Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1996, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1996, Síða 3
JLlV FÖSTUDAGUR 25. október 1996 Hörður Torfa & Allir yndislegu mennimir - Kossinn: Innilegur koss Hörður Torfason lætur ekki fara frá sér plötu fyrr en búið er að pússa og fága lög, texta, útsetningar og allt annað þannig að það sé hlustandanum full- boðlegt. Kossinn, hans nýj- asta, ber þessa merki. Lög- in hæfa textunum einstak- lega vel og öfúgt. Sumt einfalt og létt, annað þyngra og flóknara, sér í lagi þegar Hörður yrkir um málefni sem hann ber fyrir brjósti. Englaakur, eitt besta lag Kossins, er dæmi um það. Hörður hefur verið heppinn þegar hann valdi sér samverka- menn við plötuupptökuna að þessu sinni. Fumlausir og öruggir renna þeir gegnum lögin og eiga drjúgan þátt í að skapa eina bestu plötu Harðar síðan hann sendi frá sér Hugflæði fyrir tæp- um áratug. Sums staðar eru þeir lítið eitt djassaðir, annars stað- ar bregða þeir fyrir sig öðrum stiltegundum en eru aldrei of eða van. Ef mér væri skipað að nefha einhvem einn úr hljóðfæraleik- araflokknum sem stendur öðrum framar væri það Hjörtur Howser, hljómborðsleikari og stjómandi upptöku. Honum tekst sérstaklega vel upp í lokalaginu Ég er. Það er gaman að renna yfir Kossinn. Hörður er söngtextaskáld / gott. Á einum eða tveimur stöðum setti maður reyndar spum- ingu við rímorðin sem hann valdi en að öðm leyti var allt í stakasta lagi. Gaman væri að lesa ljóð eftir Hörð þar sem hann er óbundinn af því að koma því þannig fyrir að það falli að lagi. Ásgeir Tómasson Ýmsir - Nesrokk: Austanhljómar Þótt flóra poppsins liggi sunnan heiða þá er úti um allt land ungt fólk í sömu hugleið- ingum og meðbræður þeirra fyrir sunnan, að stofna hljóm- sveit, semja lög og koma afurð- inni á plötu. Neskaupstaður er engin undantekning og stend- ur tónlistarlífið hjá ungu fólki þar með miklum blóma. Þeir sem standa að Nesrokki, nýrri plötu sem innheldur hrein- ræktað austfirskt popp, segja að með þessari útgáfu sé gam- ali draumur að rætast hjá mörgum. Það er samt ekki sama draumur og veruleiki. Blákaldur veru- leikinn er sá að á Nesrokki eru æði misgóð lög og sum hefðu mátt lenda í glatkistunni. Nesrokk inniheldur tíu lög og það besta á henni er vel frambærilegt léttrokk. Meirihlutinn er þó einfold og keimlík hljómaröðun, sem gerir lögin stundum lík hvert öðru, fyrir utan það að oft er eins og maður hafi það á tilfmningunni að þetta hafi verið gert áður. Draumamir, Norö- fjörðurinn, Snjóflóðalagið og Memories eru eru ágætlega samin lög og eru tvímælalaust þau bestu á plötunni. Önnur lög eru best gleymd og þar er ekki- undaskilið Neistaflugslag ’96 sem er virkilega slæmur endir á plötunni. Flutningur er ágætur. Aðalsöngvarinn á Nesrokki, Einar Ágúst Víðis- son, hefur góða rödd í þessa tónlist og á skOið að fá fleiri tækifæri. Hljóð- færaleikur er einnig í lagi, en geldur þess nokkuð að upptaka er slök í einstaka lögum, stundum er eins og trommumar séu aðalatriðið. Þeir Nesmenn segja að framhald sé á útgáfu í þessum anda og sumt á Nes- rokki gefúr ástæðu tU að það sé gert. En þaö er list að kunna að velja og hafha og sjálfsgagnrýni sakar ekki þegar tU lengri tíma er litið og fyrir aUa muni, sleppa enskunni. Hilmar Karlsson Barbara Dennerlein - Take ofh Heit og fín +rk+rk Nýlega hóf göngu sína í sjón- varpinu þýsk þáttaröð er nefh- ist Félagar. Fyrir utan mjög órólega myndatöku vekur helst athygli hve ágæt tónlistin í þeim er. Heiðurinn af því á þýsk kona, sem telst nú vera heimsins „heitasti" Hammond- orgelleikari. Barbara Denn- erlein hóf að leika á Hammond- orgel sem afi hennar gaf henni er hún var 11 ára. Fimm ámm síðar var hún farin að leika á djassklúbbum í Múnchen. Take off er heit og fin orgelplata með fuUt af ágætum frumsömdum lögum. Þar má fmna fönk, latin, bop, blús og „venjulegan” djass. Stjömufans bandarískra hljóðfæraleikara er