Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Síða 12
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 "13 "V
26
tyndbönd
MYNDBAHDA
American Yakuza 2 Back to Back: ★★
Miðlungshasar
Frá sömu aðilum og gerðu American Yakuza og
Blue Tiger kemur þessi tiltölulega ódýra hasar-
mynd. í henni segir frá tveimur meðlimum í
Yakuza, japanskri glæpaklíku, sem koma til Bandaríkjanna í þeim til-
gangi að ganga frá bandarískum starfsbróður þeirra. Tilræðið fer ekki
alveg eins og til var ætlast vegna ótímabærrar gíslatöku brjálaðs banka-
ræningja á veitingahúsinu þar sem tilræðið átti að fara fram og Japan-
amir verða viðskila. Annar ráfar særður um ókunnug strætin meðan
hinn lendir í samfloti með taugaveikluðum og ofsóknarbrjáluðum fyrr-
verandi lögreglumanni og dóttur hans. Saman reyna þau að halda lífi í
ansi fjandsamlegu umhverfi og koma helvítis maflósanum fyrir kattar-
nef áður en hann nær í skottið á þeim. Myndin fær prik fyrir að reyna
stílbrögð og bera oft ágætishasar á borð en sagan er ómerkileg og leik-
aramir annars flokks. Skemmtilegastur er Bobcat Goldthwait sem kem-
ur eins og skrattinn úr sauðarleggnum í hlutverki kolbilaðs bankaræn-
ingja en hann hlýtur ill örlög og er úr leik mjög fljótlega. í heildina séð
er myndin akkúrat það sem lagt er í hana, ágætisafþreying en lítið
meira. Ekki hef ég séð fyrri myndina og veit því ekki hvort um framför
eða afturför er að ræða.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Roger Nygard. Aðalhlutverk: Michael Rooker og Ryo Is-
hlbashl. Bandarísk/japönsk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuö bömum innan 16 ára. -PJ
City Hall:
Pólitískur tryllir
★★i
CITYK
A1 Pacino leikur John Pappas, borgarstjóra 1 New
York og gamalreyndan pólitíkus. Kevin Calhoun
(John Cusack) er varaborgarstjóri hans, ungur eld-
hugi sem lítur upp til læriföður síns. Dauði sex ára
gamals bams í skotbardaga milli lögreglumanns og
fíkniefnasala veldur miklu fjölmiðlafári i borginni og
lögfræðingur nokkur (Bridget Fonda) vekur athygli
varaborgarstjórans á ýmsu tengdu málinu sem bendir til spillingar í
stjómkerfinu. Hann tekur höndum saman við lögfræðinginn til að kom-
ast að hinu sanna í málinu og neyðist til að endurskoða aðdáun sina á
stjómmálaskörungnum Pappas í kjölfarið. Myndin er að mörgu leiti
áhugaverð og sérstaklega er söguþráðurinn vel útfærður og pólitíska ref-
skákin trúverðug. Þá er Cusack flnn og virðist vera á góðri leið með að
sanna sig sem leikari eftir leik í Bullets over Broadway og City Hall. A1
Pacino er einnig góður og hefur óvanalega góðan hemil á sér en hann
hefur haft mikla tilhneigingu undanfarið til að ofleika. Hann sleppir því
miður af sér beislinu í einu afar fáránlegu atriði, sem er dragbítm-
myndarinnar og dregur hana mikið niður, þar sem borgarstjórinn flyt-
ur afarsmekklausa pólitíska hvatningarræðu við jarðarför litla drengs-
ins og faðirinn horfir klökkur á, fullur aðdáunar á þessu mikilmenni.
