Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Blaðsíða 12
26
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 T*>~\7~
myndbönd
MYHDBAHDA
iiíiijir/wj
Sudden Death
Gíslataka í skautahöll
Hér segir frá Darren McCord (Jean-Claude Van
Damme), sem er brunavörður í íþróttahöll nokkurri
og fer með krakkana sína tvo á úrslitaleik í ishokkí.
í heiðursstúkunni er staddur varaforseti Bandaríkjanna, illa varinn af
vanhæfum öryggisvörðum sem eru auðveld bráð fyrir þrautþjálfaða
krimma, sem taka forsetann og aðra í heiðursstúkunni í gíslingu og
planta sprengjum út um allt í höllinni. Þeir eru vel undirbúnir og fara
létt með að kveða í kútinn aumkunarverðar tilraunir FBI eða CIA gæja,
ég man ekki hvort og er nokk sama, til að klekkja á sér. Kemur þá til
sögunnar áðurnefndur brunavörður. Van Damme finnur og aftengir
flestar sprengjumar og lumbrar duglega á vondu köllunum þangað til
þeir liggja allir í valnum og búið spil. Þetta er Die Hard formúlan í sinni
einfóldustu mynd. Persónurnar eru ekki hið minnsta áhugaverðar
nema þá helst versti kallinn, sem Powers Booth leikur sæmilega, sögu-
þráðurinn er fyrirsjáanleg formúla, spennan er lítil sem engin og brand-
ararnir slappir, fyrir utan kostulegt atriði þar sem Van Damme lendir
í því að spila i íshokkíleiknum í smátíma. Hins vegar kann Van Damme
að slást og eru mörg ágætis slagsmálaatriði í myndinni.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Peter Hyams. Aöalhlutverk: Jean-Claude Van
Damme. Bandarísk, 1995. Lengd: 107 mín. Bönnuö börnum yngri en 16 ára. -PJ
T/uman
Ovinsæll forseti
★★★
U AUV SIN.
Harry S. Truman þótti ekki merkilegur forsétí á
sínum tima. Hann var tiltölulega lítið þekktur þing-
maður en ávann sér vinsældir þegar hann fór fyrir
þingnefnd sem rannsakaði sóun í hergagnafram-
leiðslu og var valinn varaforsetaefni Roosevelts í
kosningunum 1944. Áður en stríðinu lauk dó Roos-
evelt og Truman varð forseti. Honum tókst með
naumindum að snúa nánast fyrirfram töpuðum
kosningum sér í hag árið 1948 en þegar hann lét af
embætti 1952 hafði hann minnsta fylgi sem fráfar-
andi forseti hefur mælst með síðan farið var að mæla
það. Seinni tíma söguskoðun lítur Truman hins veg-
ar mildari augum en myndin beinir fyrst og fremst ljósinu að erfiðum
ákvörðunum sem hann þurfti að taka og lýsir Truman sem lítillátum
manni sem fannst hann aldrei hafa mikið erindi í forsetastólinn. Sögu-
skoðun í myndinni er fremur grunn og hún er kannski of dramatíseruð
á köflum en segir engu að síður frá mjög áhugaverðum atburðum og nær
að halda athygli áhorfandans vel. Gary Sinise er mjög góður leikari og
gerir Truman einkar vel skil þó hann sé orðinn svolítið ótrúverðugur í
lokin sem tæplega sjötugt gamalmenni en það mætti víst kallast förðun-
arafrek ef ekki væri hægt að finna hnökra á því. Þá er Diana Scarwid
mjög traust í hlutverki eiginkonu Trumans.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Frank Pierson. Aðalhlutverk: Gary Sinise og Diana
Scarwid. Bandarísk, 1995. Lengd: 115 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ
Sense and Sensibility
★★★Á Eftir sögu Jane flusten
Sense and Sensibility er stórt verk. Myndin er gerð
eftir sögu Jane Austen, handritið skrifað af Emmu
Thompson, sem einnig leikur í myndinni ásamt Kate
Winslet, Hugh Grant og Alan Rickman, og leikstjóri er
hinn tævanski Ang Lee sem gert hefúr The Wedding
Banquet og Eat Drink Man Woman. Miðað við allan
þennan stjömufans er kannski ekkert skrýtið að
myndin fékk einar sjö óskarsverðlaunatilnefningar.