á plöt- unni. Trommari er Dennis Chambers, Don AUas sér um slagverk og fram koma trompetleikarinn Roy Hargrove og básúnuleikarinn Ray Anderson og Lonnie Plaxico á bassa. Það skiptir ekki máli hvort Barbara spUar með höndunum eingöngu eða fótunum, spUamennskan er aUtaf stórskemmti- leg. Gagnrýnenendur tímaritsins Down Beat völdu Barböm í fimmta sæti yfir bestu oprgeUeikara heims í ár og í fyrsta sæti yfir hæfileikafólk í org- elstólnum sem verðskuldaði meiri athygli. VirkUega fin plata. Ingvi Þór Kormáksson K- Ö B ó U R 7 0 F* íf/3 Sheryl Crow hristir upp í liðinu Sheryl Crow kom fram á sjónvar- sviðið fyrir tveimur árum með plötu sinni, Tuesday Night Music Club. Þótt hún teldist nýliði i tón- listinni lét hún sig ekki muna um að stjórna upptöku plötunnar sjálf. ÖU vinna, lagasmíðar, hljóðvers- vinnsla og annað, bar þann árangur að hún vann tU Grammyverðlauna fyrir plötuna. Nokkur lög af henni slógu einnig í gegn, sér í lagi AU I Wanna Do. Nú er ætlunin að endurtaka leik- inn. Platan Sheryl Crow er tUtölu- lega nýkomin út og sem fyrr fær listakonan sjálf fuUt frelsi tU að ganga frá plötunni sinni eins og henni þykir henta. Lagið If It Makes You Happy hefur látið hressUega tU sín taka á vinsældalistum að und- anförnu og Everyday Is a Winding Road og Hard to Make a Stand er ætlað að gera hið sama þegar fram líða stundir. Létt rokktónlist Sheryl Crow hef- ur faUið í kramið. Textar laganna eru sumir hveijir frábrugðnir því sem ber fyrir eyrun þegar dægur- tónlist er annars vegar. Á nýju plöt- unni syngur Sheryl tU dæmis um fjöldamorðin í Bosníu og fræg er deUa hennar við verslanakeðjuna Wal Mart í Bandaríkjunum. Hún stafar af því að Sheryl varar banda- ríska foreldra við því að börnin þeirra séu að drepa hvert annað með byssum sem þau keyptu í ein- hverri af búðum Wal Mart. Þetta varð tU þess að forráðamenn keðj- unnar bönnuðu að platan Sheryl Crow yrði höfð til sölu í búðum sín- um sem eru á þriðja þúsund talsins. Þeir harðneita að þeir selji börnum skotvopn þrátt fyrir að MTV-sjón- varpsstöðin hafi sýnt myndband þar sem strákhnokki gekk inn í Wal Mart-verslun og keypti sér byssu. „Það sem ég syng um á nýju plöt- unni er einfaldlega eitt og annað sem ég hef séð og heyrt síðustu tvö tU þrjú ár,“ segir listakonan í ný- legu blaðaviðtali. „Mig langaði tU að leyfa áheyrendum að vita um hvað ég var að hugsa og hvemig mér leið einmitt á þeirri stundu sem ég var að vinna að plötunni. Sú var raunin með fyrri plötuna og þegar ég geri þá þriðju ætla ég að beita nákvæmlega sömu aðferð- inni.“ Hún segir það bjargfasta skoðun sína að textasmiðir þurfi ekki að semja texta sem öllum falla í geð. „Ég veit að fjölda fólks gremst það sem ég birti á nýju plötunni minni - þar á meðal foreldrum mínum. Það verður bara að hafa þaö. Ég finn að með aldrinum þarf ég að kafa meira ofan I yrkisefnin en ég gerði áður - láta bullið sem flýtur á yfirborðinu eiga sig en ná í kjam- ann og koma honum á framfæri.” Sheryl Crow lét sér ekki ein- göngu nægja að semja lögin og text- ana á nýju plötunni sinni og stýra gerð hennar. Hún lék einnig á raf- magnaða- og órafmagnaða gítara, bassa og hljómborð, þar á meðal Hammondorgel, sem hún segir reyndar að sé búin að vera eftirlæt- isgræjan sín síðan hún var fimmtán ára. Platan var hljóðrituð í hljóð- veri Daniels Lanois í New Orleans og þar var Sheryl svo heppin að finna Trinu Shoemaker sem hún réð sem upptökumann. „Þetta var draumastaðan - að geta ráðið kvenkyns upptöku- mann,“ segir Sheryl Crow og hlær. „Við rákumst nánast hvor á aöra, ég bauð henni að vinna með mér og við náðum ákaflega vel saman. Ég mæli með því að konur fái sér kven- kyns upptökumenn. Það skilaði að minnsta kosti prýðilegri samvinnu í mínu tilfelli." Samantekt: Ásgeir Tómasson Sheryl Crow: Bulliö sem flýtur á yfirboröinu fær ekki inni í textum hennar Stefán Hilmarss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.