Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Qupperneq 28
Témfiááanr
u 1. vinningur
Vertu viSbúin(n) vinningi
(Í9)^7) (28)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sóiarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
^ Helgarblað DV:
Eg var rekin
Opnuviðtal DV á morgun er við
Elínu Hirst, fyrrverandi fréttastjóra
Stöðvar 2, en hún var rekin úr
fréttastjórastólnum án þess að at-
hugasemdir hefðu verið gerðar við
hennar störf. Elín segir alla söguna
á bak við brottreksturinn.
Fjallað er um fikniefnavandann
og rætt við tvær mæður barna í
fíkniefnaneyslu og unglingsstúlku
sem hefur náð sér upp úr neyslunni
og lifir nú fyrir einn dag í einu.
Trimmsíðan er á sínum stað auk
fréttaskýringa og unglingaefnis.
-GHS
Össur Skarphéöinsson um formannsslaginn:
Hverfandi líkur
á að ég gefi
kost á mér
„Enda þótt fólk hafl komið að
máli við mig og mælst til þess að
ég gefi kost á mér til formennsku
í Alþýðuflokknum tel ég hverfandi
líkur á að svo verði,“ sagði Össur
Skarphéðinsson alþingismaður í
samtali við DV í gær.
Hann var þá spurður hvort
hann gæfi kost á sér til varafor-
mennsku. Sagðist hann ekki einu
sinni hafa leitt hugann að því,
taldi það raunar af og frá.
Guðmundur Oddsson, kratafor-
ingi í Kópavogi, sagði við DV vera
að vona að Jón Baldvin Hannib-
alsson hætti við að hætta.
„Við megum alls ekki við því að
missa Jón Baldvin og ég leyfi mér
enn að vona að hann hætti- ekki,“
sagöi Guðmundur.
Eftir að DV skýrði frá því að
Jón ætlaði að hætta og að fjórir
þingmenn væru í startholunum að
fara í formannsslag, hafa margir
kratar tekið við sér og viija leggja
að Jóni Baldvin að hætta ekki.
Enda þótt Jón Baldvin styðji
Sighvat Björgvinsson til for-
mennsku í flokknum telja margir
að það dugi ekki til að komast hjá
miklum átökum við formanns-
kjörið.
Kratar á Reykjanesi, sem DV
hefur rætt við, benda á að nú séu
kratar orðnir fáliðaðir á Vestfjörð-
um, kjördæmi Sighvats. Aftur á
móti sé Reykjanesið orðið aðal-
kratasvæði landsins. Og ef báðir
þingmenn flokksins í Reykjanesi,
Rannveig Guðmundsdóttir og
Guðmundur Árni, fari í framboð
geti það orðið flokknum hættulegt
í kjördæminu.
Samt sem áður telja meim litlar
líkur á því að krötum takist að
telja Jóni Baldvin hughvarf.
-S.dór
Sláturhússball á
Akureyri:
Ölvun og
átök um
allan bæinn
DV, Akureyri:
Mjög mikil ölvun var á Akureyri
í gærkvöld og í nótt og sagði varð-
stjóri lögreglunnar i morgun að lög-
reglumenn sem voru á vakt hefðu
sagt meira hefði verið að gera en
um „venjulega" helgi.
Lögreglan hafði ekki vitneskju
um að svokallað „sláturhússball"
var haldið í gærkvöld, en það er
jafnan haldið er sláturtíð lýkur, né
að dansleikur var í Sjallanum.
Þessu hefði fylgt mikil ölvun víðs
vegar í bænum og ónæði vegna
átaka þar sem tveir menn voru
fluttir á slysadeild. Allt fram á
morgun þurfti lögreglan að hafa af-
skipti af mönnum sem ýmist lágu
„dauðir“ vegna drykkju eða voru að
valda sofandi íbúum ónæði.
Lögreglan haföi þó tíma til að
heimsækja 21 aðila sem ekki hafði
greitt bifreiðagjöld sín, og voru
númer klippt af bifreiðum þeirra í
nótt. -gk
Sprenging
við Snæ-
landsskóla
Sprengja sprakk i ruslatunnu við
Snælandsskóla í gærkvöld. Sprengj-
an tætti í sundur ruslatunnuna en
engar skemmdir urðu á skólahús-
inu. Mikill hávaði fylgdi sprenging-
unni og heyrðist hann á stóru svæði
í Kópavogi.
Að sögn lögreglu er ekki vitað ná-
- "fvæmlega hvemig sprengja þessi
var samansett en hún mun ekki
hafa verið mjög öflug þó hún ylli
miklum hávaða. Lögregla varð ekki
vör við neinar mannaferðir við
skólann eftir sprenginguna.
Lögreglan sagðist ekki vita á
þessari stundu hvort þetta tengdist
gengjaslag sem staðið hefur yfir
milli ólátaseggja úr Reykjavík og
Kópavogi sem hafa viljað tengja sig
við Snælandsskóla og Réttarholts-
skóla. Eins og fram kom í DV í gær
var saminn friður milli nemenda
þessara skóla, en engu að síður var
frestað skólaballi sem vera átti í
Réttarholtsskóla í gærkvöld. Nem-
endur og stjómendur skólanna hafa
'i' dofkst því yfir að ólæti milli unglinga
tengist á engan hátt skólunum
tveimur. -RR
Þeir félagar, Símon Símonarson skipstjóri og félagar hans á Enok AK, voru að koma úr netaróðri þegar DV átti leið um Akranes í gær. Þeir voru með um eitt
og hálft tonn af þorski eftir daginn en lítið af ýsu. Þeir segja erfitt að ná ýsunni og það vanti alveg stærsta þorskinn í aflann. Þeir segja búið að drepa hrauna-
drjólann eins og þeir kalla stórþorskinn. DV-mynd Pjetur
' ÞETTA HEFUR ÞA
VERIÐ ^ANNKALLAÐ
SLATURBALL!
Veðrið á morgun:
Rigning á
Vestfjöröum
Á morgun verður norðaustan
stinningskaldi og rigning á
Vestfjörðum en annars breyti-
leg átt, gola eða kaldi og skúrir.
Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig,
hlýjast suðaustan til.
Veðrið í dag er á bls. 36
1
533-lOOOJ
Kvöld- og
helgarþjónusta
Með bíOther er
auðvelt að merkja myndirnar i
ISfíSíg* fjölskyldualbúminu
■ brother
f y y Verð frd kr. 6.995
RAFPORT
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443