Hér segir frá ástalífi heldra fólks í Englandi í lok 18.
aldar í dæmigerðum Jane Austen stil. Jane Austen
hefúr hingað til verið mest áberandi i sjónvarpi og
hafa ófáar sápur verið gerðar eftir sögum hennar en í meðförum Emmu
Thompson og Ang Lee verður sagan mjög skemmtileg og rís upp úr sáp-
urrni. Handritið er fjörlega skrifað og Ang Lee er meistari í að koma mann-
lega þættinum til skila. Saman gera þau mynd sem nær að höföa til áhorf-
andans þótt um sé að ræða persónur og ethi sem er mjög fjarlægt áhorf-
andanum. Hjálpar þar einnig til góður og agaður leikur. Emma Thompson
er frábær að venju og Kate Winslet stendur sig ágætlega. Þá sýnir Alan
Rickman mjög fágaðan leik og Hugh Grant, sem er í sama hlutverki og
venjulega, kann sitt hlutverk utan að og er jafiivel ennþá hlédrægari en
vanalega. Sagan er hugljúf ástarsaga og býður upp á mikla tilfinningasemi
en henni er haldið innan smekklegra marka, enda er myndin bresk, ekki
bandarísk. Bretar taka Hollywood í bakaríið í gerð dramatískra mynda.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ang Lee. Aöalhlutverk: Emma Thompson, Kate Winslet, Alan
Rickman og Hugh Grant. Bresk, 1995. Lengd: 131 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ
Clockwork Mice
Kennari í sérskóla
Ian Hart leikur Steve, ungan kennara sem hefur störf
við sérskóla fýrir erfiða nemendur. Nemendumfr eru
svo sannarlega erfíðir en Steve nær smám saman nokk-
urri stjóm á þeim og stærsti sigur hans er í Conrad sem
er erfiðari en þeir flestir og hefur dregið sig inn í skel. í
ljós kemur að hann er efnilegur hlaupari og þar sem
Steve er mjög góður hlaupari tekst með þeim vinátta þar
sem Steve þjálfar Conrad og nær sambandi við hann.
Jafnframt er Steve að reyna að þróa samband við eina
kennslukomma en gengur hálfbrösulega. Hún reynist
ekki hafa sama eldmóð og hann við kennsluna og er ekki ánægð í starfi
sínu. Uppbygging sögunnar gengur vel framan af. Persónumar era vel
leiknar og vel skrifaðar þannig að maður hefúr áhuga á þeim og afdrifum
þeirra en endirinn er illskiljanlegur fyrir meðaljóna eins og mig og virkar
hálfbjánalegur sem dregur mikið úr ánægjunni af myndinni. Ian Hart er
góður leikari en er ekki að sýna neitt mikið hér. Hins vegar er gaman að
sjá Art Malik (vondi hryðjuverkaarabinn í Trae Lies) í alvöruhlutverki og
það gneistar af Ruaidhri Conroy í hlutverki Conrads. Ef betur hefði verið
vandað til endisins, melódramatíkin aðeins temprað og athafnir aðalper-
sónanna útskýrðar aðeins betur heföi verið um virkilega góða mynd að
ræða. í staðinn er myndin aðeins athyglisverð.
Útgefandl: Háskólabíó. Leikstjóri: Vadlm Jean. Aöalhlutverk: lan Hart og Ruaidhri
Conwoy. Bresk, 1995. Lengd: 90 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ
SÆTI jFYRRI j VIKfl J IVIKUR fl LISTfl J J J J TITILL ' ÚTGEF. J j ’' " - ;teg.
1 í 1 J 2 J . J Casino 1 ClC-myndir Spenna
i Ný J 1 l J Get Shorty J j Warner -myndir 1 i Gaman
J j i i i
3 ! 2 J 3 J J Dead Man Walking ; Háskólabíó j Drama
4 ! 3 J J J 6 J J J Heat ) WsStíigKBMi j Warner -myndlr i !Spenna }
5 j 5 .. p J 3 J Thin Line Between.. J ’ j Myndform i j Gaman
6 J ! 4 3 J J Father of the Bride ~ ■ " - JSflM-Myndbönd J Gaman ■ J J
7 j 9 J 2 J Apaspil ) Skífan ) Gaman
8 ; e J -=Jryr J í* f'iZ 4 J J ':j ,! Strange Days i ClC-myndlr J Spenna
9 1 7 J 3 J JL, Four Rooms ; Skífan ; Gaman
10 ! ío j 6 J J J Kids Skífan ilBlSSHl Drama j
11 ! 8 J 7 j J Jumanji J Skífan Gaman
■- I '.-■ ..■ , fJH . j 'Y', V';'-..
12 J Ný 1 City Hall Skrfan Spenna
13 i 12 J® J 8 "'Y" i Leaving Las Vegas J ) Skífan j Drama
14 j; i8 J 6 i J Babe ClC-myndir ’ - 7';Xí Gaman j i- .í'.
