Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Side 24
36 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 Súld, skúrir og rigning Mafía sem erfitt er að eiga við „Þetta er bara mafía sem erfitt er við að eiga og vill að núver- andi meirihlutasamstarf haldi áfram." Magnús Hafsteinsson krati um aðra krata í Hafnarfirði, í DV. íslensk uppfinning „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ailtaf verið merkilegur flokkur. Hann er íslensk uppfinning og hefúr ekki látið hugmyndafræði- lega strauma erlendis frá þvæl- ast mikið fyrir sér.“ Ágúst Einarsson alþingismað- ur, i Alþýðublaðinu. Erfittlíf „Ef maður dansar af frelsi og innlifún halda allir að maður sé fullur." Erna Jóhannesdóttir flæöi- danskennari, í Degi-Tímanum. Ummæli Einn sem kann að tala „Eini útvarpsmaðurinn sem mér finnst tala skýrt í dag er Gunnar Stefánsson frá Dalvík sem stundum flytur ýmis er- indi.“ Krístin Hallgrímsdóttir, 104 ára, í Degi-Tímanum. Löng bið fram undan „Það er hætt við að biðin hjá konunum í Sjálfstæðisflokknum verði löng ef þær ætla að bíða eftir að forystumennimir, sem nú eru á besta aldri, víki sæti fyrir þeim.“ Bryndís Hlöðversdóttír alþing- ismaður, í Alþýðublaðinu. Sjónskerpa Augað í manninum býr yfir miklum hæfileikum og getur mannsaugað til að mynda skynj- að afstöðu með mikilli ná- kvæmni svo að ekki skeikar meira en 3 til 5 bogasekúndum. í apríl 1984 greindi dr. Dennis M. Levi í sjónmælingadeild háskól- ans í Houstin örmjóa hvíta línu hvað eftir annað, þótt hún væri aðeins 0,85 bogasekúndur. Það samsvarar því að sjá um 6 mm bil í 1,6 km fjarlægð. Blessuð veröldin Litnæmi augans Við bestu sjónskilyrði getur maðurinn aðgreint 10.000.000 mismunandi liti með því að beina báðum augum að stórum leitarfleti við góða lýsingu. Ná- kvæmustu rafeindalitrófsmælar hafa ekki nema um það bil 40% af þessari nákvæmni. 7,5% karl- ar og 0,1% kvenna eru litblind. Hæsta stig litblindu er að sjá að- eins einn lit og er það mjög sjald- gæft. Rauðgræn litblinda hefúr hvergi mælst algengari en í Tékklandi en sjaldgæfúst grein- ist hún hjá íbúum Fijieyja og indíánum í Brasilíu. . Dýrt hár Það hefúr komið fyrir að hár- lokkar af frægu fólki hafa farið á uppboð. Dýrasti lokkurinn varð til þegar bóksali einn á Englandi greiddi 5500 pund eða rúmar 550 þúsund krónur fyrir hárlokk af höfði Nelsons lávarðar á uppboði árið 1988. Um 300 km suður af Homafirði er 980 mb lægð sem þokast vestur. Vaxandi 975 mb lægð um 500 km norðvestur af írlandi hreyfist norð- ur og síðar norðvestur. Veðrið í dag í dag verður austan- og norðaust- anátt, víðast kaldi eða stinnings- kaldi. Rigning eða skúrir verða á Suðaustur- og Austurlandi, súld eða smáskúrir á Norðurlandi og norðan til á Vestfiörðum en skýjað með köflum á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti 3 til 9 stig. Á höfúðborgarsvæðinu verður norðaustankaldi og skýjað með köfl- um. Hiti 3 til 8 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.57 Sólarupprás á morgun: 08.31 Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.30 Árdegisflóð á morgun: 11.05 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 6 Akurnes rigning 8 Bergstaðir skýjaö 6 Bolungarvík rigning og súld 5 Egilssíaðir skýjað 6 Keflavíkurflugv. skýjað 6 Kirkjubkl. skýjað 6 Raufarhöfn rigning 6 Reykjavík hálfskýjað 5 Stórhöfði léttskýjað 7 Helsinki þokumóða 6 Kaupmannah. þokuruöningur 7 Ósló skýjaö 9 Stokkhólmur rigning 10 Þórshöfn alskýjaó 10 Amsterdam þokumóða 7 Barcelona léttskýjað 10 Chicago skýjað 8 Frankfurt þokumóóa 8 Glasgow rigning á síð. kls. 10 Hamborg lágþoka 8 London skýjaö 12 Los Angeles þokumóða 17 Madrid alskýjað 13 Malaga hálfskýjað 20 Mallorca þokumóða 10 París lágþokublettir 4 Róm þokumóða 13 Valencia skýjaó 18 New York þokumóða 16 Nuuk heiðskírt -5 Vin rign. á síö. kls. 10 Washington alskýjað 18 Winnipeg léttskýjaó 3 Hákon Aðalsteinsson, skógarbóndi og hagyrðingur: Sögur og vísur af samferðafólki Hinn landskunni hagyrðingur og húmoristi, Hákon Aðalsteins- son, skógarbóndi á Héraði, bregð- ur undir sig betri fætinum í kvöld og arkar upp á svið í Súlnasal Hót- el Sögu ásamt fríðu liði að austan og flytur borgarbúum dagskrána Kveðið