Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 UPPBOÐ.A LAUSAFJAR- MUNUM Eftirtaldar vélar til lakkrísfram- leiöslu verða boönar upp að Ormsvelli 12 á Hvolsvelli föstu- daginn 25. október nk. kl. ________15.00._______ Suðupottur, 800 lítra, vélknúinn skurðarhnífur, dæla til að dæla lakkrísmassa, færiband, útsprautunarvél. Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU UPPBOÐ.A LAUSAFJAR- MUNUM Eftirtaldar bifreiðar og dráttar- vélar verða boðnar upp við lög- reglustöðina á Hvolsvelli föstu- daginn 25. október nk. kl. 16.00. IC-460 Y-1855 R-41784 HT-903 OB- 674 JM-517 X-1800 R-30354 NK-259 Einnig: rúllupökkunarvél, rúllubindivél og heytætla. Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 15.00 á eftir- _________farandi eignum:_________ Fossalda 8 (1. hæð), Hellu. Þingl. eig. Halldór Pálsson. Gerðarbeiðendur eru Búnaðarbanki íslands og Vátryggingafé- lag íslands hf. Gerðar, 75%, Vestur-Landeyjahreppi. Þingl. eig. Ólafur Þór Ragnarsson. Gerð- arbeiðendur eru Stofnlánadeild landbún- aðarins, Byggingarsjóður ríkisins, Kaup- félag Rangæinga og Lífeyrissjóður Dags- brúnar og Framsóknar. Hlíð I, II og III, A-Eyjafjallahreppi. Þingl. eig. Eiríkur Ingi Sigurjónsson. Gerðarbeiðendur eru sýslumaður Rangár- vallasýslu, Landsbánki íslands, Stofn- lánadeild Iandbúnaðarins og Kaupfélag Rangæinga. Hlíðarvegur 19, Hvolsvelli. Þingl. eig. Elísabet G. Ólafsdóttir. Gerðarbeiðandi er Tryggingastofnun rík. v/Lífeyrissjóðs stm. ríkisins. Hólavangur lln, Hellu. Þingl. eig. Rang- árvallahreppur. Gerðarbeiðandi er Bygg- ingarsjóður verkamanna. Hraukur II, Djúpárhreppi. Þingl. eig. Jón Ingþór Haraldsson og Ingibjörg L. Karls- dóttir. Gerðarbeiðandi er Byggingarsjóð- ur ríkisins. Lyngás 4, Holta- og Landsveit. Þingl. eig. Karl Rúnar Ólafsson. Gerðarbeiðandi er Mosfellsbær. Sumarhús og lóð í landi Haga, Holta- og Landsveit. Þingl. eig. Þorsteinn Guð- laugsson. Gerðarbeiðendur eru tollstjór- inn í Reykjavík, Gjaldheimtan í Reykja- vík og Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU Utlönd Lebed, öryggismálastjóri Rússlands, rekinn: Spáir heitu hausti en hvetur til stillingar Alexander Lebed sýnir innanríkisráðherra Rússlands, Anatolí Kulikov, gögn á fundi rússnesku stjórnarinnar í Moskvu í gær. Til hægri við Lebed á mynd- inni er Igor Rodionov varnarmálaráðherra. Símamynd Reuter Alexander Lebed, sem var yfir- maður öryggismála Rússlands þar til í gær er Jeltsín forseti rak hann, hvatti í gær stuðningsmenn sína til að sýna stillingu. En hann spáði „heitu hausti“. „Ég hvet félaga mína í hernum, stuðningsmenn mína og fólk sem ég þekki ekki persónulega til að gæta stillingar. Við breytum aðeins eftir stjómarskránni," sagði Lebed í gær um þremur klukkustundum eftir að Jeltsín birtist í ríkissjónvarpinu og sakaði hann um skort á liðsanda. Jeltsín sakaði Lebed einnig um að fara ekki dult með þann metnað sinn að vilja verða næsti leiðtogi Rússland og undirritaði brottrekstr- arskjölin í beinni útsendingu. Lebed kvaðst ekki undrandi á því að samvinna hans við Jeltsín og fé- laga hans hefði ekki gengið upp. „Ég var svarti sauðurinn í hjörð- inni. Það var einungis spurning um tíma hvenær þeir myndu reka mig.“ Anatolí Kulikov innanríkisráð- herra sakaði á miðvikudaginn Lebed um að undirbúa valdarán. Lebed vísaði ásökunum á bug en staðfesti að hann sæktist eftir for- setaembættinu. „Fyrst ætla ég að sofa vel. Síðan ætla ég að hefjast handa við að fægja pólitísku vélina mína svo hún verði tilbúin fyrir for- setakosningarnar," sagði Lebed. Hann neitaði þvi að sér lægi á. „Ég ætla ekki að hefja kosningabaráttu á meðan forsetinn er á lifi.“ Viðbrögð erlendis við brottvikn- ingu Lebeds hafa verið varfærin. Bandarískir embættismenn sögðu brottvikninguna vera innanríkis- mál og engin þáttaskil. Lögð var áhersla á að atburðurinn breytti engu í samskiptum ríkjanna. Óró- leiki var þó á erlendum fjármála- mörkuðum í gær. Stjórnmálaskýrendur hafa áhyggjur af framtíð mála í Tsjetsjeníu en það var einmitt Lebed sem stóð fyrir umdeildu frið- arsamkomulagi við Tsjetsjena. Neðri deild rússneska þingsins mun ræða brottrekstur Lebeds í dag en ekki er búist við að hann njóti mik- ils stuðnings þar sem margir þing- menn eru andvígir friðarsamkomu- laginu við Tsjetsjeníu. Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar skoðanakönnunar er Lebed trúverð- ugasti stjórnmálamaður Rússlands. Reuter UPPB0Ð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eft- irfarandi eignum: Birtingakvísl 8, hluti, þingl. eig. Andrés G. Guðbjartsson, gerðarbeiðandi Vélboði hf., þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 10.00.