
PETER VVtLLER
v( RI. A M C R S
Öskrar (Screamers) er framtíðar-
spennumynd sem gerð er eftir
skáldsögu
Phillip K. Dick
sem er einn
þekktasti höf-
undur vísinda-
skáldsagna í
heiminum í
dag. Gerist
myndin árið
2078 á íjarlægri
plánetu, Siríus
6b, en pláneta
þessi hefur orð-
ið illa úti í
styrjöld. Stríðsaðilar eru ekki búnir
að yfirgefa plánetuna og hefur ann-
ar fundið upp sjálfknúin drápstól en
eitthvað fór úrskeiðis í framkvæmd-
inni og þessum drápstólum tókst að
ná yfirráðum yfir eigin forritun. Og
nú er svo komið að enginn hefur
stjórn á þeim og hefur þessum
drápsmaskínum tekist að ná undir
sig stóru svæði á plánetunni.
Peter Weller leikur Joseph
Hendricksson, sem er foringi eftir-
lifandi hermanna, en hann eins og
aðrir eru búnir að fá sig fullsaddan
af plánetunni og stríðsrekstrinum
og ákveður að reyna að semja frið
upp á eigin spýtur en reiknar ekki
með hinum sjálfspilandi drápstól-
um.
Myndform gefur út Öskrar, sem
er bönnuð börnum innan 16 ára, og
er útgáfudagur 8. október.
iyndbönd
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Sigmar Guðmundsson
Gone with the
Wind var, er og verð-
ur alltaf uppáhalds-
myndin mín. Ég á
hana heima hjá mér
og horfi á hana
eins oft og ég get
þrátt fyrir að hún sé víð-
áttulöng. í henni er allt
sem þarf að koma fram i
góðri bíómynd. Hún er afspyrnu
væmin, hrottafengin á köflum,
fyndin, dramatísk og i henni leika
gjörsamlega frábærir leikarar.
Þetta er
meistara-
stykki
óháð
tíma. í
þessari
mynd er
líka
flottasta
setning
kvik-
mynda-
sögunnar.
Það er
þegar
Scarlett
O’Hara er
að tjá
kapteinin-
um Rhett
Butler ást
sina á ör-
vænting-
arfullan
hátt í
.'irjfe' j mögnuðu atriði í
MBMíMP w lok myndarinnar. Þá
segir hann: „Frank-
ly, my dear, I
don’t give a
damn.“ Þegar þetta at-
riði kemur felli ég
undantekningar-
laust mörg tár. Þetta
er æðislegt. Annars horfi ég nú
stundum á fleiri myndir en þessa.
Mér finnst voða gott að hlunka
mér niður með popp í skál og
slappa af fyrir framan kassann.
Ætli ég horfi
ekki á svona
eina til tvær
myndir á
viku. Svo fer
ég nú stund-
um i kvik-
myndahúsin
en þess skal
getið að ég
er algjör
alæta á
kvikmyndir.
Hvað sem
því líður
mun Gone
with the
Wind aldrei
hverfa úr
huga min-
um. Hún er
besta mynd í
heimi.
-ilk
Sense and Sensibility
mál systra
Emma Thompson leikur eitt aðalhlutverkið í Sense and Sensibility og skrifar handritið.
Það er óhætt að segja að ferill
Emmu Thompson sem handritshöf-
undar byrjaði glæsilega því hún
hlaut óskarsverðlaun fyrir besta
handrit sem byggt er á skáldsögu
fyrir myndina Sense and Sensibility
sem gerð er eftir fyrstu skáldsögu
Jane Austen sem skrifuð var 1795.
Alls hlaut þessi mynd sjö óskars-
verðlaunatilnefningar og telst því
ein af stærstu stórmyndum ársins
1995, á tveggja alda afmælisári
skáldsögunnar. Fyrir utan handrit-
ið var myndin tilnefnd sem besta
myndin, Émma Thompson var til-
nefnd sem besta leikkona í aðalhlut-
verki, Kate Winslet sem besta leik-
kona í aukahlutverki og að auki
fékk myndin tilnefningar fyrir kvik-
myndatöku, búningahönnun og tón-
list. Þess má einnig geta að myndin
fékk alls tólf BAFTA tilnefningar
(bresku óskarsverðlaunin).
Ástarflækjur
Myndin segir frá systrunum Elin-
or (Emma Thompson) og Marianne
(Kate Winslet) og vísar nafh mynd-
arinnar í persónugerð þeirra. Elin-
or er kaldhæðin og raunsæ en Mari-
anne hvatvís og ástríðufull. Þegar
faðir þeirra deyr gengur ættarsetrið
lögum samkvæmt til sonar hans úr
fyrra hjónabandi og konu hans,
John og Fanny, og systurnar standa
eftir heimilislausar og félitlar. Það
verður því afar mikilvægt fyrir þær
að finna sér vænlegan eiginmann og
þær verða að læra hvor af annarri
til að finna það jafnvægi milli skyn-
semi og tilfinningasemi sem þeim
er nauðsynlegt.
