Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Side 10
24 !
jyndbönd
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 JL>V
Al Pacino
- átta sinnum verið tilnefndur til éskarsverðlauna
A1 Pacino leikur aðaMutverk í
tveimur kvikmyndum sem eru á
myndbandalistanum þessa vikuna. í
Heat leikur hann lögregluforingja
sem eltist við glæpamann sem Ro-
bert De Niro leikur. í þeirri mynd
mætast þessir tveir risar í banda-
rískum kvikmyndum. Þeir geta báð-
ir þakkað Francis Ford Coppola fyr-
ir að hafa komið þeim áleiðis upp á
topp stjömuhiminsins í Hollywood
Eitt eftirminnilegasta atriöiö í Scent
of a Woman er þegar Al Pacino býð-
ur ungri stúlku upp í dans. Al
Pacino fékk óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í þessari mynd.
en þeir fengu sína eldskím í Guð-
föðursmyndum Coppola, Pacino
strax í þeirri fyrstu en síðan léku
þeir báðir í númer tvö en vom
aldrei í sama atriði. Heat er því
fyrsta kvikmyndin þar sem þessir
dáðu leikarar mætast augliti til
auglitis í kvikmynd. Hin myndin á
listanum með AI Pacino í aðalhlut-
verki er City Hall. Þar leikur hann
borgarstjóra New York-borgar sem
hefur ekki hreinan skjöld.
A1 Pacino er einn dáðasti leikari
sinnar kynslóðar, hann hefur verið
tilnefndur til óskarsverðlauna átta
sinnum, bæði sem aðalleikari og
aukaleikari. Pacino hlaut loks þessi
eftirsóttu verðlaun fyrir leik sinn í
Scent of a Woman árið 1994 en aðr-
ar myndir, sem hann hefur fengið
tilnefningu fyrir, em The God-
father, ... And Justice for All, The
Godfather Part II, Dog Day Af-
ternoon, Serpico, Dick Tracy og
Glengarry Glen Ross. Tvisvar er
hann búinn að fá Golden Globe
verðlaunin, fyrir Serpico og Scent of
a Woman, og fyrir leik sinn í
Scarecrow var hann valinn besti
leikarinn á kvikmyndahátíðinni í
Cannes 1973. Þá hefur hann einnig
verið verðlaunaður fyrir sviðsleik.
Tvisvar hefur hann fengið Tony
verðlaunin eftirsóttu, fyrir leik á
Broadway í leikritinum The Basic
Training of Pavlo Hummel og Does
a Tiger Wear a Necktie.
Hefur aldrei flutt
frá New York
Það hafa margir sagt um A1
Pacino að hann sé karlmannsútgáf-
an af Gretu Garbo. Þá er átt við að
hann er meira og minna i felum,
veitir nánast aldrei blaðaviðtöl og
býr í blokkaríbúðum í New York
sem fáir hafa aðgang að. Segja sum-
ir að hann sé fangi frægðarinnar.
Alfred Pacino fæddist 25. apríl
árið 1940 í New York. Eftir að for-
eldrar hans skildu bjó hann öll sín
æskuár í Bronx. Hann hefur sagt að
hann hafi verið mjög vemdaður
innan fjölskyldunnar í æsku, hon-
um hafi nánast ekki verið leyft að
fara út úr húsi nema til að fara i
skólann, sem honum leiddist, eða í
bíó, sem hann hafði gaman af. Þeg-
ar skyldunámi lauk innritaðist
hann í High School of Performing
Arts á Manhattan en hætti í skólan-
um þegar hann var sautján ára og
flutti til Greenwich Village þar sem
hann fór að vinna fyrir sér sem
„stand-up“-gamanleikari, leikari í
leikflokki sem sýndi barnaleikrit og
tók þátt í ýmsum revíum.
A1 Pacino sýndi fljótt hæfileika
sem tekið var eftir og var hann
hvattur til að innrita sig í leik-
listarskóla. Næstu árin
stundaði hann nám bæði
hjá Herbert Berghof og í
Actors Studio. Með þessu
lék hann í ýmsum leik-
ritum og strax í fyrsta
stóra hlutverkinu í Does
a Tiger Wear a Necktie
sló hann í gegn og fékk
Tony verðlaunin. í leik-
ritinu lék hann eitur-
lyfjasjúkling og það sama
gerði hann í The Panic in
Needle Park sem var önn-
ur kvikmyndin sem hann
lék I. Það var fyrir
frammistöðu sína í þeirri
mynd, sem Francis Ford
Coppola valdi A1 Pacino til
að leika Michael Corleone í
The Godfather.