___________________________ Laugavegur 68 (+ 1/2 lóðin Grettisg. 49A), 1. hæð, 32,8% af eignarhluta nr. 68 (16,4% af heildareign 66-68), þingl. eig. Vestpóst ehf., gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Eyjabakki 5, 4ra herb. íbúð á 2. hæð f.m. + bílsk, annar frá homi, þingl. eig. Þor- björg Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 16.30.___________ Ferjubakki 6, íbúð á 3. hæð t.h., merkt 0303, þingl. eig. Ólafía Sigríður Brynj- ólfsdóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanld íslands, þriðjudaginn 22. október 1996 kl, 17.00.________________________ Lækjargata 4, 56,8 fm miðjuíbúð t.v. á 4. hæð og 4,8 fm geymsla í kjallara, merkt 0003, þingl. eig. Sigurður SvavarTómas- son, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar, Islandsbanki hf., útibú 552, og Lækjargata 4, húsfélag, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 14.00. Reynimelur 39, íbúð í kjallara m.m., þingl. eig. Hörður Hákonarson, gerðar- beiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Húsasmiðjan hf., húsbréfadeild Húsnæð- isstofnunar og Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 13.30. Svarthamrar 14, íbúð á 1. hæð, merkt 0101, þingl. eig. Ósk Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verka- manna, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 16.00.____________________________ Vesturfold 44, þingl. eig. Kristinn Þórður Elíasson, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, þriðjudaginn 22. október 1996 kl. 15.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Sálfræöiprófessor um forsetaframbjóöendurna: Blikk segir til um hvor sigrar Til þess að komast að því hvor var undir raunveralegum þrýstingi, Bill Clinton Bandarikjaforseti eða Bob Dole, forsetaframbjóðandi repúblikana, í sjónvarpskappræð- um þeirra í fyrradag taldi sálfræði- prófessor við háskólann í Boston hversu oft þeir blikkuðu augunum. Niðurstaðan var Bob Dole í óhag. Hann blikkaði 105 sinnum að meðal- tali á mínútu en Clinton ekki nema 48 sinnum að meöaltali. Sálfræðiprófessorinn, Joseph Tec- ce, stundaði þessar rannsóknir á forsetaframbjóðendum 1960, 1980, 1984,1988 og 1992 og komst að þeirri niðurstöðu að sá sem blikkaði oftar á mínútu tapaði alltaf í kosningun- um. Bob Dole var á kosningaferðalagi í Kaliforníu í gær. Símamynd Reuter „Fólki hættir til að blikka oftar þegar það er undir álagi,“ segir Tecce sem telur eðlilegt að blikka 30 til 50 sinnum á mínútu þegar maður kemur fram i sjónvarpi. „Mér þótti Clinton mjög afslappaður. Það leit út eins og hann skemmti sér vel.“ Clinton blikkaði tíðast þegar hann nefndi aldur Doles og hvernig hann gæti höfðað til ungs fólks en Dole átti mest í erfiðleikum með augnlokin þegar hann svaraði spurningu um sanngjörn laun fyrir fólk í hernum. Reuter Hong Kong búar mótmæla því að kínversk yfirvöld skuli hafa dæmt andófs- manninn Liu Xiaobo til þriggja ára vistar i þrælkunarbúðum. Simamynd Reuter Stuttar fréttir Bjóða vopnahlé Leiðtogi Bandidos vélhjólageng- isins í Danmörku hefur boðið vopnahlé við Hells Angels og seg- ir að stríðið bitni á saklausu fólki. 10 látast í fellibyl Að minnsta kosti 10 létust og hundruð hröktust frá heimilum sínum er fellibylurinn Lily gekk yfir Mið-Ameríku í gær. Játar fjöldamorð Leiðtogi jap- ansks sértrú- arsöfnuðar, Shoko Asahara, játaði fyrir rétti í gær að bera ábyrgð á gasárás í neð- anjarðarstöð í Tokyo í fyrra. Alls létust 11 manns í árásinni og 6000 þúsund veiktust. Asahara var handtekinn í maí í fyrra. Bilun orsök slyssins Rannsóknaraðilar segja að málmagnir úr Boeing 747 þotunni, sem fórst við Long Island við New York í júlí, gefi til kynna að bilun sé orsök slyssins en ekki sprengja eða flugskeyti. Með falsaða miða Ættingjar þeirra, sem létust á leikvanginum í Gvatemalaborg í fyrrakvöld segja að lélegt skipulag og ágimd hafi leitt til þess að þús- undir komust inn með falsaða að- göngumiða. Hvítir í meirihluta Hvítir eru í meirihluta í kviðdóminum sem búið er að útnefna fyrir ný réttarhöld yfir O.J. Simpson. Simpson var sýknaður i fyrra af morði á fyrrum eiginkonu sinni og vini hennar. Ættingjar hinna látnu hafa höfðað einkamál á hendur Simpson. Samsetningin í kvið- dóminum getur haft áhrif að ým- issa mati. í fyrra vora blökku- menn i meirihluta í kviðdóminum. Lífstíðarfangelsi 16 ára breskur piltur var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að stinga skólastjóra sinn til bana. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.