Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Blaðsíða 22
34
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Afmæli
Jón Erlendsson
Jón Erlendsson, yfírverkfræðing-
ur og forstöðumaður Upplýsinga-
þjónustu HÍ, Norðurvangi 5, Hafnar-
firði, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Jón fæddist á Esjubergi á Kjalar-
nesi en ólst upp í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1966,
fyrrihlutaprófi í vélaverkfræði frá
HÍ 1970 og seinnihlutaprófi frá
Lunds Tekniska Högskola 1978.
Jón var starfsmaður Hagsýslu-
skrifstofu Reykjavíkurborgar
1974-78, stjómaði Upplýsingaþjón-
ustu Rannsóknarráðs ríkisins frá
upphafi, 1978-88, og síðan Upplýs-
ingaþjónustu HÍ frá 1988. Upplýs-
ingaþjónusta Rannsóknarráðs varð
fyrsti innlendi aðilinn sem hóf
skipulega hagnýtingu á erlendum
gagnabönkum með beinum sam-
böndum. Jón hefur verið í forsvari
fyrir verkefni innan HÍ um sam-
vinnu kennara og nemenda um
námsgagnagerð, hefur unnið að
upplýsingamiðstöð um atvinnumál
og vinnur nú að þróun á
skipulagi að símennta-
kerfi fyrir Evrópusamtök
einkaritara á intemetinu.
Jón sat í upplýsinga-
nefnd NORD- FORSK
1974-76, í nefnd Rann-
sóknarráðs um upplýs-
ingamál og upplýsinga-
þjónustu 1976-78, sat í
NORDINFO, norræna
ráðinu um upplýsingamál
á sviði vísinda og tækni
1977- 91, í fjarmiðlunar-
nefnd Rannsóknarráðs
1978- 79, í nefnd norrænu ráðherra-
nefndarinnar um endurnýtingu úr-
gangsefna 1978-79, í nefnd mennta-
málaráðuneytisins um skóla og at-
vinnulíf, í menntamálahópi fram-
tíðanefndar forsætisráðuneytisins,
formaður útgáfunefndar Verkfræð-
ingafélags íslands 1984-86, í sam-
starfsnefnd um upplýsingamál
1976-90, í nefnd Rannsóknarráðs um
upplýsingatækni frá 1980, í tækni-
upplýsinganefnd AG-ARD/NATO
frá 1980 og hefur setið í verðlauna-
nefnd fyrir Nýsköpunar-
keppni grunnskólanema
1992.
Jón var ritstjóri Verk-
tækni, tímarits VFÍ og
Tæknifræðingafélags ís-
lands 1983-88, sá um út-
varpsþátt á Aðalstöðinni
um atvinnumál og upp-
lýsingamál, hefur flutt
útvarpserindi um upplýs-
ingamál og skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Anna Ólöf
Bjarnadóttir, f. 14.6.1947, rannsókn-
armaður. Hún er dóttir Bjama F.
Halldórssonar, skólastjóra í Njarð-
vík, sem er látinn, og k.h., Guðrún-
ar S. Bjömsdóttur húsmóður.
Börn Jóns og Önnu Ólafar eru
Ámi Már, f. 8.10. 1979, nemi; Berg-
lind, f. 1.7. 1983, nemi. Stjúpdóttir
Jóns er Guðrún Ólöf Hrafnsdóttir, f.
6.4. 1971, nemi.
Háifsystkini Jóns, sammæðra,
eru Dómhildur Glassford, f. 27.9.
1943, húsmóðir í Hveragerði; Oddur
0. Jónsson, f. 8.8. 1957, fram-
kvæmdastjóri i Reykjavík.
Móðir Jóns er Ása Hulda Jóns-
dóttir, f. 15.11.1921, saumakona.
Ætt
Ása Hulda er dóttir Jóns, stýri-
manns og verkstjóra hjá Eimskipa-
félagi íslands í Reykjavík, Erlends-
sonar, b. í Rjúpnaseli og víðar,
Ólafssonar. Móðir Jóns var Þuriður
Þórarinsdóttir frá Miðhúsum í
Alftaneshreppi Þorsteinssonar,
prests á Staðarhrauni.
Móðir Ásu Huldu var Dómhildur
Ásgrímsdóttir, steinsmiðs i Reykja-
vík, Gíslasonar, húsmanns á Skóg-
stjörn í Bessastaðahreppi, Ketils-
sonar. Móðir Ásgríms var Dómhild-
ur Eyjólfsdóttir frá Torfastöðum í
Grafningi. Móðir Dómhildar Ás-
grímsdóttur var Oddný Einarsdótt-
ir, b. á Eystri-Hóli, Jónssonar, og
Ingveldar Einarsdóttur frá Bryggj-
um í Vestur-Landeyjum.