i kútinn. Þeir sem aðstoða Hákon í flutningnum er Dans- hljómsveit Friðriks Jóhannssonar ásamt Guðlaugi Sæbjömssyni og Stefáni Bragasyni og mun hljóm- sveitin halda uppi austfirskri stemningu á dansleik fram á nótt. Maður dagsins Hákon, sem er þekktur sögumaður og kvæðamaður, segir frá sjálfúm sér og samferðamönnum á sinn hátt og inn á milli verða fluttar gamanvísur. Hákon var í stuttu spjalli spurður hvemig það hefði komið til að hann fór af stað með Kveðið í kútinn: „Það var nú eiginlega Friðjón Jóhannsson sem er upphafsmað- urinn að þessu, en hann er með hljómsveit héma fyrir austan, það var síðan smalað í hóp sem sam- anstendur af nokkrum mönnum, Hákon Aöalsteinsson. sveitartjórum og fjármálastjórum, svo eitthvað sé nefnt, en allir eiga þeir það sameiginlegt að vera góð- ir hljóðfæraleikarar og söngmenn. Dagskráin samanstendur af text- um sem ég hef samið við hin og þessi tækifæri, gríntextar og gam- antextar við lög sem flestir þekkja. Þessi dagskrá er búin að vera í gangi hér fyrir austan í nokkum tíma. Við fórum með hana á firð- ina siðastliðinn vetur og var okk- ur mjög vel tekið, fólki fannst þetta öðmvísi skemmtun. Nú á eitthvað að taka upp þráðinn aftur og auk þess að vera á Hótel Sögu í kvöld, þá verðum við í Miðgarði í Skagafirði á laugardagskvöld." Hákon sagði að þessir textar hans hefðu orðið til við ýmis tæki- færi: „Ég hef verið að semja þessa texta mér til skemmtunar fyrir árshátíðir og ýmis mannamót og með ámnum hefúr safiiast í sarp- inn, þannig að það er af nokkra efiii að taka.“ Hákon Aðalsteinsson býr á Brekkugerðishúsum á Héraði þar sem hann stundar skógarbúskap: „Við erum búnir að setja niður 200.000 plöntur á síðustu fjórum árum og þetta lítur ágætlega út. Það virðist vera mjög hagstætt að rækta skóg í Fljótsdalnum enda má segja að við búum við snert- ingu af meginlandsloftslagi. Ég er beint á móti Hallormsstaðrskógi þannig að reynslan er fyrir hendi í skógræktinni. Við erum hér mest með rússalerki, síðan greni, björk og fúra í bland. Það verður haldið áfram að gróðursetja fram til 2002 en þá á samkvæmt áætlun að vera búið að gróðursetja í þetta land- svasði." -HK Samþykkir Myndgátan hér aö ofan lýsir lýsingarorði Erlendir leikmenn setja mikinn svip á meistaradeildina í körfu- bolta eins og undanfarin ár. Valur hefur þátttöku í Evrópukeppni meistaraliða íslandsmeistarar Vals í hand- bolta heíja í kvöld þátttöku í Evrópukeppni meistaraliða og í 1. umferð leika þeir gegn úkra- ínska liðinu Dowetsk og er leik- ið á útivelli. Það hefúr komiö i ljós að Valsliðið er ekki eins sterkt og í fyrra enda máttar- stólpar horfiiir á braut og verður því róðurinn erfiður á móti sterku liði Úkraínu. íþróttir í kvöld fara fram fjórir leikir í meistaradeildinni í körfúbolta. Á Akureyri leika Þór og ÍR, ís- firðingamir í KFÍ taka á móti Skallagrími, í Kópavoginum leika Breiðablik og Tindastófl og í Stykkishólmi leika Snæfell og Keflavík. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00. Bridge Norður hefði vel getað látið sér nægja að spila úttekt eftir tveggja granda opnun félaga en hann ákvað að fara alla leiö í slemmu. Sagnhafi varð síðan að réttlæta sagnhörku fé- laga með góðri spilamennsku. Suð- ur gjafari og allir á hættu: * DG * KG1097 * 7 * 98762 4 532 Á86 ♦ KDG98 * 103 * ÁK96 * D5 * Á5432 * ÁK Suður Vestur 2 grönd pass 3 » pass 5 * pass Norður Austur 3 * pass 4 grönd pass 6 •* p/h Útspil vesturs var tígulkóngur sem sagnhafi drap á ás, tók tvo hæstu í laufi og trompaði tígul. Síð- an var lauf trompað með hjarta- drottningu og vestur henti spaða. Sagnhafi spilaði síðan trompum og tólf slagir vora nú sjáanlegir. Vandamálið var hins vegar það að innkomur vantaði á suðurhöndina. Vestur gaf einu sinni áður en hann drap á hjartaás. Staðan var nú þessi: * DG * G10 * — 4 98 « 53 8 ♦ DG9 * — * ÁK96 N V A S * ÍUBM » 4 ♦ — * D ♦ 54 * -- Vestur spilaði tíguldrottningu og sagnhafi trompaði. Austur var í vandræðum, mátti hvorki missa lauf né spaða og henti því trompinu. En það frestaði aðeins vandaméflinu því þegar síðasta trompinu var spil- að varð austur að gefa eftir valdið í öðram hvoram litanna. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.