Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Fréttir
Upplýsingar sem borist hafa frá Tyrklandi um forsjármálið sem 7 dómar eru gengnir í:
Minnst þrír dómar eftir
I máli Sophiu Hansen
- Halim hefur ekki fundist og var því aldrei birt fyrirkall í sakamálinu á mánudaginn
Samkvæmt heimildum DV um
forsjármál Sophiu Hansen er ljóst
að það á eftir að fara í gegnum að
minnsta kosti þrjú þrep enn þá í
dómskerfinu þar ytra áður en loka-
niðurstaða fæst.
Vonir standa til að áfrýjunarrétt-
ur í Ankara fjalli um málið þann 22.
nóvember. Þegar dómur gengur þar
mun það verða sent héraðsdómara í
Istanbúl enn eina ferðina - hann
mun síðan taka afstöðu til niður-
stöðu áfrýjunarréttarins. Hvernig
sem málið fer í héraðsdómi er ljóst
að annar hvor málsaðili mun áfrýja
til fullskipaðs Hæstaréttar Tyrk-
lands. Þegar æðsti dómstóll hefur
tekið málið fyrir er fyrst hægt að
gera sér vonir um endanlega dóin-
sniðurstöðu.
Samkvæmt framganginum í tyrk-
neska dómskerfinu á síðustu sex
árum í máli Sophiu, þar sem sam-
tals sjö dómar hafa gengið, er því
vart hægt að búast við lokadómi
fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt ár.
ítrekaðar fuUyrðingar um loka-
dóm brugðust
í ljósi þessa er athyglisvert að
rifja upp ummæli Hasips Kaplans,
lögmanns Sophiu, við blaðamann
DV, er hann tók viðtal við hann á
skrifstofu lögmannsins í Istanbúl í
október 1994 - fyrir réttum tveimur
árum:
„Við erum að nálgast endastöð í
þessu máli.“ Hann sagði jafnframt
að málið myndi „vinnast á næsta
ári“, á árinu 1995. Þá fengi Sophia
jákvæðan dóm í hendur - eftir 6-7
mánuði.
Það er langt i frá að þessi um-
mæli hafi ræst eins og raun ber
vitni. Oftar en einu sinni hefur ver-
ið talað um lokadóma sem ekki stóð-
ust. Sjö dómar eru þegar gengnir á
tveimur dómstigum en von er á að
minnsta kosti þremur í viðbót.
„Ég er sannfærður um að við
vinnum þetta mál. Því má þó ekki
gleyma að hér (í Tyrklandi) er
dómsmál eitt en framkvæmd dóma
annað,“ sagði Kaplan jafnframt í
viðtalinu.
Hasip hefur síðan gjaman vísað
til þess að verði niðurstaða ekki
hliðholl Sophiu fari málið fyrir
mannréttindadómstól Evrópu.
Hvenær eða hvort það verður ein-
hvem tímann veit að sjálfsögðu eng-
inn enn þá - sá dómstóll mun þó
væntanlega ekki senda dætur
Sophiu til íslands.
Er Halim búinn að koma
dætrunum undan?
„Tyrknesk stjórnvöld hafa gefið
okkur vilyrði fyrir því að hjálpa til
við að fylgja eftir úrskurðum þar-
lendra dómstóla," sagði Halldór Ás-
Þessi mynd var tekin á skrifstofu Hasips Kaplans, fögmanns Sophiu, í Istanbúl fyrir réttum tveimur árum. Við þetta
tækifæri sagöi lögmaðurinn að lokadómur yrði í máli Sophiu eftir 6-7 mánuði, það er á fyrri hluta árs 1995 - með
jákvæðri niðurstöðu fyrir Sophiu. Langur vegur er frá því að þetta hafi gengið eftir. Upplýsingar í dag benda til að
lokadómur gangi ekki fyrr en hugsanlega í ársbyrjun 1988. DV-mynd Óttar Sveinsson.
grímsson utanríkisráðherra í sam- Hann var að vísa til þess að allt dómsúrskurði um umgengi Sophiu
tali við DV í júli síðastliðnum. skyldi gert til að freista þess að fá og dætranna i Istanbúl framfylgt.
Hann sagði við sama tækifæri að
þeir Ólafur Egilsson og Atli Ás-
mundsson yrðu í Tyrklandi um
sumarið eins og nauðsyn bæri til,
eða að „. . . heimferð þeirra hefur
ekki verið dagsett", eins og hann
orðaði það. Þeir eru nú báðir komn-
ir heim en hvemig stendur um-
gengnismálið?
„Yfirvöld í Tyrklandi, bæði lög-
reglan i Bakirkoy, hverfi Halims, og
nú síðast sakadómur, hafa gert ráð-
stafanir til þess að hann verði lát-
inn hlíta ákvæðum dómsúrskurðar-
ins um umgengni," sagði Ólafur Eg-
ilsson í samtali við DV í gær.
„Vandamálið hefur hins vegar
verið að faðirinn hefur verið fjar-
verandi og ekki hefur náðst til hans.