Jón Erlendsson.
Garðar Sigjónsson
Garðar Sigjónsson,
fyrrv. sjómaður, útgerðar-
maður og hafnarvörður á
Höfn í Hornaflrði, nú til
heimilis að Hraunbæ 114,
Reykjavík, er áttræður I
dag.
Starfsferill
Garðar fæddist í Vest-
mannaeyjum en fluttist
þriggja ára að Flatey á
Mýrum í Austur-Skafta-
fellssýslu og ólst þar upp.
Hann flutti til Hafnar í
Hornafirði árið 1941 og átti þar
heima til 1987 er hann flutti til
Reykjavíkur.
Garðar lauk vélstjóraprófi frá
Vélskólanum í Vestmannaeyjum
1938 og prófi frá Stýrimannaskólan-
um í Reykjavík 1943.
Garðar stundaði síðan
lengst af sjómennsku og
útgerð frá Höfti. Hann
var hafnarvörður á Höfn
frá 1969-87.
Fjölskylda
Garðar kvæntist 30.10.
1943 Guðflnnu Bjarna-
dóttur, f. 23.12.1922, hús-
freyju frá Norðfirði.
Hún er dóttir Bjarna
Vilhelmssonar, sjó-
manns I Neskaupstað, f.
12.4. 1882, d. 4.10. 1942, og Guðrúnar
Halldórsdóttur frá Eyrarbakka, f.
7.6. 1891, d. 21.1. 1979.
Böm Garðars og Guðfinnu eru
Bjami Friðrik, f. 22.11.1944, sjómað-
ur á Höfn, kona hans er Þorgerður
Steinþórsdóttir húsfreyja frá Stykk-
ishólmi og eiga þau þrjú böm; Páll
Örvar, f. 18.12. 1947, veitingamaður,
kona hans er Anna Agnarsdóttir
sölumaður og eiga þau þrjú böm;
Stefán Rúnar, f. 20.6. 1954, starfsm-
aður hjá íslenskum sjávarafurðum
hf. í Reykjavík, kona hans er Sigríð-
ur Arnþórsdóttir húsfreyja frá
Reyðarflrði og eiga þau þrjú böm;
Steinar, f. 8.1.1966, rekstrarfræðing-
ur, unnusta hans er Ólafía Ingibjörg
Þorvaldsdóttir viðskiptafræðingur.
Systkini Garðars eru Þórunn, f.
26.2.1913, búsett í Vestmannaeyjum;
Bragi, f. 27.6. 1914, d. 25.9. 1985;
Tryggvi, f. 10.4. 1918, búsettur á
Höfn í Homafirði; Þórhallur, f. 11.5.
1919, d. 17.7. 1993; Friðrik, f. 1921, d.
1944; Halldór, f. 1922, d. 1930; Guðríð-
ur, f. 26.12. 1924, d. 31.8. 1987; Krist-
björg, f. 26.5. 1925, búsett í Reykja-
vík; Gústaf, f. 4.1. 1927, búsettur á
Selfossi; Guðmundur, f. 22.3. 1928,
búsettur í Vestmannaeyjum.
Fóstursystkini Garðars voru Guð-
ný Sigurbjörg, f. 8.10. 1903, d. 30.6.
1970; Steinunn Sigríður, f. 2.8. 1904,
d. 20.5. 1966; Lovísa, f. 1.8. 1905, vist-
maður á Hrafnistu í Hafnarfirði;
Sigurðm, f. 19.8. 1906, d. 30.9. 1982;
Guðjón, f. 11.8. 1912, d. 27.7.1996.
Fósturforeldrar Garðars voru Jón
Jónsson frá Brunnum, f. 31.10. 1875,
d. 2.9. 1940, bóndi í Flatey, og Guð-
rún Sigurðardóttir frá Flatey, f. 25.3.
1879, d. 11.3. 1966, húsfreyja.
Foreldrar Garðars voru Sigjón
Halldórssonar frá Stórabóli á Mýr-
um, sjómaður í Vestmannaeyjum, f.
31.7. 1888, d. 19.4. 1931, og Sigrún
Runólfsdóttir, ættuð undan Eyja-
fjöllum, f. 26.5. 1889, d. 11.8. 1991,
húsfreyja.