Elinor verður ástfangin af Ed-
ward (Hugh Grant), hlédrægum
bróður Fanny, en áður en þau fá
tækifæri til að ná saman sendir
Fanny Edward til London. Elinor
grefur tilfinningar sínar niður og
felur þær fyrir fjölskyldu sinni á
meðan Marianne stofnar til ástríðu-
fulls og áberandi ástarsambands við
hinn fjallmyndarlega Willoughby.
Enn ein persónan í þessari ástar-
flækju er Colonel Brandon sem er
ástfangin af Marianne og sýnir
mikla einurð og staðfestu i tilraun-
um sínum til að ná ástum hennar.
Fvrsta handrit Emmu
Tnompson
Sagan af tilurð myndarinnar byrj-
ar hjá framleiðandanum, Lindsay
Doran, sem las Sense and Sensi-
bility þegar hún var í háskóla og
fannst sagan strax tilvalin til kvik-
myndunar. í meira en áratug leitaði
hún að handritshöfundi sem hún
gæti sætt sig við en meö litlum ár-
angri. Hann fann hún í Emmu
Thompson þegar hún sá í sjónvarpi
breska gamanþætti sem hún skrif-
aði og lék í. Emma Thompson tók
strax vel í að skrifa handrit eftir
sögunni og eyddi í það næstu fjór-
um árum á milli þess sem hún lék í
einum sjö myndum.
Með handrit í höndunum var
komið að því að finna leikstjóra.
Starfsfélagi hennar stakk upp á
tævanska leikstjóranum Ang Lee og
þótt furðulega megi virðast í fyrstu
Lock Ness
Sudden Death
Hún er búin að lifa löngu og góðu
lífi goðsögnin um skrímslið i vatn-
inu Lock Ness
sem er í hálönd-f
um Skotlands.
Eins og nafn |
myndarinnar
Lock Ness bendir!
til þá gerist húnl
einmitt við vatn-l
ið. Ted Danson |
leikur bandaríska |
vísindamanninn
John Dempsey I
sem stjórnar leit I
að skrímslinu
fræga eða öllu heldur hann á að af-
sanna tilveru þess í eitt skipti fyrir
öll. Þorpsbúar, sem lifa góðu lífi á
goðsögninni, eru ekkert alltof hrifn-
ir af Dempsey og vilja ekkert að sé
verið að grufla í þeirra málum.
Dempsey sest að á hóteli og verður
fljótt hrifinn af hótelstýrunni sem
er i fyrstu lítt hrifin af þessum gesti
sínum. Eini vinur Dempseys virðist
vera dóttir hótelstýrunnar sem virð-
ist sjá ýmislegt sem aðrir ekki sjá.
Tef Danson hefur ekki almenni-
lega getað fest sig í kvikmyndum
eftir að hin ágæta sjónvarpssería
Staupasteinn rann skeið sitt á enda
en hann hefur leikið í nokkrum
misgóðum myndum. Meðleikarar
hans í Lock Ness eru Joely Richard-
son og Ian Holm.
Háskólabíó gefur út Lock Ness
sem leyfð er öllum aldurshópum.
Útgáfudagur er 7. október.
Jean-Claude van Damme á aukn-
um vinsældum að fagna í Banda-
ríkjunum og
hann notfærir sér
vinsældirnar og
leikur í hverri
myndinni á fætur
annarri. Suden
Death kom á
markaðinn í fyrra
og hafa tvær
kvikmyndir með
honum verið
sýndar síðan, The
Quest, sem Laug-
arásbíó sýnir um
þessar mundir, og Maximum Risk
sem nýlega var frumsýnd í Banda-
ríkjunum.
í Sudden Death leikur Van
Damme McCod, föður sem fer með
börnin sín á íshokkíleik. í miðjum
leik hertaka hryðjuverkamenn dótt-
ur hans og þessi kvöldskemmtun
breytist í kapphlaup við timann en
foringi hryðjuverkamannanna
krefst þess að fá milljarð Banda-
ríkjadala áður en leiktíminn rennur
út, annars mun hann sprengja
íþróttahöllina í loft upp. Leikstjóri
Sudden Death er Peter Hyams,
reyndur leikstjóri spennumynda
sem náð hefur ágætum árangri á
því sviði.
ClC-myndbönd gefur út Sudden
Death sem bönnuð er bömum innan
16 ára. Útgáfudagur er 8. október.