Útgefandl: Skífan. Leikstjórl: Harold Becker. Aöalhlutverk: Al Pacino, John Cusack,
Bridget Fonda og Danny Aiello. Bandarísk, 1996. Lengd: 107 mín. Bönnuð börnum
yngri en 12 ára. -PJ
Man with a Gun:
Svik á svik ofan
Leigumorðinginn John Hardin er í tygjum við eig-
inkonu maflósa nokkurs. Hún hefur undir höndum
tölvudisk sem inniheldur sönnunargögn um ólöglega
starfsemi eiginmannsins og notar diskinn til að kúga
út úr honum fé. Hann er ekki alveg sáttur við ástand-
ið og ræður John Hardin til að kála konunni. Skötu-
hjúin ráðgera að finna tvíburasystur konunnar og
kála henni í staðinn en samviskan fer að plaga Hardin um leið og hann
kemst að því að ástkona hans er ekki öll þar sem hún er séð. Svik á
svik ofan fylgja i kjölfarið þar til byssumar eru látnar tala í lokin. Hug-
myndin að sögunni er ágæt film-noir flétta, þótt fjarstæðukennd sé, og
hefði mátt búa til ágæta mynd úr henni ef betur hefði verið hugað að
stílbrögðum. Ekkert slikt er hér að finna, myndin líður átakalaust
áfram án þess að vekja nokkra spennu. Fínir leikarar eru í myndinni
en persónurnar eru óspennandi og lítið við þær að gera. Myndin er svo
langdregin og leiðinleg að þegar að uppgjörinu kemur er manni hjart-
ans sama hver vinnur og hver tapar, hver deyr og hver ekki. Sem bet-
ur fer drepst megnið af liðinu rétt áður en áhorfandinn drepst úr leið-
indum.
Útgefandi: Myndform. Leikstjórl: David Wyles. Aöalhlutverk: Michael Madsen, Jennl-
fer Tilly og Gary Busey. Bandarisk, 1995. Lengd: 95 mín. Bönnuö börnum yngri en 16
ára. -PJ
áfijX
The Immortals.
Kemur á óvart
★★■i
IIVIMÓÍÍ IAI.S
Ekki get ég sagt að ég hafi búist við miklu þegar ég
setti þessa í tækið en hún kom skemmtilega á óvart.
Eric Roberts leikm- Jack sem rekur næturklúbb fyrir
mafiuna og hefúr skipulagt rán á vinnuveitendum sín-
um. Hann fær til liðs við sig misleitan hóp einstak-
linga sem þó eiga allir eitthvað sameiginlegt en segir
þeim þó ekki hvem þeir era að fara að ræna. Hann
sendir þau í pörum á fjóra mismunandi staði að ræna fjórum peninga-
töskum. 1 fyrstu viröist ákaflega illa að skipulagningunni staðið því að
I öllum tilvikum eiga ræningjamir, sem paraðir eru, afar illa saman og
ránin ganga brösuglega fyrir sig. Þegar þeir koma síðan aftur í klúbb-
inn tekur við mikið blóðbað þar sem þeir eiga í höggi við mafíuforingj-
ann og liðsmenn hans ásamt megninu af lögregluliði borgarinnar. Hug-
myndin er afar skemmtileg, þótt hún sé alveg út í hött, og vel unnið úr
henni. Myndin kemur sífellt á óvart, sérstaklega í upphafi, þegar mað-
ur hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi og gapir yfir fáránleika
myndarinnar. Það er ekki fyrr en í lokin að maður fær einhverja útskýr-
ingu á fáránleikanum en í millitíðinni er myndin uppfull af góðu gríni
og spennu. Leikstjórinn Brian Grant nær ágætisframmistööu úr leikur-
unum en persónumar era áhugaverður þótt grunnar séu og sérstaklega
era sprautufíkillinn, galgopinn og vanvitinn vel leiknir og skemmtileg-
ir karakterar.
Úgefandl: Myndform. Lelkstjóri: Brlan Grant. Aöalhlutverk: Eric Roberts. Bandarísk,
1995. Lengd: 95 mín. Bönnuö bömum yngrl en 16 ára.
-PJ
13 j 15 4 j X-Files: 82517 j Skrfan J j Spenna
14 j 10 4 j • Cutthroat Island j Sktfan Spenna
iMlf Ný í 1 ) Stolen Hearts Warner -myndir J Gaman
16 j 12 ; 6 j. : Now and Then j Myndform i Gaman
17 1 16 6 1 Clockers ClC-myndir Spenna
18 i 14 ; j SBBKÍ 5 í Babe ) ClC-myndir J J Gaman
19 j 13 ; 7 ! Fair Game j Warner myndir j Spenna
_ 20 ! Ný i i i- Man With a Gun 1 Myndform Spenna
Robert De Niro leikur
aðalhlutverkið, fjár-
hættuspilara sem verð-
ur valdamikill í Las Ve-
gas, í kvikmynd Martin
Scorsese, Casino, sem
fer beint f efsta sæti
listans. De Niro leikur
einnig aðalhlutverkiö í
Heat, sem er í þriðja
sæti þessa vikuna en
var til skamms tíma á
toppnum.
24. sept. til 30. sept. '96
SÆTI ; FYRRI VIKA jVIKUR ; Á LISTA píilllÉSÉÍjiÉ TITILL J ÚTGEF. | J J TEG.