Garöar Sigjónsson.
Fréttir
Tilboðin
í Bónusi
Tilboð Bónusverslananna féllu nið-
m á neytendasíðunni sl. fimmtudag
og birtum við þau því hér á eftir. Þau
gilda til 24. október.
Frosted Cheerios, 570 g 249 kr.
Kornbrauð, 700 g 97 kr.
Formsteik, 250 g 98 kr.
Lambasnitsel 799 kr. kg
Nautapiparsteik 1.089 kr. kg
Bayonneskinka 698 kr. kg
Bónus hangiálegg 1.199 kr. kg
Aldan fersk ýsuflök 399 kr. kg
Bónus flatkökur 35 kr.
Appelsínur 89 kr. kg
Hunangsmelónur 69 kr. kg
Hversdagsís 275 kr. kg
Kit kat, 3 stk. 99 kr.
Bónus þvottaefni, 2 kg 297 kr.
Toblerone, 400 g 225 kr.
Frír bolur með kippu af 2 1 kók
Tveir Lotus bleiupakkar á verði
eins
Tveir kartöflupokar á verði eins
Frír kexpakki með 2 pk. af BKI
kaffi
Sérvara:
Kuldagalli f/fullorðna 3.559 kr.
Bamakuldagalli 2.997 kr.
Mjúkm, fóðraðm regngallil.699 kr.
Kökuform, 3 stk. 680 kr.
-ingo
Einnmunatíðísumaroghaust gerir mönnum kleift aö teygja heföbundin sumarverk fram eftir hausti. Þegar DV átti leið
um Akranesbæ í gær voru starfsmenn Akranesveitu í óöaönn aö steypa gangstéttir og börnin fylgdust spennt meö.
Sólin skein í heiöi og þaö var engu líkara en hásumar væri skolliö á. rt/ DV-mynd Pjetur
Tll hamingju
með afmælið
18. október
90 ára
Oddný Jónsdóttir,
Hombrekku, Ólafsfirði.
80 ára
Ráðhildur
Jónsdóttir,
Hlíðar-
hvammi 11,
Kópavogi.
Eiginmaður
hennar var
Sigurður
Gunnlaugs-
son sem lést 1988.
Hún tekm á móti gestum i
Samkomuhúsinu Garðaholti,
Álftanesi, í dag kl. 17.00-20.00.
75 ára
Inga Bjömsdóttir,
Skaftahlíð 26, Reykjavík.
Hún er að heiman.
Sigríður G. Kristjánsdóttir,
Sólhaga, Vatnsleysustrandar-
hreppi.
70 ára
Kristbjörn Jóhannsson,
Tunguseli, Þórshafnarhreppi.
Svanfríður Steinsdóttir,
Hólavegi 5, Sauðárkróki.
Jónína Lilja Waagfjörð,
Rauðalæk 25, Reykjavík.
60 ára
Gylfí Már Guðbergsson,
prófessor í landafræði við HÍ,
Hávallagötu 29, Reykjavík.
Kona hans er Vigdís Sigurðar-
dóttir talsímavörðm.
Hann er að heiman á afmælis-
daginn.
Grétar V. Pálsson,
Stafnesvegi 3, Sandgerði.
50 ára
Víðir Tómasson,
Háseylu 33, Njarðvík.
Sigurður Sigurbjamason,
Jörfabakka 28, Reykjavík.
Halldóra Kristinsdóttir,
Amartanga 2, Mosfellsbæ.
Ágúst G. Kristinsson,
Skiphoiti, Vatnsleysustrand-
arhreppi.
Ari Jónsson,
Sjávargötu 25, Bessastaða-
hreppi.
Flemming Jessen,
Varmalandsskóla, Borgar-
byggð.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Þrastarlundi 11, Garðabæ.
Jóhann Már Jóhannsson,
Brúarási 2, Reykjavík.
Áslaug Hringsdóttir,
Barrholti 31, Mosfellsbæ.
Sigþór Þorgrimsson,
Búastöðum, Vopnafirði.
Sveinn Leósson,
Framnesvegi 63, Reykjavík.
40 ára
Þóra Vigdís Guðmundsdóttir,
Engihjalla 23, Kópavogi.
Bryndís Olgeirsdóttir,
Kambhóli, Amarneshreppi.
Júlíus Þór Júlíusson,
Kirkjuteigi 27, Reykjavik.
Þórir Kjartansson,
Bergstaðastræti 27, Reykjavík.
Jenný Lind Grétudóttir,
Egilsgötu 30, Reykjavík.