Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Fréttir
Mál Sólar gegn Mjólkursamlagi KEA:
Áfrýjunarnefnd staðfestir
úrskurð samkeppnisráðs
Áfryjunamefnd samkeppnismála
hefur staðfest í flestum atriðum úr-
skurð samkeppnisráðs frá sl. vori
þess efhis að Kaupfélagi Eyflrðinga,
KEA, verði gert að skilja aö fjár-
hagslegan rekstur Mjólkursamlags
KEA og annan rekstur kaupfélags-
ins.
Ár er liðið síðan fyrirtækið Sól
sendi Samkeppnisstofnun erindi
þar sem þess var krafist að sam-
keppnisráð mælti fyrir um fiárhags-
legan aðskilnað mjólkurbúanna og
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík á
- um fjárhagslegan aöskilnað mjólkursamlagsins og KEA
þeim rekstri sem fellur undir
vinnslu á mjólk og hreinum mjólk-
urvörum og þess hluta sem er í sam-
keppni við aðra aðila. Að sam-
keppnisrekstur sé þannig ekki nið-
urgreiddur af starfsemi á sviði
mjólkuriðnaðar og að eðlilegt end-
urgjald komi fyrir aðstöðu og búnað
sem kann að verða fluttur milli
rekstrareininga við aðskilnaðinn.
Nokkur kaupfélög og mjólkurbú
skiluðu greinargerð og var mál
Mjólkursamlags KEA tekið sérstak-
lega fyrir í samkeppnisráði.
Magnús Gauti Gautason, kaupfé-
lagsstjóri KEA, sagðist við DV vera
óhress með'niðurstöðuna og að yfir
höfuö hafi þurft að úrskurða í mál-
inu. KEA hefði alltað haldið mjólk-
ursamlaginu aðskildu fiárhagslega.
„Mér finnst áfrýjunamefndin
ekki hafa tekið efnislega og lagalega
á þeim þáttum sem við vísuðum til
í okkar áfrýjun. Við getum farið
með þetta mál áfram fyrir dómstóla,
höfum sex mánaða frest til að hugsa
um það. Á þessu stigi er þó frekar
ólíklegt að viö forum svo langt,“
sagði Magnús Gauti.
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Sólar,
var að vonum ánægður með úr-
skurð áfrýjunarnefndar. Niðurstað-
an væri ekki síst til farsældar fyrir
bændur þessa lands.
„Niðurstaðan er sanngimismál,
að fyrirtæki búi við þau skilyrði
sem sett em upp að hálfu löggjafans
varðandi upplýsingaskyldu og að-
greiningu rekstrar. Niðurstaðan er
réttlætismál gagnvart bændum sem
leggja inn í þetta mjólkursamlag og
önnur. Nú geta þeir séð hvaða af-
komu rekstrareiningamar, sem eru
hluti af þeirra batteríi, eru að skila.
Hún er liður í því að opna fyrir
þetta lokaða umhverfi í landbúnað-
inum. Bændum er sagt að þeir eigi
afurðastöðvamar. Síðan þegar þeir
vilja selja sinn hlut þá fá þeir ekki
neitt. Bændur em lokaðir inni í
þessum hring og munu uppgötva
það fyrr en síðar,“ sagði Páll.
-bjb
Sænskur skurðlæknir kominn til landsins:
Framkvæmir aðgerð á
þremur börnum sem
þjást af taugalömun
- mjög mikilvægt, segir Sigríður Logadóttir
„ Við lögðum fyrir framkvæmda-
stjóm Ríkisspítalanna erindi þess
efnis að fá sænska lækninn hingað
til lands og gera aðgerð á þremur
börnum. Það var samþykkt og nú er
læknirinn kominn og mun fram-
kvæma þessar aðgerðir," segir Sig-
ríður Logadóttir lögfræðingur, en
hún er i forsvari foreldra bama sem
þjást af taugalömun vegna axla-
klemmu í fæðingu.
Eins og fram kom í DV í sumar
hafa foreldramir í töluverðan tíma
barist fyrir því að fá sænska bækl-
unar- og taugaskurðlækninn Thom-
as Carlstedt til íslands til að fram-
kvæma þessar aðgerðir. Carlstedt er
mjög þekktur skurðlæknir á sínu
sviði en hann vinnur á bæklunar-
deíld Royal National spítalans í
London. Læknirinn kom til lands-
ins síðdegis í gær og fór beint á
Landspítalann til að skoða börnin
þrjú sem gangast undir skurðað-
gerðimar í dag. íslensku skurð-
læknamir Rafn Ragnarsson og Ari
Jóhannesson munu aðstoða Carl-
stedt í aðgerðunum.
„Þetta er búinn að vera löng bar-
átta hjá okkur en loksins tókst að
ná þessu í gegn og við erum auðvit-
að himinlifandi. Það er mjög mikil-
vægt að fá þennan lækni til að fram-
kvæma þessar aðgerðir. Hann skar
son minn upp fyrir tveimur árum
og það heppnaðist mjög vel.
Annars er með ólíkindum hvem-
ig kerfið tekur á móti fólki sem ætl-
ar að spara. Tryggingastofnun var
tilbúin að senda bömin út í aðgerð
sem hefði kostað um milljón krónur
á bam en vildi ekki borga 500 þús-
und fyrir að fá sænska lækninn
hingað.