Fréttaljós
Óttar Sveinsson
Þegar reynt hefur verið að láta
reyna á umgengnisréttinn þá hefur
ekki verið hægt að ná til dætr-
anna,“ sagði Ólafur. Hann vísaði
síðan til þess að lögmaður Sophiu
væri nú sá aðili sem væntanlega á
að fylgja því eftir að Tyrkir hafi upp
á Halim - hann hefði til þess um-
boð.
Halim ekki birt fyrirkall í
sakamálinu
í gögnum, sem ræðismaður ís-
lands í Tyrklandi sendi utanríkis-
ráðuneytinu í vikunni vegna
ákvörðunar dómara í Istanbúl um
að fresta sakamáli á hendur Halim
A1 í Istanbúl á mánudagsmorgun,
kemur fram að ekki hafi tekist að
birta sakborningnum fyrirkall.
Þetta er því væntanlega skýringin á
því að hvorki Halim né lögmaður
hans mættu fyrir dóminn til að
svara til saka fyrir ákæru um brot á
umgengnisrétti Sophiu og dætranna
tveggja.
Aspurður hvort íslensk stjórn-
völd geti þrýst á tyrkneska stjóm-
kerfið í því skyni að birta sakborn-
ingnum í það minnsta fyrirkallið
sagði Ólafur Egilsson að ekki sé
hægt að grípa inn í það sem dóm-
stólamir geri:
„Það er hlutverk lögmanns þess
sem hefur hagsmuna að gæta að
fylgjast með því að þau lagaákvæði
og þeir möguleikar í dómskerfinu
séu nýttir til að birta manninum
fyrirkall,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði að ákæran, sem sak-
sóknari í Istanbúl hefur gefið út á
hendur Halim Al, væri fyrst og
fremst sá árangur sem náðst hefur
af hálfu ráðuneytisins á árinu.
Framkvæmdalánasjóður þriklofinn
- og ágreiningur meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Húsavíkur er kristaltær
DV, Akureyri:
Á fundi Framkvæmdalánasjóðs
Húsavíkur, sem haldinn var í
fyrradag, kom greinilega fram að
stjóm sjóðsins er þríklofin í af-
stöðu sinni til sölunnar á hluta af
hlutafé bæjarsjóðs Húsavíkur í
Fiskiöjusamlaginu en stjóm fyrir-
tækisins hefur óskað eftir að kaupa
af hluta bæjarins þannig að bærinn
verði ekki meirihlutaeigandi í nýju
útgerðar- og vinnslufyrirtæki er
Höfði og Fiskiðjusamlagið verða
sameinuð í lok mánaðarins.
Stefán Haraldsson, oddviti fram-
sóknarmanna í bæjarstjóm Húsa-
víkur, lagði á fundinum til að sam-
þykkt yrði að leggja til við bæjar-
stjóm að salan færi fram en Krist-
ján Ásgeirsson, oddviti hins flokks-
ins í meirihluta bæjarstjómar,
óskaði bókunar þess efnis að hann
gæti ekki fallist á þessa tillögu.
Einnig lagði Stefán Haraldsson
fram tillögu þess efhis að sjóðurinn
seldi sameinuðu félagi Höföa og
Fiskiðjusamlagsins hlutabréf að
nafnveröi 55 milljónir króna á
genginu 1,95 en tilboð fyrirtækj-
anna um kaup á bréfunum var um
65 milljónir á genginu 1,71. Hvor
leiðin sem farin verður þýðir að
Húsavíkurbær verður ekki meiri-
hlutaeigandi í fyrirtækinu og er
reiknaö meö að sátt náist um sölu-
verð bréfanna.
Á fundinum kom skýrt fram að
Kristján Ásgeirsson, oddviti Al-
þýðubandalagsins, leggst gegn sölu
bréfanna. Sigurjón Benediktsson,
oddviti sjálfstæðismanna, sem er
áheyrnarfúlltrúi í Framkvæmda-
lánasjóðnum, sagöist styðja söluna.
Jón Ásberg Salómonsson, oddviti
Alþýðuflokks, sagði að samkomu-
lag um sameiningu Höfða og Fisk-
iðjusamlagsins væri í meirihluta-
samkomulagi framsóknar- og al-
þýðubandalagsmanna. Alþýðu-
flokkurinn hefði lýst yfir andstöðu
við það mál en myndi ekki standa í
vegi fyrir áformum meirihlutans
og sitja hjá.
Valgerður Gunnarsdóttir, annar
fulltrúi Alþýöubandalagsins, sagði
í samtali við DV að hún mundi
greiða atkvæði gegn sölu hluta-
bréfa bæjarins á genginu 1,95 en
Tryggvi Jóhannsson, þriðji bæjar-
fúlltrúi Alþýðubandalagsins, sagð-
ist ekki láta sína afstöðu uppi fyrr
en á bæjarstjómarfundi. Það breyt-
ir ekki því að er málið verður til
lykta leitt á bæjarstjómarfundi nk.
þriðjudag er engin samstaða á milli
flokkanna tveggja í meirihluta bæj-
arstjómar og blasir því við að
meirihlutinn falli á þeim fundi.
-gk