H Ný ! 1 Casino 1 ClC-myndir J Spenna
2 ! 1 I 2 !: ... .. Mk Dead Man Walking j Háskólabíó j Drama
3 ! 2 1 5 1 3 j Heat ! Warner -myndir ' Spenna
j 4 ! 3 ! 2 .» J J Father of the Bride 1 Sam myndb. > j J Gaman
5 T 7 1 o 1 j 2 j Thin Line Between.. J 1 j Myndform j Gaman
6 J j&Ui j. 7 i 4 I 3 j Strange Days j , ■ - íj ClC-myndir Spenna
11 r 2 ! Four Rooms J Skrfan J Gaman
8 ! 1 5 ! 6 ! Jumanji j Skífan , Gaman
; A - , pl9- j WKUmMþ: Ný ! 1 J, Apaspil j Skífan Gaman
ío ! j 8 ! 5 ! Kids J Skífan J Drama
ii ! 6 J 3 J á i The Bridges of Maddison County Warner-myndir Drama
12 f 9 ] j , 7 ) Leaving Las Vegas j J J Skífan j Drama
Casino
Robert De Niro
og Sharon Stone.
Casino gerist í
Las Vegas árið 1973,
Sam „Ace“ Roth-
stein er leppur maf-
iunnar og rekur
spilavíti og hefur
gott upp úr krafsinu.
Mafiustjóramir era
samt ekki fúllkom-
lega ánægðir og
senda Nicky
Santoro til liðs við
Sam og eiga þeir að
bæta hvor annan
upp. Sam hefur
hugvitið en Nicky er
hlymntur valdbeit-
ingu. Þetta er öflug
blanda sem fátt get-
ur staðist. En þegar
kynbomban Ginger
McKenna kemur til
skjalanna fer að
hitna i kolunum.
Dead Man
Walking
Susan Sarandon
og Sean Penn
Þessi úrvalsmynd
er byggð á sannsögu-
legri frásögn systur
Helan Prejan. Dag
einn berst henni
bréf frá dauðadæmd-
um manni, Matthew
Poncelet, sem biður
trúboð hennar um
hjálp. Hún heldur til
fúndar við hinn ör-
væntingarfúlla
mann sem dæmdur
hefúr verið til
dauða. Hann biður
Helen að koma í veg
fyrir að dauðarefs-
ingunni verði beitt.
Helen á óhægt um
vik vegna sannana
gegn honum en
reynir að draga fram
sannleikann.
Heat
Al Pacino og Ro-
bert De Niro.
í Heat segir frá
hinum snjalla at-
vinnuglæpamanni
Neil sem ásamt
mönnum sínum
leggur á ráðin um
nokkur hátæknileg
rán. Vincent er
rannsóknarlög-
reglumaður í rán-
og morðdeild.
Einkalíf hans er ein
rjúkandi rúst enda
kemst ekkert annað
að í huga hans en
starfið. En hann er
ekki síður snjall en
Neil og með hjálp
sinna manna og
uppljóstrara tekst
honum smám sam-
an að þrengja netið
í kringum glæpa-
mennina.
Father of the
Bride II
Steve Martin og
Diane Keaton
Mynd þessi er
framhaldsmynd og
nú gerist sá óvænti
atburður að bæði
dóttir og eiginkona
Steve Martins, sem í
fyrri myndinni gifti
dóttur sina, verða
bamshafandi á sama
tíma. Það liggur því
fyrir Martin að
glíma við það álag
sem því fylgir að
verða faðir og afi á
sama tíma. Og mið-
að við taugaveiklun-
ina sem einkenndi
hann við giftingu
dóttur sinnar má
nærri geta að ekki
er hún minni þegar
kemur að fæðingu
hjá mæðgunum.
Thin Line bet-
ween Love
and Hate
Martin Lawrence
og Lynn Whitfield
Aðalpersónan er
glaumgosinn Dam-
ell. Hann rekur
skemmtistað og dag
einn hittir hann
hina stórglæsilegu
Brandi Webb og
veðjar við besta vin
sinn um að honum
muni fljótlega takast
að sænga hjá henni.
Eftir nokkrar til-
raunir virkar sjarmi
Damells, en þegar
hann ætlar að losna
við Brandi er hún
ekkert á þeim hux-
unum og Damell
kemst að því að kona
sem svikin er af ást-
manni sínum getur
verið hættuleg.