Þoldi illa álagið
A1 Pacino sýnd hvem stórleikinn
á fætur öðrum í næstu myndum sín-
um sem nánast allar fengu góða
dóma en stressið og lætin í kringum
kvikmyndimar og það álag sem var
á honum vegna frægðar sinnar fór
illa með hann og þegar hann lék í
Serpico var hann nánast orðinn
innilokaður í hlutverki sínu og varð
árásargjam gagnvart meðleikurum
og öðru starfsfólki. Nú fór hann að
verða fráhverfur kvikmyndum og
eftir að hann hafði leikið í The God-
father Part II flúði hann aftur upp á
leiksviðið og lék aðeins í fimm kvik-
myndum næstu tíu árin. A1 Pacino
setti á þessum árum sterkan svip á
leiklistarlífið í New York þar sem
sviðsljósin vom ekki jafnsterk og í
Hollywood. Hann lék jafnt í sam-
tímaleikritum sem og Shakespeare
og á hann ekki að baki færri leik-
listarsigra á sviði en í kvikmynd-
um, hefur hann skapað eftirminni-
legar persónur í mörgum leikritum
sem síðar hafa farið sigurför mn
heiminn, má þar nefna America
Buffalo eftir David Mamet. Obie-
verðlaunin fékk hann fyrir leik sinn
í The Indian Wants the Bronx.
A1 Pacino hefur undanfar
in ár leikið að meðaltali í
einni kvikmynd á ári
en hefúr aukið kvik-
myndaleik síðustu
árin. Hann er nú að
leggja síðustu
hönd á Looking
for Richard, sem
hann leikstýrir,
og leikur aðal-
hlutverk í. A1
Pacino hefur hald-
ið fjölmiðlum frá
einkalífi sínu en hann hefur verið
orðaður í gegnum tíðina við nokkr-
ar leikkonur, þar á meðal Diane
Keaton, Jill Clayburgh og Martha
Keller. Hann á eina dóttur með
konu sem ekki er í leiklistinni og
víst er að fjölmiðlar hafa aldrei
komist í tæri við dóttur hans þar
sem þeir vita ekki hver móðirin er.
Hér á-eftir fer listi fyir þær kvik-
myndir sem A1 Pacino hefur leikið
í:
Me, Natalie, 1969
The Panic in Needle Park, 1972
The Godfather, 1972
Scarecrow, 1973
Serpico, 1973
Dog Day Afternoon, 1974
The Godfather, part II, 1975
Bobby Deerfield, 1977
... An Justice for All, 1979
Cruising, 1981
Author, Author, 1982
Scarface, 1983
Revolution, 1985
Sea of Love, 1989
Dick Tracy, 1990
The Godfather, Part III, 1990
Frankie and Johnny, 1991
Glengarry Glen Ross, 1992
Scent of a Woman, 1992
Carlito's Way, 1993
Two Bits, 1995
Heat, 1995
City Hail, 1995
Ai Pacino í hlutverki lögreglumannsins Vincent Hanna í Heat.
Myndbandaútgáfan:
Hvað er í boði fyrir yngstu kynslóðina?
Alltaf í boltanum er önnur tveggja mynda sem gefnar eru út á myndbandi í
október og höfða meira til barna en fulloröinna.
Útgáfa á myndböndum stendur
með miklum blóma hér á landi og í
hverjum mánuði eru gefnir út á milli
þrjátíu og fjörutíu titlar. Að minnsta
kosti helmingur myndanna er bann-
aðar spennumyndir sem eiga ekki að
koma fyrir augu yngstu áhorfend-
anna á heimilunum. En eins og svo
oft hefur sannast er erfitt að halda
börnum frá því sem bannað er.
í októbermánuði eru gefnir út 37
titlar og þar af eru 26 myndir bann-
aðar börnum, 17 myndir bannaðar
innan 16 ára og 1 mynd er bönnuð
innan 12 ára. Eftir eru 19 myndir
sem öll fjölskyldan getur horft á og
af þessum 19 er aðeins ein sem getur
talist fyrir allra yngstu kynslóðina.
Er það ný teiknimynd eftir ævintýr-
inu um Öskubusku sem væntanleg
er síðar í mánuðinum.
Ef rennt er i gegnum þær 18 sem
öllum er heimilt að horfa þá er þar
aðeins ein önnur mynd sem höföar
meira til barna en fúllorðinna. Er
það Alltaf í boltanum (The Big
Green) sem fjallar um tilurð fót-
boltaliðs drengja og stúlkna í Banda-
ríkjunum. Á móti kemur að inn á
milli eru nokkrar kvikmyndir sem
börn hafa örugglega gaman af þótt
ekki séu þær beint gerðar fyrir þau.
Má þar nefna gamanmyndirnar
ágætu, Grumpier Old Men og The
Birdcage, og fjölskyldumyndir á
borð við Lock Ness og Family
Reunion. En ljóst er að það er ekki
mikið gefið út fyrir böm sem sett er
á myndbandaleigur. Meira er aftur á
móti um það að gefið sé út fyrir
börnin á sölumyndböndum og þar er
úrvalið orðið nokkuð gott. -HK
Það hafa margir sagt
um Pacino að hann
sé karlmannsútgáfan
af Gretu Garbo. Þá
er átt við að hann er
meira og minna í fel-
um, veitir nánast
aldrei blaðaviðtöl og
býr 1 blokkaríbúðum
1 New York.
Sylvía Dögg Harðardóttir:
Kids, hún var mjög góð.
Auður Ævarr Sveinsdóttir:
Father of the Bride H. Mér
fannst hún alveg ágæt.
Ingólfúr Krisfjánsson:
Thin Line between Love and
Hate. Hún var ágæt.
Sigurður James Þorleifsson:
Heat. Hún var mjög góð.