15 11 4 J The Bridges of Maddison County 1 Warner -myndir ) Drama
16 ! 14 5 J Cutthroat Isiand ) ) Skífan HISÍBi§l2Sf81íl8 Spenna j
17 116 J . 1. 7 J i Now and Then Myndform 1 Giman
18 ! 13 5 i J J X-Files: 82517 J i Skífan ) ) ! Gaman
19 ! 20 J J 2 J J Man With a Gun j Myndform j Spenna
20 ; 17 J 7 yjp Clockers j ClC-myndir ) 1Spenna
Stórmynd Martins Scorsese,
Casino, heldur efsta sæti
myndbandalistans en í ööru
sæti er ný mynd á listanum,
Get Shorty, sem er skemmti-
leg blanda gríns og spennu
þótt húmorinn hafi yfirleitt yf-
irhöndina. Aöeins ein önnur
ný mynd er á listanum, City
Hall, þar sem Al Pacino leikur
spilltan borgarstjóra. Á
myndinni eru John Travolta
og Rene Russo í hlutverkum
sínum í Get Shorty.
%
Í
m: v‘
- V ’p
Casino
Robert De Niro
og Sharon Stone
Castno gerist í
Las Vegas árið 1973,
Sam „Ace“ Roth-
stein er leppur mafi-
unnar og rekur
spilavíti og hefur
gott upp úr krafs-
inu. Mafiustjóramir
era samt ekki fúll-
komlega ánægðir og
senda Nicky
Santoro til liðs við
Sam og eiga þeir að
bæta hvor annan
upp. Scun hefur hug-
vitið en Nicky er
hlynntur valdbeit-
ingu. Þetta er öflug
blanda sem fátt get-
ur staðist. En þegar
kynbomban Giriger
McKenna kemur til
skjalanna fer að
hitna í kolunum.
Get Shorty
John Travolta og
Gene Hackman
Handrukkarinn
Chili Palmer er einn
sá albesti í faginu.
Hann er fengin til að
fara til Las Vegas til
að innheimta pen-
inga sem Mafían
gerir tilkall til. I
leiðinni er hann beð-
inn að koma við í
Hollywood og inn-
heimta smáskuld
hjá kvikmyndfram-
leiðanda. í fram-
haldi fær Palmer
mikinn áhuga á
kvikmyndabransan-
um og ákveður að
hella sér út í hann af
fullu. Og hæfileikar
hans sem handrukk-
ari koma honum að
gagni í kvikmynda-
heiminum.
Dead Man
Walking
Susan Sarandon
og Sean Penn
Þessi úrvalsmynd
er byggð á sannsögu-
legri frásögn systur
Helan Prejan. Dag
einn berst henni bréf
frá dauðadæmdum
manni, Matthew
Poncelet, sem biður
trúboð hennar um
hjálp. Hún heldur til
fundar við hinn ör-
væntingarfúlla mann
sem dæmdur hefur
verið til dauða. Hann
biður Helen að koma
í veg fyrir að dauða-
refsingunni verði
beitt Helen á óhægt
um vik vegna sann-
ana gegn honum en
reynir að draga fram
sannleikann.
Heat
Al Pacino og Ro-
bert De Niro
í Heat segir frá
hinum snjalla at-
vinnuglæpamanni
Neil sem ásamt
mönnum sínum
leggur á ráðin um
nokkur hátæknileg
rán. Vincent er
rannsóknarlögreglu-
maður í rán- og
morðdeild. Einkalif
hans er ein rjúkandi
rúst enda kemst ekk-
ert annað að í huga
hans en starfið. En
hann er ekki síður
snjall en Neil og með
hjálp sinna manna
og uppljóstrara tekst
honum smám sam-
an að þrengja netið í
kringum glæpa-
mennina.
mam8*:ó vaemn shokft
Thin Line
between Love
and Hate
Martin Lawrence
og Lynn Whitfield
Aðalpersónan er
glaumgosinn Dam-
ell. Dag einn hittir
hann hina stórglæsi-
legu Brandi Webb og
veðjar við besta vin
sinn um að honum
muni fljótlega takast
að sænga hjá henni.
Eftir nokkrar til-
raunir virkar sjarmi
Darnells en þegar
hann ætlar að losna
við Brandi er hún
ekkert á þeim bux-
unum að hætta sam-
bandinu og Damell
kemst að því að kona
sem svikin er af ást-
manni sínum getur
verið hættuleg.
i