Tryggingastofnun ætlar að vísu
að borga hluta af þessu en einkaað-
ilar munu borga afganginn. Það
hafa margir hjálpað til því Flugleið-
ir bjóða lækninum flugfar fram og
til baka og Hótel Saga býður uppi-
hald meðan á dvöl hans stendur
hér. Annars var það framtakssamur
eldri borgari sem var mikilvægasti
hlekkurinn því hann safnaði styrkj-
um frá einkaaðilum til aö gera þetta
mögulegt. Hann vill ekki láta nafn
síns getið en við þökkum honum
fyrir frábært starf,“ segir Sigríður.
-RR
Sænski bæklunar- og taugaskurðlæknirinn Thomas Carlstedt ásamt Rafni
Ragnarssyni, yfiriækni á lýtaiækningadeild Landspítalans. Carlstedt mun
framkvæma skurðaðgerð á þremur börnum á Landspítalanum í dag en börn-
in þjást af taugalömun. Rafn mun verða Svíanum til aðstoðar.
DV-mynd GVA
Keflavíkurflugvöllur:
Stefnir í nýtt sölumet hjá fríhöfninni
DV, Suðurnesjum:
„Hluti af skýringunni að mínu
mati er farþegaaukningin sem hef-
ur átt sér stað og skiptingin meðal
farþega. Þjóðverjum hefur fækkað
en þeir hafa ekki verið góðir við-
skiptavinir okkar - fastheldnir á
budduna - en fleiri íslendingar
ferðast í ár en áður,“ sagði Guð-
mundur Karl Jónsson, forstjóri frí-
hafnarinnar á Keflavíkurflugvelli, í
samtali við DV.
Mikil veltuaukning hefur orðið í
verlun fríhafnarinnar í ár og stefn-
ir í að slegið verði metiö sem sett
var í fyrra. Meira fé kemur því í
ríkissjóð en áður frá versluninni.
Veltan í fyrra var 2,2 milljarðar
króna. Sú tala hefur enn ekki náðst
í ár en er ekki langt í hana. Senni-
lega næst hún í nóvember og reikn-
að er með að ársveltan verði um 2,5
milljarðar.
Fríhöfnin greiddi í fyrra 100
milljónir króna í hússjóð og sam-
eiginlegan kostnað flugstöðvarinn-
ar. Hagnaður var 600 milljónir sem
rann í ríkissjóð og nú stefnir í
hærri upphæð. í fyrra gerðist það í
fyrsta skipti að tekjur í nóvember
voru hærri en í ágúst, sem er oftast
söluhæsti mánuðurinn, og reiknað
er með að velta í nóvember í ár
verði mikil. Þá er salan þaö sem af
er október nú mikil. Meðalaukning
í ár er 17-18% í flestum mánuðun-
um og hefur farið mest í 30%.
í sumar unnu 140 í fríhöfninni en
starfsmenn eru nú 110, stór hluti í
hálfu starfi. Afleysingafólkið
starfar til 15. desember vegna
haustferða sem fram undan eru.
-ÆMK
Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringja! síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já 1 A/ni ? j rödd FOLKSINS
Ja *■ niOI / 904 1600
Á Jón Baldvin að hætta sem
formaður Alþýðuflokksins?
Stuttar fréttir
Jökulsá vatnsmikil
Jökulsá á FjöOum er aurug og
vatnsmikil. Samkvæmt RÚV
hafa fúndist merki um
kvikuáhrif í henni sem rakin
eru til gossins í Vatnajökli.
Aðild að Schengen
Pólitískt samkomulag náðist í
Lúxemborg í gær um aukaaðild
íslands og Noregs að Schengen-
samkomulaginu. RÚV greindi
frá þessu.
Elín Hirst rekin
Elín Hirst hætti í gær sem
fréttastjóri Stöðvar 2. Hún segist
hafa verið rekin fyrir að hafa
þjónað hagsmunum almennings
frekar en eigenda stöðvarinnar.
PáU Magnússon hefúr verið
ráðinn í hennar stað.
Úrskurðir til dómstóla
Bamaverndaryfirvöld eru að
kanna hvort færa megi úrskurða-
vald barnaverndamefnda til
almennra dómstóla. RÚV greindi
frá þessu.
Gullæði í aðsigi?
Niðurstöður guUleitarinnar í
Þormóðsdal liggja fyrir og gefa
vísbendingu um að guU megi
finna í vinnanlegu magni á
íslandi. Stöð 2 greindi frá þessu.
ístak lægst
Verktakafyrirtækið ístak
reyndist eiga lægsta tilboðið í
endurbætur á Keflavíkurflug-
veUi sem kosta eiga vel á annan
miUjarð króna.
Samkvæmt Stöð 2 er þetta
fyrsta opna útboðið á VeUinum.
Fordæmisgildi
Framkvæmdastjóri ASÍ segir
að dómur Félagsdóms um
orlofsgreiðslur tfl handa dómur-
um hafi ótvírætt fordæmisgUdi
fyrir launþega. Þetta kom fram á
Stöð 2.
Gróði af hvalaskoðun
Gjaldeyristekjur af hvala-
skoðun við ísland nema 150-170
miUjónum króna á þessu ári.
Samkvæmt Stöð 2 fóru 9.500
manns í hvalaskoðunarferðir við
íslandsstrendur, langflestir frá
Húsavík.
Vopn frá ESB til ASÍ
TUskipun Evrópusamband-
sins, ESB, um 48 stunda
vinnuviku verður sterkt vopn í
kjarabaráttunni fram undan að
mati ASÍ. Sjónvarpið skýrði frá
þessu. -bjb